English 

Svartur Svanur

Svartur Svanur hefur sent frá sér eftirfarandi skilaboð.

Annað eintakið af íslenska anarkistatímaritinu Svörtum Svani er komið út og nú eru vængirnir breiðari og goggurinn beittari. Fyrsta eintakið kom út í febrúar og endaði í höndum ófárra hugmyndaþyrsta einstaklinga, m.a. fjölda þeirra sem sóttu mótmælafundi Radda Fólksins á Austurvelli, sem á þeim tímapunkti voru að syngja sitt síðasta. Fyrsti Svanurinn var að vissu leyti einfaldur og auðlesinn; virkaði fyrst og fremst sem kynning á þessari hugmynd – anarkisma – sem er enn frekar ný og óþekkt hér á landi. Viðbrögðin voru vonum framar og lítið er eftir eftir af fyrsta upplaginu.

Í millitíðinni hefur ýmislegt gerst. Vinstri stjórn situr nú til að mynda við völd, undir harðri hendi alþjóðlegra fjármálastofnanna. Og eins og við lofuðum í inngangsorðum fyrsta Svansins erum við ekki einum millimetra sáttari með þessa ríkisstjórn en hinar fyrri. Á meðan þessu valdafyrirkomulagi er viðhaldið – á meðan fólk selur ábyrgð sína á eigin lífi og samfélagi í hendur atvinnustjórnmálamanna – munu jöfnuður og frelsi aldrei verða að veruleika. Sama í hvaða átt ríkisstjórnin segist stefna munu anarkistar berjast gegn þessu meingallaða kerfi. Svartur Svanur er einn þáttur í þeirri baráttu.

Nýji Svanurinn er stærri og kröftugri en sá fyrsti og fer ítarlega ofan í málefni sem koma við hinum almenna lesanda sem og hreyfingu anarkista hér á landi. Tvö þeirra sem stóðu að hústökunni við Vatnsstíg í apríl sl. útskýra hugmyndafræði sína og áætlanir, fjallað er um málefni flóttafólks og innflytjenda, raunverulegan tilgang landamæra og eftirlits, og spurningunni um hvort umhverfisvandamál þessarar plánetu verði leyst með neyslubreytingum eða harðri baráttu er velt upp og svarað. Kjörklefakúkarinn víðfrægi útskýrir gjörning sinn og fyrrum leikskólakennari segir frá innrætingu lögregluhlýðni í leikskólum landsins. Á fræðilegri nótunum er svo fjallað um hagkerfi að hætti anarkista. Vanhæfni samfélagsins til að takast á við afleiðingar kynferðislegrar misnotkunar er einnig til umræðu og á sama tíma settar fram hugmyndir um aðrar leiðir en þær sem nú eru til staðar. Einnig má finna greinar um kerfisbundna kynjakúgun frá fæðingu, lítinn áhrifamátt friðsamrar baráttu og þá möguleika sem opnast fólki þegar það hættir að vona. Saga svarta fánans, helsta tákns anarkista, er sögð og fjallað er um tengsl rússneska rithöfundarins Tolstoys við hugmyndir anarkisma. Þar að auki eru nokkrar ítarlegar umfjallanir um bækur frá bókasafni Andspyrnu.

Eins og áður biðjum við fólk um að sjá af nokkur hundruð krónum svo við getum átt fyrir prentkostnaði. Og af gamalli anarkistahefð fá fangar blaðið frítt. Blaðið verður til sölu á sömu stöðum og áður; Kaffi Hljómalind, Bóksölu Stúdenta, Smekkleysu, Ranimosk, 12 Tónum, Bókakaffinu á Selfossi og öðrum bókabúðum á landsbyggðinni. Stefnan er svo sett á að blaðið komist í stærri bókabúðir. Þar að auki verður blaðið til sölu í ferðabóksölu Andpsyrnu á Food Not Bombs á Lækjartorgi hvern laugardag, tónleikum, fyrirlestrum og öðrum uppákomum, og í gegnum netföngin svartursvanur@riseup.net og andspyrna@gmail.com. Fyrsta eintakið verður hér með aðgengilegt á tölvutæku formi á vefsíðunni www.andspyrna.org.

Meðfylgjandi þessu bréfi er forsíða Svansins og opnunarorð hans.

Svona byrjar Svartur Svanur:
Ruggum ekki bátnum, sökkvum honum!

Síðustu mánuði hefur tungumál stjórnmála á Íslandi breyst. Nú erum við víst öll sjómenn; stödd úti á stormasömum ólgusjó, mitt í björgunaraðgerð stjórnvalda. Heimskreppan, eðlilegur þáttur í ferli heimskapítalismans, er sögð vera stormur sem öllum að óvörum skall á hið varnarlausa Ísland og nú reyni á samtakamáttinn til að verða ekki undan. Andlega geldir lýðskrumarar alþingis tala um lognið á eftir storminum.

Útgangspunkturinn í þessari umræðu er sú fullyrðing að við séum öll á sama bátnum. Og hver eru þessi við? Íslenska þjóðin svokallaða, frá toppi til botns; ráðamenn, forstjórar, eigendur fyrirtækja, lögreglan, listamenn, læknar, kennarar, bændur, verkafólk, jafnvel hinir heimilislausu. Nú er okkur sagt að standa saman – stétt með stétt! a la Mussolini – á meðan rétt er úr kútnum. Á góðæristímum á hver að sjá um sig, en standa saman þegar kreppir að. Millistéttin sem áður hrækti á þá lægst settu grátbiður nú um samstöðu.

***

Þjóðir eru ímyndun! Ríki eru lygi! Landamæri færast til og eiga sjaldnast náttúrlegar forsendur. Og jafnvel þótt sú sé stundum raunin, til að mynda hér á landi, er samt sem áður nánast ekkert sem sameinar eina stétta annari. Því er haldið að okkur að fólk innan landamæra eigi sömu rætur, sameiginlega menningu, tungu og gildi. Þessu svokölluðu sameiginlegu gildum er svo hampað undir fyrirbærum á borð við þjóðfána og –söngva. En þetta er lygi. Það er engin ein menning, engin ein tunga eða ein gildi. Breiðholtið og Þingholtið eru ekki sami staðurinn. Það ríkir ekki sama menning í Peking og í kínversku sveitunum. Fjármálahverfið í London er annar staður en hverfi innflytjenda.

Það eina sem sameinar fólk innan landamæra eru landamærin sjálf og ráðandi öfl innan þeirra. Sú sameining er hvorki náttúruleg né umbeðin, heldur þvinguð með valdi, með ofbeldi.

Sá sem skúrar á spítala á það vissulega sameiginlegt með lækninum að halda stofnuninni gangandi, gera það að verkum að hægt sé að hlúa að fólki sem þess þarfnast. En sá sem skúrar sötrar ekki kamapavín í veislum læknastéttarinnar, keyrir ekki til vinnu á mengandi jeppa og flýgur ekki heimshorna á milli til þess að slappa af. Samfélagið metur starf þess sem skúrar ekki til jafns við starf læknisins, þó hinn síðarnefndi geti ómögulega sinnt starfi sínu ef ekki væri fyrir verk þess fyrrnefnda. Þessa staðreynd, þennan sannleik, má færa yfir á nær alla þætti samfélagsins.

***

Haldi einhver að það skipti nokkru máli hvers kyns stjórnmálaflokkar séu í ríkisstjórn, er um að gera að eyða þeirri goðsögn. Útkoma kosninga er alltaf sú sama: Ríkisstjórnin sigrar og valdafyrirkomulagið stendur í stað. Vinstri flokkarnir munu ekki vinna að raunverulegum jöfnuði því þeirra eigin tilvera og seta í valdstjórninni er forsenda stéttskiptingar, ójafnaðar og frelsisskerðingar. Núverandi vinstri stjórn hefur ákveðið að hver og einn einstaklingur innan landamæranna beri jafna ábyrgð á skuldum banka og ríkis. Og hægri stjórn hefði gert hið sama. Ef einhver trúði því að stétt með stétt þýddi eitthvað annað en að lágstéttirnar tækju á sig hausverk hástéttarinnar, er sá hinn sami bæði bildur og heimskur.

Nú þegar fjármálastofnarnir á borð við Alþjóða Gjaldeyrissjóðinn hafa tekið við stjórnartaumunum hér á landi, erum við – hin valdlausu – loksins bersýnilega komin í lið með systkinum okkar annars staðar í heiminum. Við stöndum við hlið þeirra þegar við ekki einungis verjumst ofbeldi yfirvalda heldur ráðumst gegn þeim, einbeitt og staðföst. Baráttan er háð á mismunandi vígvöllum með fjölbreyttum aðferðum og herkænsku, en er í grunnin sú sama; fyrir frelsi og jöfnuði, fyrir náttúrulega umhverfinu, fyrir lífi.

***

Við erum ekki öll á sama báti, það er alveg á kristaltæru. En ef það á með valdi að setja okkur til sjós með óvinum okkar, ef okkur er gefið það hlutverk að róa veisluborði valdstéttarinnar á betri og þægilegri stað, er eins gott að við nýtum tækifærið, smyglum með okkur nóg af sprengiefni og losum okkur endanlega við kúgara okkar og þá einsleitu menningu sem troðið er inn í höfuð hvers einstaklings frá fyrstu skráningu hans inn í kerfið.

Látum slagorð Sea Shepard samtakanna verða okkur innblástur að andófinu: Don’t rock the boat – Sink it! Sökkvum fjandans þjóðarskútunni fyrir fullt og allt.

9 Litlir Negrastrákar:
  1. Brandur segir, þann :

    Niður á mararbotn með dárafleyið!

    Lengi lifi Svarti Svanurinn!

  2. Nafn (Krafa) segir, þann :

    Virkilega flott blað, blaðaði í gegnum það og hlakka til að lesa það.

  3. Pétur K segir, þann :

    Mjög flott blað, var að fletta í gegn um það fyrr í kvöld!

  4. S.G segir, þann :

    flott.

  5. Magga segir, þann :

    Keypti fyrsta Svaninn og mun örugglega kaupa þennan. Hlakka til.

  6. Linsubaunir segir, þann :

    Þetta eintak rýnir dýpra í anarkisma og tenga hugmyndafræði. Til dæmis er þar að finna fjöguarra blaðsíðna viðtal um hústökur og vandaða grein um hugmynd að anarkísku hagkerfi.

  7. Kjaftfor segir, þann :

    Jess! Eitthvað almennilegt að lesa!

  8. Nafn (krafa) segir, þann :

    svaka spennt að lesa – síðasta blað var mj. gott.

  9. After the Greek Riots › # 129 | The fake jump of the diver (December’s revolt in Greece, eleven months on) segir, þann :

    [...] following article was written by members of the Occupied London collective for Svartur Svanur, Iceland’s first anarchist magazine – an Icelandic translation will appear soon in the [...]

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in