English 
Málefni:

Heimasíðan In Defence – Icelanders Are Not Terrorists vekur nú mikla athygli, en á síðunni er hægt að skrá sig á undirskriftalistann We are not terrorists og beina þar með réttum skilaboðum til Gordons Browns.

Fjölmargir Íslendingar hafa sent síðunni myndir af sér, haldandi á pappír með skilaboðum á borð við ,,Do we look like terrorists?” því eins og réttilega hefur verið bent á hér á Aftöku líta Íslendingar alls ekki út eins og hryðjuverkamenn, enda ekki brúnir á hörund, með langt skegg og túrban.

Undirskriftum fjölgar á mínútu hverri og stuðningurinn virðist vera farinn að ná út fyrir íslensk landamæri því fjöldi erlendra einstaklinga hafa skráð sig á listann, Íslendingum til stuðnings. Þau sem standa að síðunni eru auðvitað virkilega ánægðir með þátttökuna, sem þau segja vera meiri en þeim gat nokkurn tíma dottið í hug:

,,In the first 24 hours 20,000 people signed the petition, and at the end of the second day we stand at 40.000 signatures, amounting to over 12% of the population of Iceland.  The participation far exceeds our hopes, and by now holds the record as the largest on-line petition this country has seen.”

Við getum auðvitað öll verið sammála um það að þetta er kærkominn stuðningur fyrir okkar litlu og veiku þjóðarsál og mun án efa veita okkur vænan yl í komandi hremmingum og styrkja okkur í baráttu okkar fyrir endurreisn kapítalismanns og bættri ímynd Íslands.

Lítum aðeins á hverjir hafa sýnt okkur stuðning:

picture-3.png

Hér neðst má sjá að Geirfinnur Einarsson hefur skráð sig á listann. Flestir héldu hann nú dauðan en hann virðist hafa komið sér vel fyrir í Hafnarfjarðarhrauninu, með tölvu, internet og alles.

picture-7.png

Hér má svo sjá að Ulrike Meinhof, ein af stofnendum Red Army Faction hefur skrifað undir. Það má einnig sjá að hún hefur sest að á Raufarhöfn þó áður hafi sögur gengið um að hún hafi framið sjálfsmorð í fangelsi í Þýskalandi.

picture-6.png

Annar stofnandi RAF, Andreas Baader, hefur líka skrifað undir enda þekkja hann og Ulrike Meinhof  hvað það er að vera ranglega ásökuð um að vera hryðjuverkamenn. Svona stuðning þurfum við svo sannarlega.

picture-9.png

Hugsa sér! Mumia Abu Jamal, sem situr í fangelsi í Bandaríkjunum og hefur hingað til ekki fengið mikið frelsi til að athafna sig á internetinu, hefur nú fengið undanþágu til að sýna stuðning sinn í verki. Bravó!

picture-4.png

Við Íslendingar höfum svo áratugum skiptir keypt og lesið Andrés Önd. Nú sér hann loks ástæðu til að þakka fyrir sig.

picture-5.png

Hér er svo sjálfur Saddam Hussein mættur til leiks sprækari sem aldrei fyrr.

Eins og má sjá er hér afskaplega fjölbreytt flóra fólks sem skrifað hefur undir og því ber að fagna: HÚRRA! Þetta er réttilega stærsta og langbesta og marktækasta undirskriftasöfnun Íslandssögunnar. Nú verður ímynd Íslands góð á ný.

Ísland er LANGbest í heimi og við lítum sko EKKI út fyrir að vera hryðjuverkamenn.

5 Litlir Negrastrákar:
  1. Brandur segir, þann :

    Ég vildi óska þess að ég væri alvöru terroristi því þá mundi ég skrá nafn mitt í þessa heimskulegu söfnun.

  2. Syndri segir, þann :

    við getum verið alvöru terroristar! mætum á austurvöll milli þrjú og fjögur og segjum þessu valdhyski að byggja upp sína eigin fallöxi í stað fjármálafallaxar heimskapítalismans! í dag laugardag.

  3. Syndri segir, þann :

    fjögur er það víst..

  4. Vilhelm Vilhelmsson segir, þann :

    Algjör snilld að Baader og Meinhof hafi komið sér þarna inn:)

  5. aftaka segir, þann :

    Þau eru byrjuð að monta sig – sjá hér.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in