English 
Málefni:

Bónusfáninn var dregin að húni á toppi Alþingishússins í dag á meðan fjöldamótmæli stóðu yfir á Austurvelli! Fólkið fagnaði, hló og  og kallaði “RÍKISSTJÓRNIN ER ÓDÝRT SVÍN!”

anarkismi!


 Með þessum gjörningi er bent á að fjármagnið og auðmenn stjórna landinu og ríkisstjórnin vinnur fyrir þá! Einnig bendir þetta á hversu ómerkileg svín starfa inn á Alþingi eins og svo vel er lýst í bókinni Animal farm!  

bónussvín á alþingi

 En aftur að mótmælunum:

Eftir skamma stund náði húsvörðurinn fánanum niður, svo flykktust löggusvín að,  og reyndu að koma í veg fyrir að anarkistinn sem kom fánanum fyrir kæmist niður! Fólkið púaði á lögguna og fjöldi fólks sameinaðist í kringum löggusvínin og krafðist þess að maðurinn fengi að fara niður án þess að vera handtekinn með þeim rökum að maðurinn hefði ekkert brotið af sér.

Samstaða gegn valdníðslu JE!

 

Löggan umkryngd

Löggusvíns-þrælarnir blésu út brjóstkassana og reyndu að koma í veg fyrir að fólkið setti stigann upp til mannsins. Þá kom til nokkurra ryskinga sem enduðu með því að stiganum var náð og fólkinu tókst að rétta manninum stigann.

Bónus á þaki

 

 Alþingi umkringt

Hann komst þá niður og slapp. Í byrjun mótmælanna brýndi Hörður Torfa fyrir fólki að halda ró og spekt, og mótmæla friðsamlega. Ekki varð honum þó kápan úr því klæðinu……Fólk kastaði eggjum og skyri í Alþingishúsið og steyti hnefann að löggusvínunum!

Móturhjólamenn spúðu reyk við Alþingishúsið og svo héldu ræðurnar áfram, Einar Már rithöfundur sagði niður með kapítalið og fólk fagnaði!

Reykur

Gaman, gaman, skilaboðin eru skýr:

Sameinuð stöndum við sterkari!

Ríkisstjórnin er ódýrt svín og

BYLTINGIN ER HAFIN!

 

22 Litlir Negrastrákar:
  1. boobenheim segir, þann :

    word the fuk up!

  2. Heimir H. Karlsson. segir, þann :

    Sæl Öllsömul.

    Athyglisvert að lesa um mótmælin á Austurvelli í dag.

    Því miður gat ég ekki verið þar.

    Ég er ekki viss um að lögreglan sé endilega ósammála mótmælendum. Mjög líklega finnur hinn vejulegi lögreglumaður einnig fyrir óstjórn núverandi valdhafa.
    Ég býst fastlega við því að lögreglumaður borgi einnig af lánum með verðtrygingu, eigi jafnvel maka sem misst hefur vinnuna, eða börn sem eiga að erfa skuldir ríkisins.
    Mig minir að einhversstaðar standi í reglugerð um þær kröfur sem lögreglumanni ber að uppfylla, að hann megi ekki lenda í fjármálaóreiðu.
    Bráðlega verða fáir lögreglumenn sem uppfylla þær kröfur.

    Kveðja,

    Heimir H. Karlsson.

  3. aftaka segir, þann :

    Hér má sjá atburði dagsins:

  4. Aftaka » Færslusafn » Löggan er líka óvinur! segir, þann :

    [...] eru heitir sem eldur eftir mótmælin á Austurvelli í dag. Bálið er vissulega þægilegt enda gott að ylja sér við ánægjuraddir fólks vegna [...]

  5. aftaka segir, þann :

    Hér má sjá lögguþræl lemja unga stelpu á mótmælunum í dag:

    http://www.visir.is/article/20081108/FRETTIR01/849157176/-1

  6. Akurhæna segir, þann :

    Hér eru helvíti fínar myndir: http://www.flickr.com/photos/motmli0811008/

  7. Syndri segir, þann :

    Takk! þú ungi anarkisti sem klifraðir þarna upp. ALLIR tóku vel í gjörninginn. frábær gjörningur

  8. Syndri segir, þann :

    og já RÍKISSTJÓRNIN ER ÓDÝRT SVÍN!

  9. Akurhæna segir, þann :

    Sáuði Hörð Torfa, standandi á sviðinu segjandi fólki hvernig það ætti að hegða sér, bannanadi fólki að brenna fána og skipandi fyrir?

    Hvað heldur maðurinn að hann sér?

  10. Geirharður segir, þann :

    Massívt shoutout til allra sem stóðu að þessari aðgerð.

    Féttin um atburði gærdagsins á vísir.is er viðurstyggileg.

  11. Brandur segir, þann :

    Það er tími til kominn að íslenskt yfirmótmælapakk sem þykist eitt vita HVERNIG á að mótmæla hunskist til þess að skilja þau gömlu sannindi að það er óþverra siður að fordæma félaga sína í fjölmiðlum.

    Skammast þú þín, Hörður Torfason!

    Hver og einn mótmælir með sínu nefi og þannig skal það vera.

  12. Arnar segir, þann :

    Ágætis hugmynd en slök tímasetning. Að hengja upp fánann í miðri ræðu er merki um eigingirni og skeytingarleysi. Fólk kom ekki í bæinn til að sjá “gjörning” heldur til að sýna samstöðu og krefjast aðgerða (burt með seðlabankastjóra, innherjaviðskipti, vinaveldi…).

  13. aftaka segir, þann :

    Fánamaðurinn svokallaði var tekinn í viðtal hjá DV, sjá hér:

    http://www.dv.is/brennidepill/2008/11/11/motmaelin-munu-magnast/

  14. Aftaka » Færslusafn » Valdníðla í verki - 6. hluti segir, þann :

    [...] Fyrir tveimur vikum síðan, Laugardaginn 8. Nóvember, fóru fram vikuleg mótmæli gegn ríkisstjórninni á Austurvelli. Fyrir utan hefðbundin ræðuhöld átti sér stað atburður sem mun lengi sitja í manna minnum. Ungur maður, Haukur Hilmarsson, klifraði upp á Alþingishúsið og hengdi fána Bónus verslananna á fánastöng hússins. Skilaboðin voru einföld: Ríkisstjórnin er ódýrt svín! Aftaka fjallaði um gjörninginn og birti myndir af honum hér. [...]

  15. Pralina Tuttifrutti segir, þann :

    Solidarietà dall’Italia.

    Anarchia e amore!

  16. Islandia] Anarquista detenido; las protestas se vuelven violentas - Burbuja Econ segir, þann :

    [...] Islandia] Anarquista detenido; las protestas se vuelven violentas El pasado viernes era detenido en Islandia el anarquista Haukur H., de Reikjavik, por un periodo de dos semanas debido a su participaci

  17. Acrata segir, þann :

    Solidarity from Spain, companies!!

  18. Protests in Iceland « I Am Junius segir, þann :

    [...] BBC coverage of the protests can be found here, including a video of the protest against police arrest of activists. Photos (and reports in Icelandic) can be found here. [...]

  19. zk segir, þann :

    Video with info in spanish…

  20. zk segir, þann :

    Video with info in spanish….
    http://www.lahaine.org/index.php?p=34540

  21. Flávia segir, þann :

    gustaria de una traducion

  22. Diego García segir, þann :

    samstaða fyrir islenskt fólkið!

    Einn anarkisti vinur frá Barcelona sem likar island. Goð hamingja fyrir islenskt folkið og anarkistur!!

    Ríkisstórnin er ódýrt svín í Islandi, Spáni og Evropi!

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in