Kl. 07:40 í morgun hlupu tveir menn inná flugbraut á Keflavíkurflugvelli í þeim tilgangi að stöðva brottflutning pólítísks flóttamanns frá landinu. Aftaka hefur eftir öruggum heimildum að atvikið hafi tafið flugvélina sem flóttamaðurinn var í. Málið hefur nú fengið mikla fjölmiðlaathygli og brennur á vörum margra.
Paul Ramses kom hingað til lands frá Kenía, í ársbyrjun. Paul hafði verið ofsóttur í heimalandi sínu og óttaðist um líf sitt. Hann sótti um pólítískt hæli þegar hann kom til landsins en honum hafa hingað til ekki borist nein svör. Í gær mættu svo íslenskir lögreglumenn að heimili Pauls, (sem voru auðvitað eins og vanalega “bara að vinna vinnuna sína”) handtóku hann og fóru með hann á lögreglustöðina á Hverfisgötu þar sem hann var látinn eyða nóttunni, fjarri konu sinni og þriggja vikna gömlu barni.
Í morgun var hann svo keyrður á Keflavíkurflugvöll þar sem honum var svo flogið til Ítalíu, en þar sem Paul millilenti þar í landi á leið sinni til Íslands er íslenskum stjórnvöldum heimilt að láta sig mál hans ekki varða og senda hann í hendur ítalskra stjórnvalda.
Íslensk stjórnvöld hafa gjörsamlega skitið á sig og sannað skítlegt eðli sitt og mannhatur með þessu máli.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að hún hafi ekki vitað af málinu fyrr en í gærkvöld og að það falli ekki undir verkefni utanríkisráðuneytisins, heldur útlendingastofnun og dómsmálaráðuneytið. Hvort það er satt getum við svosem ekki vitað en það breytir því ekki að viðbrögð hennar er ógeðsleg vélmennahegðun, en Ingibjörg segir að hún krefjist þess dómsmálráðuneytið og útlendingastofnun rökstyðji ákvörðun sína.
Það þarf engan helvítis rökstuðning; það þarf að bjarga manninum og koma í veg fyrir að svona nokkuð gerist nokkurn tíma aftur. Því verður best komið í gegn með því að losna við þessi útúrspilltu stjórnvöld. Orð Ingibjargar getur enginn tekið alvarlega, hún er partur af þessari gjörspilltu stjórn sem sendir fólk út í rauðan dauðann án þess að blikka auga.
Skíthællinn Björn Bjarnason hefur ekki svarað bréfum sem honum hafa borist vegna málsins en veitti þó lítið skítt viðtal við Vísi.is. þar sem hann segir réttilega að Útlendingastofnun hafi yfirumsjón með málinu og svo vellur upp úr honum orðrétt: ,,Ef fólk er ósátt við þá niðurstöðu er unnt að kæra hana til ráðuneytisins og/eða leita til umboðsmanns alþingis og dómstóla vegna málsins.” Björn réttlætir það fullkomlega að Dyflinnarsamningnum sé beitt, en samningurinn felur í sér rétt stjórnvalda til að senda hann til Ítalíu.
Þvílíkur viðbjóður sem fyllir haus þessa manns! Það er búið að senda manninn úr landi og það hefur ekkert að segja að kæra niðurstöðuna og bíða svo eftir því að skrifstofubákn spillingarinnar sendi frá sér snargeldan útúrsnúning á málinu. Stjórnvöld munu ekkert aðhafast í þessu máli, blóðið rennur um hendur þeirra.
Það er engin ástæða til þess að efast um trúverðugleika Pauls, en í stað þess að kynna sér málið og svara beiðni hans um pólítískt hæli hér á landi, ákváðu íslensk stjórnvöld að fljúga Paul í burtu frá konu sinni og nýfæddu barni og senda hann í hendur stjórnvalda, sem í þessum skrifuðu orðum eru að reyna að koma á lögum sem heimila það að fingraförum af hverjum einasta sígauna í landinu sé safnað í stærðarinnar sígauna-gagnasafn. Ítölskum stjórnvöldum getur ekki verið treystandi fyrir afdrifum þessa manns. En samt!
Íslensk stjórnvöld ætla fría sig ábyrgð með því að skýla sig bakvið skitna lagaheimild, án þess að gefa nokkra ástæðu fyrir því hvers vegna ákvörðunin um að senda hann til Ítalíu er tekin. “Við megum það og þess vegna gerum við það! – Við þurfum ekki að skipta okkur af málinu og þess vegna gerum við það ekki!”
Þetta er frábært dæmi um skítlegt eðli þeirra sem stjórna hér á landi. Íslenskir ráðamenn keppast við það viðhalda þeirri ímynd af íslensku samfélagi að hér sé allt í stakasta lagi; hér ríki friður, frelsi og jafnrétti. Hér sé sanngjarnt lýðræði og mannúðarstefna í hávegum höfð. Auðvitað er það ekki þannig og auðvitað er sagan af Paul ekkert eina dæmið sem fjarlægir þessa lygahulu af íslenskum stjórnvöldum. Hún er þó líklega eitt besta og nærtækasta dæmið um ógeðslega hlið stjórnvalda.
Þú sem lest þetta: Gerðu allt sem í þínu valdi stendur til að koma í veg fyrir að svona nokkuð gerist aftur. Gerðu allt sem þú getur til þess að taka völdin úr höndum skíthælanna sem hér á landi stjórna. Gerðu það núna!
—
Á morgun, Föstudaginn 4. Júlí, verða mótmæli fyrir utan Dómsmálaráðuneytið, Skuggasundi. Standa á milli kl. 12:00 og 13:00. Mætið!
PAUL RAMSES HINGAÐ HEIM FYRIR KVÖLDMAT, TAKK!!!
Sendum Björn úr landi!
Og Imbu Sól sömuleiðis!
Nú duga engar helv………s málalenginga og fjas þar sem stjórnmálamenn segja ekkert við okkur sem ekki erum embættismenn annað en: Þið eruð valdlaus fífl!
Nú reisum við hnefann og köstum þeim fyrir borð!
Hafi ég nokkurntíma velkst í vafa um gildi beinna aðgerða, þá er ég hér með sannfærð.
Nóttina eftir fréttatímann þar sem fram kom að Paul hefði verið handtekinn tjáðu 3-4 moggabloggarar sig um málið. Við aðgerðina vaknaði bloggheimur og í dag hafa málefni flóttafólks og þá sérstaklega þessarar fjölskyldu, bókstaflega tröllriðið fjölmiðlum. Það besta er að fárið hefur alls ekki snúist um aðgerðina heldur málið sem hún beindist gegn.
Glæsilegur árangur út af fyrir sig en það þarf nú samt að gera meira en að blogga, baula á Bjössa og biðja Sólu að leika mighty mouse.
[...] morguns þann þriðja Júlí sl. hlupu tveir menn inn á flugbraut Keflavíkurflugvölls og fyrir flugvél sem var við það að hefja flugtak. [...]