Bloggheimar eru heitir sem eldur eftir mótmælin á Austurvelli í dag. Bálið er vissulega þægilegt enda gott að ylja sér við ánægjuraddir fólks vegna róttækra aðgerða gegn kapítalismanum. Það er þó líka sárt, því enn má sjá bloggvini ríkisins væla, segja eggjakastið vera vanvirðingu við Alþingishúsið og sömuleiðis Bónus-fánann.
Og auðvitað leynast svo þar inn á milli aðdáendur lögreglunnar sem væla og væla. ,,Hvers vegna að veitast að lögreglunni?” spyrja þeir og aðrir taka undir: ,,Heyr heyr!”
Já, hvers vegna að veitast gegn lögreglunni?
Byrjum á því að leiðrétta stóran og allt of algengan miskilning: Lögreglan er ekki fólkið – Lögreglan er ekki almenningur!!! Lögreglan verndar hvorki almenning né ver hagsmuni hans. Lögreglan… afsakið ég meina þrælarnir, sjá fyrst og fremst um að halda ástandi samfélagsins eins og yfirvöld krefjast. Vernda hagsmuni valdhafa og vina þeirra, auðmanna. Þrælunum er gert að halda fólki rólegu og kurteisu, með valdbeitingu og valdníðslu. Það sýndi sig afar vel í dag.
Reiði fólks virðist aukast og aukast með hverjum degi. Fyrst komst fólk að því að bönkunum var alltaf sama um almenning því þeirra markmið var fyrst og fremst að græða pening sjálfir. Án nokkrar samvisku skilja þeir skuldir sínar eftir á bökum landsmanna en hverfa sjálfir í sumarbústaðina sína.
Nú hefur fólk svo áttað sig á því að yfirvöldum er heldur ekki annt um almenning. Í stað þess að frysta eignir auðmanna, láta þá borga sínar skuldir og stuðla að raunverulegum breytingum, ætlar ríkisstjórnin að bjarga bönkunum. Bjarga því skítseyði sem lék sér með peninga, raunverulega jafnt sem tilbúna. Ríkisstjórnin mun ekki gera neinar raunverulegar og róttækar breytingar á því kerfi sem við höfum búið við síðustu áratugi. Ríkisstjórnin mun ekki standa í vegi fyrir frekari uppgangi kapítalismanns. ALDREI!
Og við viljum heldur ekki að hún geri það. Við viljum byggja upp frá rótum okkar eigið samfélag. Allt annað samfélag.
En það er ákveðinn minnihlutahópur samfélagsins sem oftast tekst að koma í veg fyrir samfélagsbreytingar og fá borgað fyrir það. Það eru þrælarnir. Með takmarkalausu leyfi sínu vald- og ofbeldisbeitingar tekst þeim yfirleitt að koma í veg fyrir að reiði fólks fái að blómstra og fjölga sér. Þannig viðhalda þeirri spillingunni.
Þrælarnir eiga það til að þykjast ekki hafa neinar skoðanir – ,,bara Bra Bra að vinna vinnuna sína”, vilja ekki tala um pólítík þegar þeir eru í öskudagsbúningunum sínum og segja starf sitt vera ópólítískt. En það er bara lygi – starfið er HÁpólítískt.
Lögregluþjónar eru fyrst og fremst þrælar – þrælar yfirvalda. Fái þeir skipanir fylgja þeir þeim. Þrælar spyrja sig ekki um siðferði aðgerða sinna heldur gera bara það sem þeim er sagt að gera. En eitt er sérstakt við svartklæddu þrælana: þeir þurfa ekkert að gera það sem þeir gera.
Alvöru þrælar (þ.e. þeir sem fá ekkert borgað fyrir þrælavinnu sína og heldur ekki öskudagsbúninga) hafa ekkert val. Þeir eru seldir eða gefnir í þrældóm og eru algjörlega undir skipunum eigenda sinna. Þeim eiga svo sannarlega vorkunn ,virðingu og samstöðu skilda.
Þeir svartklæddu hins vegar velja sér þrældóminn sjálfir og fara meira að segja í skóla til þess að fá starfið. Þeir vilja ekkert heitar en að klæðast svarta búningnum, setja á sig hattinn og beita smá ofbeldi. Ofbeldi hér og valdsníðsla þar; þrælarnir eru alls staðar. Þeir sjá til þess að mótmæli séu innan ,,hefðbundinna” marka svo þau hafi örugglega engin raunveruleg áhrif. Mótmæli mega ekki boða alvöru breytingar, hvað þá leiða til þeirra.
Þegar þrælarnir láta til skarar skríða er ekkert eðlilegra en að fólki bregðist við því og berjist á móti. Það er skylda fólks að láta öskudagsbúningana ekki blekka sig og berjast gegn öllum óvinaöflunum.
Þrælarnir verða aldrei með í byltingunni!
Til að ná hámarksárangri í andspyrnunni verðum við að hafa eitt á hreinu: LÖGGAN ER LÍKA ÓVINUR!
Hér má sjá nokkra þræla lemja unga stelpu á mótmælunum í dag:
Þetta er í annað sinn sem ég sé þennan tengil á tjásukerfinu en ég sé allavega engar barsmíðar á þessum myndum.
Eins ömurlegt og þetta ástand er fynnst mer alltaf jafn fyndið að sja alla sem að gafu skit i mann þegar maður varaði þeim við þessu fa þetta allt uppi rassgatið =)
I. kafli. Hlutverk lögreglu o.fl.
-1. gr. Hlutverk.
-1. Ríkið heldur uppi starfsemi lögreglu.
-2. Hlutverk lögreglu er:
- b. að stemma stigu við afbrotum og koma í veg fyrir athafnir sem raska öryggi borgaranna og RÍKISINS.
——
Og hvad ef ad borgararnir eru osattir med rikid?
Eva:
Þetta gerist þegar hópur fólks hleypur upp að Alþingishúsinu þeim megin sem fánamaðurinn svokallaði hafði farið upp á það. Fólk virðist ætla að komast þangað til að aðstoða hann við að komast niður og sleppa frá handtöku. Fremst í hópnum er stelpa sem svo er tekin af lögreglu og slegin.
Kíktu á þetta aftur og athugaðu hvort þú sjáir þetta ekki.
Solidary greetings from Greece!
I do not speak Icelandic, but I saw the last photo which is from Athens, Greece, from students marches against neoliberal counter-reforms in the universities, if I am indentifying it correctly. Anyway, it is true that in Greece, especially in Athens, this direct clashes with riot police are not uncommon.
Michails:
This article is about the fact that the police is also the enemy. Here in Iceland, too many people believe that the police is a part of the public, defending us and our rights.
Greek anarchists and students can for sure be an inspiration to the Icelandic people. They for sure know how to resist!
Ég er búinn að horfa nokkrum sinnum á þetta myndskeið á visi.is og get bara ekki séð að lögreglan sé að berja þessa stelpu. Ég sé hins vegar fólk labba hreinlega í gegnum lögguna og svo er þessi í græna jakkanum greinilega tilbúinn í eitthvað meira en “friðsamleg” mótmæli
ég horfið oft á þetta myndbrot í leit að einhverjum barsmíðum á einhverri stelpu.
Það eina sem ég sá var það að einhver stelpa var að fara þangað sem hún átti ekkert að fara og einn lögreglumaðurinn ýtti henni til hliðar. Hann var ekki að lemja hana, það sást hendi koma að henni en það var ekki hendi lögreglumanns heldur var það hendi stelpunnar sjálfrar.
Ég held bara að sumir séu að sjá það sem þeir vilja sjá og horfa framhjá því augljósa.
Á mótmælunum þann 15. nóvember, þegar fólkið fór að kasta matvælum í Alþingishúsið gekk ég þar um og hafði gaman af. Í miðjum hópnum kom ég auga á frænda minn sem er á svipuðum aldri og ég. Venjulega yrði ég glöð að hitta frændfólk mitt í miðju eggjakasti en þessi frændi minn er starfandi lögreglumaður og þarna stóð hann óeinkennisklæddur og var á kafi að taka upp atburðinn á myndbandsupptökuvél!
Ég gekk rakleiðis til hans og spurði hann hvort að hann væri að taka upp fyrir lögregluna, honum krossbrá við að sjá mig og fór undan í flæmtingum.
Mér finnst mjög líklegt að hann hafi verið þarna á vegum lögreglunnar að taka upp. Auðvitað vitum við öll að Austurvöllur sjálfur er umkringdur örggismyndavélum sem eru á fleigiferð á mótmælunum að taka upp, en svona njósnir eru líka stundaðar gegn okkur!
Þetta er ógeðslegt, ég lét strax ganga meðal fólks að lögreglumaður væri að taka upp á meðal okkar.
Og ef þú lest þetta Bergsteinn þá eru þetta skilaboð til þín:
Þetta eru fokkkking ófyrirgefanleg svik við réttlætið!
Ég skil ekki þetta virðingaleysi ykkar gagnvart lögreglu. Hvort lögreglan sé með eða á móti fer alfarið eftir því hvað maður stendur. Ef maður stendur sem glæpamaður, þá er lögreglan á móti manni.
Rétt er að lögreglan er ekki fólkið, við erum fólkið og undir eðlilegum kringumstæðum er lögreglan verkfæri okkar.
Mér finnst eðlilegt að hún verji borgarana gegn skríl og prísaði ég mig sælann eitt sinn í danmörku þegar ég lenti inn í miðjum skrílslátum fótboltabullna, en lögreglan kom á staðinn og lægði öldurnar áður en illa fór. Takk fyrir það strákar.
Meiri hluti þjóðarinnar hefur ekki gaman að því að hitta fólk í miðju eggjakasti, við erum vaxin upp úr því.
Eitt sem kemur ekki fram á þessum vef er stjórmálaskoðanir þeirra er halda honum úti. Það er allt fullt af skítkasti um núverandi ástand en minna af uppbyggilegum athugasemdum.
Það er ekki hægt að ná árangri án markmiða. Þið minnið mig dálítið á Lísu í undralandi þegar hún kom að vegamótum og spurði köttin hvaða stíg hún átti að velja.
Kötturinn: Hvert viltu komast?
Lísa: Ég veit það ekki.
Kötturinn; þá skiptir ekki máli hvaða stíg þú velur.
Þið veljið að því er virðst stíginn sem skapar mestan usla en skilar ekki endilega neinum árangri.
Endilega benda mér á slóðina sem vísar á framtíðarsýn og markmið ykkar, ég er forvitinn.
Steinunn: Rosalega ertu barnaleg í seinustu athugasemd. Bara að valda usla, engin stefna? Svik við hvaða réttlæti? Er þetta ekki frjálst land. Eitthvað myndir þú kvarta yfir því ef lögreglan bannaði þér að taka mynd af þeim við störf. Það væri valdnýðsla.
Vá
Eruð þið eitthvað frekar “fólkið”?
sama gamla hálfkveðna vísan ” löggan er ekki fólkið”
Well, ekki þið heldur! Þið eruð ekki fólkið frekar en ég!
Og annað: Ísland er ekki Frjálst land frekar en flest önnur, hhér gilda lög og reglur, nota Bene: Lög og Reglur sem leyfa ykkur að vera með þessa síðu ;) ábyggilega marga sem klæjar að punda á ykkur og öðrum en gera það ekki, vegna þess að það má ekki!
Þess vegna er það ekki frjálst.
Hundskisti bara til Sómalíu og talið um frelsið, þar er öllum frjálst að gera allt sem þeir vilja, stjórnvöld steingeld, alveg eins og þið viljið.
Lýðræðið er algert þar: Lýðurinn gerir það sem honum andskotanum dettur í hug að gera.
Skiljið ekki hvað ég er að tala um?
Þið eruð ekki alveg búin að spá í þessu. Eða hvað?
Alla vega,
Með kveðju: AnonYmousE.
Mér finnst ótrúlegt að þið segist vilja auka umræðu á málefnum ykkar, ein eini staðurinn sem maður getur túlkað skoðanir sínar til ykkar er á ykkar vefsvæði, í umhverfi sem þið getið hafði stjórn á!
Afhverju má ekki setja skoðanir á blogg ykkar á Mbl.is? Eru þið hræddir við að vera skotnir niður? Ég er oft ósamála ykkur og vill segja skoðanir mínar á óviðeigandi og oft ótengdri umfjöllun við frétt sem þið bloggið á.
Eru þið bara að auglýsa ykkur eða megum við segja okkar skoðanir á hlutlausri blogg síðu?
Það er enginn tilgangur í því að vera með tvo staði fyrir umræður. Og já, Mbl. bloggið er bara til þess gert að tengja greinar héðan við fréttir á Morgunblaðinu, þegar það á við.
Tjáðu þig eins og þú vilt hér, ef þú hefur áhuga á því. Hér hefur aldrei nokkurt svar verið ritskoðað eða því eytt, nema þegar skrifað var ranglega undir nafninu Aftka. Því var breytt í fals-Aftaka…
Greinar ykkar eru engan veginn hlutlausar, og að nýta ykkur fréttir sem tengjast ekki íslandi eða íslenska lögregluembættinu er einfaldlega lágkúrulegt.
Miðað við hlutdrægni ykkar í greinagerð finnst mér óviðeigandi að eiga viðræður að þessu tagi á ykkar heimavelli.
Þið munið örugglega finna einhver rök á móti morgunblaðinu fyrir að nýta ykkur ekki blogg.is sem umræðustað.
En ég held þið gleymið því líka, að ef þið ætlið ykkar að kveikja öfluga umræðu, er þetta ekki staðurinn til að gera það. Í dag er fjölmennasti umfjöllunarvefurinn blogg.is Morgunblaðsins.
Ég hef ekki verið var við það að þeir ritskoði efni sem koma þangað inn. Ef þið haldið út öflugri umræðu þar, getið þig, líkt og félagi ykkar Jóhann Þröstur fengið meiri athygli.
Þó svo það sé erfitt að taka mark á ykkur almennt, mynduð þið líklega fá meira orðróm á ykkar á hlutlausum vettvangi eins og blogg.is
Ég myndi t.d. ekki treysta e-mail addressunni minni i ykkar höndum.
Þið eruð nú meiri helvítis rítördin. Lögregluþjónar eru fólk eins og ég, ekki fólk eins og þið í þessum aftökuhóp, heldur fólk eins og ég. Fólk sem sinnir sinni vinnu en lifir ekki á skattfé samborgara sinna. Þið eruð meiri helvítis aumingjarnir að láta reiði ykkar gagnvart ríkisstjórninni (sem ætti frekar að vera gagnvart auðmönnum landsins) bitna á lögregluþjónunum sem koma og redda ykkur þegar á ykkur er brotið.
Grow up