English 
Málefni:

Íslenski fáninn níddurFréttatilkynning frá
17. Júní 2008
Byltingarfáni Jörundar hengdur á stjórnarráðið - Anarkistar níða þjóðfánann!

Rétt í þessu var byltingarfáni Jörundar Hundadagakonungs strengdur á fánastöng á þaki stjórnarráðsins. Þar flöktir hann ásamt íslenska fánanum sem án efa hefur vanhelgast við þessa meðferð. Þrír flatir þorskar blaka yfir íslenskum stjórnvöldum.

Þó Jörundur hafi ekki verið algjör anarkisti, heldur krýnt sig sem valdhafa Íslands, var tilræði hans eina almennilega tilraunin til að koma af stéttaskiptingu og misrétti á Íslandi. Við höfum engar sérstakar mætur á Jörundi, frekar en nokkrum öðrum valdhafa, en metum tilraunir hans til að færa valdið frá toppi píramídans til almennings. Fyrir það virðum við hann og höldum uppi hans heiðri, sem og allra þeirra sem berjast gegn ójöfnuði, valdníðslu og óréttlæti.

Fáni byltingarSvo sat löggu-krían upp á þaki, horfði á fánana og vissi ekki hvað hún átti að gera…

Að lokum vitnum við í Helga Hóseason: Hví að hafa kristlafstusku yfir vorum hausum?

Byltingarkoss frá anarkistum!

8 Litlir Negrastrákar:
  1. Kalli segir, þann :

    Ég er mjög forvitinn að vita hvort fréttin á mbl.is er rétt:

    Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók nú á fimmta tímanum karlmann sem hafði klifrað upp á Stjórnarráðið og skorið íslenska fánann í ræmur.

    Mogginn virðist einn um að segja að fáninn hafi verið skorinn og ég hef eftir manni sem var á staðnum, og segist hafa ljósmyndir sem staðfesta hans frásögn, að fáninn hafi verið hífður upp aftur og þá í góðu lagi.

    Frammistaða fréttamiðla vekur hjá mér, eins og venjulega, miklu meiri áhyggjur en óhefðbundnar hannyrðir á kristlafstuskunni.

  2. Snorri segir, þann :

    Já, þetta eru nú meiri lygarnar. Eins og sést á myndunum er fáninn algjörlega ósnertur, einungis búið að klippa á snærið og koma fána Jörundar Hundadagakonungs á sama snæri.

    En kemur það einhverjum á óvart að fjölmiðlar skuli ljúga svona?

  3. Vilhelm Vilhelmsson segir, þann :

    Frábært framtak!!!! Til hamingju, gjörningsfólk.

  4. Árni segir, þann :

    Vel gert :)

  5. Aftaka » Færslusafn » Góðir dagar - íslenska byltingin segir, þann :

    […] Hér birtist aðsend grein frá Hauki Hilmarssyni í tilefni beinnar aðgerðar á þaki stjórnarráðsins þann 17. júní. […]

  6. Aftaka » Færslusafn » Ég er betri anarkisti en þú! segir, þann :

    […] hálfdauðri íslenskri anarkistavefsíðu Anarchism.is er að finna gagnrýni á gjörning sem framinn var á þaki stjórnarráðsins þann 17. Júní, þegar snærið á fánastönginni […]

  7. Guðmundur segir, þann :

    Gott framtak, mér finnst að við ættum að taka upp þorskfána Jörundar. Þó kallinn hafi verið með Napóleonskomplexa þá kom hann allavega með hugmyndir frönsku byltingarinnar upp á klakann. Hugmyndir hans voru allavega mikil framför frá lénskerfi Danaveldis.

  8. Aftaka » Færslusafn » hálfs árs aftaka! segir, þann :

    […] hríðskota-árás-grein um Náttúru-tónleikana í Laugardalnum, sagan af anarkistanum sem hengdi fána Jörundar hundadagakonungs á stjórnarráðið á 17. júní og síðan anarkista-pissukeppnina sem af því hlaust. […]

Ekki þegja:

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Login