Ætlið þið að vera memm í dag; syngja maí-stjörnuna með vörubílstjórunum og hlusta á Ögmund á góðu verði niðrá Íngólfstorgi?
Ögmundur verður kanski bara seldur hæstbjóðanda, IKEA dreifir mótmælaspjöldum og hjúkkurnar syngja nallan, allir með kreppu í hjarta og bílflautur í eyrunum. Í fyrsta, öðru, þriðja, og Ögmundurinn er þinn.
Í dag er líka seinasti dagurinn til að sjá útskriftarsýningu Listaháskólans á Kjarvalstöðum, því kona nokkur kom allaleið frá Franzlandi til að sjá meistara Kjarval með eigin augum en sá bara rusl og beiglaða fánastöng, hún varð alveg ga-ga og kú-kú og mun kanski bara kveikja í öllu heila klabbinu.
Gleðilegan fyrsta maí!
Maístjörnuna?
Já og hvaða vörubílstjórar?
Maípiparkvörnina.
þessi færsla er gjörsamlega óskiljanleg en gengur bara betur næst.
psssst… það er maístjarnan…
Persónulega umfjöllun um mun skemmtilegri 1.maí í Kaupmannahöfn má sjá á heimasíðu minni hérna: http://vangavelturvilla.blogdrive.com/archive/50.html