Ekki gera svona við fallega fánann okkar! Það er mikilvægt að ungt fólk í dag sé ekki ruglað enn þá meira með því að verið sé að brenna þjóðfánann okkar. Næg er fyrringin fyrir hjá því unga fólki sem gegna mun lykilhlutverki í endurreisn íslensks þjóðfélags.
Þjóðfáninn er sameiningartákn íslensku þjóðarinnar og í honum sameinum við krafta okkar til þess að berjast áfram og sigla þjóðarskútunni inn í bjarta framtíð úr þeim skerjagarði sem við höfum siglt í. Nú liggur mikið í húfi, að allir sem tveggjaþumlavetlingi geta valdið rói lífróður uppá dekki til að sigla inn í bjarta framtíð undir fögrum blaktandi fána vor.
Gefum skipstjóranum frið til að vinna sitt verk við að stýra þjóðarskútunni úr þeim efnahagsstormi sem þjóðin hefur lent í, svo við sökkvum ekki öll sem eitt. EIN ÞJÓÐ UNDIR GUÐI! STÉTT MEÐ STÉTT! Hyllum fánan og kapteininn og landráðamenn verða kjöldregnir!
Fallegt að sjá þennan ógeðslega fána brenndan. Gerum meira svona. Það væri hægt að láta viðkomandi vikna ef maður væri ekki svona töff. Það er svo margt viðbjóðslegt sem þessi fáni stendur fyrir. Þetta er hið eina sanna ,,detox”. Skora á alla að gera þetta reglulega á heimilum sem opinberum vettvangsrýmum.
Gott hjá ykkur.
Til fjandans með helvítis fánadrusluna og svo varðandi þetta sem karlinn á álftanesi gerði, það er verið að reyna að HRÆÐA! fólk með röfli í fjölmiðlum um 6 ára fangelsi og kjaftæði, maðurinn kemur til með að sitja inni í 6 mánuði í mesta lagi ef hann lendir bak við fangelsismúra á annað borð.
:) we dont need no water let the Motherfucker burn……
Finnst kaldhæðnin í Halldóri Karlssyni æðisleg.
Ertu viss um að þetta sé kaldhæðni hjá Halldóri? Hann er nú stækur þjóðernissinni.
Hér eftir mun ég halda daginn hátíðlegan til að minnast einstaklingsframtaks niðurrifsmannsins á Álftanesinu. Það er maður sem skilur að maður getur ekki leyft sér að bíða eftir byltingunni heldur verður hver og einn að fremja sína eigin byltingu, sjálfur.
Hvort var meiri fullnæging fyrir ykkur í því að brenna fánann eða að kúka í kjörklefann?
Svolítið leitt samt að sjá hvað hjörtun ykkar eru lítil. Þurftuð að keyra út úr bænum og finna afskekta fjöru til að tryggja að verða ekki gripin.
Foreldrar ykkar eru örugglega mikið stolt af ykkur.
Æi, kannski ekki kaldhæðni.
Fólk sem talar um sameiningartákn meinar yfirleitt: Engin gagnrýni á annan sem deilir sama þjóðerni.
Halldór Karlsson tekur einnig fyrir þjóðarskútu klisjuna, inn í skerjagarði. Það getur varla nokkur notað þá klisju án þess að vera að djóka í fólki lengur.
Ein þjóð undir guði! Stétt með stétt!
Hér eru slagorð sjálfstæðisflokksins tekin fyrir hjá Halldóri.
Á sama tíma krefst hann friðs um núverandi leiðtoga. Hann segir:
“gefið skipstjóranum frið til að vinna”
Sem er úr öðrum flokki!!! Þetta bendir til að Halldór styðji stjórnvöld í sama hvaða formi þau birtast! Halldór er klárlega meistari kaldhæðninnar og ekki nokkuð annað.
Hvaða skilning leggja menn eiginlega í orðið og hugtakið þjóð, þegar þeir annað hvort segjast styðja það eða hafna? Það þótti mér vanta í þessa fánabrennu, að útskýrt væri vandlega hvað væri eiginlega verið að brenna.
Ekki er það tuska. Hver væri eiginlega gjörningurinn í að brenna einfalda tusku? Líklegra er það svo-kallað sameiningartákn þjóðar, en hvað er þá þjóð? Hverju nákvæmlega á að sundra, þegar sameiningartáknið er ónýtt?
Legg til að samfélagið á Íslandi leggi niður þjóðfánann en noti hvíta fánann sem sinn “þjóðfána,” með því fororði að öllum sé frjálst að flagga honum. Hvíti liturinn er ekki bara friðarvísun, hann er tómur og þannig getur hver sem er varpað sínum skilningi á hann. Það endurspeglar að ólík sjónarhorn okkar eru hinn sanni samnefnari; þ.e. að við höfum sjónarhorn, erum sjálfráða einstaklingar með ólíka sýn, sem gerir hverjum og einum kleift að ljá lífi sínu tilgang, sem getur verið jafn fjölbreyttur og manneskjurnar.
Svo má alveg halda því til haga að hvítt vísar í frið, sem ég legg þá út af sem frið fyrir afskiptum og sameiginlegri sýn á að allir leggi sig fram um að auðvelda hverjum og einum að finna sinn tilgang. Það kostar fórnir–líka á frelsinu–en það eru fórnir sem eru vel þess virði.
En já, krossfáninn má fara…
svarti fáninn þjónar svipuðum tilgangi.
Sem tákn finnst mér svarti fáninn þó ekki eins, en mögulega þarf hann að fara fyrir hinum hvíta? Sá hvíti er líka, að mínu mati, ópólitískari.
Hvers vegna er svona mikilvægt að hafa fána?
Það er einmitt ekki mikilvægt! Með því að nota hvítan “þjóðfána” værum við með “ekki-fána”. Þar sem plássið okkar væri í fánastangaröðinni væri hvítur, blanco-fáni. En auðvitað gefur þetta upp ákveðna afstöðu af minni hálfu. Sumum finnst enginn tilgangur í slíkri sýn, vilja heldur saga niður alla röðina med det samme…
Celine kallaði hin nýju þjóðríkistrúarbrögð er leystu af guðsríkistrúna samkvæmt enskri þýðingu: ,,The religion of the flag.”
Á maður að skilja það þannig að þið séuð líka á móti pulsum????
Detti mér nú allar dauðar lýs úr höfði….
Þjóðfáni er tákn um það að ein tiltekin þjóð hljóti að vera eitthvað merkilegri en aðrar og sem betur fer fjölgar þeim sem hafna slíkum hugsunarhætti.
Ég held að fáir Íslendingar séu meðvitaðir um hversu erfitt er í raun að skilgreina þjóð. Við höfum náttúruleg landamæri, eina þjóðtungu, eigum stutta sögu sem flestir þekkja nokkuð vel og meirihlutinn hefur sömu trúarbrögð og aðrar menningarlegar rætur. Það er bara svo langt frá því að þetta sé alltaf svona einfalt og það er fullt af fólki í heiminum í dag sem tilheyrir í raun engri sérstakri þjóð. Þjóðarhugtakið sjálft er í skársta falli úrelt og allar hugmyndir um ’sameinaða þjóð’ fela í sér daður við nasisma.
Voru fánar ekki aðallega notaðir af kóngum til að merkja sér fólk þegar farið var í stríð? Þá var fáninn notaður til að menn vissu hverja þeir ættu að drepa…ss. alla sem eru ekki með eins fána og þú.
ÞESSI LITRÆPTA HORMOTTA ALLS SEM ER HEIMSKT OG SJÁLSFÁNÆGT Í ÞESSU LANDI Á EKKI EINU SINNI SKILIÐ AÐ HENNI SÉ SÝND SÚ RITUALÍSKA VIRÐING AÐ VERA BRENND.
HELST Á MAÐUR AÐ SKEINA SÉR Á HENNI.
TIL HELVÍTIS MEÐ ÍSLENSKA RÍKIÐ
TIL HELVÍTIS MEÐ ÍSLENSKA ÞEGNDULD
ÖREIGAR ALLRA LANDA, SKEINIÐ YKKUR!!!
Eru reiður, Brandur?
Skeindu þig, skeggapi!
Endilega brennið þennan fána og tökum upp sjóræningjafána.
Brandur? Ég held að caps sé á hjá þér
Vex þér ekki skegg, Brandur?
ég held að brandur og forn loftski séu einn og sami maðurinn
og eru hér að fremja þann gjörning að rífast við sjálfan sig
Nei, nei, Lofthæna.
Forni er raunverulegur skeggapi. Náttúran hefur hefur gert hann þannig úr garði til þess að hann geti skeint sjálfum sér, og öðrum, með skegginu.
Þannig kennir Guð heillri dýrategund hreinlæti.
En vandinn er að Guð gleymdi að kenna skeggapanum að snyrta eigið skegg… nema með eggjárni.
Brandur er hins vegar KATTÞRIFINN.
Brandur, fáir mannapar eru það liðugir að þeir geti skeint sér með eigin skeggi. Heldurðu að Njáll hafi iðulega verið óskeindur? En hvaða guð kenndi þér að sleikja sjálfan þig svona mikið upp?
ÞjóðÓður, Njáll var illa skeindur, enda bar hann ávalt skít í sína litlu rót.
Þegar útigangskettir eins og ég hætta að drekka og er komið til manna erum við mikið hvattir til hreinlætis. Það heldur manni réttu megin í lífinu.
Það má því segja að hið Æðra Máttleysi hafi kennt mér hinn góða sið að sleikja vel um og yfir pung, rass og píku, eins oft og hægt er á dag.
Mjög athyglisvert að þú getir ekki drukkið nema sem útigangsköttur.
Ódrukkinn sértu vel taminn, færð jafnvel ummönnun hjá mönnum.
Sleikjuskrif þín benda til þess að þú sért eiturlyfjaneytandi.
Gangi þér vel á vegferð þinni til bata.
En týpískt að þurfa að dissa mann og klína á mann dópistastimpli bara vegna þess að maður stendur upp og segist heita Brandur og vera alkahólisti!
En hver sagði að ég hefði ekki byrjað að drekka aftur og það sem þrifinn heimilisköttur?
Skál fyrir skeiniflagginu!
Þið þessir óþekku og reiðu eruð allir dópistar. Annað getur ekki verið. Við, þessi meðvituðu erum nú ekki svona.