Mótmælaganga fór fram frá Hlemmi og niður að Austurvelli í gær. Skipuleggjendur göngunnar kröfðust þess að (A) ríkisstjórnin myndi víkja burt og (B) efnt yrði til nýrra alþingiskosninga sem fyrst. Hópur Anarkista var sammála fyrri liðnum en vildi þó ekki sjá kosningar, heldur samfélag án yfirvalda; samfélag skipulagt af þeim sem í því búa. Og til þess að koma því í gegn: sterka og stöðuga andspyrnu.
Þegar gangan kom að Lækjartorgi stoppaði gangan þar sem illræmdur kapítalisti í jakkafötum og með Bónuspoka á hausnum var hengdur við fögnuð viðstaddra. Það var kominn tími til að mótmælin fengju á sig róttækari blæ og staðið yrði við slagorðið ,,Minna mal – Meira blóð”. Myndirnar tala sína máli:
Hér er myndband frá mótmælunum og hengingunni:
Og hér frá Reuters:
Æih krakkar, ég held að þið skiljið ekki hvernig leik þið eruð í.
Sófisti, þú skilur ekki að við erum EKKI að leika okkur! Okkur er fúlasta alvara!
Hver var hengdur? Hvaða kapítalisti?
Spennó…
Á anarchism.is er aðgerðin kölluð hláleg:
http://www.anarchism.is/bankakrisa
önnur pissukeppni?
Já, Anarchism.is segir það hlálegt að sjá svarta fána á mótmælunum.
En hvað gera þeir sem standa á bakvið Anarchism.is? Hvernig koma þeir boðskap sínum á framfæri ef þeir geta ekki einu sinni drullast til að halda heimasíðunni sinni gangandi? Hvað er þá hlálegt við það að standa með því fólki sem er ósátt við ástandið, dreifa upplýsingum um anarkisma og gegn kapítalisma, og sá anarkískum fræjum?
Ef eitthvað er hlálegt er það Anarchism.is!
Pissukeppni er tilgangslaus. Hún breytir engu.
En má þá ekki a.m.k. pissa á kapítalistana?
eða uppíðá?
og já pissukeppni er tilgangslaus. Nema þá að búa til móral, kjaftæði og leiðindi sem enginn þarf á að halda.
Drengjunum í anarchism.is finnst líka tilgangslaust að mótmæla með því að rölta niður Laugarveginn með plebbunum.
Það flögrar að manni að raunverulega ástæðan fyrir þeirri “pjúrista” afstöðu sé sú að sumir á anarchism.is orki hreinlega ekki að kjaga þetta spölkorn alþýðunnar með allt fleskið, þó brattinn sé á hinn veginn.