Andspyrna hefur gefið út nýja bók, Ríkið eftir mannfræðinginn og anarkistann Harold Barclay. Eftir Barclay liggja bækur eins og People Without Government, an anthropology of anarchy og Culture and Anarchism.
Barclay útskýrir í þessari bók hvernig valdamikill forréttindahópur hefur rænt stjórnun á samfélaginu. Ríkið hefur náð algerum yfirráðum með stjórn sinni á atvinnu, viðskiptum, landbúnaði og auðlindum. Hann rekur sögu ríkisins í samfélögum manna útfrá sjónarhorni mannfræðinnar, rekur hvaða þættir þurfa að vera til staðar í samfélagi til þess að ríki fúnkeri og veltir upp spurningunni hvort að ríkið sé virkilega nauðsynlegt eða hvort skipuleggja ætti samfélagið án þess.
Skilaboð frá Saving Iceland: Vertu með frá 18. júlí í baráttunni gegn iðnspillingu svæða sem teljast til síðustu óspilltu öræfa Evrópu og taktu þátt í beinum aðgerðum gegn stóriðju!
Baráttan hingað til
Baráttan til varnar stærstu óspilltu öræfum Evrópu stendur enn. Síðustu fjögur sumur hafa mótmælabúðir Saving Iceland gripið til aðgerða gegn framkvæmdum á álverum, risavirkjunum og jarðvarmavirkjunum.
Almenningsálitsráðgjafinn Þorri Almennings skrifar:
Ég verð að viðurkenna að ég er löngu orðinn leiður á að fjalla um lögguna á vettvangi bloggblaðurs og víðar. En því miður blöskrar manni reglulega þegar augun eru rekin í öfgakenndan fréttaflutning frá valdstjórninni. Sérstaklega í aðal malgagni valdstjórnarinnar sem er Morgunblaðið undir ritstjórn Ólafs Stephenssen.
Í Bauga Chica héraðinu í Perú hefur vopnaður armur ríkissins eytt síðustu dögum við það að fremja þjóðarmorð; löglegt þjóðarmorð. Eftir skipunum Alans Garcia, forseta Perú, hafa nú upp undir 100 hundruðir innfæddir frumbyggjar norður Amasonsvæðisins verið myrtir af lögreglunni. Á þyrlum flýgur valdið yfir fólki og sínir því afl sitt. Með vélbyssur að vopni kennir lögreglan fólkinu hvað réttlæti þýðir.
Nú vita margir í grunnatriðum hver hugmyndafræði anarkisma er, þeir sem hafa ekki kynnt sér það eru hvattir til að gera það sem fyrst þ.e. ef þeir hafa einhvern áhuga á því. Ég ætla ekki að fjalla um hugmyndafræði anarkisma nú, heldur víkja að framkvæmd anarkismans og því sem hægt er að gera núna, á þessu augnabliki til að brjóta niður hið kapítalíska kerfi og önnur valdkerfi sem stjórna okkur. Öll þurfum við að borða, drekka, eiga samanstað og hafa eitthvað fyrir stafni. Ég ætla að lýsa aðferðum til þess að ná fram þessum frumþörfum eftir anarkískum leiðum.
Er raunverulegur munur á leiðtogum, hvort sem þeir titla sig andlega eða stjórnmálalega leiðtoga heillrar ,,þjóðar“? Margt fólk í Bandaríkjunum leit ekki á Bush sem sinn leiðtoga frekar enn nokkurn annan og sömu sögu er að segja um marga sem búa í Tíbet; Dalai Lama talar ekki þeirra máli og þau líta ekki á hann sem sinn leiðtoga. Dalai Lama var valin af yfirstétt munka til að halda í hefðina um kynsveltan, karlkyns sjáanda sem stjórnast með andlegt líf Tíbeta.
Mannkynssagan er ekki eitthvað sem kemur fyrir fólk – hún er það sem fólk gerir. Menning stjórnar ekki hegðun mannkyns – hún er summa mannlegrar hegðunar. Framfarir tækninnar eru ekki kraftur náttúrunnar. Það er ekkert samfélag nema ef við byggjum það, enginn kapítalismi án okkar höfuðstóls og höfuðleysis.
Þessa hluti er erfitt að muna þegar maður stendur í skrifstofu yfirmannsins, hvað þá heldur afgreiðandi á kassa í Hagkaup. Stóru fjölmiðlarnir ýta allir undir tilfinningasemi gagnvart ,,afrekum” okkar: geimskutlan hefur sig á loft, sjúkdómur er læknaður, hetjan fær stúlkuna í lok myndarinnar.
Nýhil kynnir:
Endurkoma róttækninnar [Aftaka spyr: Endurkoma síðan hvenær?]
Fyrirlestraröð um lýðræði, kommúnisma og róttækar breytingar
Sagan er hafin á ný alltaf í gangi.
Eftir frostavetur frjálshyggjunnar eru hafnar leysingar og heimurinn kallar eftir nýjum hugmyndum um réttlátt samfélag.
Kerfisgallar og eyðileggingarmáttur markaðshagkerfisins birtust skýrt í hruni íslensks efnahags síðasta haust. Á sama tíma vekur snörp andófsbylgja vonir um endurnýjaðan samtakamátt almennings.