Almenningsálitsráðgjafinn Þorri Almennings skrifar:
Ég verð að viðurkenna að ég er löngu orðinn leiður á að fjalla um lögguna á vettvangi bloggblaðurs og víðar. En því miður blöskrar manni reglulega þegar augun eru rekin í öfgakenndan fréttaflutning frá valdstjórninni. Sérstaklega í aðal malgagni valdstjórnarinnar sem er Morgunblaðið undir ritstjórn Ólafs Stephenssen.
Eftir að lögruglustjóraembættinu var breytt í PR skrifstofu og fjölmiðlafulltrúinn fékk titillinn lögruglustjóri höfuðborgarasvæðinsins hefur mötunin versnað til muna. Auðvitað vill fólk helst ekki vita um misgjörðir varðsveita valdsins þegar þjóðríkistrúin hefur komið í stað guðstrúarinnar og trausts, jafnvel tilbeiðsla hefur tekið við traustinu á yfirskilvitlegum verum og handanveruleika. Fólkið þarf haldreipi og eitthvað öryggi, jafnvel þó það sé rammfalskt, því auðvelt er að líta fram hjá því. Sumir borgarar vilja jafnvel viðhalda helgi lögruglunnar og tala um svarta sauði. Líklega vegna þess að þeir gera sér vonir um lögruglan muni vernda þá og það sem þeir ennþá eru skrifaðir fyrir sem eignir í komandi ringulrauð og upplausn sem þeir væntanlega óttast nokkuð. Það má ekki rjúfa samhengi ríkistrúar kerfisins, sameiginlega veruleikans og grunnstoða-gilda samfélagsins sem byggt er á lausamöl.
Hver vill blöð gærdagsins, hvað þá síðustu viku? Sökum anna gat ég ekki brugðist við fréttum Moggans í síðustu viku. Í Morgunblaðinu fimmtudaginn 11. júní s.l. er fjallað um BA ritgerð um löggulætin í kringum alþingishúsið í janúar s.l. eftir Vilborgu Hjörný Ívarsdóttir. Vilborg er nemi í félagsfræði en þar að auki eiginkona liðsmanns óeirðarruglunnar sem af einhverjum ástæðum er ekki lengur nefnd mannfjöldastjórnunarteymi. Ég kalla Vilborgu góða að geta rumpað þessu svona fljótt af með fræðilegu mati á svona ferskri uppákomu. Dálítið í anda skyndiréttasamfélagsins, svona instant.
Þessir atburðir eru svo nýliðnir og nálægir að það er aðeins hægt að beita yfirborðslegri fréttamannasagnfræði í umfjöllun um þá. Þótt það sé nú þegar búið að innkalla hina svokölluðu ,,búsáhaldabyltingu“ inn á Þjóðminjasafnið og forvarsla líklega þegar hafin. Það hlýtur að þýða að janúar trommuæfingin sé horfin inn í söguna, en hvar var byltingin? Hún átti sér aldrei stað. Það er ekki stjórnarbylting að skipta út einum flokki úr ríkisstjórn fyrir annan. Hvað sem Líndal og fleiri lög- og stjórnvitringar segja um að hér hafi átt sér stað stjórnarbylting með ofbeldi. En mýtan var mynduð samstundis, svona instant mýtuframleiðsla. Væntanleg vonbrigði verða eftir því. Nú er svokallað þjóðin á þing (7% þjóðin) eina liðið sem nennir að mæta á mótmæli og er árangurinn eftir því. Það er marklaust að mótmæla sjúkdómseinkennum þjóðskipulagsins án þess hrista upp í grunngildunum, skeka grunnstoðir samfélagsins. Verst að þessi mæting á eftir að magna upp brjáluðu VG samsæriskenninguna um trommuhringinn í janúar, frá Birni BB, Haarde og félögum. Eða, kannski er ekki svo slæmt að magna upp samsæriskenningar er leiða til frekari veruleikafirringar í vissum valdaklíkum.
Þorri Almennings mun fjalla ítarlega um sjálfa ritgerðina á öðrum vettvangi fljótlega. Því má lofa að Almennings mun greina ritgerðina með almenningsálitið að leiðarljósi. En í umfjöllun Moggans eru nokkur atriði sem vert er að leiðrétta í löngu máli.
Ritgerðin virðist samkvæmt megingreininni athyglisverð því þar koma aðeins sjónarmið lögruglumanna fram og er það vel. Að sjálfsögðu er það öllum sem áhuga hafa mjög lærdómsríkt og áhugavert að heyra eitthvað beint frá sjónarhóli hins almenna lögruglumanns á vettvangi. Þau fáu skipti sem ég trommaði í Alþingisgarðinum komst ég ekki hjá því að sjá skelfinguna í andlitum venjulegra lögruglumanna sem settir höfðu verið í samfestinga og stillt upp á milli reiðra mótmælenda og ráðamanna. Vægast sagt ekki öfundsvert hlutskipti. Vilborg er ekki að leyna óhjákvæmilegri hlutdrægni sinni stöðu sinnar vegna. Þar er sterkur orðrómur um að lögruglan hafi verið nær sigruð og vökvinn sem embætti ríkislögrugstjóra og fyrrum dómsmálaráðherra kölluðu ,,varnarúða“, verið búinn. Um vanbúnaðinn þarf ekki að að undra því þetta kom á óvart þar sem Íslendingar hafa hingað til hagað sér sem leiðitöm hjörð. En afhverju kláraðist úðinn? Vegna þess að hann var notaður óhóflega óspart frá upphafi og það hefur margoft komið fram að úðað var beint í andlit og augu fólks gagnstætt þeim notkunarreglum er heimila aðeins að honum sé beint að bringu.
Það er nokkkuð auðvelt að lesa á milli línanna í texta blaðamanns. Kvartanir viðmælenda vegna fyrirmæla um tillitsemi og óánægja þeirra með linkindina skýrir margt. Þeir hljóta þá að hafa tekið til sinna ráða sem einstaklingar gagnstætt fyrirmælum. Það kemur vel fram í textanum að um var að ræða taugastríð sem ekki allir lögruglumenn héldu út né stóðust.
Um nóttina örlagaríku eftir að örmagna óeirðarliðar fengu að fara heim, birtast áður endurteknar fullyrðingar um að ,,glæpasnúðar“ og ,,fíkniefnaneytendur“ sem eru sígildir blórabögglar, hafi mætt á svæðið. Þeir eru hentugir syndaselir til að réttlæta harðræði. Vegna þess að þeir eru í hlutverki hinna framandi, þeir eru hinir hræðilegu ,,hinir“ sem eru ekki eins og við. Viðmælendur segja þá hafa átt harma að hefna gagnvart lögruglunni og þess vegna notað kærkomið tækifærið til að grýta hana, jafnvel einstaka lögruglumenn. Afhverju er það? Gætu þeir ekki haft fullgilda ástæðu til þess? Er það ef til vill skiljanlegt? Mér skilst að meðferð yfirvalda á þeim sé ekki alltaf til fyrirmyndar. En hvað með það. Ég gerði smá óformlega, óvísindalega könnun á meðal starfsfólks sem var á vakt á bar einum sem þessi hópur stundar. Spurði hvort það vissi um einhverja viðskiptavini sem hefðu tekið þátt í þessu? Því var aðeins kunnugt um einn.
Til að réttlæta táragasnotkunina segjast þeir hafi nær orðið undir og við það að brotna, umkringdir við horn alþingishússins. Væntanlega skíthræddir því piparúðinn var búinn. Án hans eru þeir lítið. En afhverju fóru þeir bara ekki? Voru nokkrir ráðamenn í alþingishúsinu um miðja nótt? Var nokkuð verra að láta lýðnum það eftir frekar en þingsetunum? Nei, valdstjórnin má ekki hörfa, frekar að beita ofbeldi. Svona er þetta sett upp fyrir almenning af PR stofunni við Hlemm. Jafnvel löggurnar sjálfar eru fórnarlömb eigin hræðsluáróðurs.
Viðmælendur telja fjölmiðlamenn illa merkta og þykjast hafa heyrt að mótmælendur dulbúist sem slíkir. Hverig er að dulbúast ef það vantar dulbúninginn? Fólk getur borið myndatökuvélar á öðrum forsendum en fyrir fréttaflutning. Þetta er auðvitað sagt til að réttlæta piparúðanir á ljósmyndara sem náðust á mynd. Þetta sýnir að þessi grein er ekkert annað en sviðsett sjónarspil til réttlætingar framgöngu óeirðarsveitanna í áróðurstríði lögruglunnar gegn almenningi. Þeir kvarta undan umfjöllun og framgöngu fjölmiðla. Það var aðeins Kastljósþátturinn að kvöldi þriðjudagsins sem kom með raunsæa umfjöllun svo mér og mörgum brá. Í upphafi þáttarins var tilkynnt að Stefán Eiríksson fjölmiðlafulltrúi kæmist ekki í viðtal vegna anna. Eftir hina raunsönnu umfjöllun var hann skyndilega mættur í viðtal og endurtók ósannindin um að öllum væri frjálst að kæra og lögruglan myndi fagna því. Það myndi hreinsa hana af áburðinum en auk þess höfðu þeir innra ferli til að skoða hvert tilvik. Auðvitað kom það fram nokkrum vikum seinna samkvæmt þessu eftirliti þeirra sjálfra með sjálfum sér að ekkert væri athugavert við framgöngu þeirra. Allt eftir svo kölluðum verklagsreglum. Það vita allir sem þekkja til, að nær ómögulegt er að kæra lögrugluna þar sem um 97% kærumálanna er vísað frá. Auk þess að kærandi getur orðið fyrir frekari óþægindum. Lögfræðingar almennt ráða fólki frá því að kæra. Það skortir hlutlausan rannsóknaraðila í hinu svokallaða réttarkerfi.
Varðandi aukið virðingarleysi við lögrugluna sem sumir viðmælenda Vilborgar vilja kenna asnalegum búningunum um. Þá ber að benda á það grundvallaratriði að virðing fylgir ekki sjálfkrafa ytra prjáli. Virðing er aðeins áunnin. Miðað við frásagnir ungs fólks, þá hefur lögruglan sýnt slæmt fordæmi í samskiptum sínum við ungmenni þessa lands og í staðinn notið verðskuldaðrar óvirðingar.
Framhald síðar…
Ég hef engu við þessu að bæta – og bíð frekari greiningar. Góð og mikilvæg lesning, fyrir hvern þann sem heldur að hann búi við frelsi í þessu landi.
Fín umfjöllun, en leyfi mér samt að efast um hugmyndina um að lögreglan hefði getað eða átt að skilja Alþingishúsið eftir þarna um nóttina. Sé ekki alveg hvernig það hefði gengið fyrir sig?
Annað er umfjöllun um “góðkunningja” lögreglunnar og meintan þátt þeirra. Það er vissulega þannig að slíkt væri þægileg afsökun og erfitt að meta hvað er hæft í því. Er ekki samt svolítið tæpt að gera því í skóna að ef þeir hafi verið þarna, þá hafi hefndin verið réttmæt? Auðvitað eru alltaf einhverjir “hinir” sem taka skellinn í samfélögum, en hópurinn sem lögreglan vísar í eru nú engir sakleysingjar. Eða er alltaf gengið út frá því sem vísu á þessum slóðum, að það séu engir þeir í samfélaginu sem “við” þurfum vernd fyrir?
Endurtek að þetta er flott grein og hlakka til að lesa meira. Ofangreindar vangaveltur eru svona aðeins til hliðar við heildarmyndina, en kviknuðu hjá mér engu að síður.
nice!
Einmitt. Virðing er áunnin og það gerist á persónulegum grundvelli. Persónuleiki eða persónuleg samskipti fylgja ekki með þegar farið er í einkennisbúning.
Þakka athugasemdirnar og ummælin. Varðandi ,,góðkunningjanna” þá tek ég fram að að athugunin um hvort þeir hefðu flykkst á vettvang til að nýta sér tækifærið til ,,hefnda” var mjög ,,óempirísk” eins og BA ritgerðin sem kveikti þessa umfjöllun. En ég fjalla um ,, hinir” afsökun lögruglunnar EF svo hefði verið reyndin.
Heilsa
Almennings
Burtséð frá efni ritgerðarinnar og hlutdrægni hennar hefði höfundurinn átt að vinna hana betur út frá fræðilegu sjónarhorni. Til að mynda talar mogginn um hana sem “rannsókn”, en eftir snöggan yfirlestur gat ég ekki séð neinn mun á henni og óvenjulega langri blaðagrein. Vilborg notar einungis tvær ritrýndar heimildir (sem er undirstaðan í félagsvísindalegum ritgerðum) og notar engar kenningar (hún minnist reyndar á einum stað á kenningu um hóphegðun en tengir hana ekki við efni ritgerðarinnar). Allar hinar heimildirnar eru blaðagreinar, sjónvarpsfréttatímar eða capacent skoðanakannanir.
Varðandi þetta sem karlinn á álftanesi gerði, það er verið að reyna að HRÆÐA! fólk með röfli í fjölmiðlum um 6 ára fangelsi og kjaftæði, maðurinn kemur til með að sitja inni í 6 mánuði í mesta lagi ef hann lendir bak við fangelsismúra á annað borð.
ég er forvitin – mig langar að lesa þessa áróðursritgerð, vitið þið hvar það er hægt?
http://www.skemman.is slá svo inn nafn höfundar undir leit. Vilborg Hjörný Ívarsdóttir er höfundurinn. Undir BA ritgerðir í félagsvísindadeild, minnir mig.
Mikið rétt um fræðileg gæði ritgerðirnar, Helga. Áhugavert að vita hvað hún fékk fyrir þessa ,,rannsókn” Ég mun fjalla ítarlega um sjálfa ritgerðina seinna. Ofanverð grein er aðeins um umfjöllun Moggans.
Löngu komin tími til að þið hættið að greina frá það sem ykkur hentar ekki….. búið að útskýra það í fjölmörgum greinum að notkun piparúða var ekki útfærð á rangan hátt undir mótmælunum. Það á að sprauta í auga fólks með þeim úða sem er notaður í dag. Það er eldri úði sem er ekki notaður í dag sem var beint að bringu manna…….
Hvaða bar ert þú að vísa til ??? það fólk sem er okkur mest til vandræða er ekki að finna inni á neinum börum…. þessir barir sem þú ert líklega að vísa til, heldur til fólk sem lögreglan á að mestu ekki í einum vandræðum með að eiga samskipti við : Þau hafa líklega öll lært það að ef lögreglan á að vera að skutla þeim heim trekk í trekk að þá er farsælast að halda góðu samstarfi, fyrir báða aðila.
Einhæfur flutningur hjá þér….. eins og svo oft áður reyndar.
Zorro, getur þú vísað mér á þessar upplýsingar um úðann? Þessar útskýringar fóru alveg framhjá mér. Getur verið að hér hafi PR deildin brugðist?
Líklega er þær ekki að finna í meginstraums miðlunum en þú virðist vera vel að þér í misjöfnum tegundum úðans. Þær má kannski finna í fagritum.
Er mikill munur á milli tegunda varðandi árangursmarkmið? Er hægt að öðlast þessa þekkingu á sambærilegan hátt og vínspekingar ná með vínsmökkun?
Þessir barir á Laugaveginum þar sem einhverstaðar ,,verða vondir að vera” halda til er það sýnilegasta af þeim ,,fíkniefnaheimi glæpasnúða” er viðmælendur ritgerarhöfundar vísa til. Mér skilst að margt af þessu fólki sé nú það óstaðsett i húsi að það getur varla nýtt sér heimkeyrsluþjónustu ,,góðkunningja” sinna í lögruglunni. Gott að heyra að þú sért dyggur lesandi. Vona að það þú þurfir ekki að fylgjast með þegar þú ert á vakt.
sælir aftur.
http://en.wikipedia.org/wiki/Pepper_spray
Þetta er til Hr Forna Loftski. En með smá leit þá er ekkert mál að finna þetta.
Það sem PR fulltrúinn vísaði til í sínu fræga viðtali og á ekki við í dag er að gamla gasið var CN en núverandi gasið er OC. Þetta las ég í greinargerð sem borgarfulltrúar RVK báðu um vegna ótta við græjunnar. Þessu var póstað á mbl einhvern tíman.
Þannig að það er UM AÐ GERA að fara ekki með rangt mál því það leyfir besservissum eins og mér að hlæja að ykkur óspart á kantinum og bíða eftir næstu skráveifu.
Og svona að lokum… Hafiði hroft á myndböndin þegar fréttamennirnir og amateur ljósmyndararnir eru spreyjaðir?
Í alvöru?
Hvar ananrs starðar í heiminum eru fréttamenn alveg ofan í öllu saman og neita síðan að hlusta á skipanir? Og væla síðan í lokin :)
Þetta var snilld! Mar sá þarna öskrin í helheitum rauðbústnum lögrugluköllum(svo ég steli góðu orði) og voru þeir að segja öllum að drulla sér. Ekki öllum, nema þeim sem eru með myndavélar, ekki öllum nema þeim sem þeir þekkja persónulega… Nei, þarna var verið að segja ÖLLUM að fara :) Stóð á veggnum þarna langt í burtu, horfði yfir hópinn, sá þar brynjaða herkalla með Kylfur á lofti og brúsa í hendi… Einhvern vegin tókst þeim að galdra skyldi á sig líka :)
En nei, fréttamennirnir, sem voru ofan í öllu og öllum, þeir vildu sko ekki fara :) Og hvað? Þeir fengu það sem þeir báðu um. Frændi minn, ljósmyndari með meiru og frækinn maður, sagði eftir að hann hefði alveg vitað hvað væri að fara gerast, hann vildi bara ná góðu skoti, sem hann og gerði.
Það var hins vegar ekki góð lykt af honum eftirá!
Með kveðju og von um að þið breytist ALDREI!
AnonYmousE.
Og annað, fyrst ég er byrjaður: Takk fyrir að vera hættir að screena mig í burtu, sú ritskoðun var helst til Blá í framan, eðlilegt að allir fái að tjá sig, n’est pas?