Comments on: Ég er betri anarkisti en þú!

By: Syndri
voff…

By: Birgitta
ég hef seint verið talin til jábræðrasamfélagsins en einu sinni er alltaf fyrst…

By: Eva
Æ, elskurnar látið ykkur nú nægja að ritstýra ykkar eigin netsíðum. Það er þáttur í tjáningarfrelsi að fá að munnhöggvast að vild, að sjálfsögðu með þeim takmörkunum að menn fari með rétt mál. Ég get vel skilið það sjónarmið að tíma og orku sé betur varið til sameiginlegrar baráttu en á móti kemur að hjarðmyndun og miðstýring eru alltaf fylgikvillar jábræðrasamfélagsins.

By: Birgitta
Sko… er möguleiki að þið sem eruð að munnhöggvast út af smáatriðum gætuð gert það í reykfylltum bakherbergjum og komist að einhverri niðurstöðu sem fyrst svo maður þurfi ekki að horfa upp á samherja berjast á opinberum vettvangi um tittlingaskít.

By: Vilhelm Vilhelmsson
Undarlegt að eyða orku í svona gagnslausa umræðu og gagnrýni og það verður að segjast að ég skil ekki alveg af hverju í ósköpunum Herbert var að sóa tíma í að gagnrýna þetta smáræði.

Sjálfur fagna ég öllu gríni, vanvirðingu, stælum, kjafthátt og hálfvitaskap gagnvart valdinu (ríkis, auð, feðra, etc). Mér er slétt sama þó eitthvað pakk út í bæ haldi að allir anarkistar séu hálfvitar eftir þessa uppákomu. Þeim mun alltaf finnast það og þau munu aldrei nenna að gefa sér tíma til að kynna sér anarkisma. Só sorrí. Sumu fólki er bara alveg sama. Þannig er það. Ég sóaði allt of mörgum árum í að reyna að sannfæra fólk um hinn eða þennan málstað sem mér þykir svo sjálfsagður (dýravernd, umhverfisvernd, gegn kapítalisma, gegn ríkisvaldinu, anarkí og jafnrétti, svo fáein séu nefnd) en þegar fólki er bara alveg slétt sama þá breytist það seint. Þetta fólk má móðgast og fyllast ranghugmyndum alveg út í rauðan dauðan mín vegna. En að ég fari að leggja mig undir hörundssærni þeirra, sleppi því að vanvirða og hæða valdið til að móðga ekki einhverjar hysterískar húsmæður úti í bæ er það sama og að gefast upp. Pólitískur rétttrúnaður genginn marga kílómetra of langt. Húrra fyrir fánaníð og því að taka lífinu (og anarkisma) ekki of alvarlega!

By: Eva
Svo er líka undarlegt að þeir sem afneita þætti Jörundar í því að vekja upp vott af baráttuvilja meðal þjóðarinnar, leggja yfirleitt áherslu á að þar hafi verslunarhagsmunir ráðið för, en gleyma því alveg hvernig ástandið var á Íslandi á þessum tíma.

Þjóðin var nánast uppiskroppa með innflutningsvörur. Danir einokuðu verslunina en höfðu ekki og gátu í raun ekki staðið undir þeirri skyldu sem hlýtur að fylgja einokun, að koma vörum til landsins og vildu samt ekki gefa Bretum neitt svigrúm til að versla á Íslandi. Þetta er því ekki alveg sambærilegt við verðstríð milli Bónuss og Krónunnar þótt eflaust hafi eiginhagsmunir Breta (og Jörundar) ráðið meiru en samúðin með sveltandi smáþjóð.

By: Eva
Herbert segir:

-Í fyrsta lagi vil ég benda á að ólíkt því sem hér gerist, eru greinar á anarchism.is ritaðar undir nafni – þó svo að, vissulega, sé það ekki augljóst þeim sem ekki vilja vita.

Ja, það má nú segja. Það er sko ekkert augljóst. Herbert Snorrason er að vísu skráður sem umsjónarmaður síðunnar fyrir neðan færsluna en þessi sama skráning er undir greinum Sigurðar Harðarsonar. Hvernig getur það þá legið í augum uppi að Odinn og Herbert séu einn og sami maðurinn?

Ekki svo að skilja að það pirri mig neitt hvort menn skrifa undir nafni eða ekki, mér finnst hinsvegar hallærislegt af þeim sem eru með hálfkák í þessum efnum gagnrýni aðra fyrir það sama.

By: Jón Karl
Í guðanna bænum hættið þessu og beinið spjótunum í aðra átt en að hvor öðrum. Þetta er bara vandræðalegt og engum nema Kaupþing til góða.

By: Herbert Snorrason
Umræðan um múslima og þjóðernissinna er síðan annar, ári áhugaverður póll. Ég vona að ég þurfi ekki að minna fólk á það að víða um heim eru við lýði valdahópar sem drottna í skjóli Íslam, á sama hátt og hér hanga menn í pilsfaldi „þjóðarinnar“. Grænir fánar og hálfmánar, í stað Dannebrog og Skandinavíukross; en engu síður trúarleg tákn – frekar meiri ef eitthvað er, en kross íslenska fánans fékkst í arf frá þeim danska og var ekki valinn meðvitað sem trúartákn. (Og svo það sé alveg á hreinu: Íslenski fáninn var tekinn í notkun 1915, þremur árum fyrir stofnun Konungsríkisins Íslands, og áður en slíkar hugmyndir voru einu sinni komnar á borð. Fáninn hafðist í gegn þrátt fyrir andstöðu Dana, en forveri hans, núverandi fáni ungmennafélaganna, „hvítbláinn“, hafði verið í svo til almennri notkun um nokkurra ára skeið. Hann er því ekki til marks um kúgun dana, ofríki kristni, né heldur tákn lýðveldisins. Afsprengi þjóðernisstefnunnar er e.t.v. besta lýsingin – og hver er þá munurinn á honum og fána Jörundar?)

Hóparnir sem um ræðir eru nefnilega ekkert svo ólíkir.  Í báðum tilvikum er um að ræða fólk sem samsamar sig ákveðnum hópi og hugmyndum sem ganga innan hans. Meðal þeirra hugmynda er lotning fyrir táknum hópsins – spámanns eða fána – sem leiðir til þess að menn túlka árásir á táknin sem beina móðgun við sig. Báðir hóparnir byggja á máttleysi einstaklingsins, báðir eru fyrirlitlegir í þröngsýni sinni og sjálfhverfu. Ég ber enga sérstaka virðingu fyrir íslenska fánanum eða kristkrossinum, engu meiri en fyrir öðrum helgum kúm hinna ýmsu hópa. Kóraninn og Spámaðurinn eru þar á meðal. Hinsvegar geri ég mér fyllilega grein fyrir því að flestir þeir sem dýrka þessar kýr eru líka fólk, sem finnst sínar skoðanir réttar og góðar. Og þó ég virði ekki táknin, þá virði ég fólk. Allt fólk.

By: Smári
Bla bla bla. Allir í boltanum?

Svíþjóð samþykktu fyrir tveimur vikum lög sem leyfðu takmarkalausar hleranir á símum og tölvupósti. Þýska lögreglan vill setja njósnahugbúnað á allar tölvur í þágu “öryggis”. Það er endalaust verið að brjóta á persónufrelsi okkar, og við erum hér að röfla um hvað?

Gerum eitthvað skemmtilegt. Breytum heiminum.