English 
Málefni: ,

22. desember

Okkur á Aftöku var rétt í þessu að berast baráttukveðjur frá anarkistum í Grikklandi til anarkista á Íslandi.

Aðgerðirnar hér eru þó mjög léttvægilegar og hlýðnar miða við gengdarlausann baráttuviljann og styrkinn sem þau hafa í Grikklandi. En aðgerðirnar hér eru þó söguleg framför í mótmælum og andófi. Á hverjum degi bætast fleiri og fleiri í hóp þeirra sem ekki geta lengur bara staðið með skilti eða setið hjá. Fólk er búið að átta sig á að yfirvald er aldrei sanngjarnt, það er búið að átta sig á styrk samstöðunnar og að beinar aðgerðir virka.

Þetta fólk veit sennilega flest að friðsamleg mótmæli duga skammt, byltingin er aldrei lögleg og aldrei friðsöm ekki einu sinni í Indlandi þó svo að margir haldi því fram að baráttan þar hafi áunnist með Ghandískum passivisma. Það er kjaftæði; í fyrsta lagi var Ghandi ekki einn í þessari baráttu, fjölmargir mismunandi hópar börðust þar saman allt frá anarkistum upp í munka. Í öðru lagi neituðu hóparnir samstarfi og málamiðlunum við valdhafana. Í 3-ja lagi beyttu langflestir ekki friðsamlegum aðgerðum og Ghandi sjálfur braut lög og sat í fangelsi fyrir mótmæli ásamt fjölmörgum öðrum uppreysnarmönnum. Ghandi var talsmaður fyrir miljónir manna, með því að segja valdhöfum að fólk yrði reitt ef ekki yrði farið að kröfum þeirra, þá var hann í raun að segja: miljónir manna eru tilbúin til að beyta ofbeldi og taka þátt í brjáluðum óeyrðum ef þið hlustið ekki.

Þeir sem halda því fram að barátta vinnist með friðsömum hætti vita annaðhvort ekki hvað þeir eru að tala um eða eru á bandi yfirvalda og hananú.

Hér ríkir enginn friður, lærum af sögunni, tökum þau í Grikklandi til fyrirmyndar og höldum ELDFIM JÓL!

6 Litlir Negrastrákar:
  1. dagkjhkh segir, þann :

    does this exist in english or german?
    greetings from greece
    (A)

  2. aftaka segir, þann :

    This text only exist in icelandic. Aftaka has a very small corner in engish were u can see some update about the situation in Iceland:
    http://aftaka.org/tag/english/

    The photo here above was sent to the website as solidarity from anarchists in Greece.
    The text from us is basically saying: That compered to the resistance in Greece, the resistance here is small and week. But it is developing very quick and Aftaka (this website) is happy that people seem to realize that passivism and legal actions do not work in our fight against capitalism and governments.

    Then we say that we shall learn from history, learn from the anarchists in greece as well an make inflammable xmas!

    Greetings to you all that are fighting in Greece from yours siblings in Iceland.

  3. Uggi segir, þann :

    Byltingu núna, ekkert kjaftæði

  4. siggi pönnk segir, þann :

    Það þarf að hamra víðar á þessum algengu ranghugmyndum að andspyrna Ghandi-style sé bara “að bjóða hinn vangann.” Góður punktur með að Ghandi beitti þrýstingi með því að vera fulltrúi herskara sem voru til í harðari aðgerðir.

  5. uggi segir, þann :

    siggi: Já þetta er alveg rétt, valdhafar nota ávalt söguskoðun sem vopn gegn okkur. Allar réttindabaráttur 20stu aldar eru morandi af dæmum. Í skólum fáum við að læra að rosa parks var bara treg kelling sem datt einn dag í hug að neita að víkja fyrir hvítum gaur og BAM allt í einu fengu allir nóg af rasisma og martin luther king sameinaði fólkið sem bað friðsamlega um minni rasisma og vann.
    Þetta er ekki bara sögufölsun, þetta er líka mjög gott vopn gegn fólkinu. Ef við hugsum um baráttu gegn kúgun á þeim forsendum að þar séu heillandi leiðtogar og martírar í aðalhlutverkum gerum við aldrei neitt, afþví fæst getum við séð okkur í þeim persónum. En ef fólk veit að baráttan er unnin með samstöðu og þrautsegju þar sem mörg minni hlutverk skipta alveg jafn miklu máli og allir hafa mikilvægt verk að vinna lítur málið öðruvísi við. Það er hættuleg hugmynd (fyrir okkur) að halda að maður þurfi að vera hetja eða sérstakari en aðrir til að geta skipt máli fyrir samfélagslegar breytingar.
    Bojkottið á strætófyrirtækið í Montgomery hafði verið vandlega undirbúið af NAACP í borgini mörgum mánuðum áður en rósu park var hent úr strætó í seinasta skipti (henni hafði margoft verið hent út áður fyrir svipaða hluti) og rósa parks var sérstaklega valin til að vera síðasta hálmstráið. Aðalega af því að hún var fyrirmyndarborgari í alla staði og myndi koma vel fram í fjölmiðlum.
    Gandhi var síðan oftast hleypt úr fangelsi til að róa “skrílin” sem vildi blóð, en gandhi var algjör hippadeli svo bretarnir gátu notað hann stratjedísk á móti herskáum öflum.

  6. » AFTAKA ORG. Athyglisverð síða íslenskra anarkista. GNEISTAR segir, þann :

    [...] http://aftaka.org/2008/12/22/engin-bylting-nema-anarkisk-bylting/#comments [...]

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in