“Kengdrukknar kellingar
kaffæra Herjólfdal – þrjá daga á ári.
Slíkt ber að nýta sér.
Því skaltu flýta þér
og reyna að góma eitt grey
meðan þær geta ekki synt á brott úr Heimaey.”

slíkt ber að nýta sér

“-Textinn fjallar um fyllerí og kvennafar eins og fjölmargir íslenskir og erlendir dægurlagatextar, hann er svipmynd af ástandi sem skapast um hverja einustu verslunarmannahelgi á flestum þeim hátíðum sem þá eru haldnar.-” segir hljómsveitin Baggalútur, höfundar þessa lags, í svarbréfi til feministafélagsins í 24 stundum.

Það er rétt hjá Baggalútsmönnum, texti þeirra lýsir ágætlega raunveruleikanum á Verslunarmannahelgunum sem rímar svo og við veruleika hverrrrrar djamm-helgar þó svo að birtingarmyndin sé töluvert hektískari á Verslunarmannahelgunum. Viðurkennt markmið er að vera haugafokking ölvaður og það að liggja áfengisdauður upp á hól er bara góður stemmari. En fyrir þá sem þó rata heim til sín í blautt tjaldið eru samt bara þunnir veggir sem skilja svefn þeirra að frá skemmtanalífinu á útihátíðunum. Flestum þætti notalegt að vita af hópi fólks í næsta nágreni en það er subbuleg staðreynd að ofbeldi, nauðganir og kynferðisleg áreitni er í hámarki þessa helgi. Þá stemmingu ná Baggalútsmenn svo sannarlega að fanga í lagi sínu “Þjóðhátíð ‘93″.

Íslenskt samfélag getur þessa hegðun af sér, hún er leyfileg og margir hlakka til að fara og taka þátt í að syngja hress og kát brekkusönginn með valdníðinginum og þjófinum Árna Johnsen og sprella um á stærsta nauðgunarfestivali Evrópu. Reyndar erum við svo stolt af þessari menningu okkar að við tönnglumst sífellt á því í landkynningum hvað við erum miklir víkingar og flippuð á því, sérstaklega með bús í hönd. Í raun væri hægt að stofna heilan iðnað í kringum þetta, þessa ímynd. Þá væri þjóðráð að auglýsa þetta almennilega á síðum flugfélaganna og ferðalangasíðum internetsins og fá almennilegan fjölda nauðgara á næstu þjóðhátíðir….bídddu ha nei, Flugleiðir er víst komnir langleiðina með þetta! Ljósku-auglýsingar þeirra m.a. í Bretlandi um tvær í takinu…..og dirty weekend..eru að minnsta kosti góð byrjun á gróðavænlegri auglýsingarherferð.

one night stand-iceland

Eða kanski er þetta ekkert þjóðráð að bjóða líka útlendingunum að hönkast í Heimaey! Því af reynslunni að dæma virðist sem svo að útlendingar séu ekki og hafi aldrei verið neitt rosa velkomnir hérna. Ef frá er talin sú óttablandna virðing sem við sýnum útlendingum sem hafa stærri vöðva eða vopn en við eða eyða böns of monný hérna, þá erum við bara ekkert sérstaklega vinsamleg þeirra í garð. Skiptir þá engu hvort áætlanir þeirra séu að hjálpa okkur að henda viðbjóðs fyrirtækjum úr landinu, setjast hér að, stunda hér vinnu eða leita pólitísks hælis.

Eflaust myndu einhverjir sjá skýringu liggja í þessu fyrrnefnda víkingareðli; eiginhagsmuna valdníðingar sem stæra sig af því að misnota alla þá sem unnt er að hjakkast á, hafa ekki áhuga á að deila valdníðslunni með öðrum!

Sennilega vilja íslenskir karlmenn bara nauðga sínum búpeningi sjálfir og ambáttarættaðar konurnar vilja halda fast í hefðirnar. Höldum þessu bara inn í fjölskyldunni takk, annað væri bara sjúkt.

íslenska gliðran

Þetta er bjánalegur leikur, já því hvað er þetta annað en leikur þegar heilt samfélag bara sættist á að nauðganir og valdníðsla séu órjúfanlegur þáttur í manngerð landans. Þar með er sæst á að valdníðsla sé bara partur af samskiptum, partur í því að hitta margt fólk, að fara í fjöldaútilegur. Er þá fólk þannig innréttað að það getur ekki stjórnað hegðun sinni þegar möguleikinn á alvarlegri valdníðslu gefst?

Kanski er þá barasta ekkert skrítið við það að þetta sama fólk fari jafnvel alla leið til Vestmannaeyja til að heyra einn óskammfeilnasta valdníðing þessa lands frussa út úr sér hommahatri og ástjarðar-þjóðernis vibba. Kannski er ekkert hægt að sakast út í þetta fólk, þessi grey, þar sem þau gangast bara við þessu og leita það meira að segja uppi.

En aftur að Baggalútunum. Það er margt að þessu lagi þeirra, fyrir utan það að vera uppfullt af karlrembu íslenska feðraveldisins þá er það með eindæmum leiðinlegt. En því tekst þó eitt! Því tekst bara andskoti vel að vera raunsær spegill, spegill á þetta ógeðslega samfélag sem hér er við lýði. Já, það er bara hresst að fara á útihátíð þar sem allavega 5% gestanna nauðgast saman í náttúrunni.

Hugmyndir um lausnir til að afhöfða þennan “mennigararf”:

Að smala þessum ósóma í eitt skiptið fyrir öll út í Heimaey og alla fylgismenn hans með og svo bara ..lok lok og læs….. og leyfa þeim að leika sér í víkingasleik þar til þau hafa hoggið allt í spað.

Eða eru þau svo mörg að ekkert annað dugir en almennileg aftaka?…….splatter í heilasettinu þeirra?

Er best að sökkva þjóðarfleyinu á leið til eyja?

Allavega fyrirlýtur Aftaka tjaldferðalög þar sem stígamót eru sjálfsagður og nauðsynlegur ferðafélagi.

Hugmyndir að róttækum lausnum vel þegnar á aftaka@riseup.net!

4 Litlir Negrastrákar:
  1. Biskup segir, þann :

    Þú og þín fjölskylda !

  2. Thorsteinn segir, þann :

    Ertu abbó herra biskup, svona fjölskyldulaus og snargeldur sem þú ert hahaha? Svar óskast!

  3. Aftaka » Færslusafn » Árni Johnsen er glæpamaður og hana nú! segir, þann :

    […] þá fær Árni ekki meiri athygli að sinni, meira um hann hér og pínu hér. aftaka tróð þessari færslu í Höfuð. Þú getur fylgst […]

  4. Brandur segir, þann :

    Ég hef heyrt að það séu einhverjir sem ætla að nauðga þessum til vinstri með gítarinn…

Ekki þegja:

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Login