English 

 áhorfandi í innantómu leikhúsi

Mannkynssagan er ekki eitthvað sem kemur fyrir fólk – hún er það sem fólk gerir. Menning stjórnar ekki hegðun mannkyns – hún er summa mannlegrar hegðunar. Framfarir tækninnar eru ekki kraftur náttúrunnar. Það er ekkert samfélag nema ef við byggjum það, enginn kapítalismi án okkar höfuðstóls og höfuðleysis.

Þessa hluti er erfitt að muna þegar maður stendur í skrifstofu yfirmannsins, hvað þá heldur afgreiðandi á kassa í Hagkaup. Stóru fjölmiðlarnir ýta allir undir tilfinningasemi gagnvart ,,afrekum” okkar: geimskutlan hefur sig á loft, sjúkdómur er læknaður, hetjan fær stúlkuna í lok myndarinnar.

En við getum skapað okkar eigin tónlist, goðafræði, vísindi, tækni, hefðir, sálfræði, bókmenntir, sögu, siði og pólitísk völd. Þangað til við gerum það, sitjum við föst. Föst í þeim veruleika að kaupa fjöldaframleiddar kvikmyndir og geisladiska framleitt af málaliðum samsteypanna.

Föst sitjandi andlitslaus og hreyfingarlaus á stórtónleikum og íþróttaviðburðum. Föst glímandi við uppfinningar, fræði og kenningar annarra manna, sem við skiljum enn síður en forfeður okkar skildu seið kraft. Föst í því að taka skömmustulega á móti sleggjudómum presta, ógnar-skrifara fjölmiðlanna og spjallþátta ljósvakanna. Föst í því að lítillækka sjálf okkur fyrir að lifa ekki upp í eftirvæntingar skólakerfisins og glysblaðanna. Föst hlustandi á foreldra, ráðgjafa, sálfræðinga og yfirmenn segja okkur að það séum við sem eigum við vandamál að stríða. Föst við að kaupa allt líf okkar frá sömu sérfræðingum og samsteypum og við seldum það til – og gnístandi tönnum í
kæfðri bræði þegar þeir höggva niður seinustu trén og seinustu hetjurnar með auði og valdi sem við gáfum þeim.

Þetta eru ekki yfirvovandi, óumflýjanlegar hörmungar – þetta er afleiðing þess hlutleysis og mótstöðuleysis sem við höfum leyft okkur að sökkva niður í.

Þegar við stöndum í afgreiðsluröð stórverslunarinnar, sitjum á öðrum enda kynlífslínu-símtals, stöndum í búningsklefanum fyrir leikfimitímann og á vaktinni í mötuneytinu dreymir okkur öll um að vera gerandinn og aðalhlutverkið í okkar eigin stórmynd, herrar okkar eigin örlaga.

Ef við ætlum að breyta sjálfum okkur, þurfum við að breyta heiminum – en til að hefja endurbyggingu heimsins, þurfum við fyrst að
endurbyggja okkur sjálf. Í dag erum við öll hernumin svæði. Langanir okkar, viðmót og hlutverk hafa verið mótuð af þessum heimi sem snýr okkur gegn sjálfum okkur og hvert öðru. Hvernig getum við endurheimt og deilt örlögum lífa okkar án þess að óttast eða hopa, þegar við höfum eytt öllum þessum lífum í að láta skilyrða okkur til hins gagnstæða?

einn að leik

21 Litlir Negrastrákar:
  1. Töffari segir, þann :

    Vanhæf fokking ríkisstjórn SANNAÐ! Hækkun skatta á eldsneyti og áfengi, Jú það ætti svo sannarlega að geta bjargað okkur út úr kreppuni, hvaða afrek ætli ríkisstjórnin vinni næst? Ætli stórsigur sé í nánd og við fáum að greiða Icesave upp á 2% lægri vöxtum heldur en við höfðum áætlað og fáum að dreifa greiðslunum á næstu fimmtíu árin? Það er bara aldrei að vita miðað við hversu framsækin og öflug þessi nýja ríkisstjórn okkar er nú eða ég meina hey Hækkun skatta á eldsneyti og áfengi ætli hún leiði það ekki bara af sér að við getum sent Bretum greiðsluna fyrir Icesave í jólagjöf einhverntíman í desember?

    Nóg komið, ríkisstjórnin hefur afsannað sig, tími til kominn að koma henni frá.

  2. Kjaftfor segir, þann :

    Tala nú ekki um það að sígóið er komið upp í 1000 kall…

    Spurning hvort maður fremji ekki hústöku á gróðurhúsi og rækti tóbak fyrir blökkulugnaða rótæklinga sem langar í smók?

  3. Kjaftfor segir, þann :

    Líka gaman að minnast á það að orðið yfir ókeypis á ensku er “free.”

    Vangefið að í heimi þar sem að við höfum nóg af auðlindum til að gera alla 6 milljarðana hér að offitu sjúklingum og nóg af grænni orku til að endast okkur til dómsdags að það sé ekki komið á almennilegu kerfi sem að ræðst ekki af duttlungum jakkafataklæddra karlmanna.

    Og með almennilegu kerfi meina ég auðvitað anarkísku consensus kerfi fyrir alla, allstaðar.

  4. Syndri segir, þann :

    Undir köllunum „Vanhæf ríkisstjórn“ sem ómuðu um götur stræti og torg í vetur mátti heyra, ef vel var hlustað, nokkra einstaklinga sem kyrjuðu „Enga ríkisstjórn!“
    Vonandi að „þjóðin“ hlusti meira á þann hluta mótmælenda næst.

    Þess má geta að yfirleitt eru það fátækari stéttirnar sem að reykja mest og drekka mest, þó þær keyri kannski ekki mest. Þessar skattahækkanir bitna því á þeim sem þessir svokölluðu „vinstri“ flokkar töluðu um að bjarga. Skattlagning er þjófnaður.

  5. Tralli segir, þann :

    söfnumst saman og leggjum kerfið í rúst..

  6. biggi segir, þann :

    Tralli þú gerir þér grein fyrir því að einna leiðinn til að leggja kerfið í rúst er með því að allir Anarkistar eða bara fólk almennt sem vill frelsi verður í ALVÖRU að leggja það í rust ekki bara að segja það .

  7. Tralli segir, þann :

    ég átta mig svo sannarlega á því Biggi minn og hef gert mitt besta hingað til en við þurfum öll að fjölmenna og byrja sem fyrst

  8. biggi segir, þann :

    Er sammála þér Tralli að við þurfum að fá meira fólk til að mæta ,ég mætti samt alltaf ( Hvet alla til að kynna fyrir vinnum og fjölskyldu hugmyndir Anarkismans og Anti-Capitalismans)

  9. Kjaftfor segir, þann :

    Hvaða, hvaða…
    Tralli bara farinn að boða boðskap byltingarinnar?

  10. Töffari segir, þann :

    Þetta varðandi það að kalla “enga ríkisstjórn”, mér þykir það miður en það er ekki að fara að eiga sér stað anarkísk bylting hér á landinu á næstunni, það eina sem við Íslendingar getum í sjálfu sér gert er að fara Argentínsku leiðina og koma þessari og næstu og vonandi þar næstu ríkisstjórn frá þangað til við finnum eitthvað af fólki með örlítið hugrekki til að framkvæma góða hluti í okkar þágu. Þegar það góða fólk hefur fundist og hjól landsins fara að snúast í jákvæða átt á nýjan leik þá mun okkur gefast mun betra tækifæri til þess að vinna að því að koma á nýju og betra kerfi enda mun hið gamla hafa all verulega afsannað sig og fólk verður ekki of mikið á leiðinni erlendis eða of svangt til þess að taka þátt í uppbyggingu þess.

    Ég sjálfur skammast mín hálfpartinn satt best að segja, mín þátttaka í mótmælum hefur verið fólgin í einni 10 mínútna heimsókn á austurvöll, tveim heimsóknum á vatnsstíginn(tókst reyndar að setja dropa í hafið í annari þeirra) og tveimur stuttum heimsóknum fyrir utan hverfisgötuna. En já mín þátttaka hefur tæpast verið ýkja merkileg og ég verð að bæta mig í þessu langi mér til þess að geta haldið höfðinu hátt.

  11. Tralli segir, þann :

    Tralli hefur alltaf verið byltingarsinnaður,bara stóðst ekki mátið að stríða ykkur labbakútunum örlítið,Tralli er á svörtum lista lögreglunnar og þykir mikil ógn við ríkjandi skipulag og stoltur af;)

  12. Enonymouss segir, þann :

    Frábær grein!

  13. siggi Pönk segir, þann :

    Einn vinnufélaga minna var í dag að bölva “helvítis pakkinu sem mótmælti” og felldi ríkisstjórnina þar sem vegna mótmælendanna er komin ný ríksstjórn sem hækkaði áfengi og tóbak og það skilar sér í frekari hækkunum sem bitnar á hennar fjölskyldulífi.

    Hann er svo smár heimurinn hjá mörgum okkar.

  14. inni segir, þann :

    http://www.dagdraumar.is/archives/ert-%C3%BEu-n%C3%A6gilega-vel-upplystur/

  15. Jón Karl segir, þann :

    Töffari, Tralli og Biggi. Hvað áorkast af því að koma ríkisstjórninni frá og leggja allt í rúst? Það er sóun á tíma og orku sem ætti að nota til að byggja eitthvað nýtt upp. Auðvitað breytir ríkisstjórnin engu; bjóst einhver við því að allt færi í himnalag við stjórnarskipti? Eða munu enn ein stjórnarskiptin breyta einhverju? Ísland er í djúpum skít og verður það lengi nema okkur takist að binda endi á núverandi kerfi og koma nýrri skipan á. Það krefst mjög mikillar vinnu og aga og það mun taka langan tíma.

  16. Snæbjörn segir, þann :

    Ég sé ekki muninn á þessari ríkisstjórn og þeirri seinustu því miður.

    Það er hressandi að hafa fólk sem er ekki jafn gegnsýrt af valdbeitingu og fyrri ríkisstjórnin, og vissulega segja þau stundum ágætis hluti.

    En aðgerðir þeirra gera mjög lítið. Og IMF samstarfið heldur áfram og mun halda áfram.

    Ég spái því að hægri stjórn komi aftur, en að hún verði felld og vinstri stjórn taki aftur við.

    En þessi vinstri hægri debat er orðinn ansi þreyttur. Í raun er það bara ekki nógu róttækt að skipta um forsætisráðherra.

  17. Tralli segir, þann :

    Þegar bændur grisja garðinn, þarf oft að kveikja í sinu til að nýtt geti vaxið….elds er þörf, það er enginn vinátta og bróðurkærleikur í kerfinu, það er fúið,rotið líkt og krabbamein sem er komið of langt til að hægt sé að bjarga því,þessvegna verðum við að brenna sinu og skera burt krabbameinið….

  18. Tryggvi Baldursson segir, þann :

    “Hann er svo smár heimurinn hjá mörgum okkar”… svo mörg voru þau orð.

    Þessi grein er alveg hreint ótrúleg! Hún er einstaklega afhjúpandi. Af hverju er greinahöfundur í hlutverki fórnarlambs? Af hverju stendur hann inni á skrifstofu yfirmanns? Hann stendur ekki undir “kröfum skólakerfisins”. Það eru ekki bara yfirmenn sem eru að hrella hann: “hlustandi á foreldra, ráðgjafa, sálfræðinga og yfirmenn segja okkur að það séum við sem eigum við vandamál að stríða.” Þetta er dálaglegur hópur! Gaman að sjá þessu grúppað saman, foreldrum og yfirmönnum! Fólkið sem gníst er tönnum yfir í bældri bræði! Þessi grein ber öll merki þess að viðkomandi er algjörlega fastur í sjálfskapaðri spennitreyju; algjörlega ófrjáls og heftur.

    Held að menn ættu að byrja á byltingu í eigin höfði, áður en lengra er haldið.

  19. innipúki segir, þann :

    Tryggvi: Það er bylgjan sem er auglýst björt og brosandi, ekki aftaka. Þú gætir haft það í huga næst ef þessi heimsýn misbýður þér svona rosalega mikið.
    Það er ekki fórnarlambs-hugarfar sem felst í því að viðurkenna að við séum öll/flest að mismiklu leiti hluti af menningu og kerfi sem er ekki aðeins kúgandi í þeoríu heldur líka í daglegum veruleika. Í raun er mjög mikið frelsi í því að gera sér grein fyrir því að neikvæða félagslega taumhaldið sem við verðum fyrir sé fyrst og fremst valdtæki og sem tæki valdstéttarinnar oft óréttmætt. Það er hálf þjóðin á geðlyfjum – skólakerfið elur á samkeppni, klíkuskap, undirgefni og öðrum viðbjóð – hagkerfið er byggt á arðráni og kúgun. En á meðan fólk sér sjálft sig sem gallað, óhæft og trúir að það sé ekki nógu gott leiðir það fram hjá sér þær aðstæður sem ala af sér vandamál sem ríkjandi menning setur alltaf fram sem persónulegs eðlis. Enda er kapítalísk neislumenning ótrúlega góð í því að selja fólki lausnir sem á endanum viðhalda aðeins rót vandanns.
    Ég vil ekki setja algjört samansem merki á milli foreldra og yfirmanna, sálfræðinga og ráðgjafa. Ég er ekki litblindur og heimurinn er ekki svart-hvítur. Rauninn er samt sú að næstum allir sem taka fyrnefnd hlutverk að sér verða virkir þáttakendur í viðhaldi kúgunar. Bæði á skoðunum og hegðun, í gegnum normaliseringu (geðlækningar eru sér kapítuli út af fyrir sig), með mis augljósum og beinum refsingum. Þetta er ekki sér anarkísk greining, þetta er viðfang ótal rannsókna og akademískra greinaskrifa innan víðs sviðs fræðigreina.
    Þegar ég les þessa grein sé ég ekki að greinarhöfundur sé “algjörlega ófrjáls og heftur” eða “gníst[i]… tönnum yfir í bældri bræði” þvert á móti. Af kommentum þínum á þessari síðu (sem ég les öruglega jafn oft og þú) þá held ég að þú ættir að taka eigin ráð áður en þú vísar þeim til annara og byrja á byltingu í eigin höfði. Að minnsta kosti væri ágætt að heyra einhvern rök en ekki eintómar ásakanir.

  20. Tryggvi Baldursson segir, þann :

    @ innipúki
    Ég þakka veitta uppfræðslu um rannsóknarsvið hugvísinda. Skal reyna að hafa það í huga við svarið.

    Get ekki séð að gallinn við kommentið mitt liggi í rökleysi. Greinin er ekki undirbyggð miklum rökum og til að draga fram andann má til dæmis birta eina setningu:
    “Föst sitjandi andlitslaus og hreyfingarlaus á stórtónleikum og íþróttaviðburðum.”
    Þetta er grein sem dregur upp á allt að því skáldlegan hátt mynd af stöðu manneskjunnar gagnvart samfélaginu og í henni birtist samfélagið sem eitthvert utanaðkomandi og kúgandi afl. Svarið mitt var engin sérstök greining eða afbygging; einfaldlega var um viðbragð að ræða, sem birti mína (öndverðu) tilfinningu fyrir málinu.

    Ég held að hér sé varla um efni í mjög fræðilega rökræðu að ræða. Þetta er túlkunaratriði, hvernig maður sér stöðu eins manns gagnvart því flókna neti sem samfélagið er. Það eru tekin mjög mörg dæmi af ýmsum samfélagslegum athöfnum í greininni og vísað í mjög mörg hlutverk og þeim skipað í valdaafstöður. Þú gerir það sama í þínu svari og tiltekur sérstaklega eitt fræðasvið; geðlæknisfræðina.

    Jafnvel þó að það sem um ræðir sé umfjöllun fjölda: “akademískra greinaskrifa innan víðs sviðs fræðigreina,” má ekki gleyma því að þau hugvísindi sem þú vísar til eru líka bullandi pólitísk.

    Greinin birtir ákveðna afstöðu til parsins “maður-samfélag” og svarið mitt birtir einnig ákveðna afstöðu til téðrar afstöðu. Mín afstaða liggur í því, að finnast þetta svoldið gamaldags alltsaman. Mér finnst heimsmyndin sem birtist í greininni gera allt of mikið ráð fyrir því að atburðarrásin sé hönnuð og einstaklingurinn viljalaust peð í þeirri hönnun. Ég bara neita því alfarið að ég sé viljalaust peð þegar ég sit í bíó og horfi þar á Hollywoodfroðu mér til skemmtunar. Ég er jafn frjáls af því að velja þá iðju og ég er að því að verja drjúgum tíma í að lesa hér greinar og taka þátt í umræðum hér.

  21. Fröken Geirs segir, þann :

    Ég er ánægð að sjá hvað Aftaka er alltaf dugleg að benda reglulega um foreldra-fasismann!! Vonandi mun ég einhvertíma ná að koma hugmyndum mínum héðan og þaðan um foreldra fasismann og anarkískt uppeldi niður á blað.
    Ef einhver hefur áhuga á að kynna sér anarkískt uppeldi er þessi :http://www.infoshop.org/faq/secJ6.html grein amk. staður til að byrja á.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in