English 

Grænt og gott

Á vefsíðu Alcoa á Íslandi birtist nýlega þessi frétt um einstaka góðvild fyrirtækisins. M.a. segir:

Þekkingarsetrið á Egilsstöðum ehf. hefur fengið 10 milljón króna styrk frá Alcoa Foundation til að undirbúa meistaranám á sviði umhverfis- og þjóðgarðastjórnunar.

Þekkingarsetrið á Egilsstöðum ehf. mun beita sér fyrir því að staðbundið háskólanám á Austurlandi hefjist árið 2009. Námið verður á sviði umhverfis- og þjóðgarðastjórnunar. Markmiðið er að kennsla fari fram á Austurlandi og byggi á sérstæðu náttúru Austurlands og auðveldu aðgengi að jöklum, öræfum, eldgosasvæðum og skóglendi. Einnig verður Vatnajökulsþjóðgarður vettvangur rannsókna á sviði stjórnunar og náttúru.

Áhugavert ekki satt?

Námið verður byggt á sérstæðri náttúru Austurlands (úbbs… er sandur og möl eitthvað sérstætt?) og þá líklega einblínt á hvernig auðveldast er að drekkja stóru svæði af henni án þess að lenda í nokkurri mótspyrnu. Einnig verður lögð áhersla að hvernig hægt er að eyðileggja híbýli örfárra hreindýra, refa og fugla sem eru hvort sem er ekki menn og skipta því ekki máli og svo geta gæsirnar bara flogið til Grænlands. Líklegast verður eitthvað farið út í hvernig má láta ljóta fossa og asnaleg græn svæði hverfa (þó auðvitað sé ekkert svoleiðis þarna fyrir austan).

Mest áhersla verður samt auðvitað lögð á hvernig hægt er að snúa út úr þessu öllu saman, reisa íþróttahallir, halda stórtónleika og láta fólk sleikja á sér rassgatið.

Þetta er nám sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Einn á báti:
  1. Brandur segir, þann :

    Þessi titill “Alcoa – Eitthvað grænt og gott” ertir einhverja hláturstaug í manni, eins og reyndar margt fleira á þessar ágætu vefsíðu!

    Þegar Erna Indriðadóttir talsmaður Alcoa á Íslandi var spurð af RÚV sumarið 2006 út í fullyrðingar Saving Iceland um að ALCOA væru margdæmdir fyrir glæpi gegn umhverfinu gat hún ekki neitað því, en bætti svo við að það væri ekkert skrítið því ALCOA væri svo “gamall auðhringur” og auðvitað hefðu safnast saman nokkur svona óþægileg mál á þessum eitthvað hundrað árum….

    Það var dæmigert um smeðjulega þjónkun íslenskra fjölmiðla þegar kemur að fréttaflutningi um stórfyrirtæki á borð við ALCOA að Ernu var sleppt við að vera spurð frekar út í það að Saving Iceland voru ekki að tala um síðustu hundrað árin, heldur síðustu tíu árin.

    Fréttamanninum fannst hann greinilega vera búinn að sýna nógu mikla dirfsku með fyrri spurningunni og það væri óþarfi að véfengja svar Ernu með því að núa henni um nasir með staðreyndum sem stönguðust á við staðhæfingu hennar.

    Kannski var þessi fréttamaður minnugur ógnandi svars Halldórs Blöndal þegar hann var spurður óþægilegrar spurningar í beinni um hneykslið í kringum eftirlauna frumvarðið hér um árið:
    “Finnst þér þetta smekkleg spurning, væni?”

    Sjálfsritskoðun er langþægilegust fyrir alla í gervilýðræði eins og okkar.

    En lítum aðeins á hvað Saving Iceland voru að tala um:

    ALCOA’S Alarming record on Pollution
    http://www.savingiceland.org/node/405

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in