Kaffi Hljómalind opnar í nýju húsnæði á Laugarvegi 23. Hljómalind sker sig út úr á margan hátt m.a. fyrir að vera samvinnurekið fyrirtæki, þar sem starfsmenn þess taka sameiginlegar ákvarðanir um reksturinn á fundum. Hljómalind er ekki rekið með hagnað í huga heldur einungis til að hafa jákvæð áhrif á samfélagið.
Hljómalind selur einungis jurtafæði og leggur upp úr því að bjóða uppeinungis á lífrænt ræktaðar vörur, sem fer betur með jörðina og matinn sjálfan. Einnig er reynt að selja einungis vörur sem vottaðar eru fair trade (sanngjarnir viðskiptahættir) en þá er séð til þess að þeir sem raunverulega framleiða vöruna fái sanngjarnt verð fyrir verk sitt.
Það sem gerir Hljómalind svo að einstöku kaffihúsi er kaffið þar; Zapatista kaffi sem framleitt er af innfæddum kaffibændum frá Chiapas héraðinu í Mexíkó. Kaup á kaffibolla í Hljómalind er því í leið stuðningur við Frelsishreyfingu Zapatista (EZLN).
Með nýju og betri húsnæði mun starfsemi kaffihússins einnig útvíkka og taka á sér mynd einhvers konar félagsmiðstöðvar (social center). Bókasafn Andspyrnu flyst þangað og hluti hússins er fjölnota salur sem notaður verður fyrir kvikmyndasýningar, jóga, fyrirlestra, fundi og aðra grasrótarstarfsemi. Einn af þeim viðburðum sem þegar er búið að bóka er Andspyrnubíó sem verður starfrækt á hverjum miðvikudegi frá og með þeim 12. mars.
Á opnunarkvöldinu munu m.a. koma fram hljómsveitirnar Hjálmar, Retro Stefson, Lay Low, Sometime og fleiri. Einnig má búast við stuttum kynningum á ýmsu tengdu kaffihúsinu t.d. Frelsishreyfingu Zapatista.
Þetta er allt gott og blessað og ég hlakka til opnunarinnar, en er ekki komið árið 2008?
Jújú… smá mistök í dagatalsgerð…
Verður kippt í lag – strax í dag!