English 

...

Nánast allir – allt frá kapítalismum til meginstraums umhverfissinna og anarkista – mæla nú með gífurlegri uppbyggingju öðruvísi iðnvæddri skipulagsgerð sem á að koma í stað hins mjög mengandi iðnaðs dagsins í dag, til að leysa vandamál loftslagsbreytinga. Þetta fólk segir að við þurfum meiri vindorku, meiri sólarorku og haforku, nýja rafmagnsbíla og orkusparandi heimilisáhöld. Ef við gefum okkur að gagnrýni á kapítalisma sé óalgeng þessa dagana, er gagnrýni á öðruvísi iðnhyggju enn sjaldgæfari. Hér eru nokkrar rökfærslur sem yfirleitt er haldið utan umræðunnar.

1. Bygging nýrrar skipulagsgerðar af slíkri stærðargráðu kemur til með að krefjast gífurlegs magns orku og hráefna, sem einungis er mögulegt að framleiða með noktun þeirrar grunngerðar sem nú er til staðar og er knúin áfram af jarðefnaeldsneyti. Það myndi óhjákvæmilega leiða af sér enn auknari útblástur gróðurhúsalofttegunda, nú þegar við þurfum að minnka útblásturinn eins fljótt og auðið er.

2. Framleiðsla þessarar nýju grunngerðar mun krefjast gríðarstórs magns hráefna; langfæst þeirra eru endurnýjanleg og vinnsla þeirra er gífurlega skaðandi umhverfinu. Öðruvísi iðnvædd tækni á borð við vindmyllur, sólarorku-panila og rafmagnsbíla þarfnast mikils magns sjaldgæfra jarðmálma, en birgðir af þeim fara þegar minnkandi sökum uppsveiflu nútíma iðnaðar. Þar að auki á eftir að koma í ljós hvort nægt hráefni sé til staðar til að framleiða nóg af vinmyllum og sólarpanilum sem geta haldið uppi orkuneyslu dagsins dag eða hvers konar verulegri iðnvæddri framleiðslu yfir höfuð.

3. Hin nýja bylgja grænnar framleiðslu setur mikla pressu á að nýjar námur séu opnaðar og að nýjar verksmiðjur reistar. Þessar nýju námur og aðrar leiðir sem notaðar eru til hráefnisvinnslu munu óhjákvæmilega rústa samfélögum þeirra svæða sem umlykja auðlindirnar. Meira að segja Jana Hartline, umhverfis- og samskiptastjóri Toyota viðurkennir: ,,Námugröftur, óháð því í hvaða formi og með hvaða leiðum hann fer fram, er aldrei umhverfisvænt ferli. Það er eðli skepnunnar.”

4. Ef iðnvædd framleiðsla ætti að vera vistfræðilega sjálfbær þyrfti hún að vera lokuð lykkja þegar kemur að óendurnýjanlegri orku. Með öðrum orðum: 100% endurvinnanleg. Það er ómögulegt, jafnvel með allri tækni dagsins í dag.

5. Spurning sem and-yfirvaldssinnar ættu ekki að vanmeta, er hvort mögulegt sé að viðhalda stórtækum samvinnurekstri og ítarlegri sérþekkingarskiptingu sem hvers kyns iðnvædd framleiðsla krefst, án þess að falla inn í stigskipt skipulagskerfi. Þetta er ekki léttvægt: skipulag CNT, anarkísku verkalýðshreyfingarinnar sem stjórnaði stórum hluta iðnvæddrar framleiðslu á sumum hlutum Spánar á meðan borgarastyrjöldinni stóð, var byggð upp með í það minnsta sex þrepum stigveldis.

6. Það tekur tíma að byggja nýja skipulagsgrunngerð og þann tíma höfum við ekki. Það eru skiptar skoðanir á því hvort það sé yfir höfuð mögulegt að hægt sé að byggja upp nokkurs konar öðruvísi og græna grunngerð, nógu fljótt til að geta þjónað hlutverki einhvers konar staðgengils núverandi grunngerðar.

Allt þetta þýðir að ef við viljum stöðva hnattræna hlýnun jarðarinnar verðum við að fara að spyrja okkur á gagnrýninn hátt út í traust okkar á iðnvædda framleiðslu og skipulagsgerð. Við verðum að setja vindorku, sólarorku og allar aðrar iðnvæddar lausnir á lista falskra lausna, við hlið lífræns eldsneytis, kjarnorku og svokallaðri hreinni kolatækni. Eins fljótt og við getum verðum við að gera það eina sem getur mögulega sem getur komið í veg fyrir eyðileggingu þeirra lífkerfa sem halda okkur á lífi: minnka iðnvædda neyslu og framleiðslu okkar að þminnstu mögulegu mörkum.

— — —

Þessi texti birtist upphaflega á ensku í nýútkomnu tímariti, Dealing with Destraction – Confronting Green Capitalism in Copenhagen and Beyond, sem kom út í tilefni andófsins gegn Cop15 ráðstefnunnar í Kaupmannahöfn. Tímaritið fá finna á tölvutæku formi hér.

8 Litlir Negrastrákar:
  1. Kommúnisti segir, þann :

    Þessi grein er ískyggilega primitivísk.

  2. Heiðrún segir, þann :

    Hvað áttu við Kommúnisti?

    Hvað meinar þú með ,,ískyggilega”?

  3. Siggi pönk segir, þann :

    Það sem háir allri pólitískri umræðu á íslandi og um allan heim er árátta fólks til flokkadrátta.

    “Kommúnisti” hefur einhverntímann ákveðið að primitíviskar hugmyndir féllu ekki undir þann flokk sem hann ákvað að tilheyra og því a) getur hann/hún ekki kynnt sér neinar hugmyndir án þess að setja þær í flokk og b) vill hann/hún mögulega ekki hugsa neitt lengra eða vinna með neinum sem hann/hún er búin að setja í flokk.

    Reyni sjálfur að þroskast út úr þessu en nú er ég, útfrá einni setningu, búinn að setja “kommúnista” í flokk og ákvarða skoðanir hans ….

  4. Birgitta segir, þann :

    sammála þessari grein – fyrst verðum við að gera okkur almennilega grein fyrir að það er bara til ein jörð og að þessi neysluhyggja sem öllu tröllríður er það fyrsta sem þarf að stoppa. nú er búið að setja þetta upp í með eða á móti því að hlýnum jarðar sé af mannavöldum. í mínum huga skiptir það engu máli, það sem skiptir höfuð máli er að með áframhaldandi neyslu, eyðingu og skyndilausnum þá mun lífkerfið sem heldur í okkur lífinu sem og allra hinna dýranna bresta.

  5. aftaka segir, þann :

    Hins svokallaða íslenska umhverfishreyfing hefur verið afskaplega treg til að ræða mál sín út frá djúpri og krítískri hugmyndafræði.

    Til að mynda virðist nánast engin umræða hafa farið fram innan hennar um hlut kapítalisma í eyðileggingu jarðarinnar, og tengsla and-kapítalískrar baráttu við umhverfisbaráttuna.

    Hvað þá tengsl and-siðmenningar hugmyndafræði og andófs við náttúruvernd.

    Það kallast afneitun.

  6. Bruni segir, þann :

    CNT var byggt upp á margvíslegan háyt. Bæði opinberan og nokkuð samþykktar staðbundið. Ekki er hægt að fullyrða út frá opinberum samþykktum allsherjaþinga um grófmótandi stefnur og sýnir er annaðhvort áttu að gefa tóninn eða vera málamiðlunargrunnur til að koma sér saman um bæði praktísk og útópísk líkan.

  7. Þorri Almennings segir, þann :

    Green Capitalism. Kommon. Oj bara.

  8. Þorri Almennings segir, þann :

    Kommúnistar! Sættist við að það þarf að rífa niður og upp með rótum.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in