JIBBÍ! Ný systursíða, HÚSTAKA er risin úr rekkju.
Hún mun skýra hugmyndafræðina á bak við hústökur, segja sögu þeirra, birta fréttir af gömlum og nýjum hústökum hér á landi og annars staðar og einfaldlega fjalla um allt það sem viðkemur því að taka yfir svæði (land, hús, kofa……) og lýsa yfir sjálfræði þess svo það lúti ekki reglum sjoppunnar. Að vefsíðunni stendur fólk sem vill hvetja fólk til að taka hús og gera hústökur að almennu fyrirbæri samhliða því að breyta samfélaginu. Hústökur eru á allra færi, sama hve gamall maður er eða ungur, sama hvort maður er hjúkrunarfræðingur, sorphirðir, listamaður, skólakrakki, smákrakki, hundur, gamalmenni, kennari eða lífsnautnamaður þá geta allir tekið svæði og eiga sjálfgefin rétt á rými og skjóli þar sem þeir geta athafnað sig að vild og ráðið eða verið með í ráðum um húshaldið.
Með hústöku leysum við tangarhald auðvaldsins á lífi okkar og limum. Á meðan við borgum bönkunum, ríkinu og auðmönnum fyrir að búa einhverstaðar þá viðhelst grunnmisrétti nútíma samfélags. Við getum mótmælt að vild en á meðan við sitjum enn í eignum þessara afla og borgum þeim þæg en niðurlút þá er grunnur valdafyrirkomulagsins ekkert að fara að breytast. Þetta er lausn fólksins, þetta er lausn sem stjórnmálaflokkarnir geta ekki boðið upp á, því þá myndi það kerfi sem þeir þrífast á hrynja. Ríkisstjórnir munu aldrei gefa fólki frelsi til að vera frjálst undan ríkisstjórninni!
Hústaka er fyrir fólk en ekki valdabrask og er almenn birtingarmynd upprisunnar gegn valdsstjórninni, auðvaldinu, yfirvaldinu, eingarréttinum, kapítalismanum eða hvað sem þessi marghausa slefbjóður er kallaður!
Endalaust er til af húsum sem enginn notar. Fyrir helgi birti fréttablaðið vinnulista fyrir alla þá sem langar að taka yfir tóm hús, en listinn er þó ótæmandi. Á höfuðborgarsvæðinu eru sagðar 2500 tómar íbúðir eða rými og á landsbyggðinni er heill hellingur af húsum sem liggja ónotuð og við grotnun. T.d. blésu Egilstaðir og austfirðir út þegar álverið og Kárahnjúkavirkjun voru í byggingu. Þenslan skilur nú eftir tugi húsa sem enginn býr í enda var stóriðjan engin ,,lausn” fyrir landsbyggðina. Stóriðjan var trójuhestur sem skilur nú eftir sig draugabæi, skuldir gjaldþrot, skömm, mengun og jafnmikla andlega fátækt og áður.
Hústaka er til hvatningar og hugrekkis, samstöðu og frelsis!
Notkun fram yfir eignarréttinn, því fólk er skemmtilegra en seðlar!
*Og þá er bara að henda inn á síðuna greinum og fréttum og sparka þessu fyrirbæri ærlega úr startholunum!
Yessssssssssss.
jibbí kóla!
fyrsta myndin er óóóógeðslega floooott!!!
hehehe þetta er gjeggað!
Á siðunni er merkileg grein um lögleiðingu hústöku eftir Tinnu. Fróðleg grein en sérstakt að sjá hana á anarkistasíðu. Þar eru tillögur um lagasetningu um hústöku og útfærslan gerir ráð fyrir aðkomu lögreglu og borgaryfirvalda. Nákvæmlega ekkert anarkí í því eða hvað