English 

Ein af þeim skipulagsbreytingum sem áttu sér stað við Háskóla Íslands nýverið er að hin nýju svið þurfa nú að greiða leigu til skólans fyrir afnot af húsnæði hans. Þetta er gert í nafni hagræðingar, svo það sé öruggt að sviðin haldi ekki uppteknu meira en því húsnæði sem þau nota. Það er alltaf vissara, til öryggis, að láta fólk greiða fyrir hlutina, því annars er hreint ekki víst að þeir nýtist. Eða hvað?

Háskólinn þykist keppa að nýsköpun og frumkvöðlastarfi, hann ætlar sér að vera með þeim fremstu í heimi, en innantóm ímyndarsköpun rektors og annarra markaðsníðinga innan hans vébanda minnist ekki á lykilatriðið í stefnumótuninni: Nýsköpunin og frumkvöðlastarfið er aðeins fyrir þá sem hafa efni á því.

Sú staðreynd að nemendur skuli þurfa að leigja kennslustofur til þess að hýsa málfundi eða önnur hugðarefni þeirra er algerlega ótækt og ber vott um að stjórnendur skólans séu ennþá með höfuðið í þeim skýjaborgum sem auðjöfrar reistu á síðustu árum.

Öskra tekur kennslustofu undir opinn fund án formlegs leyfis
skólayfirvalda með því markmiði að sporna við þeirri kapítalísku alræðisgeðsýki sem hefur hægt og bítandi verið að taka skólann yfir síðustu ár. Myglutaumar græðgi og efnishyggju hafa of lengi fengið að berast óáreittir úr viðskipta- og stjórnmálalífinu, með þeim afleiðingum að akademískt frelsi stúdenta við Háskóla Íslands hefur fengið verðmiða eins og aðrar vörur í neyslusamfélaginu.

Tímasetning og staður verða auglýst síðar.

ÖSKRA!
www.oskra.org / oskra@oskra.org

3 Litlir Negrastrákar:
  1. erna segir, þann :

    er að reyna að finna á http://www.hi.is hvað það kostar að leigja stofur en finn það hvergi? er einhver fallegri og gáfaðri en ég sem getur bent mér á það??

  2. lalli segir, þann :

    stofa 105 á háskólatorgi, núna!

  3. Aftaka » Færslusafn » Háskóli Íslands ® - í boði Actavis og NATO segir, þann :

    [...] og fram hefur komið á vefritinu Smuginni var Öskruliðum tekið vel 29. janúar þegar stofutaka átti að fara fram innan veggja skólans, enda ekkert nema sjálfsagt að nemendum sé heimilt að skipuleggja og [...]

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in