English 
Málefni:

Á síðustu dögum hafa tveir þjóðþekktir skíthælar látið af störfum, annar tímabundið en hinn fyrir fullt og allt. Tryggvi Jónsson er hættur í Landsbankanum og fyrirsætu-folaldið Gísli Marteinn Baldursson hefur óskað eftir launalausu fríi frá borgarstjórn.

Gísli og Tryggvi saman í svínaríi valdastéttarinnar

Seta Tryggva Jónssonar í Landsbankanum hefur sætt mikilli gagnrýni m.a. vegna ,,óhreinnar” sakaskrár hans, þ.e. dóms sem hann hlaut í Baugsmálinu. Upp á síðkastið hefur þessi gagnrýni orðið sífellt hærri og átti kannski sinn hápunkt í mótmælaaðgerð sem átti sér stað sl. miðvikudagsmorgun í útibúum og höfuðstöðvum Landsbankans.

Þau mótmæli beindust reyndar alls ekki einungis að Tryggva, heldur gegn bankanum í heild sinni og í raun öllum íslensku bönkunum. ,,Spillinguna burt”, ,,börnin borga ekki” og ,,borgið ykkar skuldir sjálf” voru meðal helstu slagorða sem mótmælendur sungu. Vissulega felur krafan ,,spillinguna burt” í sér að Tryggvi Jónsson fari burt, en ekkert frekar en hver annar spillingarsauður bankans. En með hjálp jólasveinsins Jóns Geralds Sullenberger máluðu fjölmiðlar upp þá mynd að mótmælin beindust sérstaklega að Tryggva.

En það er svo sem annað mál.

Daginn eftir mótmælin sagði Tryggvi Jónsson upp störfum hjá Landsbankanum. Um tíma leit út fyrir að mótmæli, bæði í orðum og gjörðum, hefðu haft þau áhrif að Tryggvi ákvað að segja upp störfum, en daginn eftir var svo opinberuð ný kæra í Baugsmálinu, sem Tryggvi reyndar þverneitaði fyrir að hafa haft nokkra vitund um fyrirfram. Því er það svo sem enn óvíst hvað nákvæmlega varð til þess að Tryggvi hætti störfum.

Við fjölmiðla sagði Tryggvi að honum þætti ásakanir og mótmæli sér á hendur hafa gengið allt of langt:

„Umræðan um mig og starf mitt hjá bankanum hefur að mínu mati farið langt yfir öll velsæmismörk og hafa síðustu vikur verið mér og ekki síður fjölskyldu minni, afar erfiðar.  Ég get setið undir ýmsu en þegar mótmæli af þeirri tegund sem sést hafa síðustu daga eru farin að bitna á fjölskyldu minni segi ég hingað og ekki lengra.”

Semsagt, Tryggvi hætti störfum því allir eru búnir að vera svo vondir við hann. Hann ætlar ekki að viðurkenna nokkurn skapaðan hlut um spillingu bankanna, Baugs eða annarra fyrirtækja sem hann tengist, heldur ásaka alla hina um að vera vondir. Aumingja hann Tryggvi.

Og þetta er það sem koma skal ef við munum verða vitni að fleiri uppsögnum. Aldrei nokkurn tíma mun þetta pakk játa sekt sína – aldrei! Fyrr mun það klína skít á sína nánustu vini en að viðurkenna þær sakir sem fyrir það er borið. Það lýgur alltaf.

Gísli Marteinn Baldursson hefur síðasta hálfa árið stundað nám í Edinborg, Skotlandi. Samhliða því er hann borgarfulltrúi. Þessi internatjónal kokteill hans hefur svo sannarlega verið gagnrýndur og þær gagnrýnisraddir hafa aldeilis hækkað síðan menn fóru að tala um kreppu af einhverri alvöru hér á landi.

Besta gagnrýnin er án efa lítil smáauglýsing sem birtist í Morgunblaðinu fyrir ekki svo löngu síðan, þar sem hress einstaklingur óskaði eftir vel launuðu og auðveldu starfi. Þar á eftir fylgdi svo lýsing á draumastarfinu sem svona líka smellpassaði við stöðu Gísla.

Og nú hefur hann beðið um launalaust leyfi. Í tilkynningu sinni segir hann m.a.:

„Næsta önn verður snúnari í skólanum, meira álag og kúrsarnir taka á efni sem ég hef lítinn bakgrunn í [...] Ég er þessvegna búinn að ákveða að taka mér launalaust leyfi á vorönninni.”

Ætlast hann virkilega til þess að fólk trúi þessu endemis þvaðri? Maðurinn hefur einfaldlega áttað sig á því að hann kæmist ekki upp með þetta sjónarspil án þess að mæta öflugri gagnrýni en í stað þess að játa sig sigraðan og viðurkenna mistök sín, reynir hann að ýta undir samúð mér sjálfum sér og snúa dæminu upp í einhvern ,,ég-er-góður-gæji” leik.

Aftaka sýgur upp í nefið af slíkum óþverra og hrækir vænri slummu á Geir og Tryggva.

Reglan segir að Geir komi í Davíðs stað og senn fær nýtt andlit tækifæri til að brosa fyrir myndavélarnar, bæði í Landsbankanum og í ráðhúsinu. Það verður bara að vera í höndum fólksins hvort annað slíkt örverpi fái að starfa svona í ,,þágu borgarbúa minn rass!!!” eða hvort Ráðhúsið og allt þess hafurtask sökkvi í Tjörnina og Hanna Birna og hennar fylgifiskar sökkvi í andaskít.

Gísla Marteini óskum við einskis en Tryggvi Jónsson getur kannski fengið starf við að safna saman innkaupakerrum í lágvöruverslun Sullenbergers.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in