Aftaka er alltaf í andófi! Og þess vegna – nú þegar útrásin hefur náð alla leið upp í garnir íslenskra auðmanna – stækkum við við okkur á meðan allir aðrir minnka við sig. Útvarp Aftaka er er komið í gang hér hægra megin á síðunni og bíður upp á endurómun íslensku þjóðfélagsræpunnar, við mikinn fögnuð allra góðra böðla.
Það fyrsta sem við bjóðum upp á er annars vegar upplestur Geirs H. Haarde á kveðjubréfi sínu til Davíðs Oddss… afsakið, bankastjórn Seðlabanka Íslands og hins vegar munnfroðu íslenskra bloggara eftir að Hörður Torfason þorði að ropa því út úr sér opinberlega að æxli Geirs væri fyrst og fremst og einungis pólitískt útspil.
Útvarp Aftaka er engin fokking tísku-Bylgja, heldur drulluskítug afhjúpun líkamlegs og andlegs úrgangs íslenska dárafleysins.