Niðurgangur kapítalsins og ekki síður fljótandi blóð Gvatemalískra verkamanna..
http://en.wikipedia.org/wiki/Criticism_of_Coca-Cola#Guatemala
http://www.killercoke.org/cokeguat.htm
HA???????????????????
Ég slappa alltaf af í hádeginu og fæ mér kók og sómasamloku, eruð þið eitthvað ruglaðir eða hvað?
Nei hvað segið þið? Ekki kemur mér á óvart að þessir þrír sem mynda aftöku væru á móti Kóka Kóla. Ekki kæmi mér heldur á óvart að þeir búi í helli og noti ekkert sem búið er til af fyrirtækjum sem vilja hagnast. Aftökusveinarnir eru Amish útgáfa Íslands.
Það kæmi mér ekkert að óvart þó þeir þrjúhudruðþúsund sem mynda íslensku þjóðina séu svo þröngsýnir að þeir haldi að amerísk menning sé alheimsmenning og ekkert sé til fyrir utan það fyrir utan steinaldarmenn. Einhliða hugmyndafræði og þekking er greinilega svo mikil að þeir vita ekki um neina aðra hópa fólks sem neita allri vestrænni menningu og hörfa til fyrri framleiðsluhátta en einn amerískann sértrúarsöfnuð.
Andri Leo, þú hefur greinilega ekki mikið álit á þjóðinni. Nefndu mér eitt þjóðfélag í heiminum sem er ykkur anarkistum að skapi. Bara eitt fyrirmyndar þjóðfélag. Ég trúi ekki að allur hnötturinn sé ykkur ekki að skapi.
Hannes, þú þarft greinilega eitthvað að lesa þér meira til um hugmyndir anarkista og hugmyndanna sem birtast á þessari síðu.
Aftaka heldur uppi andþjóða málflutningi: með öðrum orðum er á hún á móti þjóðríkinu sem slíku. Þar af leiðandi er ekkert þjóðfélag sem henni huggnast beinlínis sem slíkt, en fyrst þú ert að heimta “eitt” dæmi þá má benda á Zapatista hreifinguna í Mexíkó sem skref í rétta átt. Þó að Chiapas héraðinu sé vissulega enn stjórnað af völdum stjórnendum hefur samfélag mayanna sem þar búa staðið sameinað gegn kapítalisma og hefðbundnu vestrænu flokkakerfi, komið á ákvarðanatökuferli sem er stórum lýðræðislegra en gengur og gerist á vesturlöndum, tekið framleiðslutæki héraðsins í sínar hendur og gert alvöru úr því að jafna út “lífsgæðin” (nokkuð sem vestrænir jafnaðarmenn munu aldrei gera meðan þeir viðurkenna eignarétt yfir óþarfa).
Fyrirmyndarframtak og áhugavert samfélag þar á ferð.
Takk fyrir að upplýsa þetta. Mikið asskoti hlýtur að vera erfitt að vera Anarkisti. Er ekki svolítið frekt að reyna að troða stjórnleysi upp á þau 99,99% sem vilja ekki Anarkíu? Þið verðið bara að finna ykkur aðra plánetu.
Hannes (Hólmsteinn?): Veistu, ef vestræn stórfyrirtæki myndu allt í einu hætta að misnota fólk, dýr og vistkerfi jarðinnar, þá myndi ég alveg hætta að skipta mér af samfélaginu og flytja út í sveit. En þangað til þá er bara að reyna að skemta sér á meðan maður potar í graftarbólur kapítalisma, og mér sýnist á myndunum að jólasveinarnir hafi skemmt sér vel þrátt fyrir stæla í þrælunum.
Uggi, takk fyrir svarið. Mér hefur stundum fundist anarkistar líta á þessi mótmæli sem skemmtun. Takk fyrir að staðfesta það fyrir mig og aðra.
Hannes, væri málstaðnum betur borgið ef mótmæli væru drepleiðinleg? Það að eitthvað geti verið skemmtilegt þýðir ekki að ég eða annað fólk taki því ekki alvarlega.
Ekki vera svona rosalega kók megin í lífinu.