English 
Málefni:

…

Eða kannski er þetta lögreglustöð. Eða skóli. Stundum er erfitt að sjá muninn. Þú veist að það eru myndavélar út um allt. Þú getur séð þær. Þú veist að það eru engar rafmagns-flögur í fötunum þínum. Þú hefur fjarlægt þær, hverja eina og einustu. Þú veist að einhvern daginn mun heimurinn aftur verða frjáls undan vélum, og vélmenningunni sem skapaði þær. En þannig er heimurinn ekki núna.

Og þú ætlar gera eitthvað í málunum.

Þú ertu ekki heimsk. Þú veist að það eru margir sem enn trúa mýtunni um vélarnar. Þú veist að það eru margir sem vilja frekar völd en líf – þitt eða þeirra. Þú veist að þeir munu drepa til þess að verja vélarnar sem eiga þá. Þú veist að þeir munu sjálfir frekar kjósa að deyja heldur en að skera á tengls sín við vélina. Í raun er vélin þegar byrjuð að drepa þá. Og þeir munu ekki ná þér. Þú ert ekki heimsk.

Þú tekur ekki við skipunum frá neinum. Stundum vinnur þú einsömul og stundum vinnur þú með þeim sem þú treystir, bræðrum þínum og systrum í þessari baráttu gegn vélinni, fyrir lífi. Þú ert að eyðileggjani vélarnar – og vélina – á þann hátt sem þú er færust. Þú hefur fjarlægt þær úr hjarta þínu svo glitrandi glingur heldur þér ekki lengur fastri. Þú sérð verslunina (eða kannski er þetta lögreglustöð, eða skóli, eða stjórnmálaflokkur) sem það fangelsi sem hún raunverulega er.

Og þegar þú hefur lokið verki þínu inni í fangelsinu, eyðilagt allt það sem þarf að eyðileggja, á þann hátt sem þú best getur eyðilagt, ferðu aftur út, út í sólskinið eða myrkur næturinnar, inn í fögnuð hins raunverulega heims.

Þér líður vel.

5 Litlir Negrastrákar:
  1. Hamsakvendið segir, þann :

    þessi lesning bjargaði ömurlega deginum mínum!!

  2. Hr.Þvímiður segir, þann :

    Ég hreinlega skil þetta ekki, þetta er svo óljóst. Um hvað er verið að tala og hver á boðskapurinn að vera?

  3. Arnar Birgis segir, þann :

    Eins og ég skil þetta þá er verið að reyna að fá á þig til skilja raunverulega það sem þú þarft til að líða vel en ekki einhvað sem einhver lokkar þig til að kaupa (hlýða, matast eða fylgja) og fá þig til að hugsa meira um það sem að þú þarft en ekki er sagt að þú þurfir.
    Einnig er verið að benda á myndavélar sem eru nú í hverju skúmaskoti til að passa það að ÞÚ gerir ekki einhvað vitlaust og bannað.

    …eða já.

  4. Brandur segir, þann :

    Það er þó nokkur huggun í þessum heimsins táradal hversu mörg svín það eru sem þurfa að slást um þessar fáeinu perlur sem þeim hlotnast.

  5. Erna Geirs segir, þann :

    Þessi lesning bjargar ennþá stundum ömurlegu dögunum mínum.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in