Já, ótrúlegt en satt, Lögregluembættið fær í annað sinn þann vafasama heiður að verða umfjöllunarefni Valdníðslu í verki.
Nú hefur Lögreglan tekið úr umferð mann sem hefur tekið þátt í mótmælum gegn ríkisstjórninni og staðið að hvað bestu afhjúpun íslensku ríkisstjórnarinnar.
Fyrir tveimur vikum síðan, Laugardaginn 8. Nóvember, fóru fram vikuleg mótmæli gegn ríkisstjórninni á Austurvelli. Fyrir utan hefðbundin ræðuhöld átti sér stað atburður sem mun lengi sitja í manna minnum. Ungur maður, Haukur Hilmarsson, klifraði upp á Alþingishúsið og hengdi fána Bónus verslananna á fánastöng hússins. Skilaboðin voru einföld: Ríkisstjórnin er ódýrt svín! Aftaka fjallaði um gjörninginn og birti myndir af honum hér.
Til að gera langa sögu stutta komst maðurinn frá handtöku með hjálp fjölda fólks sem fagnaði gjörningi hans og sýndi lögreglunni verulega mótspyrnu. Slík samstaða hefur ekki sést á mótmælum svo árum skipti.
En í gærkvöldi kom lögreglan til leiks og handtók Hauk, eftir að hann hafði verið í vísindaferð á Alþingi á vegum heimspekideildar Háskóla Íslands. Starfsfólk Alþingishússins tók eftir honum og í heimskri hlýðni sinni við yfirvöld tilkynnti það viðveru hans til lögreglunnar. Ekki leið á löngu þar til uppdressaðir lögreglþrælar mættu á svæðið og handtóku Hauk. Nú situr hann inn á lögreglustöðinni við Hlemm.
En ástæða handtökunnar virðist ekki vera fánagjörningurinn, heldur gamall dómur sem Haukur hefur ekki enn setið af sér.
Sumarið 2006 tók Haukur þátt í aðgerðum á vegum umhverfishreyfingarinnar Saving Iceland og var dæmt að greiða 200 þúsund króna sekt í ríkissjóð. Í stað þess að borga ákvað hann að sitja dóminn af sér í fangelsi. Haustið 2007 var hann boðaður til fangelsisvistar. En vegna plássleysis í fangelsum landsins var Hauki gert að sitja 18 daga fangelsisvistina af sér á lögreglustöðinni á Hverfisgötu.
Það er hins vegar lögreglunni óleyfinlegt að halda fólki lengur en í 5 daga á lögreglustöðinni og var Hauki, sem eflaust hafði búið sig undir að vera þar næstu þrjár vikurnar, sleppt eftir aðeins fjögurra daga varðhald. Honum var ekki tilkynnt hvenær næsta hluta vistarinnar væri ætlað að eiga sér stað. Þar að auki er lögreglunni algjörlega óheimilt að skipta fangelsisvist fólks upp eftir eigin sérvisku og hentisemi. Hún verður að vera samfelld.
Nú er Hauki gert að sitja af sér þá fjórtán daga sem eftir eru, en þar sem hann dúsir nú á Hverfisgötunni, líklegast vegna plássleysis í öðrum fangelsum, er ekkert sem bendir til þess að lögreglan spili ekki sama leik og síðast. Haukur má búast við því að vera hent út eftiri fjóra daga og verða svo handtekinn á ný, næst þegar lögreglunni þykir hentugt að taka duglegan aðgerðasinna og óvin ríkisins úr umferð.
Haukur var ekki boðaður til fangelsisvistarinnar með þriggja vikna fyrirvara eins og lög gera ráð fyrir, heldur einfaldlega handsamaður af svartklæddum þrælum ríkisins, með dyggri aðstoð starfsfólks Alþingis.
Dagblaðið Nei greinir frá því að lögreglunni sé þó heimilt að sniðganga þessi lög: „Heimilt er að láta dómþola hefja afplánun án boðunar eða áður en afplánun á að hefjast samkvæmt boðun fremji hann refsiverðan verknað á ný, hætta er talin á að hann reyni að koma sér undan refsingu eða almannahagsmunir mæla með því.“
Það er engin hætta á því að Haukur komi sér undan refsingu og ekkert sem bent hefur til þess að hann hafi planað það. Og allur þvættingur um almannahagsmunir mæli með því að aðgerðaglaður einstaklingur sé tekinn úr umferð, má troða upp í rassgatið á öllum helstu yfirmönnum lögregluembættisins.
Ef almannahagsmunir eru einhverjir, eru þeir að ríkisstjórn þessa lands víki strax í dag og almenningur taki stjórn á samfélaginu. Einnig að sífellt valdníðandi embætti eins og lögregluembættið sé tekið úr umferð eins og skot. Lögreglan er ekki með almenningi í liði og við, almenningur leyfum henni ekki að taka ákvarðanir fyrir okkur.
Hér hafa yfirvöld svo sannarlega gefið tóninn fyrir það sem koma skal og okkur ber að hafa það í huga. Lögreglan hefur enn einu sinni stimplað VALDNÍÐINGUR á enni sitt með stórum og rauðum stöfum.
Það þýðir ekkert að biðja Lögguna að sleppa Hauki. Við þurfum að frelsa hann sjálf!
Flykkjumst að svínastíunni við Hlemm eftir mótmælin á Austurvelli í dag og frelsum Hauk!
DREPUM NIÐUR VALDNÍÐSLU!
—
Viðbót:
Samkvæmt Vísi neitar lögreglan að tjá sig um málið. Þú aumi lögregluþræll sem lest þetta:
ÞÚ ERT EINS OG RÍKISSTJÓRNIN, ÓGEÐSLEGT SVÍN.
Af Vísi.is:
,,Ragnar Aðalsteinsson, hæstaréttarmaður, segir vart lagaheimild fyrir því að slíta afplánun í sundur líkt og gert hafi verið í þessu máli. Slíkt verði að skoða en það geti valdið fólki ómældum spjöllum. Hann segir rannsóknarvert hversu brátt afplánunin nú hafi borið að.”
Sjá nánar: http://visir.is/article/20081122/FRETTIR01/867166164/-1
Hér er fyrri valdníðslugrein Aftöku um lögregluna:
Hér má sjá grein Evu Hauksdóttur, móður Hauks, um málið:
http://www.eggin.is/index.php?option=com_content&task=view&id=946&Itemid=48
Lög hafa hingað til ekki skipta þessa skíthæla miklu; þeir vaða yfir Stjórnarskrábundin réttindi fólks, ef þeim svo sýnist. Því ætti þetta að skipta þá einhverju máli; fólk hefur hingað til samþykkt slík lögbrot á dópistunum.
Var á Staðnum
Þegar við fyrst komum að lögreglustöðinni var hún læst ekkineinn til viðræðna
Þannig að ég byrjaði að banka en enginn kom til dyra
Þó svo að lögreglan væri þar innandyra hún opnaði ekki hvað sem við bönkuðum.
Mér finst að Lögreglan ætti að minnsta kosti að heyra.
Allavega Fór undiritaður á bakvið stöðina og óskaði eftir því að fá að tala við yfirmann en var vísað burtu.
Ekki var með neinu móti hægt að tala við lögreglu og því fór sem fór
Kveðja
Ef við berum saman alvarleika gjörða fjárglæframannana og stjórnmálamanna í vasa þeirra fyrir þjóðina og andóf Hauks lítur Haukur bara ansi vel út við hliðina á fúskurunum við stjórn og eigendum þeirra. Mýtan um að aðgerðarsinnar séu atvinnumótmælendur er lífseig hjá smáborgurum þessa volaða lands.
Hvað er að ykkur. Í staðin fyrir að standa í strákapörum og hengja upp bónus fána á Alþingishúsinu (og vera svona barnalega hissa á viðbrögðunum), hvers vegna beinið þið t.d. ekki athyglinni að seðlabankastjóra.
Að væla yfir aðgerðum lögreglu, sem fer eftir settum lögum, þá eigið þið að storma á Seðlabankann. Hindra að Davið komist þar inn eða út.