English 
Málefni:

valdelskandi múnkurinn

Er raunverulegur munur á leiðtogum, hvort sem þeir titla sig andlega eða stjórnmálalega leiðtoga heillrar ,,þjóðar“? Margt fólk í Bandaríkjunum leit ekki á Bush sem sinn leiðtoga frekar enn nokkurn annan og sömu sögu er að segja um marga sem búa í Tíbet; Dalai Lama talar ekki þeirra máli og þau líta ekki á hann sem sinn leiðtoga. Dalai Lama var valin af yfirstétt munka til að halda í hefðina um kynsveltan, karlkyns sjáanda sem stjórnast með andlegt líf Tíbeta.

í leita að illum anda eða bara lús

guðssonur

himneskur

valdelskandi múnkurinn

með terminator

Kristin trú og kristnu kirkjurnar hafa kostað margar miljónir manna lífið. Enn þann dag í dag eru kirkjan og trúin uppfull af pungsvita, kynþáttahyggju, íhaldi og mannhatri. Kristin trú er notuð af boðurum hennar til að afsaka árásir á heilu samfélögin jafnt sem einstaka einstaklinga. Hún er notuð til að blessa ofbeldisverk, kúgun og kynferðisofbeldi gagnvart fólki og börnum.

valdelskandi múnkurinn

Er friður jafn banal hugtak í huga Dalai Lama og hjá Yoko Ono sem telur að ef fólk bara ímyndi sér frið þá verði friður? Er nóg að boða til friðar en hvorki berjast fyrir honum né fordæma og neita að starfa með valdníðingum? Dalai Lama hittir (að því er virðist) alla stjórnmálamenn sem þekktir eru fyrir að standa á bak við og styðja viðbjóðsleg fjöldamorð, kynþáttahyggju, aðskilnaðarstefnu, hatur á annari kynhneigð en gagnkynhneigð, karlrembu, pyntingar og annað í þeim anda.

Án þess að gera lítið úr hans hugmyndum sem flestar miða að því að koma á friði í heiminum þá er þó vert að spyrja: Næst friður með því að vinna svona á yfirborðinu? Með því að faðma Bush og kyssa páfann? Leika litla sæta friðarmunkinn sem þessar sömu fígúrur geta hreykt sér af að hafa hitt og t.d. sagt: ,,Auðvitað viljum við frið! Við höfum meira að segja knúsað litla krúttið hann Dalai, en málið er bara svo miklu flóknara en það,,,,,,það þarf að stöðva hryðjuverkamenn og það verður ekki gert með písmerkjum!“

Og það er alveg satt. Við sem berjumst gegn Bush og þeirri stefnu sem hann og hans líkir fylgja munum ekki hætta því þó einhver krúttkall tali fallega um frið og viðurkennd seleb kveiki á risa-vasaljósi út í Viðey. Óvinir okkar munu heldur ekki hætta sínu stríði gegn okkur né hætta kúguninni á öðrum manneskjum þó svo einhver leggi það til með svona sakleyislegum og kurteisum hugmyndum.

Það er ekki hægt að sigra kerfið með friðsemd.

Á meðan stjórn- og auðvöld stjórnast með fólk, kúga það, flokka og drepa, þá mun fólk berjast gegn því!

Hér ríkir enginn friður – hér ríkir stríð.

25 Litlir Negrastrákar:
  1. Soffía segir, þann :

    Nauðynslegast er að hætta að viðurkenna fyrirbærið ‘þjóð’. Það er fyrsta skrefið í baráttunni gegn þeim sem ganga svo langt í hrokanum að kalla sig leiðtoga heillar þjóðar.

  2. Pétur K segir, þann :

    Hver ætli sé “andlegur leiðtogi” íslendinga?

  3. Nafn (krafa) segir, þann :

    Dalai Lama tilheyrir líka fyrrum ríku yfirstéttinni í Tíbet sem lifði í velllystingum á meðan að restin af þjóðinni svallt. Ég styð frelsi í Tíbet en er ekkert sérstaklega hrifin af Dalai Lama.

  4. Töffari segir, þann :

    Ég tek hér með það hlutverk að mér að vera andlegur leiðtogi Íslendinga.

  5. BaraSteini segir, þann :

    Við náðum næstum að Bitch slappa hann en lifvarðadruslurnar toku okkur i grgn hehehehe.

    en annars er þetta lag hermars framtiðar okkar….
    http://www.youtube.com/watch?v=8SIwUOII7hg&feature=PlayList&p=9556EAF2D094A5A7&index=5

  6. Finnur Guðmundarson Olguson segir, þann :

    Viljið þið ekki sýna fram á hvernig er hægt að sigra kerfið með stríði? Hvað þýðir stríð í ykkar huga? Hvað þýðir friður? Er barátta svo banal hugtak fyrir greinarhöfundi að hún hljóti nauðsynlega að fara fram með vopnum? Eða hafði höfundur hugsað sér eitthvað annað? Og af hverju farið þið ekki að haga ykkur eins í borði og í orði og drepið einhvern eða sprengið eitthvað?

    Kannski ættuð þið að íhuga hvort það séu einhverjar dýpri ástæður að baki knúsáráttu Dalai Lama. Ef þið hefðuð nú bara tekið tíma til að lesa eitt eða tvö viðtöl við hann hefðuð þið komist að því að „valdelskandi munkurinn“ ykkar er á móti stjórnvaldi.

  7. Aftaka segir, þann :

    Finnur,
    hér er enginn að segja að segja að kerfið verði unnið með stríði, heldur með byltingu – herskárri byltingu.

    Síðasta lína greinarinnar (,,Hér ríkir enginn friður – hér ríkir stríð.”) er ekki hvatning til stríðs eða fullyrðing um að nokkur hópur byltingarsinna hafi líst yfir vopnuðu stríði gegn kerfinu, heldur afbygging á þeirri hugmynd sem hin ráðandi öfl reyna sífellt að prenta inn í hausana á fólki; að það ríki friður.

    Byltingarsinnar hafa ekki líst yfir stríði. Þvert á móti hafa stjórnvöld út um allan heim líst yfir stríði á hendur svokölluðum þegnum sínum. Stórfyrirtæki hafa líst yfir stríði gegn lífi. Árásarstríð eiga sér stað gegn náttúrulega umhverfinu, gegn fólkinu í þessum heimi, gegn öllu lífi. Og það stríð verður ekki leyst með því að knúsa stjórnmálamenn heldur með því að fólk standi upp og berjist fyrir sínum lífum og annara.

    Valdelskandi munkurinn, sem þú segir að sé andvígur stjórnvöldum, er ætíð sagður vera andlegur leiðtogi Tíbeta og gengst við þeim titli. Titilinn hefur hann vegna stigveldisins í Tíbet, hann er valinn af fámennum hópi munka til að gegna þessu hlutverki, burtséð frá vilja fólksins.

    Lestur bóka og viðtala við Dalai Lama hefur ekki sýnt fram á að hann sé andvígur stjórnvöldum. Hann er valdhafi og sem slíkur er hann varla andvígur valdi. Hins vegar má alveg finna ágæta punkta í skrifum hans og tali, og það hefðu eflaust margir gott af því að ,,vinna svolítið í sjálfum sér”.

    En það næst ekki friður með ímyndun. Það þarf uppreisn.

    Að lokum…
    Hvenær hefur Aftaka lýst því yfir að hún sé fylgjandi morðum? Þvert á móti er Aftaka mjög andvíg morðum og mælir með því að morðingjar á borð við þá sem Dalai Lama knúsar, séu meðhöndlaðir með það að markmiði að þeir geti aldrei aftur drepið. Til þess eru ýmsar aðferðir í boði.

    Og þetta með sprengjurnar… ekki halda að við séum svo heimsk að við færum að lýsa yfir ábyrgð á sprenginum á þessari síðu. Við höfum nóg annað að gera en að láta handtaka okkur. Sprengingar fara því fram án nokkura yfirlýsinga.

  8. Kjaftfor segir, þann :

    Munið krakkar, það er ekki hvort að þú sprengir eitthvað eða ekki, heldur hvað, hvenær og síðast en ekki síst, í hvaða tilgangi þú ert að sprengja!

    Já btw, umfjöllunin í grapevine var steingeld.

    Samt skemmtilegt að lesa dálkinn hjá sjálfumglaðagaurnum sem var að líkja aftöku við nasista út af einhverju sem að ég vill halda fram að sé hastaraleg lesblinda hjá aumingja manninum.

  9. Biggi segir, þann :

    verðum að mótmæla!!!

  10. Forni Loftski segir, þann :

    Það er einn af mörgum blettum á ferli DalaLama að hann hefur sleikt upp Bush. Hann er til í að hitta hvaða stjórnbullu sem er fyrir málstaðinn, eða hvað? Það er auðvitað friðþæging fyrir stjórnmálaskríllinn að fá ,,fotofæri” með Lama. Fyrir utan það er hann öfgafull friðarbull sem vill að Tíbet verði áfram innan Kína sem sjálfstjórnarhérað. Að hans eigin sögn eru ekki allir yngri Tíbetar ánægðir með sáttfýsi hans og sleikjuskap. Boðskapurinn hljómar eins og út úr útjöskuðum ,,New Age”, söluvænlegum og satanískum sjálfshjálparskruddum. Útþynntur, praktískur og pragmatískur búddismi fyrir firrta vesturlandabúa.

  11. Tryggvi Baldursson segir, þann :

    @Kjaftfor

    Algjörlega ósammála þér um pistilinn í Grapevine. Tel að þú hafir með því að kalla höfundinn “lesblindann” styrkt allverulega málflutning hans. Gildismatið sem birtist á þessari síðu er afar merkilegt og ber með sér ótrúlegan sjálfbirgingshátt.

  12. Tryggvi Baldursson segir, þann :

    Úr “manifesto” þessarar síður: “Við skrifum og sköpum eftir eigin gildum, reglum, siðferði og samvisku” og í því samhengi er talað um að troða á ýmsum hefðum og reglum. Hvernig getið þið gagnrýnt borgarlegt samfélag fyrir að troða á ykkur á móti? Ef eigin siðferði gildir, hver getur þá sagt hvað er “rétt” siðferði?* Ræður þá ekki bara hinn sterki?

    * Nema menn blandi guði í málið, en það náttúrulega frestar bara vandanum þar sem það sama gildir um guði; hver er sá rétti?

  13. Biggi segir, þann :

    Mótmæli á morgunn KL 15:00 á Austurvelli!!!

  14. uggi segir, þann :

    Tryggvi: Gildunum sem manifestóið og síðan stendur fyrir sýnist mér fyrst of fremst vera gagnrýni á kapítalisma, valdníðslu, siðmenninguna og okkar fársjúka samfélag. Þvert á málflutning þinn er það rauninn í heiminum í dag að hinu sterku ráði, þeas þeir sem hafa völdin stjórna ekki satt? Baráttan og málfluttningurinn snýr gegn því fáránlega gildismati og lygum sem viðhalda ríkjandi ástandi og boða í staðinn samstöðu og samfélag byggt á heilbrigðari gildum.
    Annars skil ég ekki hvert þú ert að fara með efa þinn um sannleikann. Ertu semsé á því að fólk eigi ekki að fara eftir eigin siðgæði heldur annara? Hverra hugmynda um sannleikann þá, kirkjunar, ríkisins, fyrirtækja eða sjónvarpsstöðva? Hvern andskotann meinar þú? Er það þá traustið á eigin hugmyndir greinahöfunda og gildi sem þú kallar sjálfsbirginslegar? Endilega útskýrðu betur.

  15. Tryggvi Baldursson segir, þann :

    @ uggi
    Hmm… ekki viss um að ég skilji þig alveg rétt, en vissulega virðist sá sterki ráða og ég er ekki viss um að það sé heppilegt. Ég var hins vegar að leggja út af orðum manifestosins, en samkvæmt orðanna hljóðann lýsir manifestoið því yfir að þeir sem að síðunni standi ætli, án tillitssemi og umburðarlyndis (sic!), að standa fyrir “eigin” siðferði. Gott og vel, ég bara skil ekki að menn hafi með slíku viðmóti góð rök gegn því að hinir “sterku” gerið slíkt hið sama.

    Annars er þetta í samhengi umræðu um pistil í Grapevine.

    Sjálfbirgingshátturinn birtist í þessu manifestoi og í hvert sinn sem reynt er að stofna til rökræðu á þessari síðu. Hér er aftur og aftur spúið eldi og brennisteini yfir ýmsu í samfélaginu. Allt er þetta alveg svakalega móralskt allt saman og hljómar næstum eins og skrif hjá trúarhópi og svörin við athugasemdum eru í sama stíl. Þetta er í beinni mótsögn við yfirlýsinguna um réttmæti þess að halda í “eigið” siðferði, án fyrirvara eða tilslakana. Hinir “seku” eru foreldrar, alþingismenn, sálfræðingar, lögreglan [bætið hvaða tákngervingi valds við sem ykkur dettur í hug] o.s.frv. Hins vegar er allt sem flokkast sem “andstaða” við téð öfl lofað. Þetta er afskaplega þægileg heimsmynd, en mikið djöfullega er hún svart/hvít!

  16. Biggi segir, þann :

    Kæru Anarkistar ég vill hvetja ykkur öll til að fjölmenna á Austurvelli á morgunn KL 14:50.

    Okkar tími er kominn!!!

    VIVA LA RESITÉNCE!!

  17. Forni Loftski segir, þann :

    Munið efir því að taka skildina, hjálmana, gasgrímurnar og grænmetið með ykkur!

  18. uggi segir, þann :

    Það er ágætt að setja umræðuna í samhengi, svo hér copy paste-a ég manifestóinu.

    Við höfnum hugmyndinni um hlutleysi! Það er ekki okkar að verja eða standa vörð um skoðanir annarra. Við segjum það sem við viljum, tillitslaust og án umburðarlyndis. Við látum ekkert í friði því það ríkir enginn friður. Við höfnum og stígum á öll grunngildi sem ættleidd eru úr dönsku þingræði, amerískri frjálshyggju og tvöþúsund ára krossfestingu. Við skrifum og sköpum eftir eigin gildum, reglum, siðferði og samvisku. Við afhjúpum samfélagið og bendum á að það er ekki klætt í keisarans föt heldur stendur blygðunarlaust á tittlingi lyga og óréttlætis.

  19. uggi segir, þann :

    Konkrít rökin sem ég hef á móti því að hinir sterku kúgi annað fólk eftir hentisemi kallast samstaða. Þegar við verðum vör við óréttlæti þurfum við að ganga í málið. Ekki dómarinn, ekki löggan eða presturinn, heldur þú og ég – við.
    Auk þess er ekkert sem tryggir það að sá sterki sé ekki til í að ræða málið. Og ef umræddur styrkur felst í einhverju ólíkamlegu, eins og fjármagni og völdum, þá eru þetta jú sú misskipting sem baráttunni er einnig beint gegn.
    Siðferðislegu rökin myndu fremur lúta að því að þrátt fyrir að siðferði sé hvorki algjört og absalút og dogmatík beri að forðast sé til eitthvað rétt og eitthvað rangt. Það þarf ekki móralisma til þess að samþykkja það.
    Það þarf líka að lesa þessa síðu en ekki hoppa á niðurstöður. Mér sýnast margar ólíkar raddir koma hingað til að skilja eftir skilaboð í kommenta kerfinu (sem og greinarskrifum) sem aðrir taka svo eins og um svar þeirra sem standa að síðunni standa sé að ræða, án nokkurra vísbendinga um að svo sé (fyrir utan að hafa unnið það helst til saka að vera sammála einhverju á henni).

    En þú svaraðir ekki spurningu minni til þín í síðasta kommenti um viðhorf þitt til sannleikanns. Ef þér finnst að fólk þurfi að réttlæta það fyrir þér að það að þora að skapa og skrifa án þess að spyrja kóng né prest, er þá ekki lágmarkið að þú útskýrir afstöðu þína til sannleika og siðferðis.

  20. rod segir, þann :

    Flott grein. Ógeðslega pirrandi hvernig fólk sem fjölmiðlar hafa hæpað upp séu settir upp á einhvern stall eins og guðlegar verur. Dali Lama, móður Teresa og Gandi. Skíthælar öll með tölu. Googlið og þér munið finna.

  21. innipúki segir, þann :

    Tryggvi: þér finnst síðan minna á trúarofstækismenn og tilraunir til rökræðna skotnar í kaf. En er ekki augljóst að þessar umræður og aðrar á síðunni sanni að hér geti vel farið fram rökræður. Og hvað er annars að því að fólki sé heitt í hamsi, þér er eins frjálst að lesa skrif þeirra sem eru reiðra og þeirra sem eru það ekki.
    Þú lest þessa síðu eitthvað öðruvísi en ég (og það er ekkert að því), því ég sé ekki þessa trúarofstækis leit af þeim seku og þennan rosa móral. Jú síðan er að gagnrýna andskotanns allt í samfélaginu. En á gagnrýnin ekki rétt á sér? Er anti-yfirvalds hugmyndafræðinn eitthvað að bögga þig?
    Ég ætla líka að leifa mér að giska á að Kjaftfor hafi átt við að lesblinda pistlahöfundar greipvæns felst langsóttri túlkun hans á greinum og kommentum síðunar en ekki tilgátu um sértæka þroskarökun. Þannig að, ertu ekki bara að trölla?

  22. gunni segir, þann :

    Ef við getum ekki einu sinni sæst á að Dalai Lama sé góður gaur!… Hvað getum við þá sæst á?

  23. nágríma segir, þann :

    Furðulegt rugl hjá Lama (ef rétt reynist) að viðurkenna ekki valdhafa en samtíma sækjast svona mikið eftir kodak-momentum með þeim. Ég viðurkenni ekkert yfirvald, og neita þar af leiðandi að kalla ráðhórur hæstvirtar, neita að taka í hönd og virða forseta og ráðhórur ef ég þarf að hitta þá einhverra hluta vegna (sem olli mega-uppnámi þegar ég á skátamóti neitaði að heilsa Vigdísi “kjarklausu” Finnboga með virtum) og ekkert í heiminum gæti fengið mig til að sitja fyrir á mynd með slíkum ófétum nema einmitt ef svo færi að einhver nái mynd þegar ég svipti þá valdinu.

  24. nágríma segir, þann :

    Ráðhórur lands og óþjóðar hafa selt okkur í þrældóm, bundið komandi kynslóðir í skuldafangelsi sem handfylli af svívirðilegustu glæpamönnum íslandssögunnar stofnuðu til…löggan spreyjar efnavopnum, sveiflar kylfum og frelsisviptir fólk eftir eigin duttlungum og hentisemi…þetta er stríð.
    Kannski ekki stríð í formi sprengjuregns frá lofthernum og stórskotaliðs með tugþúsund manna her marserandi með dauða og eyðileggingu í för með sér, en stríð samt sem áður. Stríð sem auðvaldið blés til.
    Að spyrna ekki á móti er að gangast við þrældómnum. Auðvitað verður að berjast á móti, og sprengja á móti, en ekki allar sprengjur segja bang.
    Ljóð geta verið sprengjur.
    Myndlist geta verið sprengjur.
    Vel skrifuð og markviss grein getur verið sprengja.
    Ég er gangandi handsprengja og mun aldrei hætta að springa fyrr en algjör regla og yfirvaldsleysi ríkir í því samfélagi og þeim heimi sem ég bý í.
    Tökum pinnan úr rassgatinu á okkur og springum daglega þar til við sprengjum fjötra yfirvaldsins utan af okkur. Það þarf ekki morð til, bara viljan til að lifa frjálsu lífi og óskina um að aðrir geti notið þess sama.

  25. Tryggvi Baldursson segir, þann :

    Sælir innipúki og uggi, þakka góð svör.

    Verð að játa það, að auðvitað eru þessar samræður hér rökræða. Þannig að það er yfirskot, en kannski í anda margs sem hér er skrifað? Ég verð að viðurkenna að ég er aðeins farinn að tapa áttum samt í þessari umræðu. Ég veit ekki hvað er að “trölla” og ég er ekki viss um að ég nái þessu með sannleikshugtakið. Ég var að ýja að því að það mætti lesa ansi mikla afstæðishyggju út úr manifestoinu. Kannski er það algjör mislestur, en þar er samt kveðið skýrt á um staðið skuli fyrir skoðunum án allra tilslakana og það er eitthvað svoleiðis sem mér finnst einkenna skrif hér. Ég veit að það er ekki ein rödd sem hér hljómar, en einhver hópur á eitthvað sameiginlegt sem hér birtir greinar. Alla vega, þessi einarða afstaða nálgast, að mínu mati, það að einskorða alla túlkun við eitt sjónarhorn og þar með finnst mér það nokkuð útilokandi fyrir alvöru rökræðum. Því hér er bara ein sýn leyfð.

    Sú sýn er líklega anarkisminn. Alla vega í þeim skilningi að það er um mikið óþol gagnvart yfirvaldinu að ræða. Þannig að já, anti-yfirvaldshugmyndafræðin er eitthvað að bögga mig.

    Nú er það svo, að ég held að mjög margir séu hallir undir slíka stefnu í orði kveðnu. Það er hins vegar þegar hún birtist í praktískum dæmum hér á síðunni sem það fara að renna á mann tvær grímur.

    Held bara að mér finnist stefnan einstaklega útópísk og ópraktísk. Það ríkir mikil reiði til að mynda hér út í lögregluna, sem mér finnst oft skiljanlegt, en það sem kannski er að bögglast í mér er að þrátt fyrir að maður sé oft grautfúll út í framkvæmd löggæslu, er ekki hægt að hafna hugmyndinni. Hér kannski hnussa margir, en ég fæ bara ekki skilið hvernig menn ætla að komast hjá því í samfélögum sem telja fleiri en 10 manns, að hafa einhvern valdastrúktúr sem gerir ráð fyrir þvingunarvaldi. Og ef menn samþykkja það, get ég ekki séð nema hugmyndafræði anarkismans hafi fallið um sjálfa sig.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in