English 

Skilaboð frá Saving Iceland: Vertu með frá 18. júlí í baráttunni gegn iðnspillingu svæða sem teljast til síðustu óspilltu öræfa Evrópu og taktu þátt í beinum aðgerðum gegn stóriðju!

…

Baráttan hingað til
Baráttan til varnar stærstu óspilltu öræfum Evrópu stendur enn. Síðustu fjögur sumur hafa mótmælabúðir Saving Iceland gripið til aðgerða gegn framkvæmdum á álverum, risavirkjunum og jarðvarmavirkjunum.

Í ljósi þeirrar hrikalegu eyðileggingar sem orðið hefur á Kárahnjúkum og Hengilssvæðinu er kominn tími til að gera endanlega út af við orkunýtingaráætlun stjórnvalda og stórfyrirtækja sem gerir ráð fyrir að allar helstu jökulár landsins verði virkjaðar, öll háhitasvæði verði nýtt til hins ýtrasta og að bygging álvera, olíuvinnslustöðva og kísilverksmiðja geti orðið að veruleika, ásamt gífurlegri aukningu í losun gróðurhúsalofttegunda.

Ástandið í dag
Þrátt fyrir vaxandi bjartsýni frá lokum hinnar svokölluðu ,,búsáhaldabyltingar“, þar sem mótmæli og beinar aðgerðir skiluðu sér í falli ríkisstjórnarinnar og leiddu til þess að umræðan um stóriðju og stórframkvæmdir varð á ný heyrileg á vettvangi stjórnmálanna, er orrustunni engan veginn lokið.

Mikið fall á heimsmarkaðsverði á áli og hin alþjóðlega fjármálakreppa hafa sett mark sitt á álfyrirtæki og verkefni tengd stóriðju á Íslandi: áætlanir um byggingu álvera, risavirkjanna eða jarðvarmavirkjanna hafa í mörgum tilvikum verið saltaðar eða þeim hafnað algjörlega. Þó að enn sé langt þar til hægt verður að lýsa yfir sigri á stóriðjumaskínunni, sýna hin mýmörgu nýlegu dæmi um andóf hversu djúp áhrif Saving Iceland hefur haft á grasrótina og stjórnmálalandslagið.

Breytingar á þingi
Nýafstaðnar kosningar eru mikið áfall fyrir íslensku umhverfisbaráttuna, þar sem sjá mátti Vinstri-græna bola Kolbrúnu Halldórsdóttur, fyrrverandi umhverfisráðherra úr ráðherrastóli fyrir að vera of einlægur umhverfisverndarsinni. Sú ríkisstjórn sem nú heldur um taumana er tvíefld stóriðjustjórn sem þykist nú hvorki lengur vera „græn“ né á nokkurn hátt „til vinstri“. Að auki hafa íslensk orkufyrirtæki þegar hafið viðræður um uppbyggingu annarra tegunda iðnaðar fyrir norðan, þar sem einhverjir stjórnmálamenn höfðu útilokað nýtt álver.

Vaknandi meðvitund
Áralöng vinna Saving Iceland við að veita hugmyndum og aðferðum beinna aðgerða og anarkisma inn í þjóðfélagið, ásamt stigmögnuðum áhuga á róttækum aðferðum eftir fall ríkisstjórnarinnar, hefur skilað sér í sívaxandi samfélagi róttækra aðgerðasinna og anarkista á Íslandi.

Á síðustu mánuðum hefur hústökufólk tvívegis haldið uppi félagsrými og varið það fyrir lögreglu, aðgerðir í þágu málefna flóttafólks og hælisleitenda hafa verið áberandi, Food Not Bombs (frír matur, unninn úr afgöngum offramleiðslu) á sér stað í hverri viku á Lækjartorgi og aðgerðum eins og hinum fjóru grænu skyrárásum síðustu tvo mánuði hefur verið beint gegn stjórnmálamönnum og óvinum náttúrunnar.

Sameinaðir kraftar sífellt sífellt stækkandi hóps róttæklinga og Saving Iceland munu ala af sér spennandi sumar, fullt af aðgerðum!

Aðgerðir sumarsins

Bygging álversins í Helguvík sem Saving Iceland tók fyrir síðasta sumar og stöðvaði vinnu við í heilan dag eftir að 40 aðgerðasinnar réðust inn á svæðið, er enn í gangi. Það magn raforku sem þarf til að knýja álverið mun leiða til átta nýrra raforkuvirkjanna. Að minnsta kosti sjö þeirra munu verða jarðvarmavirkjanir staðsettar á Reykjanesskaga og Hellisheiði, sem var einnig skotspónn Saving Iceland síðasta sumar í aðgerð þar sem vinnsla við borholu var stöðvuð. Ein jarðvarmavirkjananna sjö sem er ætlað að knýja álver Century gæti verið í Bitru, nálægt Hengli, þar sem andstaða ýmissra aðila kom í veg fyrir framkvæmdir síðasta vetur. Áttunda virkjunin verður sennilega risavirkjun í Þjórsá.

Sú eyðilegging viðkvæmra og einstakra lífríkja sem byggingaframkvæmdir og mergð tilraunaborhola á eftir að hafa í för með sér á Reykjanesskaganum æpir á beinar aðgerðir í sumar!

Taktu þátt!
Taktu virkan þátt í sumar frá og með 18. júlí og ljáðu baráttunni liðsinni þitt. Fylgstu reglulega með vefsíðu Saving Iceland (www.savingiceland.org) þar sem þú getur aflað þér frekari upplýsinga eða hafðu samband á savingiceland@riseup.net.

Þú getur einnig lagt okkur lið með fjárframlögum, þýðingum, samstöðuaðgerðum og með því að bera boðskapinn víðar.

6 Litlir Negrastrákar:
  1. Gunnar H segir, þann :

    Ég tek hattinn djúpt ofan fyrir þessum brautryðjendum andófsins á Íslandi.

    Án þeirra starfs væri sjálfsmynd fólksins í þessu landi í enn vera ástandi eftir síðasta vetur en hún er.

    Ég mun taka þátt í aðgerðunum í sumar.

  2. KíKí segir, þann :

    Ég mun taka þátt.

  3. AnonYmousE segir, þann :

    Ekki ég.

    Ég mun hins vegar sitja útí kanti, horfandi á bullið lea úr ykkur og glotta við tönn í hvert sinn þið eruð rekin á gat :)
    Hef séð það gerast, hlakka til að sjá það aftur.
    án ykkar hefðu menn eins og Penn og Teller ekkert að gera.

    Peace out.

  4. Brandur segir, þann :

    AnonYmousE, auðvitað verður þú á þínum stað með skilningssljótt kjánaglottið og þumalinn djupt upp í eigin rassgati.

  5. aNONyMOUSe segir, þann :

    AnonYmousE hefur séð umhverfisverndarsinna “tapa” í rökræðum. Þar með er það sem umhverfisverndarsinnar halda fram bull eins og það leggur sig. Eflaust mun hann/hún líka glotta við tönn í hvert skipti sem SI verða ekki rekin á gat, enda ekki ætlunin að hlusta á málflutninginn heldur að dilla smáborgaraþumlinum í takt við möntrukent hatursgjálfrið í eigin höfði.

    Pereat motherfucker!

  6. Elli segir, þann :

    anonymouse sá sem horfir a sjalfan sig i spegli lengi getur komist að þvi eftir einhvern tima að þú anoymouse ert að bulla. Til að koma með staðreyndir þá kosta virkjanir þrælmikið og þá blæður almenningi. Það væri ekki nothæft nema það væri notað í eitthvað annað en álver. Á Íslandi fer mest allur af peningum sem skapast í álverum til útlanda. Þannig að þú mátt alveg glotta framan í mig ég mun ekki skammast mín fyrir að vera glotta framan í þig. Því í hvert skipti sem þú glottir þá ertu kelling og vælukjói með enga sjálfsvitund.

Ekki þegja:

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in