English 
Málefni: ,

…

Andspyrna hefur gefið út nýja bók, Ríkið eftir mannfræðinginn og anarkistann Harold Barclay. Eftir Barclay liggja bækur eins og People Without Government, an anthropology of anarchy og Culture and Anarchism.

Barclay útskýrir í þessari bók hvernig valdamikill forréttindahópur hefur rænt stjórnun á samfélaginu. Ríkið hefur náð algerum yfirráðum með stjórn sinni á atvinnu, viðskiptum, landbúnaði og auðlindum. Hann rekur sögu ríkisins í samfélögum manna útfrá sjónarhorni mannfræðinnar, rekur hvaða þættir þurfa að vera til staðar í samfélagi til þess að ríki fúnkeri og veltir upp spurningunni hvort að ríkið sé virkilega nauðsynlegt eða hvort skipuleggja ætti samfélagið án þess.

Reyndar kom bókin út fyrir nokkru og hefur verið seld á götum en núna er hún komin í almenna dreifingu þ.e. í verslanir Máls og Menningar við Laugaveg og Lækjartorg og í Bóksölu Stúdenta.

Á söluborði Andspyrnu og Food Not Bombs kostar bókin 500 kr. en í verslunum um 800 kr. Hún er rúmar 100 bls. í litlu broti.

10 Litlir Negrastrákar:
  1. Hvítliði segir, þann :

    Þið eruð bara geðsjúklingar, geðbilaður brjálaður skríll ekkert meira, þið verðið tekin og færð á viðeigandi stofnun rétt eins og ökufanturinn sem var að óhlýðnast í gær. Skammist þið ykkar bara.

  2. Grámann segir, þann :

    Fyrir að gefa út bækur um glæpsemi ríkisins!?

    Þú ert óborganlegur, Hvítliði!!!

  3. BaraSteini segir, þann :

    Hvítliði er bara afbrýðissamur…. Hann kann ekki að lesa…

  4. Lalli segir, þann :

    Hvað er svona geðbilað við það að gefa út bækur??? Ég ekki skilja.

  5. Siggi pönk segir, þann :

    Allir sannir Hvítliðar brenna bækur. Þeir fara líka aldrei út í sól. Húðin gæti dökknað.

    Annars fæst Ríkið núna líka í Bókakaffi Suðurlands á Selfossi.

  6. fröken Geirs segir, þann :

    frökenin er ávallt burtu úr Reykjavík á sama tíma og FNB – er hvergi hægt að nálgast bókina á fimmhundraðkalla þess fyrir utan??

    Annars er ég sammála Hvítliða, klárlega einungis geðbilaður brjálaður skríll sem ætti að skammast sín gefur út bækur. Klárlega eini maðurinn með viti hérna inni.

  7. Siggi pönk segir, þann :

    Andspyrna var t.d. með söluborð á pönktónleikum í Sódómu í kvöld. Fluglæs mannskapurinn fagnaði og fjárfesti alveg óháð kortatímabilum.
    Leiðir okkar munu liggja saman að endingu fröken Geirs.

  8. SLEFA segir, þann :

    Hahahaha..
    Hvitlidi tu er svo dasamlega heimskur..
    Vildi bara takka ter fyrir, eg get svo oft hlegid tegar tu laetur sja tig herna.

  9. Svartliði segir, þann :

    ég held að hvítliði þurfi bara knús, ég segi að við komumst að við hittum hann einhverstaðar og knúsum hann svo að honum líði nú betur.
    Hann gæti alveg orðið fínn gaur ef einhver myndi sína honum smá kærleika.

  10. Svarti Dauði segir, þann :

    Látið mig kyssa Hvítliða….

Ekki þegja:

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in