Þetta er svo fallegt; hópur fólks sem kennir sig við ÍSLAND og stendur að hópnum Indefence flaug til stóru brittaníu seinasta þriðjudag og afhenti mótmælaskjal við breska þinghúsið sem innihélt 83.300 nöfn Íslendinga sem mótmæla því að hafa verið skilgreindir sem hryðjuverkamenn með hryðjuverkalögum breta.
Á mynd af athöfn hópsins má meðal annars sjá Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins, Orra Pál Dýrason, trommara Sigur Rósar og Íslensku fjallkonuna.
Á sínum tíma gagnrýndum við á Aftöku þetta framtak vegna boðskaparins sem skein í gegnum ljósmyndirnar sem þau birtu og sýndu fólk halda á spjöldum með áletrað t.d. “Mr. Brown, do we look like terrorists?”, “not my fault”, “I’m not a terrorist”, “Gordon darling, we are not to blame” o.s.frv.
Aðal gagnrýni okkar þá snéri að þeirri hugmynd hópsins að hryðjuverkamaður líti einhvern veginn visst út. Og við spurðum þá HVERNIG LÍTUR HRYÐJUVERKAMAÐUR ÚT?
Samkvæmt myndunum sem birtust á Indefence líta þeir allavega ekki út eins og víkingar norðursins.
Því það er fólkið í Afganistan, Írak, Palestínu og á miklu fleiri stöðum sem hefur verið og er stimplað terroristar sökum þess að þau búa á svæðum sem ekki eru í náðinni eða hafa náttúruauðlindir sem aðrir ásælast. Flest fólk styður ekki morð á saklausum íbúum landa, t.d. á börnum og konum en finnst frekar í lagi að uppreisnarmenn séu drepnir. Samt eru allir uppreisnarmenn feður, mæður, systur, bræður, frænkur, frændur og vinir ,,saklausu” íbúanna og eru oft að berjast gegn innrásunum, berjast fyrir frelsi ,,saklausu” íbúanna.
Þeir sem eru á móti fjöldamorðum á ,,saklausum” íbúum en styðja eða fordæma ekki morð á uppreisnarmönnum eru í raun á móti upprisu fólks og rétti hvers mans að verjast og berjast gegn yfirgangi annara eins og t.d. herskáir Palestínumenn gera. Þar af leiðandi eru þeir sem styðja eða fordæma ekki morð á uppreisnarmönnum að lýsa yfir stuðningi sínum við ofbeldið og valdníðsluna sem framin er á fólkinu.
Gangrýni okkar á Indefence-uppátækið núna er á trú þessa fólks á réttmæti lagasetningana yfir höfuð; lagasetninga sem stimpla heilu löndin og samfélögin sem terrorista. Þessi samtök minnast ekki einu orði á óréttlætið og viðbjóðinn sem kerfisbundin mismunun felur í sér, ekki orði á kapítalisma eða á misskiptingu auðs. Nei, það sem þau gera er að klæða sig upp eins og skítablesarnir sem stimpluðu landann, draga fjallkonudraslið úr skrifstofustarfinu og sameinast um málstaðinn í nafni þjórembu og plebbisma.
Við hjá Aftöku erum glöð í hópi hinna 200.000 hræðnanna á þessu skeri sem finnst nánast allt mikilvægara en að dressa sig upp fyrir valdníðslubákn í Bretlandi til að fá tilbúna ímynd lands til baka svo að þetta sama lið geti grætt á Íslandi sem vörumerki.
Word up!
Fokk indefence
það er ígt glatað klatað kompaný
Hey! hér skrifar einhver sem er ekki að skoða heiminn með hausinn upp í eigin rassgati! Takk.
Hryðjuverkamaður er einmitt, samkvæmt einni skilgreiningu, manneskja sem berst gegn þeim sem telja sig hafa einkarétt á að veita stimpilinn.
Held að það sé nokkuð auðvelt að komast á þannig lista. Aftaka er örugglega á nokkrum listum … til hamingju með að hafa það mikið að segja :)
Skiptum um nafn á þjóðprumpinu “Iceland”og köllum það sínu rétta nafni “WHITE ARSEHOLES FOR SALE”
Til helvítis með Söluþjóðina!!
Til helvítis með “Ísland”!!
Ég bara spyr.
Hvernig er þetta með þessa Sigurrósar óvita, eru þeir ekki orðnir nógu ríkir til þess að geta farið að kaupa sér heilabú til þess að hugsa fyrir þá?????????????????
“Gangrýni okkar á Indefence-uppátækið núna er á trú þessa fólks á réttmæti lagasetningana yfir höfuð; lagasetninga sem stimpla heilu löndin og samfélögin sem terrorista. Þessi samtök minnast ekki einu orði á óréttlætið og viðbjóðinn sem kerfisbundin mismunun felur í sér, ekki orði á kapítalisma eða á misskiptingu auðs. Nei, það sem þau gera er að klæða sig upp eins og skítablesarnir sem stimpluðu landann, draga fjallkonudraslið úr skrifstofustarfinu og sameinast um málstaðinn í nafni þjórembu og plebbisma.” <— þetta er eins og talað út úr mínu hjarta.
Það sem mér finnst fáránlegt við þetta mál fyrir utan það sem kemur fram í þessari ágætu grein er að fólk sem var ekki eigendur eða stjórnarmenn Landsbankans skuli taka hryðjuverkalögin til sín. Þessum lögum var nefnilega ekki beitt gegn Íslendingum (enda hafa þeir engan veginn staðið sig í hryðjuverkastarfsemi gegn Bandaríkjunum) heldur gegn stofnun sem ekki var ríkisfyrirtæki á þeim tíma.
Hitt er að fólk skuli mótmæla því að Landsbankinn og þeir sem honum tengjast sé ásakað um hryðjuverkastarfsemi, án þess að fara einu sinni fram á skýringar. Ef Aftaka yrði kærð fyrir hryðjuverk myndi ég fyrst krefjast þess að fá að vita fyrir hvað, áður en ég færi að mótmæla því. Þótt ekki væri til annars en að geta rökstutt skoðun mína.
Hefur thetta fólk eitthvad thurft ad lýda fyrir thennan stympil? Er thetta thad mikilvaegasta sem ad theim dettur í hug ad berjast fyrir?
Ég hélt ad thad vaeru bara bloggkjánar sem ad stundudu thetta “vid erum ekki terroristar” átak.
Amen Eva!
Hjartanlega sammála þessu. Maður fékk kjánahroll þegar maður sá þessa frétt.
Íslendingar eru ekki terroristar, bara frjálslegir náriðlar í jakkafötum.
Ég verð að gefa þér það að þetta er alveg rosalega fyndið hjá þér.
Kveðja.
Ólafur
[...] Óvæntasta sameining ársins: Sigur Rós og Framsóknarflokkurinn, sameinuð af þjóðrembunni. [...]
[...] er hér. Seinna flaug InDefence til Lundúna með Sigur Rós í fararteskinu og hélt þar einstaklega yfirvegaða athöfn – athugið: ekki mótmæli – í virðulegum jakkafötum og með fjallkonuna fremsta í [...]