Samtökin International Rivers stendur á ári hverju fyrir Alþjóðum Aðgerðadegi fyrir Ár. Um allan heim standa einstaklingar og samtök fyrir uppákomum, mótmælum og beinum aðgerðum til að benda á nauðsyn þess að ár fái að vera í friði og hversu skaðleg hnattræn áhrif stórstíflur hafa.
Í ár varð föstudagurinn 14. mars fyrir valinu og í Reykjavík verður sitthvað í gangi. M.a. mun umhverfishreyfingin Saving Iceland standa fyrir kvikmyndasýningu á Kaffi Hljómalind, Laugarvegi 23.
Sýnd verða mörg stutt myndbrot sem tengast deginum og baráttunni fyrir verndum fljóta. Vonast er til þess að myndirnar leiði til umræðna og frekari aðgerða.
Kvöldið hefst kl. 20:00 og að sjálfsögðu er frítt inn.
Nánar um daginn hér…