Í tilefni áramóta er ekki annað við hæfi en að rifja aðeins upp há- og lágpunkta ársins sem er að líða.
Tækifærissinni ársins: smáBorgarahreyfingin, fyrir að eigna sér uppreisn vetrarins 2008, þykjast tala máli heillrar óþjóðar og ætla sér að reyna að verða eitthvað annað en steingeldur stjórnmálaflokkur.
Skemmdarverk ársins: Appelsínugula hreyfingin, fyrir samstöðu með lögreglunni og algjört niðurbrot á þeim votti af samstöðu sem hafði myndast meðal fólks í janúaruppþotunum.
Hræsni ársins: Mótmælafundur appelsínugulu hreyfingarinnar á Lækjartorgi í janúar sem haldinn var til höfuðs beitingu ofbeldis í mótmælaskyni. Á endanum voru flestir fundarmenn löggur og flokksbundnir Sjálfstæðismenn að viðbættum presti og skáta.
Stéttskipting ársins: Appelsínugula hreyfingin, sem veit hverjir mega mótmæla og hverjir ekki – og hvernig það skal gera.
Liggjandi maður ársins: Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Getur fólk ekki bara látið hann vera?
Lýðræðisfífl ársins: Steingrímur Joð Sigfússon, forsætisráðherra og hans fólk, fyrir yfirmáta skemmtilega afhjúpun á eigin valdafíkn og eðli yfirvalda burtséð frá línuritinu vinstri-til-hægri.
Verstu taugar ársins: Engeyjarfíflið Bjarni Benediktsson, sem grét yfir fréttaflutningi DV af málum sem honum tengdust. Samkvæmt DV sagði Bjarni að fréttaflutningurinn „hefði leitt til þess að anarkistar sætu um hús hans og vildu valda honum tjóni.“
Óvæntasta sameining ársins: Sigur Rós og Framsóknarflokkurinn, sameinuð af þjóðrembunni.
Björn Bjarnason ársins: Ragna Árnadóttir, dóms- og mannréttindabrotaráðherra.
Eftirlaunaþegi ársins: Björn okkar Bjarnason!
Foringi ársins: Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG.
Samsæriskenning ársins: Sögurnar um Álfheiði Ingadóttur, baðandi út höndunum og í beinu símasambandi við anarkistana.
Afþreying ársins: 19 ára strákur hellti yfir sig bensíni og kveikti í sér við verslun Krónunnar á Selfossi. Útskýring stráksa var að það væri bara svo leiðinlegt á Selfossi.
Tvífarar ársins: Michael Jackson og Ísland, lítil grey sem risu snöggt og hátt en dóu langt fyrir aldur fram.
Kór ársins: Fjöldi fólks púaði á Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ á Austurvelli þann 1. maí. Meðal þess sem var sungið var: „Svikari, svikari, stéttsvikari!“ Á sama tíma voru kröftugar óeiðir í Evrópu, til að mynda í Þýskalandi, en hér á landi þótti þetta þó telja til atburða þar sem kurteisi virðist vera jafn óalgeng og óhlýðni er.
Sýndarraunveruleiki ársins: Kallað var til þess að fólk fjölmennti í Fíladelfíu til þess að hneyksla pakkið með allsherjar kynvillu. Ákallið var á Facebook og fólkið sem stóð að því fór aldrei neitt lengra en Facebook en virtust ekki hafa fattað það.
Par ársins: Aron Pálmi og Geiri á Goldfinger.
Altarisdrengur ársins: Geiri á Goldfinger, sem þjónaði fyrir altari í messu Gunnars í Krossinum, í detox-meðferð Jónínu Ben í Póllandi.
Maður ársins: Maðurinn sem Geiri á Goldfinger, Gunnar í Krossinum, Friðrik Ómar og Árni Johnsen losnuðu við hjá Jónínu Ben. „Þessi hópur skildi eftir alveg heila persónu í klóakinu í Póllandi,“ sagði Gunnar við DV.
Áhugamannaleikhús ársins: Sérsveit Ríkislögreglustjóra, fyrir fjölmargar, vel uppsettar og trúverðugar sýningar.
Niðurlæging ársins: Sérsveit Ríkislögreglustjóra, sem var haldið frá tökuhúsinu við Vatnsstíg í þrjá klukkutíma… með paprikum og ananas.
Afrek ársins: Níu særðir lögreglumenn.
Léleg vinnubrögð ársins: Aðeins níu særðir lögreglumenn.
Nýliði ársins: Illgresi, hópurinn sem skemmdi uppskeru heils árs hjá ORF-Líftækni, fyrirtækis sem fiktar með erfðabreytt matvæli.
Svekkelsi ársins: ORF-Líftækni… heils árs vinna ónýt.
Grátur ársins: Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaráls, í forsíðuviðtali við Viðskiptablaðið, þar sem hann sagði að það væri ekki „gaman að mæta í boð sem manni er ekki boðið í“.
Grátkór ársins: Samtök Atvinnulífsins, Samtök Iðnaðarins og fleiri hagsmunaaðilar ál- og orkuframkvæmda, sem virðast ekki hafa náð værum svefni yfir stöðugleikasáttmálanum svokallaða.
Skyrslettur ársins: Þetta árið er úr nógu að velja og verðlaunin í ár koma í hlut svartklætt og eftirlýst heiðursfólk sem skvetti grænu skyri á grænþvott íslenskra orkufyrirtækja sem höfðu komið sér þæginlega fyrir á Háskólatorgi Háskóla Íslands. Hinir svokölluðu Grænu Dagar urðu svo sannarlega grænir.
Heimska ársins: Þúsundir skráðu sig á Facebook-síðu til stuðnings því að stytta yrði reist á horninu sem Helgi Hóseason stóð löngu stundum á og mótmæli yfirráðum kirkjunnar á lífum fólks. Í stað þess að taka upp baráttu Helga, í það minnsta með því að skrá sig úr Óþjóðkirkjunni, meldaði fólk sig bara á Facebook og lét þar við sitja, eins og Helgi hafi helst barist fyrir því að fá reista af sér styttu.
Lélegustu mótmæli ársins: Boðað var til mótmæla við Hótel Nordica þar sem ráðstefna á vegum Nató fór fram. Flestir viðstaddra yfirgáfu svæðið þegar löggan tók upp vopnin, drifu sig heim og horfðu á sig í tíu fréttum Ríkissjónvarpsins. Stefán Pálsson, formaður Samtaka Herstöðvarandstæðinga sagði fjölmiðlum að mótmælin hefðu gengið vel en akkúrat þá sömu stund var lögreglan upptekin við að handtaka fólk, berja og úða eiturgasi í augu þess.
Bjartasta vonin: Krakkarnir köstuðu mólótov-kokteilum í lögreglustöðina á Borgarnesi.
Hysteríur ársins: Nýja Ísland, krafan um stjórnlagaþing og Eva Joly.
Lengsta og dramatískasta prósaljóðið um það að vera blankur: Guð blessi Ísland eftir Helga Felixson.
Pósa ársins: Hallgrímur Helgason, fyrir allar sínar pósur fyrir framan myndavélar fjölmiðla í janúar. Auðvitað voru fleiri í svipuðum gír en Hallgrímur gekk lengst og hlýtur því titilinn.
Hrós ársins: Reykjavíkurbréf ritstjórnar Morgunblaðsins sunnudaginn 16. ágúst, sem fjallaði um aukið ofbeldi og skemmdarverk í andófi hér á landi. Ritstjórnin sagði þá þróun eiga rætur sínar að rekja til samtakanna Saving Iceland.
Naívismi ársins: Allir þeir sem hneyksluðust á því að Barack Obama fengi friðarverðlaun Nóbels en veltu því ekki fyrir sér hvað Nóbelsverðlaunin raunverulega eru, hverjir hafa fengið þau hingað til og hvað tilvist þeirra og veiting er fáránleg.
Góðu löggur ársins: All Cops Are Bastards! All Cops Are Targets!
Feluleikur ársins: Ung Vinstri Græn, fyrir ítrekaðar tilraunir til að breiða yfir sannleikan um sig: þau eru ungliðahreyfinga stjórnmálaflokks – ekkert annað!
Óskiljanlegasta bull ársins: Vinstri Græna og feminíska vefsíðan Smugan birti umfjöllun um tónleika rokkkórsins Fjallabræðra, sem að eigin sögn syngja fyrst og fremst með pungnum. Í umfjöllun síðunnar sagði að kórnum hefði tekist að syngja Ísland er land þitt! án þess að áheyrendur finndu til þjóðrembu. Við bendum lesendum Aftöku á texta lagsins hér.
Þöggun ársins: Flóttamaðurinn Henry Turay hefur verið í felum síðan þann 18. nóvember sl. Fjölmiðlar hafa enn ekki fjallað um mál hans. Hér má lesa yfirlýsingu þessa manns sem hlýtur að eiga Íslandsmetið í felum.
Framapot ársins: Bryndís Schram, Jón Baldvin Hannibalsdóttir og dóttir þeirra Kolfinna, fyrir margítrekuð matarboð á heimilum sínum þar sem jafn mörgum blaðaljósmyndurum og flóttamönnum er boðið.
Misskilningur ársins: Hundruðir manna mættu á fyrirlestur hins ítalska Antonio Negri en margir náðu ekki nokkurri átt. En er beðið eftir margboðaðri „endurkomu róttækninnar“… nema við séum að missa af einhverjum róttækum breytingum á innahúss pólitík Háskólans.
Mistök ársins: Ákall um að taka átakafrí helgina 23.-25. janúar. Anarkistar, og þ.m.t. Aftaka, eru meðal þeirra sem skamma ber fyrir ákallið, svona rétt þegar löggan var að missa tökin. Aftöku snérist þó hugur stuttu seinna og kallaði eftir helgi óeirða… sem ekkert varð úr.
Herferð ársins: Heimsóknir lögreglunnar í félagsmiðstöðvar unglinga í Kópavogi, þar sem varað var við hættulegu anarkistunum sem borga ekki skatta, plata unglinga til að grýta lögguna og gera ekki neitt. Að borga ekki skatta er ekki að gera ekki neitt!
Tilvitnun ársins: “We are only broke on money”, Gabríela Friðriksdóttir í áramótaútgáfu Grapvine. Þegar upp er staðið er það einmitt öfugt: “We are broke on everything but money.”
Sjálfsdýrkun ársins: Björk Guðmundsdóttir steig niður af fjallstoppnum í Júlí til kynningar á nýrri framleiðslu fyrirtækisins Björk hf. og veitti dýrkeipt viðtöl við fjölmiðla landsins, t.d. Grapevine. Þar tók hún það fram að hún væri stigin niður í bili og hætt að bjarga heiminum. Nóg væri nú komið af því.
Firring ársins: „Myndlistarsýning“ Friðriks Þórs Friðrikssonar og Lars von Trier í Hafnarhúsinu. Kínverskir verkamenn máluðu stillur úr kvikmyndum þeirra á stóra striga og þeir skrifuðu svo undir. Ergelsið Ari Alexaner Ergis gerði svo kynningarmyndband fyrir sýninguna, sérlega innblásinn af Leni Riefenstahl.
Hobbí ársins: Viðtalsþáttur Björns okkar Bjarnasonar á sjónvarpsstöðinni ÍNN.
Sprell ársins: Borgarafundur um mótmæli í Iðnó í byrjun árs. Hvar annars staðar í heiminum sæti grímklæddur anarkisti við hlið lögreglustjóra og flytti þessa ræðu við mikinn fögnuð viðstaddra?
Lýðskrum ársins: Þjóðfundurinn.
Athafnamaður ársins: Maðurinn sem byrjaði daginn snemma þann 17. júní, hakkaði hús sitt á Álftanesi – sem reyndar var þá þegar í eigu bankans – í spað og fleygði bílnum sínum í skurð, beint fyrir framan kvikmyndalið sem hann hafði kallað á staðinn.
Sýruárás ársins: Rannveig Rist forstjóri Alcan fékk lakkdropa í andlitið og lét fjölmiðla vita – tveimur mánuðum seinna.
Krabbamein ársins: Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, en hið síðarnefnda á einmitt afmæli í dag.
Smáborgari ársins: Leikarinn Víðir Guðmundsson sem skrifaði grein í Fréttablaðið þar sem hann skammaði Skap Ofsa hópinn fyrir að skvetta málningu á eigur auðmanna að næturlagi. Skap Ofsi væri svo vondur því aðgerðir hans væru einungis til þess fallnar að valda almenningi enn frekari skaða. Greinin er hér.
Vonbrigði ársins: Viðtal við Skap Ofsa í Reykjavík Grapevine.
Frelsisskerðing ársins: Fyrsta handtaka vegna bloggskommenta hér á landi fór fram í janúar þegar maður var handtekinn fyrir að hóta því m.a. að StóriðjuÖssur fengi ekki að lifa til vors. Textinn er vægast sagt frábær og má finna í heild sinni hér.
Nauðgun ársins: Búsáhaldabyltingin, þ.e. notkun seinna orðsins.
Auðveldasta afhjúpun ársins: Stöð 2 sakaði mótmælendur um gífurlegan fjárhagslegan skaða sökum eyðileggingar á tækjabúnaði þegar Kryddsíldin var tekin úr sambandi. Þegar ljósmyndari Dagblaðsins Nei. bað um að fá að mynda eyðilagða tækjabúnaðinn var sagan dregin til baka og tilkynnt að skaðinn væri fyrst og fremst sá að Rio-Tinto Alcan hefði hætt við að tæma vasaklinkið og henda í Stöð 2.
Fréttaskýring ársins: Uppruni Útlendingastofnunnar eftir Hauk Má Helgason á Nei.inu. Orð í tíma töluð.
Anarkísk greining ársins á eðli allra yfirvalda: Vinstri stjórnin.
Og að lokum
Bannorð ársins 2010: Þjóðarskúta, ólgusjór, nýja Ísland, þjóð, skjaldborg, IceSave, stéttasamstaða.
Og eitt erlent sem verður að fá að fljóta með:
Geðprýði ársins: Árásirnar á Berlusconi og Páfann. Aðgerðir hljóma hærra en orð!
Flottasti áramótannállinn!!
ÁramótaAnall ársins ;)
Mjög góð samantekt, bætist við þegar nennist. Vonandi verður þessi tímamótatilbúningur sem ný ár eru sem þreytandi mannasetningar. Vel blóðug, uppgjörandi og uppörvandi, það þarf afgerandi og um leið aðkallandi táknrænar aðgerðir svo við hættum að rugga sjálfum okkur í lýðræðismollu vinsælustu blekkinganna.
Yndislegt….megum við öll eiga óþekktar og skemmdarverkaár mikið framundan…….brennum etta allt bara
Rugluðu samt saman Drullutussu ársins og foringja ársins. Álfheiður var drullutussan, foringinn var Ögmundur, eini stjórnmálamaðurinn á Íslandi sem fer eftir sannfæringu sinni
skemmtilegt.
“Hræsni ársins: Mótmælafundur appelsínugulu hreyfingarinnar á Lækjartorgi í janúar sem haldinn var til höfuðs beitingu ofbeldis í mótmælaskyni. Á endanum voru flestir fundarmenn löggur og flokksbundnir Sjálfstæðismenn að viðbættum presti og skáta.”
Þetta minnir mig nú bara á hugmyndir sumra hægri manna að ALLIR mótmælendur síðasta vetrar kæmu úr röðum vinstri grænna.
Svona alhæfingar eru bara rugl.
Það var allskonar fólk sem studdi friðsamar aðgerðir…líka anarkistar.
Það sem aftaka verður að passa sig á er að einangrast ekki frá ÖLLUM. Það eru ekki allir anarkistar sem vilja brenna og brjóta…. en þeir eru þá væntanlega ekki “alvöru” anarkistar…!?!
Eins er sá heimskur sem heldur að einungis anarkistar hafi hulið andlit sín. Ég þekki flokksbundna sjálfstæðismenn sem mættu með lambhúshettur í mótmælin af ótta við að þekkjast og verða þannig útundan í flokknum.
Sannleikurinn er sá að það var barasta ENGIN samstaða um það að brjóta og meiða í þessum mótmælum. Lang flestir vildu bara pakkið burt.
Og ef þið trúið mér ekki þá skuluð þið bara spjalla við þá aðgerðarsinna sem voru að allan veturinn í hinum ýmsu aðgerðum (hef grun um að aftaka hafi þar verið mitt á meðal)
Manstu, aftaka, eftir einu reglunum sem við unnum eftir í vetur?
Ég man það:
HEIMILIÐ ER HEILAGT
EKKI MEIÐA NEINN
Þetta voru gildi sem lang flestir anarkistar fylgdu.
En dálæti aftöku á ofbeldi er ekki anarkismi.
Fasistar beita líka ofbeldi….og nasistar…og kommúnistar….og kapítalistar…osfr osfr.
Anarkismi er eitthvað miklu meira en ofbeldi gegn öðru fólki.
Þrátt fyrir að fólk hafi snúist gegn ofbeldinu þá stóðum við nú SAMT og trommuðum, flautuðum og öskruðum ríkisstjórnina burt.
Það var kúl, ekki ofbeldið.
þið eruð svo miklir hræsnarar á aftöku að það er engu líkt, þið þyggið væntanlega atvinnuleysisbætur af ríkinu og hafið hlotið menntun frá hinu opinbera og verið samstarfsfús þar sem lítið ef ekki neitt er um málvillur og stafsetningarvillur og svo verslið þið greinilega netaðgang af einhverju af þessum arðræningjafyrirtæki sem selur slíka þjónustu.
Af hverju eruð þið ekki að mótmæla núna eins og gert var fyrir tæpu ári síðan, ástandið er lítið skárra en þá(gæti kannski verið fullkalt fyrir ykkur reyndar).
Innst inni held ég að margir ykkar séu vinstri grænir og að ykkur hafi verið stjórnað af vinstri grænum í þessari búsárhaldarbyltingu.
byltingin étur gjarnan börnin sín og það er eins með ykkur, þegar þið hafið lokið ykkar námi sem ég geri ráð fyrir að það séuð einhver í þá munuð þið komast í einhverjar stöður sem munu gefa af sér pening og þá mun þessi hugsjón ykkar fara rakleitt á haugana.
Sammála Lalla, hún er óhugnanleg þessi ofbeldisdýrkun sem reglulega sprettur upp á Aftöku.
kannski ekk sammala ad allar löggur seu basterds en margir eru drullusokkar ekki spörning.. eg elska anarskista þid erud frabærir =)
þó ég sé mjög svo sammála mörgu sem þið eruð að tala um í þessu annáli þá verð ég að segja að mér finnst það ótrúlega sorglegt að þið séuð að hrósa ykkur af því að hafa sært 9 manns. hafðið aldrei stoppað og pælt í því að þetta er fólk alveg eins og þið ? fólk sem á fjjölskyldu og hús og bíla og allt á lánum upp í topp alveg eins og þið. sumir sem hefðu kannski mikið frekar vilja vera sjálfir að mótmæla heldur en að verja þessi helvíti sem sátu á sínu akfeitu rassgötum í hlýjunni inni á þingi og gerðu ekki rassgat.
að sjálfsögðu geri ég mér fulla grein fyrir því að það eru til hörmulegir lögreglumenn sem kannski nýttu sér ástandið í mótmælunum og voru heldur harkalegri en þörf var á en meirihlutinn af þeim er gott fólk sem þarf að fást við meira álag og meira ógeð heldur en mörg af ykkur getið eða viljið ímynda ykkur.
Hvert er nú hið raunverulega ofbeldi?
Að nokkrir einkaleyfishafar ofbeldis séu réttilega grýttir eftir markvissa valdníðsu? Eða að sitja heima aðgerðalaus; dópa sig upp af þægindum neyslusamfélagsins og horfa upp á þessa menningu sem við búum við rústa plánetunni og öllu lífi á henni?
Passífistar horfa alltaf framhjá ofbeldi kerfisins!
En það er víst bara svo þæginlegt að þykjast ekki sjá þetta ofbeldi og tönglast stanslaust á því að andóf eigi að vera friðsamt. Þeir sem fordæma ofbeldi gegn lögreglunni hafa fæstir nokkurn tíma lent í beinu líkamlegu ofbeldi af hennar hálfu.
Djöfull eru þið öll rugluð. Ef þetta væri eitthvað annað land en Ísland myndi lögreglan gasa ykkur, berja ykkur og fangelsa ykkur. Fyrir utan það að kæra ykkur fyrir ofbeldi gegn yfirvöldum. Fáið ykkur vinnu og hættið þessu unglinga-væli ykkar sem einkennist af silfurskeiðaviðhorfi og bara hreint út fokking aumingjaskap
http://www.dv.is/frettir/2010/1/4/segja-afrek-arsins-vera-niu-saerda-logreglumenn/
Ágúst,
þessar hræðslusögur þínar af útlöndum virðast nú ekki hafa stoppað róttækt andófsfólk frá því að beita mun harðari aðgerðum gegn ríkinu en hefur nokkurn tíma verið beitt hér á landi.
Horfðu á Grikkland, Tyrkland, Þýskaland og Frakkland til að mynda. Og hvað með Suður-Ameríku eða Asíu. Hefuru t.d. nokkurn tíma séð óeirðir í Norður-Kóreu?
Reyndu nú að kynna þér það sem þú ert að tala um áður en þú skítur svona út úr kjaftinum á þér!
Ása,
aumingja löggurnar að eiga hús og bíl.
Ef svo ólíklega vill til að það sé einhverjar manneskjur innan lögreglunnar þá hafa þær fúsan og frjálsan vilja til að segja upp starfinu og finna sér eitthvað þarfara að gera.
Vilji lögreglumenn halda húsinu sínu geta þeir einfaldlega varið það eins og annað fólk kemur til með að þurfa að gera. Þeir hafa nú aldeilis hlotið þjálfun til þess.
Ofan á þetta allt saman stendur í þessum annáli að okkur þyki afrek ársins vera níu særðir lögreglumenn. Ekki að við höfum sært þessa lögreglumenn.
Kannski fyrirsjáanlegt að kommenta hérna eftir að það er búið að linka á þessa færslu í fjölmiðlum, en …
Ef einhver kallar það fucking AFREK að fólk sé slasað er að mínu mati rosalega sterk vísbending um sjúkleika. Réttlætingin er sami sjúkleiki.
Mér hefur verið sagt af fólki sem ég trúi og treysti að lögreglumenn hafi líka slasað fólk til að manipúlera það. En það er þá bara líka jafn sjúkt.
Það er rosalega auðvelt að skemma og meiða. Það þarf smáa sál til að fá kikk út úr því og kalla það afrek.
herra aftaka, hvernig væri nú að þú gerðir pistil um það hvernig þú vildir sjá ísland fyrir þér, ef þú myndir ráða hverju myndir þú vilja breyta, hvað myndiru banna og hvernig myndiru sjá fyrir þér samfélag án lögreglu og hvernig yrði þá hægt að framfylgja þeim lögum sem þú myndir setja.
Það fórnú ekkert fyrir anarkistum áður en kom til hrunsins, af hverju skyldi það vera? voru ykkar veraldlegu gæði hugsanlega skert og er þá ekki allt krappið í ykkur til komið vegna peninga og veraldlega eigna?
Frank,
þú veist ekkert um hvað þú ert að tala.
Þessi heimasíða var t.d. stofnuð í janúar 2008 – fyrir hrun!
Að mestu leyti anarkistar settu af stað Food Not Bombs verkefnið sem eftir okkar bestu þekkingu hefur verið í gangi í tæp tvö ár núna – stofnað fyrir hrun!
Bókasafn Andspyrnu, bókasafn með gífurlegu magni bóka um anarkisma og tengd málefni, hefur verið til staðar hér á landi í áraraðir.
Andspyrna hefur þar að auki gefið út anarkistabækur á íslensku í mörg ár.
Hugsa fyrst, skrifa svo!
af hverju varstu ekki að berja löggur fyrir hrun?
Snýst ekki Aftaka um anarkisma? Snýst ekki anarkismi um frelsi?
Mér finnst það augljóst að það að meiða einhvern eða slasa hann sé það mesta inngrip í frelsi sem hægt er. Það er ekki hægt að stjórna öðrum meira en þegar maður slasar þá. Það er beint inngrip að ofan í líf þeirra. Þú getur ekki valið hvað þú slasar einhvern mikið. Fólk getur ekki valið að hætta að vera örkumlað.
Kristleifur,
ofbeldið umlykur okkur.
Athugaðu hvar fötin þín er framleidd, hvar kaffið sem þú drekkur er framleitt. Athugaðu hvernig dýrin sem þú borðar eru framleidd og ef þú borðar ekki dýr, athugaðu þá hvernig grænmetið sem þú borðar er framleitt.
En eins og samfélagið allt, er ákveðið stigveldi ofbeldis. Aðeins sumt ofbeldi má viðurkenna og fordæma og það er ofbeldi sem kemur neðan frá úr stigveldinu og fer upp á við. Fullkomið dæmi um það er þegar valdalaus manneskja kastar grjóti í lögreglumann.
Ef ofbeldið kemur ofan frá og fer niður, er það réttlætt með fögrum orðum á borð við réttlæti, framleiðslu, lýðræði og þar fram eftir götunum.
Þannig viðhelst þetta kerfi. Því er haldið uppi af ofbeldi sem kemur ofan frá.
Það verður alveg sama hvaða skoðanir verða settar á eftir þessum annál, þeir sem eru ekki sammála þessu verða úthrópaðir af þessu liði og án vitsmunalegra svara. Það að fagna eða réttlæta ofbeldi getur ekki nokkurn tíman verið aðgerð sem Íslendingar fagna enda er um ansi þröngan hóp að ræða.
Ég er ekki í neinum flokk, stend alveg í sama bassli eins og stærsti hluti þjóðarinnar og finnst almennt að það sé tekið illa á málum þessa lands. En ég er þáttakandi í þjóðlífinu og það eruð þið líka! Mjólkin sem þú kaupir út í búð, kókið í sjoppunni, brauðið í bakaríinu… allt framleitt af því sem mætti kalla auðvald, viltu vera án þessara hluta? Framleiðsla skapar atvinnu, fólk kaupir sér vöru og þjónustu o.s.fr. Allt hluti af hagkerfi sem þarf að virka ef þú vilt það líf sem þú býrð við í dag. Viltu heilsu-gæslu fyrir börnin þín, leikskóla, möguleika á menntun? Ef þú svarar einhverju af þessu með Já ertu klárlega á röngum stað með því að vera á bak við síðu eins og þessa.
Slepptu því alveg að svara þessu…. mér er sama hvað svarið er, svaraðu því fyrir sjálfan þig. Farið þið svo að hætta þessu unglingabóluggrenji og sýnið það með einhverjum boðlegum hætti að þið eruð tilbúin að til byggja upp betra samfélag á landinu. Ef þú ert ekki tilbúin er hér fín undankomuleið sem ég hvet þig til að nota… http://www.icelandair.is
Jú Kristleifur, anarkismi er frelsi.
En búum við við anarkisma núna? Nei! Búum við við frelsi? Nei!
Er ofbeldi gegn lögreglunni inngrip í frelsi lögreglumanna? Ef svo, þá frelsi þeirra til að gera hvað? Berja mótmælendur? Verja valdhafa? Verja byggingar ríkisins? Senda flóttamenn úr landi? Nauðga Erlu Bolladóttur í fangelsi? Lemja Sævar Ciesielski? Níðast á útigangsfólki? Mynda skjaldborg um erlenda þjóðarleiðtoga? Koma í veg fyrir að náttúruspjöll ríkis og kapítalista séu stöðvuð?
Já, svo sannarlega hræðileg frelsisskerðing.
Aftaka, ég rættlæti *ekkert* ofbeldi. Ekki heldur þitt. Sérstaklega finnst mér sorlegt þegar meðvitað ofbeldi er meðvitað réttlætt.
Markmiðin að minnka ofbeldi og að auka ofbeldi passa ekki saman. Þú færð það sem þú framkvæmir: Meira ofbeldi. That’s it.
Kalli L,
sú staðreynd að þú lítir svo á að það sé ekki hægt að rækta mat, hugsa um börn, mennta sig og lifa heilbrigðu lífi án þess að búa við stigveldi sem byggir á einkaleyfi ríkisins á ofbeldi – segir ansi margt um þig.
En ekki forðast umræðurnar. Þær eru það skemmtilegasta.
Auðvitað búum við ekki við frelsi núna. Það er augljóst. Málstaður þeirra sem skerða frelsi er rangur vegna þess að að málstaðurinn er að skerða frelsi. Það skiptir engu máli hvorum megin við einhverjar hugmyndafræðilegar línur menn telja sig vera.
Það að skerða frelsi með ofbeldi er frelssiskerðing, og á ekkert skylt við anarkisma. Það er bara stefna reiðinnar og skortur á sjálfsstjórn. Anarkismi verður nauðsynlega að byggjast á sjálfsstjórn.
Ofbeldi “upp á við” er heldur ekki í lagi. Um leið og þú beitir ofbeldi ertu kominn yfir manneskjuna. Sjálfviljugur. Þú ert að taka frelsi þeirra í eigin hendur.
Virkar það?
Kristleifur. Getur þú þá sagt okkur sem skoðum þessar umræður hvernig best er að berjast fyrir minnkandi ofbeldi í heiminum. Með því að mynda mannlegt friðarmerki á Klambratúni eða láta lögregluna lemja þig fyrir framan sjónvarspmyndavélar? Eða eitthvað annað?
Ég er bara forvitinn vegna þess að ég er sjálfur búinn að missa trú á öllum baráttuaðferðum fyrir friði. Ég held að það verði aldrei neinn friður á meðan maðurinn býr á þessari plánetu.
Glæsilegur annáll,, kannabis fíaskóið hefði reyndar mátt fylgja & glæpaaukningin í kjölfarið,,lögreglan virðist vera allgerlega óstöðvandi í að ráðast á eigin þjóð & hreykja svo sjálfum sér ,, stórskemtileg lesning enga síður…
Samkvæmt þessari síðu þá gengur byltingin út á að lemja löggur….Þær eru nefnilega vandamálið hlýtur að vera ? Þannig að ..með því að útrýma öllum löggum þá vinnst sigur.Meikar sense eða þannig! Er ekki að kaupa þessa síðu,er ekki að kaupa ykkar boðskap,það liggur eitthvað annað að baki en ætluð andstaða gegn valdinu. Ofbeldi er aldrei lausn,sama hvort anarkistar eða stjórnvöld beita því!
Kristleifur, það skiptir víst máli hvoru megin við hugmyndafræðilegu línurnar menn standa. Barátta anarkista er barátta gegn valdi, þar með óhjákvæmilega þáttaka í valdabaráttu. Í þeirri baráttu beita valdaklíkur öllum ráðum, þar með talið líkamlegu ofbeldi til þess að halda völdum og viðhalda óréttlætinu sem við búum við. Það að berjast ekki gegn valdi er að leyfa því að viðgangast og það að berjast ekki gegn því með öllum tiltækum ráðum er að berjast ekki til sigur og þannig leyfa því að viðgangast.
Frelsisskerðing þarf ekki endilega að jafngilda yfirvaldi, því yfirvald er viðvarandi og skipulagt til þess að viðhalda sér og oft til þess að auka veldi sitt.
Tímabundin frelsisskerðing á nokkrum útúrspíttuðum ofbeldismönnum sem standa milli uppreisnarhópa annars vegar og ríkisvalds og auðvalds hins vegar er skerðing á frelsi sem í enginn getur haft án þess að skerða enn meira frelsi einmitt vegna þess að frelsið sem er skert er frelsið til að skerða frelsi. Skilurðu? Það er frelsi sem enginn ætti að hafa. Skerðum það!
Hvað sjálfsstjórnina varðar þá felst bæði fáfræði og fordómar í því að líta svo á að ofbeldi sé stjórnlaus hegðun. Flest fólk á erfitt með að herða sig upp í að gera eitthvað ólöglegt, hvað þá ofbeldisfullt. Það er lítið mál að standa innan um 7000 manns með trommur og tromma en erfitt og hættulegt að hlaupa útúr þeim hóp og upp að lögreglunni til þess að gríta hana. Ef ofbeldi væri auðveld hegðun sem erfitt væri að bæla niður þá væri gervöll íslenska lögreglan lömuð eða dauð.
Við þurfum að taka eindregna afstöðu gegn yfirvaldi, þjóðernishyggju og auðvaldi. Því næst þurfum við að aga okkur upp í að útrýma þessum fyrirbærum, með öllum tiltækum leiðum.
Þið eruð svo fyndin. Þið þorið ekki einu sinni að skrifa undir nafni (aftaka), eruð þið hrædd við eitthvað.
Kv. Gunnar Jóhannsson
,,Tímabundin frelsisskerðing á nokkrum útúrspíttuðum ofbeldismönnum sem standa milli uppreisnarhópa annars vegar og ríkisvalds og auðvalds hins vegar er skerðing á frelsi sem í enginn getur haft án þess að skerða enn meira frelsi einmitt vegna þess að frelsið sem er skert er frelsið til að skerða frelsi. Skilurðu? Það er frelsi sem enginn ætti að hafa”
Skiluru sjálfur þessa málsgrein fröken aftaka
Pétur Þór: Hvað eigum við að gera? Ég veit það ekki :/ Líta okkur nær, vera sjálfsgagnrýnin og slasa sjálfstæðismenn :) (Djók!)
“Við þurfum að taka eindregna afstöðu gegn yfirvaldi, þjóðernishyggju og auðvaldi.”
Hvers vegna? Vegna þess að yfirvaldi, þjóðernishyggju og auðvaldi fylgir kúgun, ofbeldi og ósanngirni?
Við þurfum að taka eindregna afstöðu gegn KÚGUN OFBELDI OG ÓSANNGIRNI. Ekki að taka eindreigna réttláta afstöðu með því að kúga kúgandann, slasa ofbeldismanninn eða vera ósanngjarn. Það virkar ekkert.
Ég hef hvorki hætt né byrjað á einhverju sem ég hef verið kúgaður eða beittur ofbeldi til. Hafið þið gert það? Af hverju ætti einhver að gera það?
Það á að beita þeim meðulum sem virka. Annað er bara fantasía og leikrit. Ofbeldi er það alvarlegt mál að mér finnst þurfa að SANNA að það virki áður en því er beitt. Getur þú, lesandi, sannað það? Er það t.d. að virka á þig?
Annars er ég líklegast hættur hér, nema ég geti ekki hamið mig. Ég fyrir mitt leyti er sammála um að vera ósammála.
Þið eru fávitar
Það sást best hræsnin í gærkvöldi þegar ég horfði á þetta”stórvirki”Guð blessi Ísland þegar hræðilega nornin og fleiri komu stjórninni frá og fögnuðu óskaplega,næsta atriði sýndi svo aumingjana flýja land með skottið á milli lappana í stað þess að reyna að hjálpast að við uppbyggingu,tek það fram að ég kaus ekki og átti ekki banka og var ekki á móti mótmælum en horfði með hrylling á ykkur fávitana ráðast á saklaust fólk og stunda skemmdarverk í nafni fólks sem vildu ekki láta bendla sig við það,og monta sig svo af því að hafa slasað fólk,,,,eins og ég sagði hér fyrir ofan þið eruð fávitar
Ef ofbeldi virkar aldrei, afhverju nota valdhafar það svona oft? Ef að beita ofbeldi er alltaf óréttlætanlegt, hvernig réttlætið þið að borga skatta og hlýða lögum – ofbeldið sem ríkisapparatið fremur með mis beinum hætti er margfallt það sem hefur nokkurntíma verið beitt gegn ríkinu. Og svo vænir fólk anarkista um hræsni?
Alveg sama hvað manni finnst og hvað maður vill stundum hugsa um ykkur: Þetta er þó vel saman sett og mikið þarna sýnir að mikla vinnu var í þetta lagt. Vel gert.
Mikið kjaftæði og bull en góð og gild lesning sem gefur mér nokkrar mínútur af kátínu. Sumt alveg helrétt(að mínu mati auðvitað) annað merkilega mikið kjaftæði en þannig er það nú bara!
Flottur annáll, megi sumir hérna drukkna í eigin viðbjóði þegar þeir koksa á anda lífsins :) Eða ekki.
Með kveðju,
We are many for We are Anon.
Gunnar Jóhannesson, værir þú einhverju nær ef að Sigríður Guðrún Sigurgeirsdóttir væri titluð fyrir færslunni?
Ég er öngvu nær um hvur þú ert þrátt fyrir að þú skrifir undir nafni.
Kristleifur Daðason: Þú talar um að ekkert ofbeldi sé réttlætanlegt. Er þessi afstaða ekki absúrd, er ekki ofbeldið út um allt. Lagakerfið, nauðgunarmenningin/feðraveldið, rasisminn, arðránið, ríkisstjórnin, nauðgunin á náttúrunni… Það er búið að biðja fólk margoft um að hætta að vera fífl – hvar dreguru línurnar og ferð að verja eigin tilvist þína og annarra. Ef þú ert aldrei tilbúinn að svara ertu búinn að gera sjálfan þig að meðvirku fórnarlambi sem réttlætir eigin kúgun.
Ég er ekki endilega sammála því að það hafi verið flott að 9 löggur voru slasaðar, en ég er enganvegin tilbúinn að fordæma það heldur. Ég hef séð vini mína lamda ílla af löggum og ef ég væri minni gunga og aðstæður verið aðrar hefði ég viljað koma þeim til varnar.
Einfeldningsleg fordæming á ofbeldi er út úr myndinni – þú kemst ekki burtu frá því fyrr en þú deyrð – það er bara mis augljóst.
Hnefi í kjaftinn er svo mikið beinni upplifun en stofnanavædda ofbeldið – en við búum í sjúkum heimi. Eins og einhver talaði um hér fyrir ofan þá er öll tilvist þessa kerfi byggð upp á ofbeldi. Maturinn okkar og fötin, mentakerfið, löggan – allt byggist þetta á ofbeldi. Ef þú einskorðar þig við að berja potta til að losna undan því er nóg fyrir þá sem bera ábyrgð að kaupa sér eyrnatappa og brosa vandræðilega í fjölskylduboðum.
Eins og 38 segir, þá virkar ofbeldi, í það minnsta til einhvers, annars myndu valdhafar ekki nota það.
Þetta er ekki ákall um ofbeldi heldur hugleiðing, það geta flestir sett sér einhverjar línur um hvenær þeir myndi grípa til þess – spurningin er oftast hvenær.
Af hverju eru anarkistar ekki að mótmæla núna og gera eitthvað í málunum?
Er of kalt núna til að fara út og láta í sér heyra?
Ríkisstjórnin er að skattpína allt og alla núna, þar með talið ykkur, reynið ekki að halda því fram að þið kaupið ekki neitt, eigið allavega tölvur sem þið farið á netið í.
Af hverju er ekki verið verið að lemja í potta og láta eins og bjánar?
Það er kannski bara of kalt og kannski er ástæðan að meginþorri ykkar eru ekki sannir anarkistar heldur vg eða vinstri sinnaðir kommar.
Ég vil sjá ykkur gera eitthvað annað en að bulla bara á netinu, farið út að gera eitthvað, stick it to the man, þyrftuð helst reyndar að vera nakin þar sem föt eru keypt af auðvaldssinnum, en eins og sagt hefur verið á þessari síðu þá eru aðgerðir sterkari en orð eða eruð þið bara eins og liðið á facbook sem vill reysa styttu af Helga en gerið ekkert í málunum.
Sýnið að þið eruð eitthvað annað en vitlausir krakkaskítar og sýnið í verki hvernig sannur anarkismi ætti að virka.
Vænn skammtur af bulli á þessari síðu. En skoðanir eru eins og rassgöt, eitthvað sem allir eru með en hérna virðast menn nú almennt sækja sínar skoðanir í rassgatið á sér.
Þið eruð nú meiri andskotans bjánarnir, sammála einhverjum sem skrifaði hér fyrir ofan, hættið þessum unglinga-bjánaskap og fáið ykkur vinnu. Þetta er ekki anarkismi, ættuð kannski að kynna ykkur þetta betur.
@Snow:
Kannski ertu svona ófrumlegur að þú lest grein eftir ritstjóra mónitors í fréttablaðinu og apar upp eftir honum sniðuglegheitin um rassgöt á netinu. Eða að þú sjálfur ert ritstjóri þessa skítarits sem mónitor er og ef svo er þá ættirðu að reyna að skeina rassgatinu á þér betur með eigin munnræpu bleðli.
Ef það ætti að vera aftaka á einhverjum þá ætti það að vera á forsvarsmönnum þessarar síðu!
Úfff maður vissi ekki að það væri til hjólahýsa pakk á Íslandi fyrr en maður fer og les t.d. þennan texta… afrek ársins að slasa 9 lögreglumenn… ef EITHVAÐ kemur uppá hjá ykkur skíta pakk þá eru það fyrstu mennirnar sem þið hringið í…… Hættið að hirða atvinnuleysisbætur og reynið að gera eithva annað en að reykja hass og láta eins og fávitar…
Ef hneiglsunargjarna pakkið sem hefur kommentað hér að ofan og halda að anarkistar og vg séu eitthvert dúó þá væri ykkur nær að kynna ykkur hugmyndafræði anarkista og lesa eitthvað meira hér á Aftöku því þá sjáið þið strax að Aftaka og fæstir anarkistar á Íslandi styðja vinstri græna eða nokkurn annan stjórnmálaflokk.
Hey, krakkar!
Hvar finnur maður tölurnar um þann fjölda fólks sem særður var af lögreglunni á árinu 2009? Mér þætti þær áhugaverðari að sjá.
Einnig þætti mér áhugavert að vita hvað lögreglan yfir höfuð kallar það að vera særður. Þá í fyrsta lagi þegar um lögreglu„þjón“ er að ræða, öðru „almennan borgara“ og þriðja t.d. heimilislausa manneskju eða manneskju undir áhrifum vímuefna.
Noh, bara alvöru wannabee anarkistar á Íslandi!
Þið eruð bara 30 árum á eftir tískunni. Hvernig væri að reyna að vera bara oggupoggupínulítið frumleg?
Hvað kallar maður fólk sem hangir á kaffihúsum, á macbook pro og ákveður síðan að taka hús “eignanámi” ?
Ég hef séð til ykkar. Haldið að þið séuð svo mikil rebel en eruð ekkert nema hræsnarar. Hve mörg ykkar eiga bíla, má það? Eiga foreldrar ykkar bíla? Hve marga? Eyðileggið einhvern þeirra.. Þæginlegt að byrja þar sem hendi er næst . Eða hvað eiga foreldrar ykkar stórt hús. Komast ekki fleiri þar fyrir.
Hver af ykkur anarkistum er á námslánum, hvað kallast það? þið eruð alveg jafnmikið upp á kerfið kominn eins og hver annar
En það er gott að vera í skóla. Láta kenna sér eitthvað fyrirframákveðið stöff. þið anarkistarnir eruð nú flest í háskóla og djúpt þenkjandi, en þið eruð samt partur af stórum sauðahóp. Aftur , hver á maccara og hver á pc af ykkur ? Hver hengur á nýlenduvöruversluninni og hver hékk á hinum staðnum þar sem einhver norsk búlla er kominn núna.
Þið þyggið bæði námslán og atvinnuleysisbætur. Ég held að ég hafi aldrei lesið jafnmikla hræsni og yfirborðsmennsku eins og þetta stöff á þessari síðu. Margt gott og falleg hugsun. En ekki gleyma einu.
þið eruð líka partur af kerfinu með ykkar daglegu gjörðum.
Aftaka, nú eru þið að tala um nýtt skipulag á hlutunum, losna við stigveldi ofbeldisauðvaldskapítalista og það allt.
Af hverju geriði ekki meira í að afla fylgis meðal almennings á ykkar skoðunum?
Varla næst fram þetta göfuga “brave new world” án þess að meirihluti almennings styðji það skref. Ég meina að flestir sem álpast hingað inn í gegnum linkinn á dv.is finnst þið bara vera kjánalegir.
Eða eru allir sem efast um ykkar skoðanir samsekir og því réttdræpir í “byltingunni”?
Almennt á móti aftökum en annað gildir um lögruglusvín, dómara og sttjórnmálasvín. Fyllum líkhúsin af lögruglum á þessu ári!!!!
Aftaka hefur nú þegar stuðning þorra alls almennings.
Ég hef verið duglegur að mæta á mótmælin, ég hef séð þennann skríl mæta þarna og grýta steinum í lögguna sem er ekki að gera neitt nema vinna vinnuna sína, vernda fólk og eignir.
Ég verð með hníf á næstu mótmælum og ef ég sé einhvern grýta grjóti í lögguna þá kem ég aftan að honum og sting hann án djóks.
Hvet “Aftöku” til að skrifa undir nafni, koma fram opinberlega með þessar skoðanir og reyna að breyta hlutunum í afli fólks og fjölda en ekki ofbeldis. Hvet í leiðinni þá sömu, sem hafa hátt á þessari síðu um að hata löggur og hugsa þeim þegjandi þörfina, að senda lögreglu síns sveitarfélags upplýsingar um sjálfan sig og afþakka alla aðstoð í neyðartilfellum fyrir sig og sína. Við hin myndum fagna því snarlega að sjá Darwin að verki svona á þessum síðustu og verstu. Fínt að sum gen stoppi bara í þróunarsögunni… sbr. Hannes Hólmsteinn
Ég er foxillur út í lögregluna og ég fæ æluna upp í munn í hvert skipti sem ég sé löggu, eftir aðfarir hennar síðasta vetur. Ofbeldi löggunar var svakalegt. Þeir hafa reyndar fengið þjálfun, þannig að einu langvarandi meiðslin sem ég veit um voru handleggsbrot, viðbeinsbrot og tvö rothögg. (Gangi þeim vel ef þau ætla að kæra)
En hvað, er ofbeldismaður ekki ofbeldismaður nema hann valdi langvarandi líkamstjóni? Er nauðgari ekki ofbeldismaður? Sá sem kúgar maka sinn, með andlegu ofbeldi og meiðingum sem skilja ekkert eftir sig nema marbletti, er hann ekki ofbeldismaður?
Hvað er eðlilegt andsvar við þess konar ofbeldi? Nú er ég ekki að tala um abstrakt ofbeldi, eins og það ofbeldi sem er innbyggt í kapítalismann. Ég er heldur ekki að tala um það ofbeldi sem fólk er beitt á hverjum degi í hinum stóra heimi, þegar það er fyrir landnýtingu eða öðrum framförum í þágu okkar nýlenduherranna. Nei, ég er að tala um það mjög svo sýnilega ofbeldi sem löggan beitti
hér síðasta vetur. Hvað er eðlilegt andsvar? Fara heim og vona að hlutirnir breytist af sjálfu sér?
Og hvaða kjaftæði er þetta um níu særðar löggur? Ein datt á bossann þegar vinur hennar fleygði anarkista á hana. Ein fékk útbrunnið blys í augað í Kryddsíldinni, meðan hún var að hrinda fólki. Ein fékk gangstéttahellu í öxlina, þegar hún var að berja fólk með kylfu og skjóta það með táragasbyssu. Hvað með hinar? Fengu þær sinaskeiðabólgu af því að halda inni gikknum á piparúðanum?
Þið þarna sem gagnrýnið aftöku, hvernig væri að þið íhuguðuð aðeins við hvaða aðstæður þessi meiðsli urðu? Ég er svo sem ekkert hrifin af því að aftaka sé að upphefja ofbeldi, en ofbeldi er stundum nauðsynlegt svar við ofbeldi kúgarana. Það er bara þannig. Ég tel okkur sem vorum að mótmæla seinasta vetur hafa sýnt fádæma stillingu, að særa ekki fleiri lögguofbeldishunda.
Þessi samantekt er afar spaugileg vegna þess hve hún er vitlaus. Aftaka er á villigötum. Það að hvetja til ofbeldis gegn lögreglumönnum og dásama það er fáránlegt og sorglegt.
Ég er viss um að a.m.k 9 af hverjum 10 sem koma inn á þessa síðu og lesa þennan annál telja að sá sem skrifaði þennan annál og þeir sem standa að þessari síðu séu sjúkir einstaklingar og algjörir vitleysingjar.
Gunnar, þetta er ennþá fyndnara og átakanlegra vegna þess að það er gripið til stóryrða hérna til þess að runka upp einhverjum hópeflisfíling og til að komast í blöðin og umræðuna. Sem er svo sorgleg taktík. Sjá Sjálfstæðisflokkinn.
Málstaður frelsisins notaður til að skerða frelsi annarra. Kannast einhver við það? Munurinn er að grunntilfinningin á bak við annað er græðgi en hitt reiði.
Aftaka, ekki vera auli, ég veit ekki hvað mónitor er, aldrei séð það og hvað þá að ég hafi eitthvað með það að gera. Ef þú heldur að þú og þessi hlægilega síða séuð frumleg þá ertu nú meira en lítið skemmdur. En málið er bara að bullið á þessari síðu dæmir sig sjálf og þess vegna leyfir maður sér að vona að þið aularnir séuð að tala út úr rassgatinu því það er annars sorgleg misnotkun á heilastarfssemi ef það er sá líkamshluti sem þið eruð að nota í þetta bull. Tími til að þroskast og hætta þessu bulli á netinu.
Aftaka, hvað ef það er brotist inn hjá ykkur? Hvað ef amma ykkar er rænd? Ástvini nauðgað? Fylliraftur ræðst á ykkur? Ætlið þið þá bara að hugsa “lögreglan getur fokkað sér” eða mun þá renna upp fyrir ykkur að stundum geti lögrelgan bara komið sér ágætlega fyrir almenning?
Seint mun ég bera blak af lögregluofbeldi eða mikilmennskustælum, hef kynnst nægu slíku, bæði orðið fyrir fautaskap lögreglumanna, orðið vitni af og haft áreiðanlegar heimildir fyrir öðru, en að alhæfa svona og að ímynda sér að lögreglan hafi þann starfa einn að lumbra á mótmælendum lýsir óupplýstri og ungæðislegri afstöðu, svo ekki sé dýpra í árinni tekið.
vá ég er bara í kassti yfir að hafa lesið þetta aðira eins þvælu hef ég aldrei heyrt ég sem skattborgari og íbui þessa lands vil mun frekar eyða ykkur heldur en fólkinu sem kemur og verndar mig og bjargar þegar annar eins skítahyski eins og þið komið nálægt þið eruð svo heimsk og ógeðslegt fólk étandi upp úr ruslagámum og öðru því þið eyðið bótunum ykkar í dóp! mér þætti gamann að sjá ykkur vinna sem lögreglumenn einn dag og tjekka hvort þið kæmudt lifandi úr því !!! þetta fólk á hrós og heiður skilinn fyrir sitt starf. og þegar lögreglan er í miklum minni hluta og allir að beita ofbeldi á þau að sjálfsögðu gera þau það sama á móti til að verja sig!!! ég hef séð lögreglukonu beita mann “ofbledi” en það var vegna þess að viðkomandi aðilli var með mikinn mótþróa við handtöku og hlýddi ekki fyrirmælum lögreglu aumingja hann ekki vorkenndi ég þessu dóp fifli auðvitað vilji þið ekki lögreglu því þau eru nátturulega að stoppa ykkar innbrota og fíkniefna notkunn og ykkar glæpastarfsemi! fyllum heldur líkhúsin af fólki eins og ykkur svo þetta landi geti orðið eins og venjulegt land. Lögreglumenn eiga heiður skilinn fyrir sitt starf og vonandi að löggan muni eflast og taka almennilega á fólki eins og ykkur!
Það sem aftaka og aðrir unnendur ofbeldis hafa ekki gert sér grein fyrir er sú augljósa staðreynd að ofbeldið er ekki ávísun á sigur eða betri heim.
Segjum sem svo að það ríkti almenn sátt í samfélaginu um að ofbeldi sé ávallt réttlætanleg aðferðafræði til að ná fram markmiðum sínum. Ok, gott og vel, nú stíga fram ólíkir hópar fólks, hver með sitt markmið. Allir hóparnir keppast nú að því að taka sem flesta andstæðinga sína af lífi…fyrir málstaðinn að sjálfsögðu.
Spurning er: Hver sigrar að lokum??
Getur aftaka svarað því?
Ef aftaka er svo grunnhyggin að halda að réttlætið eða skynsemin sigri í svona uppgjöri þá er hún vitlausari en ég hélt.
Sá geggjaðasti vinnur. Sá sem er færastur í að drepa sem flesta vinnur. Steratröllin vinna. Þjálfaðir sérsveitarmenn með vélbyssur vinna.
Það vinna ALLIR nema sá litli.
Ef hugmyndafræði aftöku um nauðsynlegt ofbeldi verður að raunveruleika þá yrðu anarkistar líklega þeir fyrstu sem mundu útrýmast. Ég veit það af því ég þekki þá báða ;) og þeir anarkistar sem ég þekki eru upp til hópa indælis fólk sem er á móti því að fólk sé beitt ofbeldi…. fyrir utan að vera hvorki vígamenn í vexti eða hugsun.
Sannleikurinn er sá að íslenskir anarkistar hafa enga burði til að standa í stríði við nokkurn. Þeir hafa engan leiðtoga, enga herkænsku, ekkert skipulag og ekki þá siðblindu sem þarf til að sigrast á andstæðingum sínum með ofbeldi.
Því segi ég við aftöku:
Notið tímann og megabætin til raunverulegrar baráttu fyrir bættum heimi í stað þess að eyða honum í ofbeldisfantasíur sem engin innistæða er fyrir.
# Einar Steinn Valgarðsson segir, þann 5/01/10 :
Aftaka, hvað ef það er brotist inn hjá ykkur? Hvað ef amma ykkar er rænd? Ástvini nauðgað? Fylliraftur ræðst á ykkur? Ætlið þið þá bara að hugsa “lögreglan getur fokkað sér” eða mun þá renna upp fyrir ykkur að stundum geti lögrelgan bara komið sér ágætlega fyrir almenning?
—-
Ok nú er ég ekki aftaka en ég vil samt koma með mína tvo aura inn í umræðuna. Lögreglan þjónar margþættu hlutverki, eitt þeirra er að redda hlutum eins og mönnum og dýrum i veseni. Löggan bjargaði t.d. hval sem var fastur upp í fjöru um daginn. Og eflaust hefur hún komið fullt af fólki til bjargar sem hefur verið ofurölvi, undir árás ofbeldismanna eða í viðlíka aðstæðum.
Þetta eru allt mjög fínir og þarfir hlutir til að gera. En þetta hlutverk er mjög slæm afsökun fyrir lögreglunni – það þarf ekki lögreglu í núverandi mynd til þesskonar reddinga. Og svo er laga og dómskerfið alls ekkert gott í því að redda flóknum málum. Ef ömmu minni (eins og þú tekur svo skemtilega sem dæmi) væri nauðgað, eða annar ástvinur minn yrði fyrir grófu ofbeldi, þá myndi ég að sjálfsögðu virða óskir þess einstakling um hvað bæri að gera. En ef óskin væri um hefnd, réttlæti og öryggi samfélagsins – þá held ég að ég myndi frekar hringja í félaga mína og fara sjálfur á stúfana með járnrör en að hringja á lögguna.
Nauðgarar og annað fólk sem samfélaginu ber raunveruleg ógn af er ekki dílað við að neinu ráði af ríkinu. Nauðgarar eru að fá dóma upp á tvö-þrjú ár max eins og Steingrímur Njálsson ber vitni um – en hann sat lengur í steininum fyrir að keyra fullur en ofbeldisverk sín.
Ég er ekki að mæla fyrir þyngri dómum heldur að benda á þetta kerfi sem þú verð, er frekar glatað í að framfylgja þeim fúnksjónum sem eru góðar.
Það ber vitni um einfeldningshátt að geta ekki séð bæði góða sem og vonda hluti við þá sem manni mislíkar. Og það væri kjánalegt að viðurkenna ekki “að stundum geti lögrelgan bara komið sér ágætlega fyrir almenning” – því vissulega getur hún gert það. Málið er að samhengið sem þessi áramótaannáll hrósar því að níu löggur hafi slasast var í miðri byltingar tilraun þar sem það eina sem stóð á milli alþingsmanna og reiðum hóp af fólki var lögreglan. Og eins og einhver annar hefur þegar sagt var fullt af fólki lamið í klessu af lögguni þarna – fyrir mér er þetta í raun og veru spurning um að fólk hafi þorað að lemja til baka og varið sig og sína.
Eitt af þeim öðru hlutverkum sem lögreglan sér um -auk þess að bjarga ketlingum og kenna krökkum að labba yfir gangbraut- er að vernda valdstjórnina.
Og að vera að vinna vinnuna sína er glötuð afsökun fyrir fantaskap lögreglunar, frekar virði ég að fólk komi með hugmyndafræðileg rök sem ég er ósammála.
Ég tilnefni Simma sem á komment 62 til verðlauna Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu 2010. Eins má búa til ný verðlaun fyrir Kalla L (56). Kannski kratapungur ársins, eða góðborgara fýla ársins.
hey Jonas
Hvað kallar maður fólk sem hangir í vinnuni, á notaða Dell Insperion og ákveður síðan að taka hús með “Kaupsamningi” ?
Ég hef séð til ykkar. Haldið að þið séuð svo mikil góðborgarar en eruð ekkert nema hræsnarar. Hve mörg ykkar eiga strætókort, Che bol og lopapeysu, má það? Eiga foreldrar ykkar mussur? Hve marga? Eyðileggið einhvern þeirra.. Þæginlegt að byrja þar sem hendi er næst . Eða hvað eiga foreldrar ykkar stór hjálpartæki ástarlífsins. Komast ekki fleiri þar fyrir.
Hver af ykkur krötunum eru í samböndum, hvað kallast það? þið eruð alveg jafnmikið upp á ást kominn eins og hver annar
En það er gott að vera á barnum. Láta kenna sér eitthvað fyrirframákveðið stöff. þið sjálfstæðisflokks/vinstri grænir/framsóknar/samfylkingar/borgarahreyfingar pakk eruð nú flest í vinnu og ekki svo djúpt þenkjandi, en þið eruð samt partur af stórum sauðahóp. Aftur , hver á kók og hver á pepsí af ykkur ? Hver hengur á Oliver og hver hékk á hinum staðnum þar sem einhver norsk kelling er alltaf full út í horni núna.
Þið þyggið bæði hrós í árámótaannálum og byltingarrómantík. Ég held að ég hafi aldrei lesið jafnmikla hræsni og yfirborðsmennsku eins og þetta stöff á þessu kommenti. Margt gott og falleg hugsun. En ekki gleyma einu.
þið eruð líka partur af vistkerfinu með ykkar daglegu gjörðum.
Hvet “Kalla L” til að skrifa undir nafnleysi, koma fram nakinn opinberlega með grímu og þessar skoðanir og reyna að breyta hlutunum í afli persónutöfra og lýðskrums en ekki tilfinninga og skynsemi. Hvet í leiðinni þá sömu, sem hafa hátt á þessari síðu um að hata anarkista og hugsa þeim þegjandi þörfina, að senda anarkistum síns sveitarfélags upplýsingar um sjálfan sig og afþakka alla aðstoð í neyðar byltingartilfellum fyrir sig og sína. Við hin myndum fagna því snarlega að sjá Darwin að verki svona á þessum síðustu og verstu. Fínt að sum gen stoppi bara í þróunarsögunni… sbr. Hannes Hólmsteinn
Viðsnúningur alltaf skemmtilegur.
Fólk verður að skilja það að Anarkistar beita aðferðum sem miðast að því að láta allar aðgerðir lögreglu líta mjög illa út. Í öllum mótmælum má sjá Analkreista búa til aðstæður þar sem lögregla er kölluð á staðinn, síðan er búið til eitthvað ástand til að fá lögregluna til að gera eitthvað og það er síðan notað til að hrópa og kalla ofbeldi ofbeldi.
Það að snúa sér við og rétta hendur upp í loft, það að vera með trúða í mótmælum o.sv.frv eru allt þaulskipulagðar og útpældar aðgerðir sem Analkreistar nota til að manipulera fjölmiðlaumfjöllun um sín mótmæli og aðgerðir.
Þetta var hins vegar ákaflega barnalegur og heimskulegur áramótaannáll og kommentin um lögguna einungis til að skemma þessar útpældu aðferðir til að gera lögguna að vonda ofbeldisfulla kallinum. Nú afhjúpaðist illilega hverjir það eru sem beita brögðum við að kalla fram viðbrögð lögreglu og kalla það ofbeldi. Hver man ekki eftir algerlega misheppnuðum aðgerðum við iðnaðarráðuneytið í sumar þar sem að þessir Analkreistingar sendu frá sér myndband sem var illa klippt og myndir sem áttu að sýna lögregluofbeldi. Þar voru aðgerðir vel skipulagðar. Beðið var eftir lögreglunni, margir með myndavélar og atburðarrásin hönnuð með það að markmiði að lögreglan myndi handtaka einhvern. Það tókst og þá var tekið til þess bragðs að ráðast á lögregluna og reyna að frelsa viðkomandi. Meðal annars var grýtt í höfuð lögreglumanns málningarblöðru. 2 lögreglumenn hins vegar yfirbuguðu þessi grey sem voru um 20 saman, það sést greinilega á myndunum sem mbl.is birti.
Foringi ykkar og guðmóðir sem þið heiðrið svo fallega, Álfheiður Ingadóttir hlýtur að vera stolt af börnunum sínum hér og fallegum skrifum ykkar. Loks stóð aftaka undir nafni og tók sjálfa sig af lífi með þessum annáli. Húrra.
Sæll Grímur/Hólmsteinn.
Þaulskipulagðar aðferðir til að manipjúlera fjölmiðlaumfjöllun? þaðerbara svona. Eru þið öfga kapítalistar núna byrjaðir að tala um samfélagið sé nú að horfa fram á alþjóðlegt anarkista samsæri í staðinn fyrir gamla kommúnista/gyðinga/homma samsærið?
Ég bara spyr því mér þykir þetta svo fyndin söguskoðun.
Þú talar um atburðinn í sumar fyrir utan iðnaðarráðuneytið sem eina svona manipjúlerandi gjörning, með fjölda myndavéla tilbúnar og jadajada.
Mér fannst greinin á Nei-inu sömmera þetta ágætlega upp.
Fólk kastaði skyri á bíl og hús, löggan hljóp það uppi, lamdi og setti í járn og fór síðan í fjölmiðla og sagði að mótmælendur hefðu hent málingarfötu í eina löggu og sparkað í hausinn á annari á meðan aðrir urrandi illir mótmælendur hafi hlupið á byggingarsvæði til að ná í járnrör (vísbending fyrir lengra komna: næsta byggingarsvæðið er tónleikahúsið). Fjölmiðlar birtu þessa útpældu manipjúleringu anarkista samsærisins án frekari rannsóknarvinnu.
Síðan setja einhverjir illa tekið myndbrot á youtube sem var greinilega tekið á myndavél í síma eða álíka, til að sýna að handtakan hafi verið hressilega harkaleg (svona miðað við hversu auðveldlega skyrið fór af) og þau hafi nú ekki lamið neinn sjálf – svo að fjölmiðlar mættu nú kannski tjekka á því og muna eftir að tala við fleiri aðila en einn næst. Þá hrópið þið Hólmsteinarnir að þetta geti nú ekki afsannað að mótmælendur hafi lamið í löggurnar og að fólk ætti klárlega að fara í kvikmyndanám áður en það setji svonalagað framm, klipingin sé alveg agaleg! Alveg klassískur Hólmsteins málfluttningur í ykkur alltaf hreint.
Eins og að löggan gæti ekki fengið vídjóið úr öryggismyndavélunum fyrir utan ráðuneitin sem beint er í allar áttir til að sýna hvað hefði átt sér stað þennan dag ef þeir vildu.
Og ef mótmælendur hefðu verið á höguðsparks buxunum hefðu tuttugu grænmetisætur nú hæglega dugað til að vinna slaginn.
Svo ertu leiðinlegur Hólmsteinn, nenniru að lesa þetta sem einhver sagði um íróníu og kaldhæðni og skort dagdrykkjumanna til að fata svoleiðis áður en þú lest eitthvað um Álfheiði næst – þótt það væri ekki nema til að gera skrifin þín ögn minna pínleg fyrir okkur hin.
Fólk verður að skilja það að Kapítalistar beita aðferðum sem miðast að því að láta allar aðgerðir mótmælenda líta mjög illa út. Í öllum mótmælum má sjá Lögregluna búa til aðstæður þar sem mótmælendur koma á staðinn, síðan er búið til eitthvað ástand til að fá mótmælendur til að gera eitthvað og það er síðan notað til að hrópa og kalla ofbeldi ofbeldi skríll skríll.
Það að snúa út úr og ljúga í fjölmiðla, það að vera með piparúða í mótmælum o.sv.frv eru allt þaulskipulagðar og útpældar aðgerðir sem Crap-italistar nota til að manipulera fjölmiðlaumfjöllun um sína valdníðslu og aðgerðir.
Þetta var hins vegar ákaflega barnalegt og heimskulegt komment og þetta ekka-væl um skyrið einungis til að skemma þessar útpældu aðferðir til að gera mótmælendur að vonda ofbeldisfulla kallinum. Nú afhjúpaðist illilega hverjir það eru sem beita brögðum við að kalla fram viðbrögð fólks og kalla það ofbeldi. Hver man ekki eftir algerlega misheppnuðum aðgerðum við Kryddsíldina þar sem að þessir Kapítalistar sendu frá sér myndband sem var illa klippt og myndir sem áttu að sýna mótmælendaofbeldi Þar voru aðgerðir vel skipulagðar. Beðið var eftir fólki, margir með myndavélar og atburðarrásin hönnuð með það að markmiði að fólk myndi gera eitthvað. Það tókst og þá var tekið til þess bragðs að ráðast á fólkið og reyna að taka frelsi viðkomandi. Meðal annars var lamið í höfuð miðaldra kennara með kylfu, annar fótbrotinn og fullt af fólki gasað í klessu, fólkið hins vegar yfirbugaði þessi sjónvarpssnúrurgrey sem voru þarna, en ekki tækjabúnað fyrir margar miljónir eins og stöð tvö hélt fram, það sést greinilega á myndunum sem Nei-ið birti.
Foringi ykkar og guðmóðir sem þú heiðrar svo fallega, Davíð Oddsson hlýtur að vera stoltur af barnabarninu sínu hér og fallegum skrifum þínu. Loks stóð grímur undir nafni og var eins og beint út úr Grímsævintýrunum. Húrra.
haha, þetta er geðveikur annáll.
Ég elska ykkur öll
….but the butler did it !!
flottir pennar hér inni , en samt algjört rugl mest af þessu.
Andvarp.
Ef að fólk væri bara með staðreyndir á hreinu frekar en tilfinningar…
En! Það er einhver sú mesta óskhyggja sem ég hef vrapað fram, ólíkleg til að breyta neinu.
Enn og aftur komið þið með tvær mínútur af afþreyingu handa mér. Hvað get frekar beðið um?
Topas, þakka þér fyrir góð svör. Mér sýnist við satt að segja í meginatriðum vera sammála. Ég kom með áðurnefnd dæmi til að leggja áherslu á að lögreglan er ekki jafn svarthvít og mætti ætla af umræðum ýmissa mótmælenda.Lögreglan er síst hafin yfir gagnrýni en hún skal líka njóta sannmælis, bæði fyrir góð störf og slæm. Það sama má segja um laga-og dómskerfið.
Mér þykir full djúpt í árinni tekið að halda því fram að ég sé að verja kerfið, hvað þá að ég vilji bera blak af fautaskap lögreglunnar. Hélt að það hefði komið skýrt fram í innlegginu mínu. Ég skal vel styðja annað kerfi, en þá er þó mikilvægt að einstaklingar sem sjá um þessi störf sem ég nefndi, og önnur álíka, hafi til þess næga þekkingu og reynslu.
Ég sagði reyndar “hvað ef það er brotist inn hjá ykkur? Hvað ef amma ykkar er rænd? Ástvini nauðgað?” o.sfrv. Ekki að það sé höfuðatriði, en rétt skal vera rétt.
Ég styð sjálfsvörn, það er alltént sjálfsagt að geta borið hönd fyrir höfuð sér, en nú hef ég orðið vitni bæði af fautaskap lögreglu og af mótmælendum sem gera í því að pönkast í lögreglunni. Hvorugt þykir mér til eftirbreytni.
mér þykir boðskapur áramótaannáls Aftöku vera til eftirbreytni :)