Aftaka sér mikla og góða ástæðu til þess að taka að ofan fyrir tveim ungum anarkistum á Hvolsvelli, sem gerðu heiðarlega tilraun til að eyðileggja auglýsingaskilti bensínfyrirtækisins N1 nú um helgina. Mogginn greindi frá þessu sæmdarverki en þó á ögn neiðkvæðari hátt en Aftaka gerir:
,,Lögreglan á Hvolsvelli stóð tvo skemmdarvargar að verki í bænum aðfaranótt laugardags. Við venjubundið eftirlit sáu lögreglumenn til skemmdarvarganna sem voru að eyðileggja skilti við bensínstöð N1. Þar sem skemmdarvargarnir voru báðir undir lögaldri var þeim ekið heim eftir stutta yfirheyrslu. Þeir mega búast við kæru og þess að vera krafðir um skaðabætur vegna skemmdanna sem þeir unnu.”
Samfélag eilífs áreitis stórfyrirtækja er óþolandi, svo ekki sé meira sagt. Þar að auki er það aumkunarverð hræsni að tala um skemmdarvarga þegar litið er til þess hvers konar óþverri N1 er.
Fyrst og fremst er N1 dótturfyrirtæki olíuskrímslisins Esso; í öðru lagi stóð fyrirtækið að olíusamráðinu ásamt bræðrum sínum Olís og Shell (óþverrinn sínir sig kannski best í því að fyrirtækið hafi skipt um nafn eftir að upp komst um samráðið – aumkunarverð tilraun til að halda andliti); og í þriðja lagi varð það N1 sem hóf ,,þjóðernisremba-í-kreppunni” átakið þar sem blá-hvít-rauðu krosslafstuskunni er flaggað í stað fyrirtækisfána, til þess að efla þjóðernisrembing meðal landsmanna. Ekki voru fyrirtækisfánarnir svosem mikið skárri, enda ekki ósk Aftöku að þeir verði nokkurn tíma aftur hengdir á flaggstengur.
Ungu anarkistana kallar Aftaka ekki skemmdarvarga heldur hetjur. Hún tekur ofan og harmar afskipti þrælanna af þeim. Haldið áfram að brjóta niður kapítalismann og látið ekkert stöðva ykkur!
Nú veit ég ekki hvort úthugsuð andstaða gegn heimskapítalismanum og olíuiðnaðinum lágu á bakvið gerðir þessara drengja.
Almennt er ég hrifinn af eiðileggingu auglýsinga, svo ekki sé minnst á auglýsingar frá fyrirtækjum á borð við Esso, en að tilta þessa stráka/ungu menn anarkista bara út af þessu er eitthvað til að setja spurningarmerki við.
Svo má vissulega líka líta þannig á málið að þó svo að þessir ungu menn hafi ekki haft neina skýra eða meðvitaða hugsjón eða hugsun í gangi (ég fullyrði þó ekkert um það) þegar þeir tóku upp á því að eiðileggja þetta skilti þá hafi þeir kannski bara stjórnast af einhverskonar eðlishvöt sem sagði þeim að þetta skilti væri viðbjóður, en það þarf ekki að vera að þeir hafi verið varir við það.
Annars góð færsla.
Auðvitað er það tilbúningur þess sem skrifar að titla þá anarkista, kannski svolítið í þeirri von um að þeir muni kannski einhvern tíma lesa færsluna og sjá tengslin, jafnvel þá kynna sér anarkisma.
Það er ekkert víst að þeir átti sig á því hvaða hvati er bakvið þörfina á því að skemma skiltið en það skiptir engu máli hvers vegna þeir skemmdu auglýsinguna – þeir gerðu það allavega! Og ef einhver ætlar að fara að halda því fram að það hafi einungis stafað af skemmdarfíkn og að þessir drengir myndu skemma hvað sem er… þá þvertökum við fyrir það. Það er engin tilviljun að ráðast gegn svona ógeðslegu fyrirtæki.
Þeir þurfa ekki að vera anarkistar og þeir þurfa ekkert endilega að skilja afhverju þeir vildu skemma auglýsinguna, en þeir eru líka ungir og hugmyndafræðin á eflaust eftir að mótast. Það er bara voni að þeir átti sig á því, að inn við beinið séu þeir anarkistar.
[...] aftur kapítalismann, t.d. með því að eyðileggja auglýsingar. Hér á Aftöku var um daginn tekið ofan fyrir ungum hetjum sem voru því miður stoppaðir að þrælunum við þá göfugu iðju að [...]