English 

Valdníðslu lögreglunnar mótmælt og eggjum kastað í sérsveitarmenn

Fjöldi fólks hefur safnast saman við lögreglustöðina við Hlemm til að mótmæla handtöku Hauks Hilmarssonar, mannsins sem hengdi Bónus-fána á þak Alþingishússins fyrir tveimur vikum síðar. Fjölmiðlar landsins eru ekki sammála um fjölda mótmælenda en talan rambar á milli 200 og 500. Mikil reiði er í fólki og hafa margar rúður hússins verið brotnar. Fólk hefur einnig brotið sér leið inn á stöðina.

Sérsveitarsvínin

Rauðri málningu hefur verið helt á húsið og eggjum kastað bæði í húsið og í lögregluþrælana sem standa fyrir framan húsið. Þar er helst um að ræða sérsveitarmenn ríkislögreglustjóra og hafa þeir beitt piparúða til að reyna að hafa stjórn á fólkinu.

Barist við svínastíuna

Loksins, loksins! Nú er fólk svo sannarlega búið að átta sig á viðbjóðslegu eðli yfirvalda og hlutverki löggunnar innan valdníðslunnar. Upphrópanir um að löggan sé með almenningi í liði eru algjörlega úr tómu lofti gripnar. Löggan er líka óvinurinn og réttætisbaráttan snýst gegn löggunni jafnt sem ríkisstjórninni.

SérsveitarSvínin umkringja húsið

Það ríkir enginn friður og það er engin ástæða til þess að beita friðsamlegum aðgerðum gegn ofuröflum ríkisins. Þau þarf að berja niður með róttækri baráttu. Engin vettlingatök!

Látum lögguna ekki komast upp með að njósna um almenning, handtaka, berja og brjóta á okkur. Leyfum þrælunum ekki að vernda gjörspillta ríkisstjórn landsins með piparúða, kylfum og öðrum vopnum. Stöðvum spillinguna núna!

Takist ekki að frelsa Hauk í þetta skiptið verðum við bara að halda áfram. Tökum yfir lögreglustöðina og losum okkur við ógeðslega skítinn sem hana fyllir.

Barist gegn svínunum

Móðir Hauks rétt áður en hún var gösuð af sérsveitarsvínunum

Mótmælendur gasaðir

Viðbætur:

- Heimildir segja að móðir Hauks sé á leið upp á spítala til að fá aðhlynningu vegna piparúða sem sérsveitarmenn úðuðu í andlit hennar. Nú hlýtur Björn Bjarnason að vera stoltur af litlu hvolpunum sínum.

- Álfheiður Ingadóttir, þingkona Vinstri Grænna er á svæðinu og aðstoðar fólk sem hefur verið úðað með piparúðanum. Við fögnum því að þingkona finni sér gáfulegra og uppbyggilegra starf en að hanga á Alþingi.

Haukur

- 18:30 – Hauki hefur verið sleppt eins og sést á myndinni hér að neðan. Ónafngreindur aðili greiddi sekt Hauks. Við á Aftöku fögnum frelsi hans, þó vissulega hafi peningur þessi farið beint í hendur óvinanna.

30 Litlir Negrastrákar:
  1. Björgvin segir, þann :

    Næst Vera með Sundlgleraugu í vasanum
    Alltaf
    Kveðja

  2. Gunnar segir, þann :

    Þetta var nokkuð mögnuð uppákoma. Nú hefst leitin að manninum með tvö hundruð þúsund kallinn, ekki geta þeir verið margir sem eiga slíkar upphæðir á þessum síðustu og verstu ;)

  3. Björgvin segir, þann :

    Já nú hefst leitin af honum

  4. Hilmar segir, þann :

    Enn og aftur er ég gáttaður.
    Ef þú espar hund nógu mikið upp þá bítur hann. Þið eruð að sanna það fyrir mér að hér sé á ferð hópur af meðalgreindum raggeitum, sem vill láta bíta sig til að segja síðan að hundurinn sé hættulegur.
    Flestir með lufsu fyrir andlitinu, ekki af því að stjórnvöld beiti réttláta ranglæti heldur til þess að forðast afleiðingar eigin lögbrota.
    Ég vona að mace úðinn kenni ykkur að stinga ekki hendinni upp hundinn þegar búið er að króa hann inn í horni.
    Þið gætuð verið að gera svo miklu meira fyrr málstaðinn með því að standa betur að þessu.
    Hætta bjánaskapnum og hlekkja ykkur við ráðherrabíla.
    Það eru óhæfir ráðherrar við stjórnvöllinn núna ásamt seðlabankastjóra. Nei látum þá halda áfram en ráðumst inn á lögreglustöðina. Halló.

  5. Jón Thoroddsen segir, þann :

    Hilmar, hvað eigum við að gera þegar þeir sem hlekkja sig við ráðherrabíla eru handteknir? Við verðum að sýna að við stöndum saman gegn valdníðslu.

    Það þarf að setja múl á hundinn ef hann bítur.

  6. Hilmar segir, þann :

    Ef maður hlekkjar sig við bíl þá verður maður að verða tilbúinn til að taka afleiðingunum… Þess vegna hlekkja ég mig ekki við bíla.

    Frakkarnir virðast kunna þetta betur en við. Þar koma bændur með grænmeti og skít og hella fyrir framan ráðherrabústaði ofl.
    Svo lengi sem mótmælin eru “friðsæl” og valda ekki í skemmdum á eignum þá á að vera hægt að komast hjá handtöku (annað er valdníðsla). Það er t.d. friðsælt að setja hlass af sandi fyrir framan bílainnganginn á seðlabankanum og skilti sem segir að Davíð hafi verið sagt upp.
    Mestu máli skiptir að fá mikla og góða umfjöllun í fjölmiðlum.

    Hundurinn var með múl í dag. Hurðar lokaðar og læstar.
    Það vita allir að þessi grimmi hundur á að bíta þegar tilefni er til. Þegar grímuklæddir menn brjóta sér leið inn á lögreglustöð, þá er ekki skortur á tilefni. Um það hljóta menn að vera sammála.

    Eftir atvikið uppi við Rauðavatn þar sem valdníðsla átti sér sannalega stað gegn mótmælum vörubílstjóra hefur lögreglan sýnt meiri þolinmæði en maður átti von á. Hún stendur til dæmis til hliðar þegar óþekkir skólakrakkar grýta Alþingishúsið eftir laugardagsmótmæli.

    Já, stöndum saman gegn valdníðslu en þá gengur ekki að við beitum valdníðslu (í formi ólæta og skemmdarverka) gegn henni.
    Það grefur undan málstaðnum.

  7. Syndri segir, þann :

    ef þetta grefur undan málsstaðnum þurfum við fleiri gröfubílstjóra.

  8. Gaurinn segir, þann :

    Gasgrímur fást í kolaportinu

  9. Valdi segir, þann :

    Ég er sammála því sem Hilmar segir. (Fyrir utan það að mér finnst aðgerðirnar á Rauðavatni ekki hafa verið valdníðsla og myndbönd þaðan gætu verið kennslubókardæmi um beitingu meðalhófs, en það er annað mál)

  10. Frakkinn segir, þann :

    “Frakkarnir virðast kunna þetta betur en við”

    Hjartanlega sammála!

    Þeir kunna líka að kveikja í bílum og þar verða aldeilis hressileg riot þegar fólkið tekur sig til! JÁ! Fylgjum þeirra fordæmi! Frakkarnir kunna þetta!

  11. Ólafur F. segir, þann :

    Það er hálvitarnir sem kveikja í bílum og standa fyrir Riotunum, hefur ekkert með mótmæli að gera.

  12. Geirharður segir, þann :

    Aðgerðirnar fyrir framan lögreglustöðina eru fullkomlega réttlætanlegar.
    Í fyrsta lagi bendir allt til þess að handtaka Hauks hafi verið álögleg,
    ef svo er ekki þá er engu að síður augljóst að hún var tímasett til að taka hann úr umferð fyrir mótmælin daginn eftir.
    Ef svo ákaflega ólíklega vill til að tímasetting handtökunar hafi bara verið tilviljun þá var hún samt framkvæmd vegna ógreiddar sektar fyrir lögbrot sem alls ekki ætti að vera lögbrot (kranaklyfur við álversframkvæmdir ef mínar upplýsingar eru réttar).
    Það er full ástæða til að beita hörku þegar slíku er mótmælt.

    Annars er ég nokkuð ánægður með hófstilltar aðgerðir lögreglunnar, þær hafa verið mun verri, þó svo að ég væri ekki fullkomlega sáttur fyrr en laganaverðir hefðu genið úr stöðum og þannig gert sitt til að stöðva þessa kúgun.

  13. Árni segir, þann :

    Er Davið Oddson bara eins og Jesú kristur?
    Finnum bara einhvern til að hengja þá verða allir sáttir?

    Ég vil meina að Sjálfstæðisflokkurinn sem SKÁSTI kosturinn.

    Ef Geir hefði ekki gert það sem hann gerði væri bandarísk herskip og þyrlur með mat handa okkur og það væri skammtað handa okkur brauð og hrísgrjón og kartöflur.

    Það eru margar leiðir að sama áfangastaðnum og það eru ekkert allir sammála þeirri leið sem Geir og Davið hafa tekið en áfangastaðurinn er sá sami.

    Geir er að reyna bjarga heilu landi og getur ekki alltaf sagt það sem hann myndi vilja segja því hann er að semja við einhver 20 lönd á hverjum degi sambandi við mörg miljarða króna lán.

    Þú getur ekkert labbað út af þannig funduð og byrjað að blaðra.

    Ég er vinstri sinnaður en samt treysti ég þeim best til að kom okkur útúr þessum vandræðum.

  14. Syndri segir, þann :

    afstaða, félag fanga bendir á þetta:
    Samkvæmt félaginu eru fangelsi landsins svo yfirfull að engar líkur séu á að sektarfangar séu boðaðir til afplánunar með þessum hætti. Þá bendir félagið á að nú bíða fjölmargir einstaklingar með mun alvarlegri brot á bakinu afplánunnar.

    sjá hér:
    http://visir.is/article/20081123/FRETTIR01/350550055/-1

  15. aleofifi@gmail.com segir, þann :

    Frakkar gerðu nákvæmlega það sem gert var á laugadaginn 1968, börðust fyrir því að félagar séu frelsaðir. En talandi um franska bændur hugsa að þú hafir einhverjar ranghugmyndir um þá þar sem þeir hafa oftar en einusinni eiðilagt mikil verðmæti og margir afplána dóma sem afleiðingu t.d. José Bové sem tók í sundur heilan Mc donalds stað með öðrum bændum.

    Hvernig getur þú talið þig vinstri sinnaðan Árni ef þú heldur að ríkistjórn sem vill einkavæða eignir almennings, selja erlendum fjárfestum fyrirtæki og lækka laun hins almenna borgara sé sú sem sé best treistandi? Hvaða einkafyrirtæki átt þú?

    Það er örugglega lögreglan sem pungaði út 200.000 kallinum, enginn sem er hlynntur hreyfingunni myndi gera það.

  16. Sigurður K segir, þann :

    Er langt í að greinin “Varúð! Raggeitur við vinnu” komi aftur hér inn????

    Svo vil ég einnig spyrjast fyrir um hver ber ábyrgð á þessum vef og þessum oft á tíðum skítlegu skrifum hér á http://www.aftaka.org. Ert það þú Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson, sbr. að vera skráður fyrir vefnum? Eða hver, samtökin Saving Iceland sem þú ert talsmaður fyrir???

    Skrifin hér bera þess merki að aðilinn sem skrifar inn á síðuna njóti þess að rakka niður það sem honum sýnist – hvort sem það er um nafngreindar persónur eða heilu starfshópana (og ekki tilheyri ég lögreglumönnum svo það sé klárt) – og að sjálfsögðu í skjóli nafnleyndar.

    Þessi vefur slær upp þeirri mynd sem landsmenn fengu af spjallvefjunum Málefnin.com og Barnaland.is…Það þykir mér ákaflega slæmt og rýrir málstað ykkar mjög svo!

    Vænti ég þess að skrifin hér verði undir fullu nafni og á ábyrgð einhvers. Ég veit það Snorri, að þú getur verið málefnalegur. Ef það ert þú sem stendur að baki þessum skrifum, þá bið ég þig vinsamlega um að standa undir þeim, með nafni.

  17. aftaka segir, þann :

    Sigurður K:

    Eins og þú getur séð hér og hér hefur sá Snorri sem þú nefnir skrifað á þessa síðu eins og svo margir aðrir. Hann kaus að skrifa undir eigin nafni og hefur eflaust sínar ástæður fyrir því.

    Ef þú smellir á spurningarmerkið efst á síðunni getur þú lesið um Aftöku. Þar segir m.a.

    ,,Inn á aftöku skrifar fólk bæði undir eigin nafni og gælunöfnum. Það hefur ekkert með heigulshátt að gera því stundum þarf að segja hluti sem ekki krefjast persónugervingar og stundum er það hreinlega óþarft.”

    Það er ákvörðun þeirra sem standa að síðunni að það sé undir hverjum og einum penna síðunnar komið hvort hann skrifi undir eigin nafni, nafni Aftöku, eigin gælunafni eða bara engu nafni.

    Grein um nafnleynd og tilgang hennar getur þú lesið hér. Vonandi segir hún þér eitthvað.

    Og að lokum… varðandi málefnaleg skrif þá held ég að það sé persónulegur dómur um hvað sé málefnalegt og hvað ekki. Dónaskapur getur alveg verið málefnalegur, séu rök færð fyrir dónaskapnum.

    Á Aftöku hefur margur dónaskapurinn verið málefnalegur en vel getur verið að hann hafi stundum ekki verið eins málefnalegur eða bara ekki málefnalegur yfir höfuð.

    Það er víst lesandans að dæma…

  18. Snorri Páll segir, þann :

    Jú víst hef ég eitthvað ritað á þessa síðu.

    En nafnleyndina styð ég líka, hún getur verið mjög nauðsynleg. Svo er það oft tilgangur nafnleyndar að beina athygli frá þeim sem skrifar og frekar að hugmyndunum sem skrifin fjalla um og/eða eru byggð á.

    Svo er líka hægt að spyrja þig Sigurður K., hvort nafn þitt hér á síðunni (þ.e. Sigurður K.) stenst kröfur þínar um að skrifað sé undir fullu nafni? Mér finnst þú ekki hafa mikinn rétt á því að krefja annað fólk um að skrifa undir fullu nafni ef þú gerir það ekki sjálfur.

    Þú gætir vel verið Sigurður Kristján, Sigurður Kári, Sigurður Kolbeinn, Sigurður Konráð, Sigurður Karl, Sigurður Kormákur, Sigurður Kristján… eða bara Jóhanna Bárðardóttir.

  19. Pétur Sigurðsson segir, þann :

    Handtaka lögreglunnar á Hauki var með öllu ólögleg, og sýnir skýran vilja lögreglunar til að hafa áhrif á mótmælin.
    “Það vita allir að þessi grimmi hundur á að bíta þegar tilefni er til”
    Finnst þér ekkert skrítið hilmar, að þessum mönnum sem svo greinilega eru ekki að beyta sér fyrir hönd almennings, eiga að hafa rétt á því að beyta samborgara sína ofbeldi og mannránum? Það eru ekki þeir sem eru króaðir af útí horni, heldur er það fólkið í landinu sem hefur verið stillt upp við vegg af yfirstéttinni, og er það ekki réttur fólksins, sem er að berjast fyrir réttindum samborgara sinna og hafa ekki beytt einn einasta embættismann, né lögreglumann, ofbeldi eða mannráni, að bíta!!

  20. Vikingur segir, þann :

    ef þer nota táragas þau segi ég að best sé að nota molotov og vopn

  21. Gunnar segir, þann :

    Komið hefur fram að handtaka Hauks var ólögleg. Ég vona að hann sæki rétt sinn og höfði mál gegn ríkinu. Það myndi ég gera.
    Það að brjóta rúður á lögreglustöðinni og brjótast þangað inn er ekkert annað en ofbeldi og lögbrot. Það er óafsakanleg hegðun. Hvaða skilaboð er verið að gefa með slíkri hegðun? Það er verið að gefa þau skilaboð að það eigi að svara lögbroti með lögbroti, eða ofbeldi með ofbeldi. Ef einhver brýtur á mér þá á ég rétt á að fá mínu fram og svara fyrir mig í sömu minnt með ofbeldi. Viljum við hafa þetta svona?

  22. Snorri segir, þann :

    Fínar hugleiðingar Þorleifs Gunnarssonar, borgarfulltrúa VG á dagblaðinu Nei:

    Það var sérstök lífsreynsla að koma að lögreglustöðinni við Hlemm seinnipartinn á laugardaginn. Lögreglumenn gráir fyrir járnum fylltu tröppurnar og þétt andspænis þeim stóðu mótmælendur sem kröfðust þess að fá félaga sinn leystan úr haldi.

    Af fréttaflutningi af málinu má ráða að handtakan hafi verið liður í hannaðri atburðarrás. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur vísað því á bug að Haukur Hilmarsson hafi verið handtekinn til þess að koma í veg fyrir að hann tæki þátt í mótmælaaðgerðum á laugardag. Móðir Hauks hefur andmælt þessu og bent á að Haukur hafi ekki verið boðaður í afplánun. Lög kveða á um að það skuli gert með þriggja vikna fyrirvara.

    Afstaða, sem er félag fanga, segir að skýringar lögreglu á handatöku Hauks geti ekki verið neitt annað en fyrirsláttur. Fangelsi eru yfirfull og á þriðja hundrað manns á biðlista eftir afplánun. „Félagið gefur þær skýringar á staðhæfingum sínum að í því ástandi sem nú ríkir í fangelsismálum, þar sem fangelsin séu stútfull, sé engin hætta á að þeir sem skulda sektir séu teknir með sama hætti og Haukur enda bíði menn með dóma fyrir miklu alvarlegri brot afplánunar“.

    Hvers vegna var Haukur þá handtekinn daginn fyrir fjöldamótmæli? Töldu stjórnvöld manninn svo hættulegan að hann gerði allt vitlaust á Austurvelli? Yfirstjórn lögreglunnar vissi að það yrði ekki látið átölulaust af almenningi að ungi maðurinn yrði handtekinn. Nærtækast er að ætla að meiningin með handtökunni hafi einmitt verið sú að að æsa til mótmæla og ofbeldis sem síðan gæti verið vopn í höndum ríkisins til að fæla „venjulega borgara“ frá mótmælum.

    Í þessu ljósi er virðingaverð sú ákvörðun Hauks að þiggja boð um að sektin sem olli frelsissviptingunni yrði greidd og honum sleppt úr haldi. Þetta gerði hann vegna þess að honum hafi verið tjáð að fólk væri í hættu fyrir utan lögreglustöðina.

    Kristján nokkur Hauksson bætir svo við góðum punkti:

    Stefán Eiríksson sagði í Kastljósi í gærkvöldi að Haukur hefði verið handtekinn í Alþingishúsinu eftir ábendingu þingvarðar. Hverning vissi viðkomandi þingvörður að Haukur væri eftirlýstur í miðlægu kerfi lögreglunnar?

  23. Ómar segir, þann :

    Þessi Haukur braut lög, svo mikið er víst, hvort sem rétt hafi verið staðið að handtöku hans eður ei og hvort sem mönnum finnist lögin sem hann var dæmdur eftir asnaleg eður ei. Þess vegna átti hann að sitja af sér dóm, eða greiða sekt. Deilir einhver um það? Honum finnst hann sjálfur ekki skipta neinu máli, sagðist bara vera einhver “tittlingur”. Af hverju skiptir hann þá máli? Af hverju ræðst þá æstur múgur til inngöngu á lögreglustöð? Athugið að þarna er verið að gera árás á hóp fólks sem hefur það fyrir daglegt starf að vernda okkur og börnin okkar, að halda uppi lögum og reglu í landinu. Lögreglan setur ekki lög. Alþingi setur lög. Hvað ætlar fólk svo að gera þegar það þarf á hjálp lögreglu að halda, t.d. ef það lendir í lífsháska og þarf að kalla til lögreglu, ef barnið þeirra er í hættu? Þá finnst fólki sjálfsagt hringja í “þrælana”, eins og þeir eru kallaðir svo yfirlætislega hér að ofan. Fáviska, í skásta falli hræsni. Það virðast einhverjir hávaðaseggir í hópi mótmælenda hafa gleymt sér í einhverri geðveiki, athyglissýki og skemmdarfíkn. Burt með þá og inn með friðsama mótmælendur.

  24. Sigurður K segir, þann :

    Þakka fyrir svör Aftökumanna, þó ég sé í engu sammála þeim. Einnig hefur spurningu minni um grein sem kippt var hér út ekki verið svarað samanber: “Er langt í að greinin “Varúð! Raggeitur við vinnu” komi aftur hér inn????” Veit ekki af hverju því hefur ekki verið svarað. Tæknileg mistök?

    En annars, alveg sammála Ómari.

    Merkilegt nokk, punkturinn sem þú kemur inn á Ómar…

    Nú set ég fram spurningar til höfundar þessarar greinar,

    Hvað ætlar þú, ágæti höfundur þessarar greinar að taka til bragðs þegar bróðir þinn/systir þín/barnið þitt/móðir þín/faðir þinn/konan þín/karlinn þinn/ eða einhver mjög nákominn þér er nær dauða en lífi eftir atburð, segjum t.d. eftir umferðarslys á Suðurlandsvegi…Þú hringir í 112 og biður um aðstoð.

    Lögreglan er fyrst á staðinn eins og oft á þessum slóðum, hefur kannski verið í einhverri eftirlitsferðinni rétt við slysstaðinn….

    Ætlar þú þá, kæri höfundur þessarar greinar að fúlsa við allri aðstoð, öskra af lífs og sálarkröftum, þegar lögreglan kemur og bíður fram aðstoð sína og ætlar að veita náunga þínum fyrstu hjálp og bjarga úr lífshættu: “Þið eruð líka óvinurinn. Réttlætisbaráttan snýr að ykkur jafnt sem ríkisstjórninni – Snáfiði!” (Sbr. Löggan er líka óvinurinn og réttætisbaráttan snýst gegn löggunni jafnt sem ríkisstjórninni.) og hvetja jafnvel aðra á slysstaðnum til að grýta lögreglumennina sem á staðinn komu, taka löggubílinn sem þeir komu á og fara til Reykjavíkur og “taka yfir lögreglustöðina og ógeðslega skítinn sem hana fyllir.” (Sbr. Tökum yfir lögreglustöðina og losum okkur við ógeðslega skítinn sem hana fyllir.”)

    Hvað ætlarðu að gera?

    Ég held að þú, ágæti höfundur gerir þér ekki alveg grein fyrir því sem þú ert að kasta hér fram. Þessi síða, og einkennandi fyrir skrif þessa höfundar, er einhver mesta hræsni sem ég hef lesið..Sjálfur hef ég lent í því að þurfa aðstoð lögreglu. Og það veitti mér öryggistilfinningu sem borgara í þessu landi..

    Hvernig ætli það yrði ef það væri engin lögregla að vernda hagsmuni ríkisins og borgarans?? Jafnvel bara að vernda hagsmuni borgaran… Þurfum við þá nokkuð lögreglu? er ekki fínt að hafa bara nokkra tappa á við greinarhöfund sem sjá um þetta? Og veita fyrstu hjálp í viðlögum???

  25. Dindill Zygalandy segir, þann :

    Ómar og Sigurður K, persónulega fílaði ég mjög vel skilaboðin sem voru send til lögreglunar í Lífsmörkum (sem hægt er að nálgast hér http://this.is/nei/docs/lifsmork-1tbl.pdf).
    Þau voru á þá leið að við þökkum ykkur í lögregluni fyrir allt það góða sem þið hafið gefið okkur eins og vernd gegn ofbeldi og hjálp í neyð og við skiljum að þetta er ílla launað starf, en standið með okkur fólkinu í þessari baráttu – ekki valdhöfum. Og mér finnst það ansi sanngjörn krafa til lögregluþjóna að þeir ráðist ekki á móti réttlátri andstöðu fólks gegn kúgun valdhafa.
    Þessi handtaka var pólítísk og það er algjörlega óverjanlegt að nota efnavopn á fólk án viðvörunar.
    Margir lögregluþjónar hafa staðið sig mjög vel undanfarið og eiga hrós skilið fyrir þolinmæði og drengskap, en það þýðir ekki að það meigi líta framhjá því sem er rangt.

  26. aftaka segir, þann :

    Dindill hefur bent á gott svar, sem við látum nægja í bili.

  27. Arnar segir, þann :

    Þið sem brjótist inn í Lögreglustöð með ofbeldi og hlýðið ekki lögum og reglum eigið skilið að fá góða skvettu af piparúða í andlitið, og þið sem berjist gegn valdníðslu og beitingu vopna frá lögreglunni, það verður vitleysingum eins og ykkur að þakka að lögreglan fær rafstuð byssur og djöfull verður gaman að sjá ykkur vitleysingana með gasgrímu þegar þið verðið stuðaðir. Þið munuð eiga allan heiðurinn að því þegar vopnabúr lögreglunar stækkar og verður beitt gegn fólki.

  28. Björgvin segir, þann :

    Áttum við okkur á því að einungis Mennirnir í Lögreglufötunum hafa bara Verið með ofbeldi síðustu vikur

    Bara Spyr

  29. Jón segir, þann :

    Þið aumingjarnir getið bara aldrei áttað ykkur á því að lögreglan er eingöngu að vinna sitt starf. Lögreglumenn geta verið líka á ykkar bandi, jafnvel þótt þeir vinni fyrir þessa ríkisstjórn, þeir sjá til þess að svona skítalið komist ekki upp með að brjóta lög sem það var að gera þarna í þessu tilfelli…

  30. Aftaka » Færslusafn » Er þeim alvara? segir, þann :

    [...] að lögreglustöðinni, brutu rúður og fleira í þeim dúr. Aftaka fagnaði því vissulega (hér) og fagnaði því sömuleiðis að fyrrnefnd Álfheiður stæði þar og aðstoðaði fólk sem [...]

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in