Nei, við Íslendingar erum ekki hryðjuverkamenn, Hr. Brown, HA?
Við erum ekki í búrku eða með höfuðföt og hvorki með íslamista skegg né dökk og brún á brá, HA! Þetta er misskilningur Hr. Brown, þú ert nú eitthvað að horfa í vittlausa átt, HA? Þú veist, Ísland, það er í NORÐRI, ekki í suðri eða austri!! Hr. Brown þú ert nú alveg, HA, já þetta var næstum því fyndið HA…? Við erum Íslendingar, þú veist BJÖRK, SIGURRÓS…………þessir klikkuðu sem allt geta og allir elska!
Helvíti gott innlegg í þessa fáránlegu umræðu … sem panikkar heilu menningarhópana en er í raun aðeins útfærður sandkassaleikur lítilla, of feitra karlmanna (í jakkafötum”!) sem hafa haft of mikil völd í of langan tíma.
HAHA!
Lítum við út eins og terroristar? Erum við með sítt skegg og túrban? Tölum við arabísku? Erum við öfga-íslamistar?
Ónei Mister Brávn. Við erum hvítþvegin og lítil - þæg og stillt - og umfram allt kurteis þjóð.
“Íslendingar eru hænsn.”
Blandað í svartan dauðann
eftir Steinar Sigurjónsson
Það er enginn að benda á önnur lönd eða aðra menningarhópa í sambandi við þetta. Ég persónulega kæri mig hinsvegar ekki um hryðjuverka stimpil, sérstaklega ekki í kjölfar PENINGA klúðurs téðra jakkafatanörda. Alveg eins og mér finnst fólkið hér að ofan ekki eiga að þurfa að sitja undir ásökunum um að vera hryðjuverkamenn sökum klúðurs samlanda/trúbræðra/systra whatever..
Steinunn Lilja:
,,Do we look like terrorists?”
Þarf að segja eitthvað fleira?
Og hvernig líta þá terroristar út?
oj oj oj oj oj og ojjjbarasta hvað þetta er afhjúpandi… ég svelgist á orðum. puh puh puh…
[…] á borð við ,,Do we look like terrorists?” því eins og réttilega hefur verið bent á hér á Aftöku líta Íslendingar alls ekki út eins og hryðjuverkamenn, enda ekki brúnir á hörund, með langt […]
Þakka þér fyrir! Nákvæmlega það sem ég er búin að vera að segja!
Hvað er að því að vera stimplaður terroristi? Sumir af heimsins merkustu mönnum (sem í dag eru dáðir sem menn friðar) hafa fengið þann stimpil. Mandela, Gandhi, meðlimir andspyrnuhreyfinga seinni heimsstyrjaldarinnar. Ekkert að þessum stimpli ef málstaður manns er réttlátur.
,,Do we look like terrorists?”
Þarf að segja eitthvað fleira?
Það að einn aðili hafi póstað þessu sem póstkort á þessa síðu þýðir það ekki að allir sem skrifa undir séu haldnir sömu fordómum.
Greyin mín , vitiði ekkert í hvorn fótinn skal stíga?
Eitthvað að mótmæla auðvaldinu og notið alveg sömu aðferðir , pikka fólk út og setja í hópa, divide and conquer…
Fyrst les ég diss á þá sem skrá sig a Indefence.is og síðan les ég þetta hérna á Aftaka.org ” Það er ekkert óeðlilegt við að mismunandi hópar fólks standi upp á mismunandi forsendum og beiti mismunandi aðferðum. Ástæðan er einföld: etc”" Þesi færsla er hér..
http://aftaka.org/2008/10/26/hurra-fanabrenna-i-reykjavik/
Ekki gefa ykkur það að þó fólk orði hlutina eitthvað klaufalega að allir þeir sem hafa sent inn myndir og skráð sig á listann sé fólk sem er ekki upplýst um plat stríðið gegn hryðjuverkum.
Svei mér þá , það gæti kannski runnið upp fyrir einhverjum bleiknefjanum hversu auðveldlega hann getur verið stimplaður terroristi sjálfur , það kannski framkallar einhvern skilning og samúð með öðrum.
Ég skráði mig á listann , ég hef mætt í ÖLL mótmælin , ég geri það fyrir mína hönd, vinsamlegast sýnið fólki meiri virðingu heldur en hyskið sem við viljum koma frá og ekki nota þeirra taktik.
Við erum öll í sama skítnum , við beitum kannski ekki öll sömu aðferðum og sumir eiga ekki eftir að gera neitt, en ekki gera lítið úr tilraunum fólks til að tjá sig , við sjáum hvað það hefur gert fyrir landið okkar.
baráttukveðjur
Arnar
Arnar:
Það er í góðu lagi að fólk beiti mismunandi aðferðum af mismunandi ástæðum. Aftaka stendur svo sannarlega með því.
En, það má líka gagnrýna. Manstu: Við erum ekki í sama bátnum og höfum aldrei verið það.
Friðsemdarsinnar (pacifistar) gagnrýna þá sem þeir þykir of rótttækir og öfugt. Og þegar fólk gerir eitthvað í líkingu við þetta: ,,Do we look like terrorists?” er ekkert annað hægt en að benda á það, gagnrýna og afhjúpa.
Það er alveg rétt hjá þér að fólkið sem skrifar þetta er kannski bara örlítið vitlaust, hefur ekki áttað sig eðli stríðsins gegn hryðjuverkum og hefur látið heilaþvo sig með áróðri sem það svo meðtekur án þess að hugsa. Aðgerðir þeirra sanna það vel.
En það þarf að benda á það og ekkert að því að það sé gert á fyndinn og sniðugan hátt. Eða hvað?
Slæm félagi. Engin þeirra er með spjald. Svo einfalt er það. Sérstaklega það siðasta, WE DID IT er ekki raunsæ. Sjáðu bara hvernig við/þíð í vesturlöndum misnotið netið.
“Do we look like terrorists” er ekki heppilegt …..eða hvað? reyndar finnst mér það hafa einhvern svona hliðareffekt eins og þú nefnir , að minnsta kosti er ákveðin fáránleiki sem afhjúpast við þetta.
Ég skil alveg að þið bendið á þetta , um að gera að gagnrýna.
Fólk er einfaldlega ráðvillt og ég er viss um að fólki gengur gott eitt til.
Einhverjir sem tóku þátt líta kannski öðruvísi á það þegar aðrir lenda í terroista stimplinum. Sorglega staðryndin er sú að stundum þarf fólk að upplifa erfiðleika til að geta sýnt öðrum samúð
Ég kannski tók þessu ekki vel þar sem mér finnst alltof mikið verið að stía fólki í sundur þessa dagana, við vitum öll hver græðir á því.
Ég held líka að til að ná fram breytingum þarf að fá hinn almenna “heilaþvegna” borgara til að taka þátt, það er ekki einkamál hinna “upplýstu” Ég fagna öllum litlum hænuskrefum í þá átt.
Takk annars fyrir fína síðu og þarft innlegg í umræðuna.
:))) Arggh these kids really look terrifying indeed!
Þessi síða er snilld!