English 
Málefni:

hstaka_3_jpg_280x600_q95.jpg

Frá klukkan 13.30 í dag, miðvikudag, við lögruglustöðina á Hverfisgötu.

Nú hafa 16 manns verið teknir höndum fyrir hústökuna á Vatnsstíg. Lögreglan réðst að húsinu með miklu valdi. Húsið var hakkað í sundur með vélsögum og sleggjum, að ástæðulausu. Lögreglan handtók, með miklu valdi, einnig einn úr hópi þeirra sem stóðu fyrir utan og fylgdust með og mótmæltu aðför lögreglu að húsinu.

Lögreglan og yfirvöld hafa sýnt það í verki að þeir fá ekki laun sín fyrir að þjóna fólkinu, heldur eigendum kapítals, þeir verja fílabeinsturna fjárglæframanna með öllum tiltækum ráðum. Þeir sem eiga peninga virðast geta hringt á hundana sína frá sólarströndum í skattaparadísum og sigað þeim á hvern sem er.

Leyfum því ekki að viðgangast!

Sýnum hinum handteknu samstöðu, mætum á lögreglustöðina á hverfisgötu og látum í okkur heyra.

Fólk verður þarna upp úr kl. 13.30, látið sjá ykkur.

34 Litlir Negrastrákar:
  1. Pétur K segir, þann :

    Hvenær tökum við húsið aftur?

  2. Nonni segir, þann :

    Abbababb það stendur 1230 á Nei!

  3. gunnar segir, þann :

    rosalega líður ykkur rónunum ílla ! guðminn almáttugur hvað þið eigið bátt að ráðast á einu vörn sem við höfum hérna á íslandi þegar ég fer á svona til að fylgjast með þá hlæ ég af ykkur og hvernig lögreglan er miklu sterkari og betri en þið og svo kvarti þið og kveinið yfir eitthverju táragasi við hverju búist þið að þeir komi og gefi ykkur kaffi og með því svona án gríns reynið að þroskast og eiga ykkur eitthvað líf farið að vinna eða farið í skóla! góðar stundir

  4. Nonni segir, þann :

    Þegar þú segir “einu vörn” gunnar, ertu þá að tala um einu vörn auðmannanna?

  5. gunnar segir, þann :

    nei ég er að tala um mína vörn og þína ef það er ráðist á mig þá vil ég aðstoð lögreglu ekki kemur þú og bjargar mér þegar það er verið að brjótast inn og stela frá mér þá vil eg aðstoð lögregu og ég get sagt þér það líka að lögreglan hefur bjargað mörgum mannslífum þar á meðal lífi vinar minns! svo ég held að við ættum bara að bera virðingu fyrir þessu fólki sem vinnur þetta hættulega og erfiða starf! þetta er fólk eins og ég og þú sem eiga fjölskyldur börn og þessháttar aðeins að hugsa!

  6. Pétur K segir, þann :

    Mjá “gunnar” þarft innlegg inn í þessa umræðu.

  7. Töffari segir, þann :

    Legg til að vatnsstígurinn verði ekki aftur yfirtekinn, lögreglan er búin að brjóta hann og bramla til andskotans, hinsvegar er nóg af öðru yfirgefnu húsnæði í borgini sem hægt er að fara inn í og það er um að gera að láta tafarlaust verða af því.

  8. omj segir, þann :

    Hvað ef eigandi húsnæðisins er sjálfur á vonarvöl með skuldir upp fyrir haus?

  9. Pétur K segir, þann :

    Eru s.s löggusvínin búin að vera að stunda skemmdarverk þarna?

  10. Óli J segir, þann :

    Húsið stæði enn í því ásigkomulagi og það gerði fyrir helgi ef að þið ólátaskríllinn hefðuð ekki verið að vaða þarna inn í leifisleysi. Allar skemmdir á húsinu eru ykkur að kenna og einungis ykkur!!!!

  11. Anton segir, þann :

    Bróðir talsmanns Björgólfsfeðga er skráður eigandi og Björgólfur gamli fjarstýrir ofbeldinu gegn ykkur að heiman frá sér að Vesturbrún 22. Hvers vegna er ekki farið heim til hans?

  12. Sigurður B. Jökulsson segir, þann :

    Óli J: Ef að ég geng inn í hús og sest niður. Hálftíma síðar þá gengur þú inn í sama hús og segir mér að fara, ég segi nei. Þá hringir þú ekki í enn annan mannin og segir honum að koma og rústa húsið og ganga í skrokk á mér þá er það þú og fautinn þinn sem eruð ábyrggir fyrir skemmdunum.
    Ég er ekki endilega alltaf samála þeim málstað sem að anarkistar eru með en það skiptir ekki öllu því að ég er oft samála þeim.
    Það sem ég var hrifnastur af í sambandi við þessa hústöku er að með þessu móti er verið að vernda gömlu borgarmyndina að einhverjuleiti. Við íslendingar eigum fáar byggingar sem eru mikilfenglegar eins og þær sem við sjáum í Köben eða London.
    En við eigum eitt sem að er ekki algengt í vesturevrópu, það er að götumyndinn gamla hjá okkur er handahófskend þaran byggðu menn hús hver eftir sínum smekk og efnum. Þess vegna eigum við hverfi sem er skemmtileg samsetning húsa, jafnvel frjálslegt útlit hverfana er að hverfa hægt og rólega. Þetta er eitt af því sem við þurfum að vernda þetta er byggingarsaga sem má ekki tínast og menningarverðmæti sem að fólk oft á tíðum áttar sig ekki á.

  13. Viktor Pétur segir, þann :

    Þær fyrstu skemmdir sem gerðar voru á húsinu voru þær að taka hitann af því og leyfa því að grotna niður af sjálfsdáðum. Eftir að Anarkistarnir tóku húsið yfir höfðu þeir tekið til í því og málað, og gert mjög mikið fyrir það. Þar sem verktökum var ekki leyft að rífa húsið út af húsafriðunarnefnd ákváðu þeir að fara þessa leið í staðinn ..

  14. palli segir, þann :

    Who has the money has the power, who has the power has the law!

  15. Arnar segir, þann :

    Ég vill að þetta hústöku fólk borgi fyrir skemmdirnar sem urðu á húsinu..Alger óþverralýður hérna á ferð.

  16. Karen segir, þann :

    Hugmyndin á bak við húsið var góð en framkvæmdin var afspyrnu léleg. Hefðuð þið fengið leyfi til að vera þarna í góðri trú og til að ávaxta kærleikann milli manna í krepputíð að þá hefði fólk kannski hlustað á ykkur. Lögbrot eru alls ekki málið! Þið eruð ekkert betri en þessi rugludallar sem rústuðu landinu okkar! Maður bætir heiminn með því að vera betri en þeir sem eyðileggja hann og nota heilann á sér en ekki valdafl! Samfélagslegar reglur og þar af leiðandi lög eru grundvöllur þess að hér geti fólk lifað í sátt og samlyndi. Og meirihluti fólksins í landinu viðurkennir vald lögreglunnar til að vernda þessar reglur. Þið vissuð vel hvað þið voruð að fara út í áður en þið settust að í húsínu. Þetta var gert í þeim tilgangi til þess að lokka lögregluna til að bregðast við! Grow up!

  17. Nonni segir, þann :

    Karen, þú hefur skemmtilegar hugmyndir um hvernig á að bæta samfélagið. Það verður spennandi að fylgjast með þegar þú ferð að *gera* eitthvað frekar en röfla í því fólki sem er að reyna láta gott af sér leiða. Gangi þér vel!

  18. Arnar segir, þann :

    Eru þið að láta gott af ykkur leiða með því að brjótast inn í hús sem einhver annar á og neita að yfirgefa það og á endanum vera valdur því að allt sé brotið og eyðilagt þarna inni. hmmmm

  19. Karen segir, þann :

    Af hverju verður það að *gera* að felast í lögbrotum??? Ef þið ætlið að reyna breyta samfélaginu ættuð þið að stofna ykkar eigin flokk, upplýsa fólkið í landinu og reyna þannig að hafa áhrif á samfélagið. Hitt er ekkert nema heigulskapur!

  20. Kristján segir, þann :

    Skoðum hvernig borgaraleg óhlýðni er skilgreind:

    #Hún er ávallt laus við beint ofbeldi og fer fram opinberlega en ekki í skjóli nætur.

    #Hún snýst um að brjóta lög til að bæta lög.

    #Hún hefur það að markmiði að bæta samfélagið.

    #Hún krefst undirgefni við lögin, þ.e. að sæta refsingu án andmæla fyrir brot sitt.

    Aðgerðir hústökufólksins koma heim og saman við borgaralega óhlýðni. Í rauninni sættu þau refsingu án þess að andmæla (þó þau hafi ekki látið handtaka sig þegjandi og hljóðalaust). Þeess vegna geta lögbrot verið jákvæð.

    Haldið þessu áfram. Ég mun taka þátt. Það væri kannski ekki óvitlaus hugmynd að prófa að hafa samband við eigendur húsanna þó þeir hafi í raun fyrirgert rétti sínum til að eiga húsin fyrst þau láta þau vísvitandi eyðileggjast. Ég ætlaði að koma með bækur á skiptimarkaðinn (sem mér finnst betra orð en fríbúð) áður en helvítis löggurnar eyðilögðu þetta.

    Borgin hefði fyrir löngu átt að sekta húseigandann um háar fjárhæðir, hún hefur algerlega brugðist. Þegar yfirvöld bregðast verðum við að gera hlutina sjálf.

  21. Karen segir, þann :

    Kallið þetta hvað sem þið viljið. Þið hafið greinilega ekki hugrekkið í að standa andspænis fólki og kynna mál ykkar með málefnalegum hætti. Ég held að þið þrífist á spennunni sem fylgir þessu. Það er ansi sorglegt að lifa þannig!

  22. Svavar segir, þann :

    Mér sýnist það nú ekki svo sorglegt – frekar spennandi raunar.

  23. Karen segir, þann :

    Einmitt! Arg! Talandi um þrjóskt lið!

  24. Anton segir, þann :

    Minni á fínt hús til að taka yfir.
    Vesturbrún 22, heimili Björgólfs. VIð eurm að borga fyrir málverkin þar hvort eð er.

  25. tresquat segir, þann :

    Solidarity from Tampere, Finland!

    By: tresquat.net

  26. Kjaftfor segir, þann :

    Karen vill að duttlungar auðjöfra sem keypt hafa hús með gervipeningum sem þeir áttu aldrei, ráði því bara að miðbærinn leggist í eyði.
    Karen heldur líka með lögum laganna vegna, eins og margir sem vaða öskrandi yfir bloggheima og skilja hvorki upp né niður í ykkur róttækklingunum fyrir að gera eitthvað. “ÞAÐ ERU LÖG Í ÞESSU LANDI” kyrja þeir trekk í trekk.
    Já hlýða lögum laganna vegna, ef að ´það væru lög sem að segðu að þú yrðir að skera gat á magan á þér á hverjum þriðjudegi, myndi þetta lið ekki tafarlaust hlýða?
    Eða er það þannig að það er logandi hrætt um kapítalíska og óréttláta kerfið sitt, sem þegar er hrunið?

    Ég held það bara, og legg svo til að Gunnar, Óli J (klemenz) og Karen, hætti að misþyrma lyklaborðum sínum svona, þetta er skelfilegt að sjá.

    Góðar stundir.

  27. EG segir, þann :

    þetta rakst ég á á vefnum: merkilegt!

    spurningar sem ég sendi lögregluvefnum fyrir langalöngu

    ————–

    Nú stendur í lögum að lögregla skuli bera einkennisnúmer á búning sínum, en hversvegna hef ég ekki séð neitt númer á óeirðarlögreglubúningunum? Gefur þetta lögreglumönnunum ekki soldið meira “frelsi” til þess að misnota vald sitt?

    -XXX
    ——–

    Komdu sæll XXX

    Þakka þér fyrir áhuga þinn á einkennisfötum og einkennum lögreglumanna. Þau ákvæði sem þú átt við eru fallin úr gildi, en ný reglugerð um einkennisbúninga og merki lögreglunnar tók gildi 3. janúar 2007:
    http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/aa0d47377abc97740025 6a090053ff91/fe4c94d70b11e37600257261004bb4e0?OpenDocument&Highlight=0 ,merkja

    Þar kemur fram að lögreglunúmer lögreglumanna eru ekki lengur saumuð í einkennisfötin sjálf, heldur í axlarsmeyga lögreglumannanna.

    Árni E. Albertsson
    Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóranum

    ——————————–

    en eiga númerin ekki að vera sýnileg? ég hef heyrt dæmi um að
    lögreglumenn hafi verið að hylja númerin sín með einum eða öðrum hætti

    -XXX
    ——————————-

    Sæll aftur

    Í raun segir ekkert um það hvort þau eigi að vera sýnileg eða óheimilt að hylja þau, heldur aðeins að þau eigi að vera saumuð í axlarsmeyga. Ég efa það samt stórlega að lögreglumenn séu vísvitandi að hylja þessa smeyga því það veldur þeim aðeins óhagræði við störf sín.

    Árni E. Albertsson
    Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóranum

  28. Kjaftfor segir, þann :

    Gaman að segja frá því líka að Arnar varðstjórieðaeitthvað hjá lögreglunni hefur verið að bíða eftir sínum merkingum frá því í nóvember.

    Ástæðun ku vera sú að þeir kláruðu gullþráðinn sem notast átti við til ísaumsins.
    Annað hvort það eða löggan er viljandi að villa á sér heimildir af því að þeir eru hópur af valdníðingsbastarðaþrælum, hm?

  29. Karen segir, þann :

    Æ, elsku Kjaftfor minn…fullorðinn maður sem þorir ekki að skila eftir sitt rétta nafn…ég skil bara ekki hvernig þú getur haldið uppi svona barnalegum rökum.

    “Já hlýða lögum laganna vegna, ef að ´það væru lög sem að segðu að þú yrðir að skera gat á magan á þér á hverjum þriðjudegi, myndi þetta lið ekki tafarlaust hlýða?”

    Eru þetta rökin fyrir því að það sé í lagi að taka sér bessaleyfi til þess að brjóta lög? Þykir þetta ansi ómálefnalegt.

    Hver ert þú að ákveða fyrir okkur öll hin hvaða lög sé í lagi að brjóta? Þú starfar ekki í umboði meirihluta þjóðarinnar og gerist þar af leiðandi sekur um það nákvæmlega sama og þú ert að gagnrýna! Vald fárra til að ákveða fyrir hönd fleiri hvað er rétt og rangt að gera! Í svo bullandi mótsögn við sjálfa þig að það hálfa væri nóg!

  30. Vífill segir, þann :

    Kjaftfor hefur fullkomlega rétt fyrir sér. Dæmið hans sýnir bara það að „lög eru lög“ eru ekki rök, heldur bara innantóm setning.

    Ályktun þín, að hann geti ákveðið hvaða lög er rétt að brjóta og ekki er líka rétt. Það er einskis að ákveða siðferði nema hans sjálfs. Ég skal horfa upp á milljarð manns segja að það sé rétt að drepa einhvern (eða að saga hús í sundur til þess eins að koma fólki út úr því) – það þýðir ekki að mér þurfi að finnast það.

    Það er engin mótsögn hér. Lögin segja ekkert nema hvaða afleiðingar má búast við að einhverjir verknaðir hafi í för með sér, komist þeir upp. Lögin koma ekki og munu aldrei koma í staðinn fyrir persónulegt siðferði. Finnist einhverjum óréttlæti unnið í skjóli laganna er það væntanlega hans siðferðislega skylda að sporna við því að þeim lögum sé framfylgt.

    (Vond lög hafa ítrekað verið sett undir lýðræðislegum þingstjórnum sögunnar. Ísland er hluti af sömu mannkynssögu.)

  31. gunnar segir, þann :

    jæa kjaftfór er svo samalla henni karen að þú getir ekki einu sinni komið undir réttu nafni á ég að brjóta lög viljandi og svo þegar ég er tekinn fyrir það þá verð ég brjálaður og segi að það eigi að lóga þeim sem starfa við löggæslu fyrir það??? á ég þá ekki bara fara inn í þitt hús og búa þar? það er alveg það sama má ég labba inn í krónuna eða eitthvarja búð og fylla körfuna og labba svo út af því mér finnst að ég eigi ekki að borga fyrir það? og af því að það er ólöglegt að stela?? svona án grínst afhverju hugsiðið svona ég er viss um að 6 ára börn hugsa ekki einu sinni svona heimskulega!!

  32. Vífill segir, þann :

    Ef þér finnst þú ekki eiga að borga fyrir matarkörfuna, þá máttu alveg halda því fram. Án frekari málsatriða þætti mér það reyndar ekki merkilegur málstaður en slíkt getur auðveldlega verið fallegur gjörningur undir réttum formerkjum.

  33. Karen segir, þann :

    Málið snýst líka um það hvernig þið ákveðið hvaða lög megi brjóta og hvaða lög ekki. Leggjið þið höfuðið í bleyti, rökræðið málin, finnið lausnir á málunum og leggið þetta undir kosningar í ykkar hópum. Eða apið þið allt upp eftir einum svölum gæja sem þykist vita allt?

    Þið eruð komin út á ansi hálan ís ef þið ætlið ykkur svo stórt hlutverk. Línan er afar þunn á milli góðrar hugmynda og öfganna!

  34. Vífill segir, þann :

    Karen. Hreyfing anarkista eru ekki tómir duttlunga nokkurra íslenskra unglinga. Hver sem er gert hvað sem honum sýnist en ef engin hugsun er bak við gjörðirnar finnst mér þær ekki merkilegar (ég held þú hafir verið að tala um eitthvað slíkt). Allar aðgerðir anarkista sem hér hafa átt sér stað eru eftir uppskriftum. Margar með íslenskum kryddum og tilbrigðum reyndar en allar styðjast við gamlar uppskriftir.

    Anarkistar gera (ég og allir sem ég þekki vel til) það sem þeim þykir réttlátt eftir heilmiklum kenningum, heilmiklum hugsunum og heilmiklum rökræðum. Ég efast reyndar um að nokkur breiðfylking fólks hafi það jafnríkulega að stefnu að hugsa hverja hugsun til enda áður en hún verður að veruleika. Eflaust gera alltaf einhverjir eitthvað eins og svalasti gæinn í hópnum – en grímuburðurinn er ekkert djók. Við viljum að litið sé upp til stefnunnar, ekki andlitanna.

    Að því sögðu, þá ætla anarkistar sér stórt hlutverk – það hafa þeir gert frá fæðingu stefnunnar.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in