English 

Síðustu vikur hafa miklar gleðifréttir borist frá kjarnsteini fasismans, Ítalíu. Fyrr í desember tók heiðvirð og einstaklega heilbrigð manneskja sig til og kastaði líkani af dómkirkjunni í Mílanó í andlit Silvio Berlusconi, forsætisráðherra landsins. Og nú á aðfangadegi kristinna jóla, tók heilbrigð skynsemi völdin á ný þegar mannskepna ein stökk yfir öryggisgrindverk og réðst á páfagöndulinn Benedikt XVI!

Aftaka elskar fólk sem sýnir með gjörðum sínum að valdið er ekki heilagt og að öllum heilbrigðum mannskepnum beri að ráðast á það vilji þær öðlast vott af frelsi í þessum heimi. Það er hins vegar venja yfirvalda og stofnana þeirra að stimpla valdleysingja sem ráðast gegn valdinu með beinum hætti, sem geðveika; taka viðkomandi úr umferð og hýsa hann jafnvel á þar til gerðum stofnunum í lengri eða skemmri tíma. Þetta er viss herkænska þar sem skilaboðin til hins almenna valdleysingja (almennings) eru að það sé afbrigðilegt að efast um eða ráðast á hið alvitra og alltumlykjandi vald. Á Íslandi má í þessi samhengi nefna Helga Hóseason sem gert var að gangast undir geðrannsókn vegna baráttu sinni gegn ofbeldi kirkjunnar og yfirvaldsins. Konan sem réðst á páfann á aðfangadag var strax færð inn á geðspítala og skilaboð send út um að hún væri vanheil á geði og því bæri ekki að taka árásina alvarlega – andóf sé geðveila!

En svo sannarlega á páfinn skilið allar þær vægðarlausustu árásir sem hægt er að hugsa sér. Og ekki bara hann sem fígúra heldur allt kirkjubáknið eins og það leggur sig, sama hvaða nafni það heitir. Þessi lítilvæga en þó hugrakka árás var vel tímasett þar sem nú halda kristlingar upp á afmæli jésúbarnsins og þeirra helgiskvabbi er klínt og makað upp á alla kanta samfélagsins. Því ber að vanvirða, skemma og rústa öllum þeim niðursoðna kirkjuboðskap sem á vegi okkar verður.

Picture 137

Picture 123

Picture 143

Picture 156

Í fyrra fjölluðum við einnig um páfann eftir hátíðlegt ávarp hans þar sem hann ældi út úr sér ,,að jafn mikilvægt sé að bjarga mannkyninu frá sam- og tvíkynhneigð og að bjarga regnskógunum frá eyðileggingu”. Bæði væru mikilvægur þáttur ,,í því að verja sköpun Guðs“.

Picture 95

7 Litlir Negrastrákar:
  1. Helvíti segir, þann :

    Mikið er nú sorglegt að hetjan hafi ekki haft skotvopn á sér. Þá hefði hún getað verið í meiri fjarlægð frá valdníðslugöndlinum og jafnvel komist upp með árásina.

    Ansans…

  2. lalli segir, þann :

    Ekki finnst mér nú líklegt að svona andóf skili árangri. Burt séð frá því hvað þessir menn hafa gert eða ekki gert þá gengur það aldrei vel í fólk þegar ráðist er á gamalmenni í þeim tilgangi að meiða þau. Svoleiðis aðgerðir hafa oft þveröfug áhrif og eru til þess eins fallnar að fólk fái samúð með viðkomandi. Það er bara eðlislæg tilfinning heilbrigðs fólks að fá samúð með fórnarlömbum ofbeldis því sá sem ekki finnur til þegar aðrir eru beittir ofbeldi er sjálfhverfur og/eða siðblindur Hafa vinsældir Belluskónís ekki aukist eftir að hann fékk styttuna í smettið?
    Ef fólk finnur hjá sér þörf í að kasta hlutum í pakkið þá mæli ég með rjómatertum. Ég held að Ítalir hefðu hlegið sig máttlausa ef kallinn hefði fengið slíka sendingu í fésið og litið út eins og útbíað smábarn í stað þess að vera fórnarlamb líkamsárásar.
    Svo er önnur andófs-aðferð sem skilar mun betri árangri en allar skeytasendingar. Það er tungan. Sá sem veit fyrir hverju hann er að berjast og ekki síður: sá sem veit af hverju hann er að berjast fyrir tiltekinn málstað er töluvert líklegri til að ná fram markmiðum sínum ef hann þekkir málstað sinn og óvinarins. Lang flestar siðbreytingar hafa orðið til vegna orða en ekki ofbeldis. Væru 80þúsund íslendingar að mæta í gay pride ef Hörður Torfa og aðrir hommar hefðu brotið rúður og lamið fólk fyrir 30 árum? Ég held ekki.
    Sjáum bara hvað aðferðafræði Helga Hósea hefur gert fyrir trúleysingja í landinu. Ef helgi hefði beitt rökum og orðaræðu í baráttu sinni í stað skyrs og tjöru þá væri vantrú.is ekki til í dag. En Helgi beitti aðferðum sem ganga ekki vel í fólk og eflaust er fjöldinn allur af trúleysingjum sem forðast að taka þátt í umræðunni til að vera ekki bendlaðir við subbulegan klikkaðing. Sú ímynd af Helga, að hann hafi verið subbulegur klikkaðingur, er ekki eitthvað sem fjölmiðlar eða ríkið bjó til. Það var hegðun hans sjálfs sem skapaði þá ímynd.
    En nóg um Helga.
    Minn uppáhalds andófsmaður gegn kirkjunni, valdastéttinni og auðvaldinu heitir Jesú. Hann var snillingur í því breyta hugarfari fólks til hinna ýmsu málefna. Og þó hann hafi verið drepinn fyrir sirka 2000 árum þá er ennþá verið að tala um hann og orð hans eru ennþá að breyta fólki.
    Það sem Jesú gerði var að tala við fólkið. Hann kom sér bara fyrir á hæðum og hólum, bátum og götum og boðaði sína hugmyndafræði beint til fólksins. Og hann gerði meira en það, hann sýndi það í verki að hann trúði virkilega á það sem hann var að segja. Þannig heyrði fólkið ekki eingöngu boðskapinn heldur sá verkin sem fylgdu honum. Jesú var friðarsinni þó hann hafi a.m.k einu sinni snappað á víxlarana í musterinu og rekið þá út með beinum aðgerðum og borgaralegri óhlíðni. En það er erfitt að efast um það að hann elskaði friðinn og var andsnúinn ofbeldi. Orðin voru hans vopn og þó hann hafi verið drepin vegna orða sinna þá vann hann samt. Sigurinn var fólgin í því að lifa eins og hann boðaði, þrátt fyrir að á móti blési.

    Megi sem flestir róttæklingar koma skilaboðum sínum áleiðis með aðferðum Jesúsar því einungis þannig munu þeir sigra að lokum.
    Amen

  3. lalli segir, þann :

    Það er vert að taka það fram að þegar ég tala um andóf Jesúsar gegn kirkjunni þá er ég að sjálfsögðu að tala um kirkju í merkingunni valdastofnum “heilagrar” yfirstéttar. Hann hafði ekkert á móti kirkju í merkingunni: samfélag trúaðra þar sem presturinn er þjónn samfélagsins en ekki drottnari… svo það sé á hreinu.

  4. Jon Karl segir, þann :

    Húfan hans Páfa er skemmtileg, þorskhaus á hvolfi. Við verðum að viðurkenna að symbólisminn hjá kirkjunni er töff.

  5. Trespassers W segir, þann :

    Þótt að árásin hefði getað verið hnitmiðaðari þá sýnir þetta þó allavega að páfinn er ekki ósnertanlegur. Mér svimar af hatri þegar ég hugsa um hvað páfagaukurinn sagði sambandi við útrýmingar áætlanirnarnar í Úganda.

  6. lalli segir, þann :

    Það þarf nú enga árás á manninn til að vita að hann er ekki ósnertanlegur. Þetta er bara maður eins og allir aðrir menn, snertanlegur, breyskur og dauðlegur.

  7. spritti segir, þann :

    Já Lalli, hann var meiraseija nasisiti einu sinni.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in