Á síðustu dögum hafa a.m.k. 680 manns verið drepnir í árásum Ísraelshers gegn íbúum Palestínu, þar af . Fyrr í vikunni var grænmetismarkaður á Gaza sprengdur í loft upp, 80 særðust alvarlega og 20 létust. Í gær voru 40 manns drepnir þegar Ísraelsher réðst gegn skóla á Gaza. Ástandið er vægast sagt skelfilegt.
Eins og við má búast einkennist umræðan hér á landi um ástandið í Palestínu á lygum og skorti á almennilegri greiningu. Íslenskir fjölmiðlar fjalla afar fátæklega um árásir Ísraelshers, hvað þá um áratuga innilokun og kúgun Palestínubúa, ástæður þess og afleiðingar. Það varla þekkist að gerð sé almennilega fyrir ástandinu þar og þeirri kúgun sem íbúar Gaza-svæðisins og Vesturbakkans búa við.
Til dæmis hefur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra upp á síðkastið fengið óáreitt að tala um Ísrael og Palestínu sem ,,deiluaðilana tvo”, eins og þar standi Ísraelar og Palestínubúar jöfnum fæti. Og Ingibjörg er ekki ein um það heldur er þessi lygi gegnumgangandi í umræðunni um ástandið í Palestínu.
Það er eins og í umræðunni hér á landi sé leyfilegt að gleyma eða beinlínis líta framhjá því að Palestína er hersetið land en Ísrael ekki. Bjarni Benediktsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, sagði við Fréttablaðið í gær að taka þurfi tillit til þarfa Ísraelsmanna til að verja ísraelska borgara.
En Ísraelsmenn eru ekki í vörn heldur í sókn. Ísraelsmenn eru ekki innilokaðir og einangraðir. Ísraelsmenn eru ekki umkringdir múr, gaddavír og vopnuðum hermönnum. Ísralesmenn eru ekki lokaðir inni og kúgaðir af yfirvöldum og her annars ríkis. Ísraelsmenn eiga ekki von á því að lenda í krabbameinsvaldandi vopnum. En allt þetta á við um íbúa Palestínu.
Orð Bjarna eru bara enn eitt dæmið um takamarkalausan stuðning íslenskra stjórnvalda við kúgun og óréttlæti. Árásastríð Ísraelsher á Palestínu snýst ekki um að vernda ísraelska borgara heldur fyrst og fremst um kúgun og völd. Það getur hvert mannsbarn sagt sér. Og þó Ingibjörg Sólrún hafi sent frá sér einhverjar yfirlýsingar og fordæmingar, afhjúpa orð Bjarna þessa ímyndaherferð sem íslensk stjórnvöld standa í. Það gerði Ingibjörg reyndar sjálf í misheppnaðir útsendingu sjónvarpsþáttarins Kryddsíld, þegar hún ásakaði íslenska mótmælendur um að hafa tekið upp siði úr arabaheiminum.
—
Þeir sem eru kúgaðir berjast vitanlega gegn kúguninni. Því lengur sem hún viðhelst, því lengur sem íbúar Palestínu búa við slíkt óréttlæti, því örvæntingarfyllri verður fólk. Hefðu gyðingar í útrýmingarbúðum Nasista haft færi á að berjast gegn kúgurum sínum hefðu þeir án nokkurs efa gert svo. Það þarf því enginn að styðja aðgerðir Hamas samtakanna eða annarra Palestínumann til þess að skilja hvað liggur að baki þeim. Umfjöllun og umræða um málið ætti auðvitað að taka mið af öllum þeim ástæðum sem liggja að baki ástandsins í Palestínu, en það hafa íslenskir fjölmiðlar ekki gert hingað til.
Hvers vegna standa palestínsk börn á götum úti og grýta skriðdreka? Hvers vegna eru þau ekki bara í skóla? Hvar eru foreldrarnir? Hvers vegna fremur fólk sjálfsmorðsárásir? Hvað býr að baki? Hvað hefur þetta fólk búið við um ævi sína? Hvers konar kúgun skapaði þetta ástand? Þessum spurningum er sjaldan svarað. Fjölmiðlar hafa gjörsamlega brugðist sjálfskipuðu hlutverki sínu um upplýsingu og fréttaskýringar. Það er því engin furða að hugmyndir fjölmargra um ástandið í Palestínu séu eins grunnhyggnar og raun ber vitni.
—
Það er ekki nóg að hinir kúguðu berjist gegn kúgurum sínum. Samstaða er forsenda þess að baráttan beri árangur og því þurfa Ísraelar að berjast gegn eigin yfirvöldum, sér og Palestínumönnum til góða. Ísraelsku anarkistarnir í Anarchists Against the Wall hafa gert svo í áraraðir, klippt sundur og brotið girðingar sem eru partur af múrnum, umfram allt staðið með bræðrum sínum og systrum hinu megin við múrinn.
Það er vissulega ekki hægt að algjörlega sakast við almenning í Ísrael og það væri bæði heimska og hroki að halda því fram að þar séu allir hliðhollir aðgerðum yfirvalda. En dæmin tala samt sínu máli. Fjöldi Ísraela hefur komið sér fyrir í svokölluðum landnemabyggðum í Palestínu þar sem best grónu og mest gefandi landssvæðin eru tekin yfir og samfélög Ísraela sett þar upp. Stéttskiptingin er varla sýnilegri nokkurs staðar annars staðar.
Íbúar þessarra svæða hafa margir hverjir komið fram í viðtölum og lýst yfir fals-samstöðu með íbúum Palestínu en sagst ekki hafa efni á því að búa annars staðar. Þvílíkt kjaftæði! Pakkið reynir að réttlæta valdníðslu sína með því að gera sjálft sig að fórnarlömbum í bland við stóran skammt af þjóðernisrembu og elítisma. Þetta fólk er alveg jafn meðsekt og ísraelsk yfirvöld.
En auðvitað er ekki hægt að alhæfa. Hugsandi Ísraelum stafar svo sannarlega ógn af eigin yfirvöldum og þeir þurfa svo sannarlega að berjast gegn eigin ríkisstjórn. Ísraelskum ungmennum er til að mynda gert að ganga í herinn og sinna herskyldu í nokkur ár. Neiti þau að taka þátt í hernaðarbröltinu er þeim refsað með fangelsisvist. Svona virkar valdið, spyr ekki um afstöðu fólksins heldur stjórnar og ráðskast.
Talað er um heimatilbúnar eldflaugar Palestínumanna annars vegar og allan herflota Ísraels hins vegar, á þeim nótum að hér sé um svipað afl að ræða. Ísraelsher er einn best búni her heimsins. Vissulega er það ósmekklegt að bera saman tölur látinna, stilla upp dæmum þar sem tekið er fram að svona margir Palestínumenn séu látnir á móti svona mörgum Ísraelum, en það sýnir svo sannarlega máttarmuninn sem aðskilur Palestínu og Ísrael.
—
Hér á landi krefjast vinstri menn þess að stjórnmálasambandi við Ísrael verði slitið. Félagið Ísland-Palestína tekur undir og hefur gert svo í áraraðir, auk þess að mæla hvetja til neytendaherferðar, þar sem Ísraelskar vörur eru sniðgengnar. Þessar tillögur eru mjög líklega settar fram í góðri meiningu en eru samt fyrst og fremst tillögur að einhvers konar umbótalausnum. Umbætur sem samt sem áður viðhalda kerfinu og órjúfanlegri kúgun þess.
Tillögurnar gera kerfið ekki að umfjöllunarefni heldur einstakar ,,svartar hliðar” þess og það látið í veðri vaka að gallinn sé ekki kerfið sjálft. Þær kalla á endalausa bið eftir ,,betri” ríkisstjórn, ,,réttlátum” yfirvöldum, jafnvel ,,góðum” kapítalisma.
En það er engin betri ríkisstjórn, engini réttlát yfirvöld eða góður kapítalismi. Allt þrennt – ríkisstjórn, yfirvald og kapítalismi – snýst um völd og mun alltaf snúast um völd. Ekki fyrr en fólkið sjálft tekur valdið í eigin hendur, dreifir því sín á milli og starfar á grundvelli réttlætis og samvinnu, er hægt að tala um lausnir.
Þessar kröfur um umbætur á kerfinu sanna einna best hversu vel innprentaðar hugmyndirnar um fulltrúalýðræði og kapítalisma eru í hugum almennings. Hugmyndaflugið nær ekki lengra en svo að róttækasta krafan sem Ísland-Palestína gerir er að íslensk stjórnvöld slíti stjórnmálasambandi við Ísrael og að íslenskir neytendur kaupi ekki ísraelskar vörur.
Við getum hætt að kaupa ísraelskar vörur en hvað tekur þá við? Ekkert betra! Allt kerfið er rotið. Á meðan matur er munaðarvara, á meðan fólk hefur ekki jafnan aðgang að mat, er kerfið gallað. Á meðan ákveðnir einstaklingar hafa möguleikann á því að gera ,,jákvæðar neyslubreytingar” í lífi sínu en á sama tíma hafi fjöldi fólks ekki einu sinni aðgang að allra brýnustu nauðþurftum, er kerfið gallað.
—
Ef við ætlum að binda endi á kúgun og óréttlæti í heiminum verðum við að snúa kerfinu á hvolf og henda því í ruslið. Við verðum að gleyma öllum hugmyndum um að aðeins nokkrir svartir sauðir skemmi fyrir annars góðu kerfi. Það er stór misskilningur.
Við stöndum ekki með Palestínskum stjórnvöldum frekar en öðrum stjórnvöldum. Við stöndum og berjumst með Palestínskum bræðrum okkar og systrum – körlum sem kúgaðir eru af Ísraelskum yfirvöldum og almenningi. Og sérstaklega stöndum við með konum, sem auk þess að vera kúgaðar af Ísraelum eru margar hverjum kúgaðar af eiginmönnum sínum og öðrum körlum innan síns samfélags. Við stöndum með börnunum sem mörg hver eiga enga aðra framtíð en grjótkast og sjálfsmorðsárásir.
Við berjumst gegn yfirvaldi og gegn landamærum – öllum yfirvöldum og öllum landamærum. Réttlæti og jöfnuði verður ekki flaggað undir þjóðfánum og -söngvum.
—
Við gætum auðveldlega talið okkur sjálfum í trú um að okkur hér á landi sé ómögulegt að hafa bein áhrif á baráttu kúgaðra Palestínumanna. Hér er ekki einu sinni ísraelskt sendiráð og í fljótu bragði virðast því táknræn samstöðumótmæli og notkun kaffiyeh-klúta vera eina innlegg okkar í baráttuna.
En það er ekki rétt! Aðgerðir okkar beinast að kerfinu í heild sinni og þó við getum ekki með berum höndum stöðvað ísraelska skriðdreka frá því að leggja heimili fólks í rúst og hermenn frá því að fremja sín daglegu fjöldamorð, getum við smám saman bitið á kerfið, þangað til það fellur.
Kapítalisminn er hnattrænn og kúgunin sömuleiðis. Þar af leiðandi verður barátta okkar óhjákvæmilega líka hnattræn. Óvinir okkar og skotmörk starfa út um allan heim. Innlegg okkar í baráttu Palestínumanna er innlegg í alþjóðlega baráttu fyrir frelsi og jafnrétti.
— — —
Nýja myndaseríu frá Palestínu má finna á heimasíðu palestínskra kvenna, hér. Myndirnar við þessa grein eru fengnar af sömu síðu, nánar tiltekið hér.
Hér er blogg-síða tveggja vina, annars sem býr á Gaza og hins sem býr hinu megin við landamærin.
Ísraelsk Indymedia síða er hér.
Einstaklega ljótar myndir af sárum af völdum ísraelskra vopna, má sjá hér.
Það fór virkilega mikið í taugarnar á mér að hlusta á Boga Ágústsson bulla í Kastljósinu í gær um þetta mál. Maðurinn vissi ekkert í sinn haus og einmitt eins og þið eruð að segja dró upp þá mynd að báðir aðlar væru jafnir! Hvílík fjarstæða! Og kannanir eru að sýna að “þjóðin” treysti þessum fjölmiðli best af öllum þeim bullmaskínum sem eru í gangi. Fólk ætti heldur að lesa aftöku og þá sem segja sannleikann!
Af hverju ekki að setja upp svona pæret-útvarpsstöð?
Þá getiði básúnað sannleikanum daginn út og inn, beint í smettið á fólki sem er að reyna að tjúna inn á bylgjuna eða eittthvað.
Það væri osom.
Er ríkisstjórn Íslands búin að skrá okkur á stuðningsmannalista þessarra voðaverka?
Ráðamenn okkar settu landið okkar á lista þjóða sem styðja ofbeldi, fjöldamorð, limlestingar, pyntingar, nauðganir og eyðileggingu heillar þjóðar í sama heimshluta og Palestína er.
Og svo er fólk hissa á að mótmælendur skuli hylja andlit sín á Íslandi….
Allveg er þetta……magnað…
Mér finnst vanta fleiri greinar hérna inn, þær þurfa ekki að vera langar, kannski bara nokkrar línur t.d. varðandi að það var slett málningu á ráðuneytið.
Ég skoða þessa síðu 5 sinnum á dag. :)
Please fleiri greinar =)
…samt keep up the good work.