English 

Andspyrna stendur fyrir vikulegum kvikmyndasýningum, þar sem boðið er upp á róttækar kvikmyndir um grasrótarpólítík, aktívisma og andspyrnu. Sýningarnar fara fram á hverjum Miðvikudegi kl. 20:00 á Kaffi Hljómalind, Laugarvegi 23.

Miðvikudaginn 12. mars verða sýnd myndin A Place Called Chiapas. Myndin fjallar um baráttu Frelsishreyfingar Zapatista (EZLN) í Mexíkó og farið er yfir sögu hennar, tilgang og aðgerðir, en kaffið sem selt er á Hljómalind er einmitt Zapatista kaffi og er selt til stuðnings hreyfingarinnar.

Eftir á verður spjall og auðvitað boðið upp á Zapatista kaffi.

Hefst kl. 20:00 og að sjálfsögðu er enginn aðgangseyrir.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in