Það væri vitleysa að segja að feðraveldið risti djúpt í samfélaginu; samfélagið er byggt á feðraveldinu og allri þeirri kúgunarfléttu sem siðmenningin er! Mótmæli eða umbætur uppræta ekki það æxli úr yðrum okkar, heldur þarf algjöran viðsnúning og niðurbrot á þessari menningu.
Því svo sannarlega dugir ekki að útrýma öllum karlkyns manneskjum af jörðinni vegna þess að konur eru ámáta miklir kúgarar á sjálfa sig og aðra. Svo líklega myndi það enda með fjöldasjálfsmorðum og borgarastyrðjöldum (sem myndi reyndar losa jörðina við þetta vandamál sem mannskepnan með sína subbumenningu er!).
En allavega, þegar við gagnrýnum samfélagið, ríkið, stofnanir, fyrirtæki, hugmyndafræði eða einstaklinga þá er óvittlaust að líta aðeins sem snöggvast í eigin barm og athuga hvort að þetta sem okkur líki svo illa við annarstaðar, birtist á einhvern hátt í athöfnum okkar eða í okkar nánustu samskiptum eins og í pólitískum hópum, fjölskyldu, vinahópum, ástarsamböndum eða framkomu okkar við okkur sjálf.
Hér er myndband sem hópur anarkó-femínista í Bretlandi gerði til höfuðs kynjahyggju og karlrembu innan hreyfinga anarkista.
Greinar sem gagnrýna kynjahyggju og karlrembu má m.a. finna á Aföku:
Niðurbrot siðmenningarinnar
og Frelsið er þvottavél, Konan er maskína
og Kynjakvóti feðraveldisins; eitthvað nýtt til að braska með!
og Páfinn er valdníðslugöndull
og Nei þýðir nei, nauðgun er þjóðarsátt.
Systursíða Aftöku, hún Svartsokka birti nýlega grein um snyrtivöruiðnaðinn:
One flat stomach tip; You must obey!
Frábært myndband
Það er rétt að stigveldið byggist á patríarkí sem er fornara en grísku frumspekingarnir sem töldu konuna vera ófullkominn karlmann. Tvískiptinguna í hið opinbera svið sem er yfirráðasvæði og vettvangaur karlsins og einkasvið heimilisins sem er konunnar. Hugsunarháttur og heimsmyndir er Kristnin, Islam og annar ófögnuður erfði.
En við megum ekki gleyma því að kynin kúga sig sjálf með því að troða sér í þann hlutverka og hugsunar ramma sem að þeim er rétt eða fönguð í. Karlmenn eiga t.d. að hafa áhuga á boltaleikjum, keppnisrembu og vélknúnum ökutækjum m.a.
En síðast ekki síst eru kynin sett í handritsrullur kúgara hins ríkjandi valds. Það leiðir oft til þess að þau ósjálfrátt stýra, þvinga og hafa eftirlit með hvort öðru. Út frá þessi samhengi getur feminismi átt það til að sýnast grunnhygginn. (tek fram að sumir feministar virðast gera sér grein fyrir þessu)
Að sjá mannkynið sem einhverskonar tvo kynþætti en ekki kyn sbr. ,,Nigger of the world” kjaftæðið getur viðhaldið kúguninni sem við stundum að mestu sjálf.
Millistétta femínismi er oft á tíðum grunnhyggin hagsmunabarátta fyrir því að fá að vera með uppi á toppi valdapíramídans. En þrátt fyrir það má ekki afskrifa hugtakið né orðið – orðið er fínt til síns brúks enda er baráttan gegn feðraveldinu fyrst og fremst gegn karllægri menningu – það er bara beisik samstaða að bera nafnið feministi stollt/ur. Það var einn góður punktur sem myndbandið mynntist á, sem er að karlar eru líka þolendur og fórnarlömb feðraveldins – það er kannski ekki við hæfi að bera saman hver er meiri fórnarlamb, en það vill oft gerast að setja karla upp sem gerendur og konur sem þolendur í þessari umræðu (sem er sérstaklega skemmandi leið til að horfa á heiminn), punkturinn er að það er fyrst of fremst menningin sem er kúgandi – á kynbundinn hátt sem og annan. Niðurrif feðraveldins verður að fylgja hönd í hönd með niðurrifi kapítalisma og hverskonar birtingarmynda þess óréttlætis sem menning okkar byggir á og veldur. Einstaklingarnir sem viðhalda þessari menningu verða að fá tækifæri til að afneita henni og að sama skapi má kúgandi hegðun ekki vera liðin. Í okkar persónulegu samskiptum við hvort annað lærum við og kennum hvort öðru hvernig skuli koma fram, með vitað eða ekki – þess vegna verðum við að horfa með gagnrýnum augum á allt í kringum okkur, bæði okkur sjálf, okkar eigin samskipti sem og hegðun annarra.
Rífum niður feðraveldið, endum alla kúgun!
þetta myndband fær mig til að gubba aðeins minna upp í mig þegar ég heyri orðið feministi!! áfram þetta vídjó.