Já… ótrúlegt en satt: Aftaka á hálfs árs afmæli í dag! Megi hún vaxa og dafna um ókomna tíð. HÚRRA!
Já, meigi öll höfuð óvinanna liggja í valnum að öðru hálfu ári liðnu, svona rétt þegar aftaka fer að taka tennur.
Pólitískir molatow-kokteilar hafa splundrast í samfélaginu í gegnum aftöku. Hér kemur uppáhalds-aftöku listinn: Blóð-gjörningur við kínverska sendiráðið, hríðskota-árás-grein um Náttúru-tónleikana í Laugardalnum, sagan af anarkistanum sem hengdi fána Jörundar hundadagakonungs á stjórnarráðið á 17. júní og síðan anarkista-pissukeppnina sem af því hlaust. Samstaðan með uppþotunum í Kaupmannahöfn var mikilvæg þar sem ósáttir innflytjendur og byltingarsinnar brenndu rusl og voru með læti til að vekja athygli á níðverkum ríkisstjórnarinnar, fyrir framan Landsbankann seldi sprotafyrirtækið “allt er falt” skít úr ungum listamönnum, myndin af Magnúsi frá Akranesi og aröbunum segir ljótt en satt, hústaka í Reykjavík var skemmtilegt partý, hleranir og annar yfirvaldsviðbjóður var hálshöggvinn. Pólverjinn á klósettinu sturtaði rasistum niður í klóið og svo á Þjóðarbókhlöðunni var málað svart yfir stríð og málfrelsi og kúkað var á kapítalistana….
Svo má ekki gleyma seríunum… Valdníðsla í verki, Barnaníð Glitnis, Tekið Ofan og list sem sparkar í RASS.
Takk fyrir hálft ár af frábæru starfi og megi Aftaka vaxa og dafna um ókomna tíð:)
til hemingju með emmelið!
Hip hip húrra.
Megi hún lengi lifa.
jei… jei
því þöögniiin eeer (eee eee eee eeer)……..Yfirvaldið
til hamingju
Já innilega til hamingju aftaka og megi þér vaxa bæði vígtennur og klær á komandi hálf-ári…
Ekki til hamingju :)
Megi af þér spretta margir gálgar, ótal fallexir og sægur rafmagnsstóla svo maður tali ekki um fullt af sætum litlum aftökusveitum.
Húrra fyrir Aftöku!