English 
Málefni: ,

…

Í Bauga Chica héraðinu í Perú hefur vopnaður armur ríkissins eytt síðustu dögum við það að fremja þjóðarmorð; löglegt þjóðarmorð. Eftir skipunum Alans Garcia, forseta Perú, hafa nú upp undir 100 hundruðir innfæddir frumbyggjar norður Amasonsvæðisins verið myrtir af lögreglunni. Á þyrlum flýgur valdið yfir fólki og sínir því afl sitt. Með vélbyssur að vopni kennir lögreglan fólkinu hvað réttlæti þýðir.

Frá því í Apríl hefur fólkið mótmælt stefnu stjórnvalda hvað náttúruauðlindir svæðisins varðar. Með lagasetningum hefur erlendum námu- og olíufyrirtækjum verið gerður greiður aðgangur að landsvæðinu. Auðvitað; peningur vegur þyngra en líf. Eins og alltaf.

Og að sjálfsögðu veitir fólkið harða mótspyrnu.

Fjölmiðlar – íslenskir jafnt sem erlendir – keppast við að ýta undir málstað lögreglunnar með því að kalla þjóðarmorðið ,,átök“ milli lögreglu og frumbyggja; með því að segja það óvíst hver byrjaði og þar fram eftir götunum. Eins og það skipti megin máli. Átökin eru til staðar. Og þau eru til staðar vegna þess að verið er að kúga frumbyggjana. Hvor kastaði fyrsta steininum – lögregla eða manneskja – er óþörf spurning. Hvers vegna skyldi valdlaust fólk einungis beita sér í sjálfsvörn? Hvers vegna ekki að ráðast á hin kúgandi öfl? Mölva þau í spað?

Nokkrir fjölmiðlar segja átökin hafa byrjað eftir að lögreglan reyndi að leysa upp mótmæli fólksins. Bjóst þá einhver við því að fólkið myndi bara víkja á brott í rólegheitum og bjóða valdníðslunni heim enn einu sinni?

Verið er að valta yfir land þeirra og menningu fyrir framgang kapítalismans. Það er ekki ólíklegt að yfirvöld haldi því fram að árásirnar séu gerðar í ,,atvinnuskapandi“ tilgangi, ef ekki til að auka hagvöxt og hagsæld. Eins og Kárahnjúkavirkjun, muniði? Svo þarf að losna við þess frumbyggja því þeir eru fyrir. Jú, eða þá nútímavæða fólkið; kenna þeim að segja eitthvað annað en ,,húgga búgga!“ Kenna þeim að finna sársaukann og ógeðið sem þessari menningu fylgir.

…

Á sama tíma gengur nígerski herinn berserksgang. Aftur eru fórnarlömbin valdlausir einstaklingar og aftur er ástæðan barátta um land. Aftur ætlar ríkisstjórn sem þykist vinna fyrir hag fólksins, þegna sinna, að rústa landi þess og leggja stórri monnímaskínu rauðan dregil að því svæði sem fyrirtækinu hentar. Og í þetta sinn ætla yfirvöld sér reyndar ekkert; þau eru löngu búin að valta yfir fólk og jörð. Óshólmarnir við ánna Níger eru þegar undirlagðir olíuframleiðslu.

Árásirnar eru réttlættar, sagðar vera eðlileg viðbrögð hersins við upprisu fólksins á svæðinu; fólks sem missir ekki einungis lands sitt undir mengandi framleiðslu og þar af leiðandi missir það alveg – heldur fær ekkert í staðinn. Og aumingja herinn þarf bara að verjast, er það ekki? Skotmörk hersins eru hverjir sem er. Ástæðan er sögð vera hópur uppreisnarmanna sem berst fyrir frelsun óshólmanna. Þar, á sárfátkæku og kúguðu svæði, fer stærstur hluti olíuframleiðslu Nígeríu fram, en landið er einn helsti olíframleiðandi heims.

Og þá að þraut dagsins. Nefnið eitt olíufyrirtæki sem starfar hér á landi og á þátt í ofbeldi, umhverfisspjöllum og morðum í Nígeríu… Shell! Já, Shell sem ræktar skóga og styrkir góðgerðamál. Já, Shell sem stóð að olíuverðsamráðinu. Já, Shell sem keyrandi neytendur lands og óþjóðar versla við á hverjum degi og finna nákvæmlega ekkert athugavert við það.

Og þá að spurningu dagsins: Eru þá tengsl milli þess sem er að gerast hér á Íslandi og því sem er að gerast í Nígeríu? Hafa viðskipti fólks við Shell hér eitthvað með árásir nígerska hersins að gera? Á uppreisn fólksins við Níger rætur sínar að rekja til menningarinnar sem hér ræður öllu og breiðist eins og faraldur um gjörvallan hnöttinn. Spyr sá sem veit, en vill ekki trúa.

Shell borgar ekki bara fyrir skógrækt og grænþvott í Vesturheimi heldur borgar til að mynda hermönnum fyrir að berja á uppreinsarmönnum í Nígeríu. Og ekki bara uppreisnarmönnum heldur hverjum sem í vegi fyritækisins verður (ekki að það væri nokkru betra ef aðeins væri barið væri á þeim sem þora og geta staðið upp gegn ofureflinu…). Shell borgar hermönnum fyrir að kveikja í þorpum og limlesta börn. Rithöfundurinn og aktívistinn Ken Saro Wiwa er eitt af Shell-styrktum fórnarlömbum hersins; þaggaður niður og að lokum drepinn.

Shell var nýlega dregið fyrir dómstóla í New York fyrir glæpi gegn mannkyni en borgaði sig út úr réttarhöldunum. Aðstandendur Ken Saro Wiwa þáðu ölmusu frá fyrirækinu og féllu þess vegna frá málsókn. Hver veit hvað hefði orðið um þau ef þau hefðu látið málið halda áfram?

Svona er þetta alltaf og svona verður þetta alltaf á meðan fólk samþykkir yfirvöld. Svona verður þetta áfram í þriðja heiminum og svona verður þetta hér á landi þegar einkavæða á auðlindirnar og þegar (ef þá loksins) fólk stendur upp og beitir sér og líkama sínum til þess að spyrna á móti kapítalistunum; þegar Alþjóða Gjaldeyrissjóðurinn kreftst þess að skilmálum sínum verði fylgt eftir.

Svona var þetta í Bólivíu þegar allt vatn, þ.m.t. regnvatnið, var einkvætt og selt til Becthel. Já, Becthel, fyrirmyndarfyrirtækisins sem byggði hagvaxtarálverið á Reyðarfirði og hlaut Kuðunginn, Shell-styrkta viðurkenningu umhverfisráðuneytisins, úr höndum góðærisstjórnarinnar.

Kapítalisminn vegur peninga ofar lífi. Þess vegna er lífum fórnað fyrir gróða. Þess vegna hóf Coca Cola framleiðslu á Fanta til að selja í Þýskalandi nasimans. Þess vegna fer álframleiðsla fram með kolum og kjarnorku á skattfrjálsu svæði í Suður-Afríku á sama tíma og rafmagn er tekið af fólki sem ekki borgar einkavæddri systur Landsvirkjunnar, Eskom, síhækkandi orkuprís. Þess vegna fer tungumálum fækkandi. Þess vegna fer menningarkimum fækkandi. Þess vegna er eðlilegt líf í samhljómi við náttúrulega umhverfið, í algjörri útrýmingarhættu.

Er einhver ennþá í vafa um hvort það sé eitthvað að þesarri menningu?

Og er einhver sem ennþá hvetur til þess að andófið sé friðsamt?

10 Litlir Negrastrákar:
  1. humm segir, þann :

    Fokk. Ég verð hreinlega þunglyndur… Skítapakk með peninga sem svífst einskis stundar sín þjóðar og menningarmorð eins og vanalega og síðan styrkir það góðgerðarmál á íslandi og brosir á mynd í mogganum. Hvað er eiginlega hægt að gera? Vopnuð andspyrna? Ok kúl. En fólk á Íslandi virðist bara vilja peningana sína aftur. Það er mjög fámennur hópur sem er að leita að einhverju öðru. Mun myndast nógu öflug andspyrna á Íslandi áður en verður of seint?

  2. Pétur K segir, þann :

    Ógeð.

  3. Töffari segir, þann :

    Mótmæli klukkan 16:00 á Austurvelli í dag, mæta með eggin.

  4. Töffari segir, þann :

    http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/06/11/namsmenn_a_austurvoll_i_dag/

  5. Laura segir, þann :

    International Libertarian Declaration of Solidarity with the Struggle of the Amazonian Peoples of Peru:
    http://news.infoshop.org/article.php?story=200906082031382

  6. Slefa.. segir, þann :

    Helvítis skilti á austurvelli gera ekki rassgat..
    Það getur ekki lengur liðist ad ríkisvaldið sé sá aðili sem hefur einkarétt til valdbeitingar. Til fjandans með passívisma!

  7. V segir, þann :

    If you think moderation’s going to pave the way to peace…
    You’re already dead, You’re already dead.
    What good is moderation ‘gainst the army and police?
    You’re already dead, You’re already dead.
    We’re not promoting mindless violence, keep that for the fools,
    We’re simply saying be prepared to break their laws and rules,
    Let them know the bigger they come, the harder they will fall…
    They’re already dead, They’re already dead.

    They’re already dead, They’re already dead,
    They’re already dead, They’re already dead.

    If they’re going to play it dirty, so are we…
    They’re already dead, They’re already dead.
    They can keep their lies about the land of the free…
    They’re already dead, They’re already dead.
    We’ve allowed them too often to use their iron fist,
    But there’s one little detail they appear to have missed…
    You don’t have to be PASSIVE just because you’re a PACIFIST…
    They’re already dead, They’re already dead.

  8. GG segir, þann :

    Ofbeldismenningin verður bara ekki afmáð með beinu ofbeldi. – Það hefur aldrei gerst og ekkert bendir til þess að þó þeir sem vísvitandi hveti til ofbeldis og beiti beinu ofbeldi kalli sig anarkista gildi eitthvað annað.

    Hvort ofbeldismenn eru Shell, Bechtell eða anarkistar þá verður niðurstaðan sú sama, meira ofbeldi og eindregnara ofbeldissamfélag þar sem valdhafar, hverjir sem þeir eru viðheldur völdum, taumhaldi og yfirráðum með ofbeldi.

    Ef almúginn nær völdum með ofbeldi verður til nýtt stjórnvald og ný elíta úr þeirra hópi sem áfram verður að beita ofbeldi – enn meira en fyrr til að ná markmiðum sínum og hafa taumahald á óvinum nýja valdsins. Ef eitthvað annað á að geta gerst verður að leggja fyrir því skýr rök og sýn á það hvernig það á að geta gerst sem aldrei hefur tekist fyrr.

    Þ.e. ef ofbeldi á að geta af sér ofbeldislaust friðarsamfélag þar sem allir virða í reynd þarfir hvers annars, sameiginlegan eignarétt og samfélagið í heild verður að sýna okkur leiðina til varanlegs friðar.

    Ef þeir ankarkistar sem vísvitandi kjósa að beita og hvetja til ofbeldis segjast ekki ætla að taka völdin með ofbeldinu sem þeir kjósa að beita verða þeir þá í staðin sífellt að vera að beita ofbeldi til að stýra og láta það gerast sem þeir telji að hafi þau áhrif sem þeir kjósa. Það er líka stjórnun með ofbeldi, sem aftur gefur ofbeldissinnuðum stjórnvöldum tækifæri og tilefni til að beita sínu ofbeldi.

    Anarkismi á sér afar fagrar hliðar, en hvatning til ofbelis er ekki nauðsynlegur fylgifiskur heldur skuggahlið sem yfirskyggir að fullu hina fögur þegar hún dúkkar upp. En einhvernvegin er alltaf eins og að í sérhverju kerfi hvort sem er í hópi anarkasita eða í ríkinu þá taki ofbeldismennirnir völdin þegar ofbeldi er beitt, og bæði hræddir leiðtogar og hræddir fylgendur trappa smá saman ofbeldið upp með ofbeldistali þar sem fáir þora að mæla upphátt gegn því, þar sem því fylgir ótti við svika-ávirðingar og aumingja-ásaknir.

  9. innipúki segir, þann :

    Afhverju að gera ofbeldi að svona miklu dogma GG? Er alltaf alltaf alltaf rangt og óréttanlegt að nota ofbeldi? Ég held að þeir sem tali hér fyrir ofbeldi séu ekki að mælast til þess að það sé notað sem svar við öllum vandamálum heimsins heldur einfaldlega að segja að það sé stundum í lagi að nota það. Hvernig berst þú við óvin sem notar ofbeldi án þess að nota það nokkurntíma sjálfur? Þú getur það ekki. Gandískar friðarhreifingar geta ekki náð lengra en að málmiðlunarstöðum, allar róttækar breytingar eru einfaldlega of mikið hagsmunamál valdhafa til að geta liðist – hvað sem almenningsálitinu skiptir.

  10. Töffari segir, þann :

    Ofbeldi er eitthvað sem bara kemur, maður ætlar sér ekki að gera neitt en maður reiðist og fyrr en maður veit af þá er maður byrjaður að kýla frá sér og láta heyra í sér og annað í þeim dúr sem vekur óhug viðstaddra.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in