Aftöku barst eftirfarandi tilkynning:

Í morgun þegar starfsfólk Útlendingastofnunar mætti til vinnu kom það að lokuðum og læstum dyrum. Þar af leiðandi gat það ekki hafist handa við vinnu sína: Að leita leiða til að senda flóttafólk í fangabúðir á Grikklandi eða út í opin dauðann í þeirra heimalöndum.
Eftir langvarandi og árangurslítil mótmæli, greinaskrif og fundi með embættis- og ráðamönnum tók lítill hópur málin í eigin hendur, límdi aftur lása á hurðum Útlendingastofnunar, skvetti rauðri málningu á veggina og risti S.S. á glugga.
Hópurinn gerir sér grein fyrir því að aðgerðin var lítilvægleg, smá pot í bumbu tröllvaxinar stofnanar en vonar að hún verði fordæmi, innblástur fyrir aðra hópa sem eru þreyttir á að mótmæla fasismanum og vilja frekar brjóta hann niður með eigin afli.
Aðgerðahópurinn Pot í Bumbu
Aftaka tekur undir og fagnar! Húrra, húrra! Niður með fasismann!
Gott mál.
barattukvedjur fra paris
Í útlendingastofnun starfa aðeins rasistar.
Brennum hana naest.
Ég vonast eftir byltingu. Ég held að jarðvegurinn verði varla frjórri.
Word!