English 

Við hér á Aftöku höfum ákveðið að taka út nafn og myndir löggunnar sem grein þessi er skrifuð um vegna beiðni frá honum sjálfum. Verðum við vör við fleiri óeinkennisklæddar löggur, njósnandi um almenning munum við ekki hika við að spila sama leik, birta nöfn og myndir. Greinin birtist hér nú án nafns og mynda og verður lögreglumaðurinn hér eftir kallaður ónafngreinda löggan.

Til hans gerum við þá kröfu að hann frelsi sig úr sjálfskipuðum þrældóm sínum, taki aldrei aftur þátt í slíkum svikum við almenning og gangi þess í stað til liðs við fólkið og berjist gegn gjörspilltum yfirvöldum.

Síðasta Laugardag, þann 15. Nóvember stóð óeinkennisklæddur ónafngreindur lögregluþræll á Austurvelli með myndbandsupptökuvél í hönd. Já, hann var að safna myndum fyrir lögregluna.

Manneskja sem kannast við óeinkennisklæddu lögguna gekk upp að henni og spurði hann hvort hann væri virkilega að taka upp fyrir lögguna. Ónafngreinda löggan svaraði fáu og hélt iðju sinni áfram. Fyrrnefnd manneskja hóf þá að láta fólkið í kringum sig vita að hér væri lögga á ferð. Að lokum hljóp raggeitin litla upp á Hverfisgötu og skilaði teipunum til yfirmannsins síns.

Á sömu mótmælum henti hópur fólks stórum borða fram af svölum húss sem statt er við Austurvöll. Á borðanum sagði ,,Niður með kapítalismann – Rísi réttlætið!” og höfðu þeir sem hentu fram borðanum, hulið á sér andlitið með svörtum klútum.

Hörður Torfason, sjálfskipaður mótmælastjóri, misnotaði þá aðstöðu sína fyrir framan hljóðnemann og bað fólkið um að taka af sér grímurnar. Hann sagði að við byggjum ekki í þannig samfélagi að fólk þurfi að hylja á sér andlitin.

Þvílík heimska og hræsni!

Raggeitin ónafngreinda löggan og hennar viðvera á Austurvelli er sönnun á því að yfirvöld eru að safna upplýsingum um þá sem mæta á Austurvöll og mótmæla ríkisstjórninni og valdníðslu hennar. Og ónafngreinda löggan var svo sannarlega ekki eina löggann sem stödd var á mótmælunum. Því róttækara og reiðara sem fólk verður, því fleiri óeinkennisklæddir þrælar munu mæta á svæðið til að filma andófið.

Á morgun hefur verið boðað til enn einna mótmæla á Austurvelli. Það er alveg ljóst að löggan verður þar með myndavélar. Ónafngreinda löggan verður eflaust ekki á svæðinu því það er búið að koma upp um hann. En því miður er nóg til af samstarfs-geitum ónafngreindu löggunnar sem eru til í að vinna þetta skítaverk.

Þetta allt saman sýnir enn á ný fram á það að lögreglan er ekki með almenningi í liði. Lögreglumenn eru þrælar, þrælar yfirvaldsins og hafa það eitt að starfi að vernda hag ríkjandi yfirvalda. Þeim er ekki treystandi.

Við hér á Aftöku hvetjum fólk til þess að hafa augun opin og fylgjast með ferðum lögregluþræla á mótmælunum á morgun, sem og alla aðra daga. Takið þið eftir einstaklingum sem þið grunið um að vera óeinkennisklæddir þrælar, beinið þá athygli fólks að þeim og látið þeim líða óþægilega. Þegar þið hafið komist að því hvort um löggu sé að ræða skulið þið ná af þeim myndum og hrekja þá á brott. Sendið okkur myndir ásamt nöfnum og öðrum upplýsingum á aftaka[at]riseup.net.

Einnig skulið þið reyna að ná af þeim myndavélunum og eyða teipunum. Við hvetjum ykkur líka til að koma öllum þeim öryggismyndavélum sem staðsettar eru á og í kringum Austurvöll, fyrir kattarnef. Þær eru líka notaðar til að njósna og eru svo sannarlega ögrun gegn lýðræðinu og tjáningarfrelsinu.

35 Litlir Negrastrákar:
  1. auður segir, þann :

    svarta klúta á línuna, ég býð!

  2. Jón Karl segir, þann :

    Thetta meikar sens. Thad var vidtal vid Jon Geir yfirhoru i norska rikissjonvarpinu fyrir tæpri viku thar sem hann taladi um ad their væru ad undirbua fyrir riot nidri bæ. Thessi hora er sennilega ad taka myndir svo løggan geti “pikkad ut” tha sem hun ser.

  3. Helgi J Hauksson segir, þann :

    Sem áhuga- og stundum atvinnuljósmyndari til langs tíma (sjá bloggið mitt http://hehau.blog.is) verður maður reyndar smeikur um að þú sért að siga fólki á okkur sem höfum einmitt með myndum okkar sannað lýgi fjölmiðla og lögreglu marg oft.

    Nú í þessum laugardagsmótmælum hafa myndir okkar sýnt lýgina um þáttöku og fjöldann.

    Það væri ekki gott að sigafólki á okkur sem erum með rándýr tæki og sköpum grunn fyrir þessum lýðræðislegu athöfnum með vitnisburði tækja okkar andspænis vitnisburðum embættismanna.

    Kv Helgi J Hauksson

  4. aftaka segir, þann :

    Helgi, við kunnum sannarlega vel að meta framlag þitt og annara sem að ljós- og kvikmynda það sem á sér stað. Það hefur einnig margsannað mikilvægi sitt að hafa myndefni af mótmælum og aðgerðum. Það er hinsvegar óhugnarlegt þegar lögreglan er að senda fólk til að taka upp mótmælendur og jafnvel halda um þá skrá.

    Það er ekki mikið mál að svara einhverjum sem spyr mann fyrir hvern maður er að taka myndir fyrir. Það lá hinsvega í augum uppi þegar umræddur lögreglumaður gat ekki svarað hvað hann væri að gera að hann hefði eitthvað óhreint í pokahorninu.

    Auðvitað komum við aldrei í veg fyrir persónunjósnir þar sem t.d. Austurvöllur er umkringdur öryggismyndavélum og ljósmyndir flestar fáanlegar af netinu.

    Hinsvegar verðum við að vera vakandi fyrir þeirri staðreynd að yfirvaldið reynir hvað það getur að koma hönd í hárið á mótmælendum!

  5. Hlín segir, þann :

    Djöfull er þetta ógeðslega sæt lögga…. vitiði hvort hann sé á lausu?

  6. Akurhæna segir, þann :

    Þið ljósmyndarar sem eruð þarna í góðum tilgangi getið auðvitað bara merkt ykkur vel og gert það augljóst að þið séuð ekki óeinkennisklæddir hvolpar ríkisstjórnarinnar.

    Þannig getið þið komið í veg fyrir að ráðist verði gegn ykkur. Farið varlega!

  7. Árni Páll segir, þann :

    Já hann er bara nokkuð sætur strákurinn…

  8. Aftaka segir, þann :

    Árni og Hlín,
    Líf ykkar er tómt
    og tæmdist senilega inn á síðum eins og djamm.is eða rugl.is

    Ykkur er velkomið að fylla ykkur af anarkisma hér en það eru engir sætir anarkistar til.
    Bara grimmir byltingarmenn!
    MEHEHE!

  9. Syndri segir, þann :

    Vil benda þeim sem vilja hylja andlit sitt gegn lögreglunni á þessa grein:

    http://www.crimethinc.com/blog/2008/10/11/fashion-tips-for-the-brave/

  10. hahahahah segir, þann :

    Lögreglulög
    1996 nr. 90 13. júní

    3. [Ef uggvænt þykir að óspektir verði á mótmælafundi, í kröfugöngu eða á annarri slíkri samkomu á opinberum stað er lögreglu heimilt að banna að maður breyti andliti sínu eða hylji það eða hluta þess með grímu, hettu, málningu eða öðru þess háttar sem er til þess fallið að koma í veg fyrir að kennsl verði borin á hann.]1)

    þessi er enn betri !!!!

  11. Hilmar segir, þann :

    Þið komist varla með þetta á lægra plan en hér birtist okkur. Það vita flestir hugsandi menn að nóg er af myndavélunum þegar mótmæli af þessari stærðargráðu fara fram.
    Við sem ætlum sannarlega að mótmæla kippum okkur ekki upp við það að við séum ljósmynduð af lögreglu, blaðamönnum eða áhugafólki. Ef þetta er myndað í bak og fyrir þá minka a.m.k. líkurnar á því að vera tekinn í misgripum fyrir glæpamenn sem koma til að brjóta lög og kasta eggjum eins og börn.
    Skammist ykkar fyrir að vera með lufsur yfir andlitinu á mótmælafundum
    Skammist ykkar fyrir að brjóta lög og kvarta yfir viðbrögðum
    Skammist ykkar fyrir að draga starfsmann lögreglu hér upp á síðunni, nafngreindan með myndum
    Skammist ykkar fyrir að nota ekki ykkar eigin nöfn á síðunni
    Skammist ykkar!

  12. Eiríkur segir, þann :

    samála það sem Hilmar sagði!! heyr heyr

  13. Ólafur F. segir, þann :

    HVURN ANDSKOTANN ER AÐ YKKUR ? Hann beggi er lögga og hvað með það ? hann er að taka upp á myndavél hvað með það ?
    ÞIÐ GERIÐ ÞAÐ SJÁLF TIL AÐ SÝNA ÖÐRUM..

    Sá sem gerði þessa frétt er ekkert annað Fjandans hálviti sem á að hoppa upp í raskatið á sér og hugsa hluti áður en þú framkvæmir. Þetta er ekkert annað en árás á persónulegt líf !! Þetta er ekki mótmæli þetta er FÁRÁNLEGT AÐ RÁÐAST Á EINN EINSTAKLING

  14. aftaka segir, þann :

    Við skömmust okkar ekki hót fyrir að afhjúpa svikara!
    Lögguþrællinn gat hvorki tekið ábyrgð á því sem hann gerði né staðið með því. Það er ekki vandamál þeirra sem koma upp um RAUNVERULEGAR persónunjósnir að lögguþrælar fari á bömmer yfir að upp um þá komist. Þeir verða að gera sér grein fyrir að þær njósnir sem þeir stunda fyrir yfirvaldið getur haft í för með sér MJÖG alvarlegar afleiðingar fyrir þá sem er njósnað um.
    Það sem er að gerast hérna á Íslandi er ekkert grín, hér ríkir enginn friður, hér er stríðsástand og engum sem svíkur framgöngu réttlætisins verður sýnd vægð!

  15. hugsi segir, þann :

    Hvaða aumingjaskapur er það að fjarlægja myndina??? Er aftaka farin að lúta vilja valdsins??

  16. aftaka segir, þann :

    Við lútum engu valdi og enginn valdhafi hafði samband við Aftöku.

    Það er mikill munur á beiðni og skipun. Það er engin ástæða til að hlýða skipunum en það er mannlegt að hlusta á beiðnir og taka þær til athugunar.

    Ónafngreindi lögreglumaðurinn áttaði sig á kjánaskap sínum og bað um að myndirnar og nafnið yrðu fjarlægð. Við ákváðum í þetta skiptið að fara að ósk hans en gerum þá kröfu að hann sjái að sér og taki ekki þátt í slíkum þrældómi og svikum við almenning aftur.

    Batnandi þrælum er best að lifa og séu þeir frelsaðir úr ánauð (reyndar í þessu tilviki sjálfskipaðir ánauð) eiga þeir möguleika á því að bæta sig. Það er vonandi að hann hætti þessum þrældóm.

    Við höfum þegar séð hann.

  17. Akurhæna segir, þann :

    Það er heldur engin ástæða til þess að Aftaka taki að sér alla þætti baráttunnar, þar með talið bókhald andspyrnunnar.

    Er ekki kominn tími til að fleiri róttækar heimasíður, dagblöð, útvarpsstöðvar og annars konar miðlar verði settir af stað?

    Hugsi, ertu geim?

  18. Ólafur segir, þann :

    hugsi:

    nafni minn Ólafur F. sem virðist styðja lögguna hefur líka nafngreint hann í svörum sínum hér á síðunni…

  19. Óli dvergur segir, þann :

    Ég get ekki annað en lesið óbeina hótun úr þessari grein, gegn öllum sem bera myndavélar eða upptökuvélar. Sem áhugaljósmyndari lít ég á það sem slæma þróun að geta átt von á því að verða áreittur fyrir að sinna friðsamlegau áhugamáli.

    Þið hljótið að gera ykkur grein fyrir því að því fleiri myndavélar því betra, lögreglan er ekki minna mynduð aðrir, sem hlýtur að veita henni smá aðhald.

  20. aftaka segir, þann :

    Óli Dvergur:

    Ekki taka þessu svona nærri þér. Auðvitað þarf fólk að hafa rökstuddan grun fyrir því að um sé að ræða lögreglu.

    Í sögunni hér að ofan var staðan sú að manneskja sem þekkir til löggunar ónafngreindu og veit að hann er lögga, tók eftir honum og þótti athæfi hans undarlegt, fór upp að honum og spurði hann hvað hann væri að gera. Hann gat ekki svarað fyrir sig og fljótt kom í ljóst að hann var að filma fyrir yfirmenn sína.

    Eitt sem gott er að gera ef þig grunar að ljósmyndari sé óeinkennisklædd lögga er að taka mynd af honum á móti. Sé hann þar af góðri og gildri ástæðu er honum líklega sama en sé hann óeinkennisklædd lögga er mjög líklegt að hann hörfi, því ekki vill hann að komið sé upp um njósnir löggunnar.

  21. aftaka segir, þann :

    Í greininni stendur m.a.:

    ,,Þegar þið hafið komist að því hvort um löggu sé að ræða skulið þið ná af þeim myndum og hrekja þá á brott.”

  22. Vikingur segir, þann :

    komin tími að svínin óttist að njósnað sé um þá og einhver byrtist allt í einu og fokkar í þeim.

    ef þeir finnast meðal oss í mótmælum verður þeim stútað þannig er best að hvetja lögreglu að reyna þetta ekki ef þeim er annt um hvolpana sína.

  23. Fannar Gíslason segir, þann :

    Þessi grein finnst mér virkilega dapurleg og eruð þið mögulega ekki sammála mér í því.
    Þó svo að margir í þjóðfélaginu styðji ekki allt sem þið gerið er ekki þar með sagt að hann sé svín , svipað og þið segið með þessari grein.
    En ég spyr, hvers vegna er bannað að taka myndir af mótmælum? Ef mótmælin eru friðsamleg. eins og þið gerið ykkur út á, hví má lögreglan ekki taka myndir til þess einmitt að finna þá sem brjóta á sér.
    Ég vona allavega að þið hafið verið með friðsamleg mótmæli hingað til. Greinilega ekki ef marka má athugasemdir við greinina.

  24. Slarkandi Tregleiki í vonleysinu segir, þann :

    Hilmar, þú ert ekkert annað en þröngsýnn smáborgari.
    Við sem sáum eitthvað athugavert við samfélagið áður en efnahagsundrið hrundi erum ekki að berjast fyrir endurreisn “gamla góða íslands”. Efnahagurinn rétt eins og stjórnkerfið var og er bygt á spillingu, kúgun og lýðskrumi – það má missa sín, byggjum upp samfélag þar sem hagsmunir fólks eru metnir ofar sérhagsmunum fyrirtækja.
    Ég gef skít í mótmæli þín og þinna líkra ef þú berst ekki fyrir neinu æðra en endurkomu glataðs lífsmunsturs og neyslumóki afneitunar.
    Ef þú getur ekki sýnt samstöðu gegn valdhöfum þrátt fyrir mismun í aðferðafræði áttu ekkert hlutverk í neinum róttækum breytingum heldur einungis ódýru lýðskrumi.
    Það skipti meira máli að gera það sem er rétt en að passa upp á lagabókstafi, og það skiptir svo sannarlega meira máli að geta sýnt samstöðu gegn ofríki valdhafa en að fróa eigin fordómum um aðferðafræði.
    Og ég vona svo sannarlega að greinarhöfundur skammist sín ekki á því að afhjúpa lögreglumannin sem fór óeinkennisklæddur að mynda mótmælendur gagngert til þess að safna sönnunargögnum gegn því. Það þarf einmitt meira af þessu, fólk afsakar hegðun sína með því að það sé bara að gera vinnuna sína, með því að beina athyglinni að einstaklingum en ekki hlutverkinu sem fólk skýlir sér með þá þrýstum við á það að taka ábyrgð og afstöðu. Lífið er pólítískt og það er ekkert hægt að forðast afstöðu með afsökunum, afstöðuleysið svokallaða er nefnilega líka afstaða.
    Það þarf fífl til að heyja baráttu á forsemdum andstæðings síns. Fólk þarf að þróa með sér réttlætiskennd og fylgja henni, en gefa upp þrælslundina í staðinn. Grímur og nafnleynd, eggjakast og afhjúpanir á internetinu eru ekki fyrir alla, en allt á þetta rétt á sér þótt að smáborgar þessa lands hneykslist saman í bloggkór og æpi skríll.
    Friðsamlegt þýðir ekki endilega löglegt eins og bent er á í ágætis grein í dagblaðinu Nei: http://this.is/nei/?p=952

  25. Glúmur Angan segir, þann :

    Það þýðir ekki að reyna að ritskoða lögregluna. Hluti af andófi eins og þið virðist aðhyllast er að vera handtekinn. Það er hægt að afla stuðnings þegar maður stendur frammi fyrir óréttlátri valdbeytingu. En þegar mótmælendurnir sjá um valdbeitinguna og yfirvaldið er bara að verja sig þá er það yfirvaldið sem aflar stuðnings. Það er allt í lagi að spyrja menn fyrir hvern sé verið að taka myndir, spyrja jafnvel hvort þeir starfi fyrir lögregluna og andmæla eftirlitinu án ofbeldis ef um lögreglumann er að ræða. Það er samt ekki hægt að neita neinum um grundvallar mannréttindi, hvort sem hann er lögreglumaður eða ekki. Þeir sem flokka fólk niður og mismuna því svo eru ekki að sinna góðum málsstað.

  26. aftaka segir, þann :

    Fannar Gíslason:

    Friðsamleg mótmæli henta kannski vel á friðartímum. Nú er tíðin önnur. Ófriðsamleg mótmæli hafa skilað miklum árangri og spilað stóran þátt í öllum réttindabaráttum sögunnar.

    Afneitun á því er sögufölskun.

    Yfirvöld eru ekki friðsamleg og hljóta því að þurfa ófriðsamlegt aðhald.

  27. Sævar segir, þann :

    ,,Við skömmust okkar ekki hót fyrir að afhjúpa svikara!
    Lögguþrællinn gat hvorki tekið ábyrgð á því sem hann gerði né staðið með því.” Segir þú svo ,,aftaka” manneskja sem ekki þorir að koma undir nafni!!! Þú ert ekkert nema þræll eigin fáfræði og munurinn á þér og þessum ,,Lögguþræll” er að þræla vinna hans fæðir hann og klæðir en er hægt að segja það sama um þrælavinnu þína?

    ,,Þeir verða að gera sér grein fyrir að þær njósnir sem þeir stunda fyrir yfirvaldið getur haft í för með sér MJÖG alvarlegar afleiðingar fyrir þá sem er njósnað um.” Þetta virkar ekki svona manneskja það eru gjörðir þínar sem hafa alvarlega afleiðingar í för með sér en ekki ,,njósnir” (eins og þú kallar það) yfirvaldsins og hvernig er hægt að ,,njósna” innan um 4-5000 manns segðu mér það?

  28. Gunna segir, þann :

    Sæll Sævar, afhverju er það sem löggan gerir eitthvað betra afþví að hún fær borgað fyrir það en ekki böðlarnir á aftöku?
    Mér finnst persónulega meira til þess koma að fólk noti tíma sinn til að berjast fyrir sínum hjartans málum og fylgja eigin samvisku en að elta peninga og frama (og ég er ekki að segja að löggan sé að því), en það er bara mín skoðun.
    En ég held að ég sé ósammála seinni málsgreininni þinni, vissulega hafa gjörðir aftökufólksins líka afleiðingar, en þegar lögreglumenn eru að villa á sér heimildum og taka upp á vídjó mótmæli til að safna sönnunargögnum, þá finnst mér það amk vera njósnir. Og mér sýnist þetta bara vera sjálfsvörn gegn lögreglunni.
    Friðsöm mótmæli eru ekki alltaf lögleg, og þótt lögreglan sé búin að haga sér ágætlega núna undanfarið þá þarf hún stöðugt aðhald.

  29. Friðmundur segir, þann :

    Það var fjöldi óeinkennisklæddra lögguþræla á útifundinum á Austurvelli síðasta laugardag (22. nóv.). Þeir komu út úr hvítri amerískri skólarútu sem lagt var framan við veitingahúsið Við tjörnina. Ég sá a.m.k. 2 konur sem voru klæddar lopapeysum og í gallabuxum auk nokkurra ungra karla sem voru líka borgaralega klæddir. Önnur áðurnefndra kvenna hljóp fyrir hornið á Alþingishúsinu inn á Austurvöll og hrópaði baráttuslagorð mótmælenda svo til að falla inn í hópinn. Hins vegar var hún sú eina sem var að hrópa þá stundina. Flestir lögguþrælarnir sem ég sá voru með talstöð í beltinu sem sást niður undan yfirhöfninni og tækjabelti utan um sig undir jakka eða lopapeysu. Best er að fá nokkra til að standa nálægt umræddri rútu og hlaupa síðan með hverjum lögguþræl hverju sinni og kalla upp að þetta sé lögguþræll og taka myndir af þeim eins nálægt og hægt er. Þetta lið hefur ekki leyfi til að taka myndavélar af fólki þótt það haldi að löggur hafi ofurvald yfir öllum.

  30. Aftaka » Færslusafn » Matur fyrir Aftökubörnin segir, þann :

    [...] þeim sem staddir voru á mótmælunum. Aðspurður sagði hann fátt en hélt verki sínu áfram. Hér á Aftöku voru birtar myndir af þrælnum ásamt nafni hans, og vakti umfjöllunin mikla athygli. [...]

  31. Vilhelm Vilhelmsson segir, þann :

    Þó ég sé ekki sammála hvatningum Aftöku um að fjarægja myndavélar af þeim sem sannaðir eru sem “undercover” löggur, þá skil ég afstöðu þeirra, ólíkt flestum þeirra naive einstaklingum sem hér hafa kommentað.
    Þó sá mótmælakúltúr sem sé að þróast nú sé nýr á Íslandi þá er hann ekki nýr annars staðar. Íslensk lögregla hefur tekið þátt í ótal ráðstefnum og kennslusamkomum þar sem kennt er hvernig á að vinna gegn mótmælendum. Hún hefur þannig lært af reynslu erlendra starfsbræðra sinna sem hafa einmitt mætt svona mótmælaaðferðum “face to face” áður. Aftaka er að læra af viðbrögðum erlendra aðgerðasinna við slíkum aðferðum.
    Ég hef persónulega orðið vitni að því er lögreglumenn í “alþýðuklæðnaði”, með blaðamannapassa um hálsinn, stíga upp í lögreglubíl og keyra í burtu eftir að hafa tekið myndir af mótmælendum sem hafa sig í frammi hér í Danmörku. Ótal réttarhöld hérna hafa einnig sýnt fram til hvers þessar ljósmyndir eru notaðar.
    Sumir hér hafa kommentað um persónufrelsi lögreglumannanna. En þetta er röng rökfærsla því þessir lögreglumenn eru einmitt ekki staddir þarna sem “persónur” heldur sem fulltrúar lögregluembættisins, sem er stýrt af ríkisvaldinu. Þeir þurfa því að hlúta þeim reglum sem gilda um starf þeirra, en ekki réttindum þeirra sem einstaklingar. Um starf þeirra gilda mjög strangar reglur, sem m.a. kveða á um tilkynningaskyldu, þ.e. að þeir séu skyldir um að láta vita að um lögregluaðgerð sé um að ræða. Á því eru undantekningar en þær eru ætlaðar fyrir “raunverulega” undercover starfsemi eins og upprætingu glæpagengja, ekki njósna um mótmæli.
    Sævar: Það er mjög auðvelt að njósna innan um 4000-5000 manns; þú dulbýr þig einfaldlega sem eitthvað sem þú ert ekki.
    Óli dvergur og aðrir ‘professional’ ljósmyndarar: Ég skil ekki hvernig þið sjáið hótun gegn starfi ykkar hér. Ef þið getið sýnt fram á að þið eruð ekki löggan (sem er almennt frekar auðvelt því við róttæklingar erum almennt frekar trúgjörn) þá eigið þið ekki í nokkrum vandræðum.
    Hilmar: Þú ert með alvarlegustu skammirnar hér og verðskuldar því ígrundaðasta svarið. Þú virðist ekki gera þér grein fyrir alvarleika þess að taka þátt í mótmælum. Ég er hér ekki að segja að mótmæli séu/eigi að vera alvarleg heldur að þáttaka í slíku getur (og hefur) haft alvarlegar afleiðingar fyrir fólk. Ég persónulega þekki fólk sem hefur setið í fangelsi í nærri mánuð fyrir að taka friðsamlega þátt í mótmælum sem enduðu í óeirðum. Því þegar löggan ákveður að láta til skara skríða þá gera þeir engan greinarmun á friðsömum og ófriðsömum mótmælendum. Við erum öll óvinurinn þá! Þú gerir heldur ekki greinarmun á “löglegu” og “réttlátu” né “siðlegu”. Það er gamalt og gott íslenskt máltæki sem segir að eitthvað sé “löglegt en siðlaust”. Það á við hér, jafnvel þó öfugt sé. Það sem ólöglegt er, getur verið siðsamlegt og réttlátt, jafnvel nauðsynlegt. Hvort sem okkur líkar betur eða verr þá er lögreglan á enda dagsins vöðvabúnt ríkisvaldsins og ef því finnst því vera ógnað þá hnyklar það vöðvana. Þá breytir engu persónulegar skoðanir einstaka lögregluþjóna, þeir verða að hlýða eða missa vinnuna. Og ég (og þú!) endum í fangageymslum. Þess vegna hyljum við andlit: því þá þekkjumst við síður komi slíkar aðstæður upp (og vegna þess að hver við erum skiptir ekki máli heldur hvað við stöndum fyrir), þess vegna brjótum við lög OG kvörtum yfir viðbrögðum; vegna þess að það sem er löglegt er ekki alltaf siðsamlegt og ólöglegt siðlaust, eins og svo margir mannréttindafrömuðir hafa sagt: “óréttlát lögum á ekki að fylgja einmitt vegna þess að þau eru óréttlát”, við setjum hér upp myndir af einstökum lögregluþjónum til að vernda okkur (og sam-mótmælendur okkar) frá fangelsisvist eða sektum því að þeir eru að safna myndum af okkur í gagnabanka til að geta tekið okkur úr umferð fari atburðir á versta veg, geri þeir það er rétt að við reynum okkar besta til að tryggja að svo gerist ekki.
    Þessi síðastnefndi puntkur þarfnast ítrekunar. Svo lengi sem til hefur verið miðstýrð lögregla hefur hún gert sitt besta til að tryggja ríkjandi ástand, það gerir hún meðal annars með því að fylgjast með og “documenta” hverjir líklegustu “vandræðagemlingarnir” (heyri ég sagt Gandhi og Nelson Mandela?) eru og hvernig best sé að ná þeim sem fyrst, komi til vandræða. Viðkomandi eru svo látnir bera ábyrgð á öllu sem gerist (Mandela sat inni í 27 ár fyrir réttláta, en ólöglega, frelsisbaráttu) og einmitt myndirnar af þeim notaðar sem sönnunargögn gegn þeim.
    Að afneita þessari taktík lögreglunnar, og neita að bregðast við henni, er ekki bara barnalegt af öllum mótmælahreyfingum heldur hreint út sagt dauðadómur yfir þeim.

  32. Árni segir, þann :

    Það er réttur okkar að mótmæla FRIÐSAMLEGA! Það em þið eruð að hvetja til eru ekki friðsamleg mótmæli. Þessi réttur er festur í stjórnarskrá. Lögregla mætir á mótmæli til að hafa eftirlit með því að líf og limum sé ekki ógnað eða eignum almennings.

    Það er öllum frjálst að mótmæla og það hefur engin þaggað niður mótmæli sem hafa staðið yfir nú nýlega. Hins vegar er það ekki réttur okkar að mótmæla með ofbeldi og skemmdarverkjum. Það er engin þörf fyrir ofbeldi og skemmdarverk. Líklegast eru myndavélarnar til að festa á filmu þegar einhverjum af ykkur dettur í hug að brjóta rúðu eða álíka. Heldur engin þörf fyrir fólk að hylja andlit sitt, það bendir aðeins til þess að fólk hafi ekki neitt gott í hyggju ef það þarf að hylja andlit sitt, það eru ekkert annað en gungur sem geta ekki komið fram á þessu friðsama landi okkar án þess að hylja andlit sitt.

    Hvet ykkur aftökupakk sem augljóslega eruð í mikilli tilvistarkreppu til að flytjast til sómalíu og búa þar í eins miklu stjórnleysi og ykkur sýnist. Hef ekki áhuga á því hér á landi.

    Voru mótmælin þögguð niður? NEI! lögreglan var þarna til að hafa eftirlit með þessum mótmælum sem fóru þarna friðsamlega fram og vera til staðar ef ykkur hefði dottið í hug að kveikja i alþingishúsinu, þá hefði það örruglega náðst á filmu, sem kallast sönnunargögn.

    Hingað til hefur lögreglan á íslandi veitt mótmælendum aðstoð, eins og tildæmis umferðarstjórn, lokunum á götum og eftirliti.

    Svo er það eitt! Hvaða harðræði hefur ykkur verið beitt, hefur ykkur verið neitað um menntun, fáið þið ekki nóg að borða eða fá þið ekki heilbrigðisþjónustu?

    Þrátt fyrir mikil mótmæli og miklar svívirðingar og annað sem gengið hefur yfir ríkistjórn og alþingi, þá hefur engin fjóldi fólks verið handtekin eða beittur harðræði. Engin mótmæli hafa verið þögguð niður sem teljast friðsamleg mótmæli. Feisið það bara að þetta er kjaftæði í ykkur!

  33. Boggi segir, þann :

    Árni, þú getur átt þessi réttindi þín sem þú þiggur úr lögum annara manna fyrir sjálfan þig og annað fólk sem getur ekki séð lengra en það fær leyfi til. Réttind og lög í þessum skilningi sem þú setur í orðin eru búin til af mönnum af holdi og blóði, ekkert heilagri eða æðri en ég eða þú. Og þegar þessi lög og réttlæti eru notuð til að níðast á fólki þá er ekkert sjálfsagðara en að allir sem geta geri sitt besta til að stöðva óréttlætið.
    Þó að ég og þú högnumst beint og óbeint á valdníðslu og óréttlæti þá þýðir það ekki að við getum ekki reynt að binda enda á það. Vandamálið á íslandi er að stórum hluta sá að við erum forréttindaþjóð, hluti af elítuni sem kúgar aðrar þjóðir. Stóru strákarnir fara í stríðsleiki til að sjá okkur fyrir olíu og Kínverska ríkið skítur verkafólk sem vill meira en dollar á dag í hausinn, svona svo við getum keypt ruslið í Tiger ódýrt.
    Og ljótasta óréttlætið sem á sér stað daglega á Íslandi er fremur falið en sett í allra augnýn. Konur lamdar af körlunum sínum og konum nauðgað í húsasundum. Útlendingar hafa verið misnotaðir og arðrændir íllilega af gráðugum svínum í mörg ár, fá ekki launin sín og undir sífeldri ógn innflytjendastofnunar.
    Svo Árni, éttu skít. Ég hef rétt á því að búa í samfélagi sem er ekki ógeðslegur valdníðslu neysluóður lekandi, og ef það þarf að brjóta einhverjar rúður – só bí it.

  34. Árni segir, þann :

    Boggi þú ert örruglega ágætur og enginn fantur. Enn réttlát lög sprett upp af almennri skynsemi, leikreglu sem samfélagið kemur hefur komið sér upp. Líkt og að allt sé ekki brotið og bramlað þó einhver sé ósáttur og vilji mótmæla. Líkt og þau lög sem eiga koma í veg fyrir það að það sé sjálfsagt að ég gangi í skrokk á þér aðeins útaf því að þú hefur aðrar skoðanir eða mér væri illa við þig. Lög eins og þau sem eiga koma í veg fyrir það að ég geti ráðist inn á heimilið þitt og tekið það sem ég vildi. ÞÚ getur lesið og gluggað í lög og reglur eins og þér sýnist og ég efa að þú finnir þar lög sem aðeins eru gerð til þess svo hægt sé að níðast á þér.

    Ef þú finnur fyrir mér valdaníðslu lög sem heimila að þú sérst beittur harðræði, pyntingum eða örðum óþægindum sem þú kýst að vera ekki beittur. Sjálfsögðu getur þú farið út í heim og fundið heilan helling af valdaníðslu.

    Auðvitað eru til fullt af ógeðslegu fólki þarna úti sem beitir aðra ofbeldi og nauðgar, en get alveg sagt þér það að á málum sem þessum er tekið á á íslandi samkvæmt lögum. Það er enginn beittur óréttlæti hvað kemur meðferð á þessum málum. Óréttlæti sem þessu er aðeins hægt að koma í veg fyrir með aukinn meðvitund og siðferðiskennd í samfélaginu. Það getur löggjafinn gert með lögum sem ætti að koma í veg fyrir að fólk komist upp með svona hegðun. Ef þú lemur konu þína og lögregla kemur á staðin þarf lögregla að fara eftir sérstökum verklagsreglum svo allur réttur fórnalambsins komist á leiðarenda.
    Linkur á verklagsreglur :http://www.kvennaathvarf.is/media/frettir/Heimilisofbeldi_verklagsreglur1.pdf
    Held að allt sé gert til að koma í veg fyrir óréttlæti líkt þessu. Hvað leggur þú til að sé gert til að binda enda á þetta óréttlæti, leggja dómskerfið og löggæslu niður?

    Boggi ekur þú bifreið eða gengur þú allar þínar leiðir? Notar þú heimilstæki eða vinnuru allt sjálfur í höndunum? Kaupir þú matvörur innfluttar út í búð eða stundar þú sjálfsþurftarbúskap?

    Ert þú öðruvísi en hinn hefðbundni íslendingur? Þú hefur þann rétt að sjálfsögðu til að velja að búa ekki í þannig samfélagi. Hvað viltu að íslensk stjórnvöld geri, banni innfluttning á vörum sem framleiddar í kína? Banni innflutning á olíu? Heldur þú að nokkuð sem íslensk stjórnvöld eða það sem þú gerir eigi eftir að breyta einhverju?

    Ég er alveg hlyntur að bundið verður enda á kúgun í heiminum. Ég veit bara ekki hvort þú sérst að berjast gegn þessu á réttum vettvangi

    Hvað í fjandanum ertu að reyna koma til skila? Það að lögregla sé að ýta undir óréttlæti gegn konum og hvetja til nauðgana? Er lögreglan óvinurinn?

    Skil ekki þessar aðgerðir sem þið eruð að standa fyrir, þetta er ekkert annað en barnalegt og fáránlegt leikrit. Fólkið í landinu kaus fólkið sem það hélt að myndi stjórna landinu best, svo kom annað í ljós. Margir hafa mætt á mótmæli og komið þrystingi á stjórnvöld og þegar er byrjað að tala um nýjar kosningar sem mjög líklega verða haldnar.

    Almenningur hefur ekki enþá ráðist á alþingishúsið og knésétt stjórnvöld og það er ekki það sem við þurfum, chaos og rugl sem myndi fylgja því. Ef ekki hefði verið fyrir nokkrar löggur til að sópa liðinu út anddyri alþingishúsins væruð þið þá búin að knésetja stjórnvöld? Lögreglan er ekki óvinurin það er einfalt. Þið getið mætt og mótmælt eins og ykkur sýnist.

    Lítið bara á það sem forréttindi að ekki sé búið að loka þessa sem standa fyrir þessum skrípaleika inni í fangabúðum upp á hálendi. Sem auðvitað ætti ekki að gera.

  35. Onefndur segir, þann :

    Muniði svo. Að ef einhver tekur mynd af ykkur þá þarf að spyrja ykkur um leyfi. Annars er verið að brjóta persónulögin. Sem sagt þessar myndatökur voru ólöglegar þar sem þið voruð ekki spyrðir hvort mætti taka mynd.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in