English 

Í fyrradag, 15.apr. gerði hópur sem kallar sig ‘enginn er ólöglegur’ eða á frummálinu ‘Ingen människa är illegal’ tilraun til að stöðva brottvísun hins 23 ára Jamil Mohammed Burhan frá Svíþjóð. Mótmælendurnir, eða aðgerðarsinnarnir, reyndu að stöðva flugtak vélarinnar sem átti að flytja Jamil úr landi. Níu manns voru handteknir, þar af sex við að klifra yfir flugvallargirðinguna en hinir þrír eftir kómískan eltingaleik á flugbrautinni þar sem jeppar voru notaðir til að ‘hlaupa’ aktívistana uppi. Jamil Mohammed Burhan er fæddur og uppalinn í Sádi Arabíu en foreldrar hans, sem fæddir eru í Erítrea, og öll hans fjölskylda búa þar enn. Það er ekki vitað hvaða, ef nokkurn, ríkisborgararétt hann hefur en hann hefur ekki rétt á að snúa aftur til Sádi Arabíu. Hann kom fyrst til Svíþjóðar í ágúst 2002 og sótti um hæli. Umsókn hans var hafnað í desember 2003, áfrýjun þess úrskurðar var svo hafnað 27.okt. 2004 á þeirri forsendu að hann hefði aldrei komið til Erítrea og þyrfti þess vegna ekki að óttast stjórnvöld þar. UN High Commissioner for Refugees (UNHCR) mælir gegn að nokkur ríkisstjórn sendi hælisleitendur frá Erítrea aftur til baka þar sem þeir eiga hættu á að vera haldið incommunicado og pyntaðir þar sem hælisumsóknir eru álitnar landráð. Í besta falli verður hann settur í lífstíðar herþjónustu- versta falli pyntaður til dauða. Amnesty hefur einnig lagst harðlega gegn brottvísun Burhans og haldið uppi herferð til að fá ákvörðun sænska ríkisins breytt. Svíþjóð er eina ríki Evrópu sem sendir fólk gegn vilja sínum til Erítrea þar sem þúsundum manna er haldið í einangrun um ókomna tíð án ákæru og réttarhalda og líða reglulegar pyntingar. Við fyrstu tilraun til að koma honum úr landi streittist hann svo á móti að flugstjóri vélarinnar neitaði að taka á loft. Í annað skipti tókst að koma honum alla leið niður til Erítrea en þar var honum neitað um landvistaleyfi svo þurfti að fljúga hann aftur inn til Svíþjóðar og nú mánuði seinna, eftir að gengið hefur verið frá allri pappírs vinnu er hann aftur á leið til hins stríðshrjáða einræðisríkis.

Þau níu sem handekin voru á flugvellinum eru enn í gæsluvarðhaldi og geta átt von á allt að tveggja ára fangelsi fyrir athæfið, eða samkvæmt lögreglunni, minnst tvö ár en erfitt er að trúa orðum stofnunar sem þekkt er fyrir lygar og hræðsluáróður.

Þeim er haldið í einangrun, og ekki hefur tekist fá þeim afhentar bækur, lyf, vegan-mat, tannbursta eða nærföt. Ein hefur verið flutt af lögreglustöðinni og á geðspítala eftir að hafa brotnað niður í fangaklefanum.

Eflt var til mótmæla í gær fyrir utan lögreglustöðina og mættu um 100 manns og hrópuðu slagorð gegn lögreglu og ríki.

noborders.jpg

Og til að summa þetta upp:

Sænska ríkið hefur selt mann í hendur ríkistjórn Erítrea svo hægt sé að nota hann sem vopnað peð gegn fólki þar í landi eða gegn nágrannaþjóðum, eða, til pyntingar og dauða. Þetta hefur kostað sænska ríkið tugir miljóna króna og er þar með talið tvær flugferðir, háa öryggisgæslu og lögreglu-aðgerð gegn mótmælendum þar sem þyrla var notuð. Þeir sem reyndu að stoppa þennan ógeðslega verknað ríkisins eiga svo á hættu að verða dæmdir í ára langa fangelsisvist.

Til hamingju Svíþjóð, okkar sósíaliski og líbíral bróðir, til hamingju með hafa sýnt þitt rétta fasíska andlit.

Frá háfaða-demói utan við lögreglustöðina

Foto: Evelina Attervall

6 Litlir Negrastrákar:
  1. Vilhelm Vilhelmsson segir, þann :

    Það er alveg merkileg þessi árátta stjórnvalda að eyða stórfé og ómældum tíma í að senda fólk úr landi þegar það væri svo miklu auðveldara fyrir alla að leyfa fólkinu bara að setjast að.

  2. Haukur segir, þann :

    Hvada vitleysa, svona er prinsipp mal. Thad er ekki bara haegt ad leyfa thessum sandnegrum ad vappa um a sandolum og aumingjabotum, hropandi a falsgudi og japlandi brjostsykur.

    Thessir hippaskrattar aettu audvitad ad skammast sin, en thar sem thad er varla nema fraedilegur tha er allavega haegt ad vona ad foreldrar theirra geri thad.

    Thetta er vandamal sem ber ad taka alvarlega og hondla af festu og skynsemi. Hverjum er ekki sama thott nokkrum millum se varpad i krukkuna, thegar fordaemid sem adgerdaleysi myndi setja bydi upp a ad flodgattir innflytjendavandans opnudust med kvelli og ekki bara Svithjod, heldur einnig gjorvoll Nordur Evropa, sidasta vigi vestraennar sidmenningar, verdi svoleidis kafsigld af Sigaunum, Lithaum, gudleysi, hergi og svertingjum… ja, eg segi thad bara hreint ut: jafnvel Muslimum!!!

  3. Syndri segir, þann :

    Ert þetta þú Höjkur?

  4. aftaka segir, þann :

    Ólíkt mörgum vefsíðum mun Aftaka svo sannarlega ekki eyða skilaboðum í líkingu við þau sem Haukur skildir eftir hér að ofan.

    Það er um að gera að leifa mönnum að afhjúpa heimsku sína sjálfir hér á síðunni, þá sleppum við alla vega við vinnuna.

  5. Haukur segir, þann :

    Uhumm.

    A sama tima og eg tek ofan fyrir aftoku fyrir ad fara ekki ad daemi annara vefsida og banna opinskaa tjaningu a sidunni neydist eg til ad benda a ad eins og ollum aetti ad vera deginum ljosara eru skilabodin her ad ofan eru skrifud sem ofugmaeli og i gamni.

  6. Jón segir, þann :

    Jæja þá eru aftökumenn/antifa að styðja þetta.

    Hleypum bara öllum inn ekki satt:)? Fyllum landið af 3 heims viðbjóði, tröðkum ofaná okkar sögu og menningu, dælum peningum undir rassgatið á þessu fólki sem kemur hingað og þegar allt kemur til alls er allt orðið fullt og enga vinnu að fá.. Gjöriði svo vel elskurnar, allt í boði kommúnismans.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in