Bloggheimar eru heitir sem eldur eftir mótmælin á Austurvelli í dag. Bálið er vissulega þægilegt enda gott að ylja sér við ánægjuraddir fólks vegna róttækra aðgerða gegn kapítalismanum. Það er þó líka sárt, því enn má sjá bloggvini ríkisins væla, segja eggjakastið vera vanvirðingu við Alþingishúsið og sömuleiðis Bónus-fánann.
Og auðvitað leynast svo þar inn á milli aðdáendur lögreglunnar sem væla og væla. ,,Hvers vegna að veitast að lögreglunni?” spyrja þeir og aðrir taka undir: ,,Heyr heyr!”
Bónusfáninn var dregin að húni á toppi Alþingishússins í dag á meðan fjöldamótmæli stóðu yfir á Austurvelli! Fólkið fagnaði, hló og og kallaði “RÍKISSTJÓRNIN ER ÓDÝRT SVÍN!”
Með þessum gjörningi er bent á að fjármagnið og auðmenn stjórna landinu og ríkisstjórnin vinnur fyrir þá! Einnig bendir þetta á hversu ómerkileg svín starfa inn á Alþingi eins og svo vel er lýst í bókinni Animal farm!

Nú er allt í upplausn og fáir þora að segja Burt með Kapítalismann, heldur tala frekar í hysteríu um sprotafyrirtæki og góðan, jafnvel kvennlægan kapítalisma og alskonar aðrar umbótahugsjóna reddingar sem geta kanski, mögulega eftir smá erfiðleika fært okkur aftur efst á hamingjusömustu þjóðir í heimi listann.

Mitt í þessu reyna fjölmiðlar, stjórnmálamenn og fyrirtæki að vekja upp í “Íslensku þjóðinni” gamaldags þjóðernishyggju með tilheyrandi helgislepju.
Mótmælaganga fór fram frá Hlemmi og niður að Austurvelli í gær. Skipuleggjendur göngunnar kröfðust þess að (A) ríkisstjórnin myndi víkja burt og (B) efnt yrði til nýrra alþingiskosninga sem fyrst. Hópur Anarkista var sammála fyrri liðnum en vildi þó ekki sjá kosningar, heldur samfélag án yfirvalda; samfélag skipulagt af þeim sem í því búa. Og til þess að koma því í gegn: sterka og stöðuga andspyrnu.
Dagblaðið ‘NEI’ er nýtt dagblað og kemur út oft oft og það er verður pési að lesa!
Þú getur nálgast NEI-ið á þessari slóð hér: www.this.is/nei
Aftaka fagnar greinandi skrifum en fréttamiðlar landsins eru uppfullir af kreppu hitt og kreppu þetta án þess að skýra ástandið né þá heldur reyna þeir að segja satt.En þesskonar blaður er ekki stundað í dagblaðinu ‘NEI’ og klapp fyrir því!
ANDSPYRNA nr. 1
1. NÓVEMBER 2008
Sá veruleiki sem Íslendingar þekktu er nú hruninn. Fólk hefur verið férúgið og yfirvofandi er atvinnuleysi, ofur-vextir, einangrun, skulda-þrældómur og skortur.
Sumir hrópa að kapítalisminn, ríkjandi hugmyndafræði síðustu áratuga, sé fallinn. Það er hins vegar langt í frá. Þvert á móti er hann að þróast og nú eru að skapast bestu mögulegu aðstæður fyrir algjörlega hömlulausan kapítalisma. Og kanski var það alltaf markmið hans að koma á því ástandi sem hér ríkir nú, einfaldlega því þannig færist fjármagnið á enn færri hendur.
Eftirfarandi tilkynningu er nú dreift um netheima:
Fylkjum saman liði undir svörtum fánum næstkomandi laugardag (1/11) klukkan tvö við Hlemm!
Hörður Torfason og Kolbrún Baldvinsdóttir vilja ríkisstjórnina burt, við viljum ríkisstjórnina, kapítalismann, kirkjuna og ríkið burt! Hvenær ef ekki nú er rétti tíminn?
Ef kosningar breyttu einhverju væru þær ólöglegar! Mætum öll og mætum með læti!
Aftaka tekur undir þetta, jahá!
Laugardaginn síðastliðna, þann 25. Október, fór fram stærðarinnar aðgerð og mótmæli í Danmörku. Yfirskrift dagsins var Luk Lejren! eða Lokum Búðunum! og var tilgangurinn að mótmæla meðferð á hælisleitendum í Danmörku og loka búðunum (lesist: fangelsinu) sem þeir búa í. Búðirnar, sem eins og fangelsi eru girtar af með gaddavír, eru staddar í smábænum Sandholm, um 25 km. frá Kaupmannahöfn. Skilaboð þeirra sem stóðu að aðgerðinni voru skýr og í alþjóðlegu ákalli fyrir aðgerðina sagði m.a. þetta: