English 

Brennum bankana!

Í gær var enn á ný mótmælt vegna efnahagsástandsins hér á landi. Í þetta skiptið fóru fram tvær athafnir: tónleikar Harðar Torfasonar á Austurvelli og fjölskylduboð Jóns Baldvins og fjölskyldu við ráðherrabústaðinn á Tjarnargötu.

Fjölmiðlar hafa gert mikið úr því að mótmælahreyfingin svokallaða hafi klofnað vegna einhverra ósátta og Hörður Torfason virtist vera á sama máli – líklegast fúll yfir dræmri mætingu á tónleika sína. Eflaust eru margir sammála fjölmiðlum og Herði og finnst mikilvægast að nú ,,standi þjóðin saman.” En svekkjandi, málið er ekki svo einfallt. Það er ekkert óeðlilegt við að mismunandi hópar fólks standi upp á mismunandi forsendum og beiti mismunandi aðferðum. Ástæðan er einföld:

VIÐ ERUM EKKI ÖLL Á SAMA BÁTI!

Eftir að ráðamenn landsins byrjuðu að tala sjómannamál, líkja þjóðinni við áhöfn á báti og það sem versta er – segja okkur öll á sama báti – fór stjórnarandstæðan, fjölmiðlar og almenningur að apa upp tungumál þeirra. Nú talar fjöldi fólks um þjóðarskútuna sem við öll róum, burtséð frá því hvar við stöndum og hver við erum.

Flestir hljóta að hafa áttað sig á því (og eru því sammála) að almenningur og ráðamenn eru ekki í sama liði. Almenningur er ekki um borð í lúxus-snekkju stjórnvalda og auðjöfra (svo Aftaka taki nú þátt í sjómannamálinu) en á þó vissulega þátt í því að snekkjan siglir. Hann þjónar um borð, matreiðir ofan í þá sem þar eru og þrífur útskitin klósettin. En þannig takmarkast aðkoma hans að snekkjunni.

Aftur: VIÐ ERUM EKKI ÖLL Á SAMA BÁTI OG HÖFUM ALDREI VERIÐ ÞAÐ!

En eins fallegt og það nú væri, er almenningur heldur ekki í sama bátnum. Við búum í stéttaskiptu samfélagi þar sem fólki er skipt í hópa eftir stétt og stöðu, pólítík, kynþætti og kynhneigð og fjölda annara þátta. Þess vegna er ekkert eðlilegra en að margir hópar fólks standi upp og berjist út frá mismunandi forsendum.

Sumir öskra ,,Davíð burt!” á meðan aðrir öskra ,,Alla burt!” Einhverjir vilja nýjar kosningar en aðrir ekki og sumir vilja bara alls engar kosningar – aldrei. Einhverjir halda tónleika, sumir halda fjölskylduboð og sumir henda eggjum. Það verður aldrei algjör friður þó Viðeyjar-vasaljósið hennar Yoko segji nú annað. Það verða aldrei allir sammála og Andspyrnan mun alltaf innihalda átök og ósætti. Hún er ekki sterkari en það, en hún getur samt verið sterk. Hún getur samt haft áhrif og leitt af sér breytingar. Mesti misskilningurinn er hins vegar að það verði engin átök eftir Davíð.

Það verða alltaf deilur og átök. Og þess vegna er nauðsynlegt að andspyrnan eigi sér alltaf stað; fyrir og eftir kreppu og á meðan á henni stendur.

Við fögnum sístækkandi hópi anarkista á Íslandi og hrópum margfallt HÚRRA! fyrir fánabrennunni sem átti sér stað á Tjarnargötunni í gær. Þar var kveikt í fánum Glitnis og Landsbankanns og fólk söng ákaft og endurtekið ,,Brennum bankana!” Svo brunnu fánarnir til kaldra kola og táknrænn þúsundkall með. Þó bankarnir séu álitnir ,,dauðir” og ,,nýjir bankar” teknir við, eru þeir gömlu enn til sem skuldir og lán, spilling, græðgi. Og það er engin ástæða til þess að ætla að hinir nýju verði eitthvað skárri. Þeir eru jú bankar.

DON’T ROCK THE BOAT – SINK IT!

Þúsundkallinn brennur

8 Litlir Negrastrákar:
  1. aftaka segir, þann :

    Mótmælin og fánabrennan vöktu alþjóðlega athygli og m.a. sýndi CNN frá brennuni í gær. Hér má sjá mynbönd frá mótmælunum og í lokin má sjá fánabrennuna:

  2. Syndri segir, þann :

    Leggjum höfuðin í bleyti og finnum upp á einhverju fersku fyrir næsta laugardag!

  3. Syndri segir, þann :

    Annað myndband:

  4. Birgitta segir, þann :

    mér fannst reyndar ræðan hans Einars Más alger snilld sem hann flutti á fyrri mótmælunum og allt í lagi að flagga henni …

  5. Björn Bjarnason- Dómasmálaráðherra segir, þann :

    Ég hef margt að segja um þessi mótmæli, m.a. þetta:

    ,,Vegna skorts á myndefni til að setja með fréttum héðan, áttu fámenn mótmælin og fánabrennur greiða leið á erlendan fjölmiðlamarkað, þótt myndirnar gefi síður en svo rétta mynd af því, hvernig íslenska þjóðin bregst við erfiðleikum sínum.”

    Lesið meir hér.

  6. Brandur segir, þann :

    Þetta eru fallegar myndir.

    Sérstaklega þessi með Glitnisfánanum og þeim brennandi bláa með dótturriðlinum Brynjólfi.

  7. Finnur segir, þann :

    Vá, sá fuðraði upp, maður.

  8. Brandur segir, þann :

    Næst skulum við kveikja í einhverju stærra en þessum lufsum……

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in