English 
Þú ert að skoða færslur flokkaðar undir Eldri Viðburðir:

Fimmtudaginn 26. febrúar verður Anarkistaspjall #2 haldið í Hljómalind. Auðunn ætlar að tala um IMF (Alþjóðagjaldeyrissjóðinn) og eftir það verða frjálsar umræður.

Það væri líka gaman ef að einhver hefði áhuga á að tala um önnur fjárhagskerfi á fundinum, eins og parecons eða socecons.

Minni á söfnunarbaukana en þeir eru til að greiða leigu af félagsrýminu í Kaffi Hljómalind en rýmið starfar án von um gróða, og reiðir sig á frjáls framlög til að vera til.

Tögg:

Nýjasta eintakið af Earth First! Action Update – yfirlits yfir beinar aðgerðir og mótmæli gegn eyðileggingu jarðarinnar er komið út og má hala niður hér. Yfirlitið kemur út á þriggja mánaða fresti og segir það nýjasta frá helstu aðgerðum Ágúst, September og Október, aðallega í Bretlandi en einnig alþjóðlega.

31. Október – 2. Nóvember
ANDSPYRNUBÍÓ – Pólitísk Kvikmyndahátíð
Kaffi Hljómalind, Laugarvegur 23 – FRÍTT INN

- FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER

21:00 – The Corporation (Mark Achbar & Jennifer Abbot 2003)
The Corporation is a Canadian documentary film critical of the modern-day corporation, considering is as a class of person and evaluating its behavior towards society and the world at large as a psychologist might evaluate an ordinary person. This is explored through specific examples. Starring e.g. Noam Chomsky, Howard Zinn og Naomi Klein.

- LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER

Saving Iceland kynnir:

HREINT ÁL? – Getur álframleiðsla verið hrein? Er álframleiðsla á Íslandi hrein? Er íslensk álframleiðsla okkar einkamál?

Fyrsta stig álframleiðslu er báxítgröftur, sem fer að mestu leyti fram í þriðja heiminum. Báxítgröftur hefur rústað heilu samfélögunum, slitið sundur fjölskyldur og eyðilagt ótrúlega stór landsvæði. Álfyrirtæki á borð við Alcoa og Alcan eru í nánu samstarfi við hergagnaframleiðendur og heri og að minnsta kosti 30% af áli er framleitt fyrir hergögn og stríðsrekstur.

Tögg: ,

RÚSTÞann 19. Júní nk. hefst pólítísk listahátíð í Reykjavík og stendur til 22. júní. Hátíðin heitir RÚST – Skapandi Andpsyrna – Nauðsynleg Skemmilegging og hefur samkvæmt heimasíðu hennar ,,það markmið að fjalla um samtímann á gagnrýninn, róttækan og spyrjandi hátt, þ.e.a.s. pólitískan.“

Flestir atburðir hátíðarinnar verða af (fjölmörgum ástæðum) ekki auglýstir, en fara fram á götum Reykjavíkur og ætti fólk því að hafa augun opin fyrir því sem mun gerast á götunni næstu daga. Á hátíðinni verða þó einnig fyrirlestrar og vinnustofur, sem verða auglýstar á síðunni og á veggspjöldum víðsvegar um borgina.

Í dag, föstudaginn 23 /5 verða tónleikar á Kaffi Hljómalind klukkan 22:00 til styrktar Saving Iceland. Frítt verður inn, en frjáls framlög verða vel metin. Trúbatorinn Herman frá Hollandi og einhver Dean, bassaleikari sinfoníusveitar Íslands spila og tralla. Aftaka kann ekki að skýra betur frá þessu en hvetur alla til að mæta.

Fjórðu aðgerðabúðir Saving Iceland gegn stóriðjuvæðingu Íslands og gegn alþjóða-kapítalisma hefjast þann 12. júlí. Búðirnar eru staðsettar á Hellisheiði og hér má finna leiðina að þeim.

Saving Iceland hefur sett upp nýja heimasíðu: www.savingiceland.org

Heimasíða hátíðarinnar: www.rustrust.orgNetfang: afbygging.deconstruction@gmail.com

Dagskrá RÚSTs

Á miðvikudögum stendur Andspyrna fyrir róttækum kvikmyndasýningum á Kaffi Hljómalind, Laugarvegi 23. Núna á miðvikudaginn, 11. júní, verður sýnd mjög áhugaverð mynd, PickAxe.

Myndin, sem er gerð af umhverfis aktívistanum Tim Ream, fjallar um ellefu mánaða langar mótmælabúðir í Warner Creek skóginum í Oregon, Bandaríkjunum. Eftir grunsamlegan skógareld sem átt sér stað í skóginum árið 1991, var ákveðið að leyfa skógarhögg stórs svæðis þessa verndaða skógar. Umhverfis aktívistar töldu athæfið geta orðið slæmt fordæmi og hugsanlega leitt til fleiri slíkra athæfa. Eftir fylgdi 11 mánaða barátta sem innihélt m.a. 79 daga hungurverkfall Tim Ream, höfundar myndarinnar.
Sýningin hefst kl. 20:00 og að sjálfsögðu er frítt inn.

Tilkynning frá Saving Iceland:

Pönk tónleikar til styrktar Saving Iceland, fimmtudaginn 5. Júní. Fram koma:

DYS
SAKTMÓÐIGUR
SLEEPS LIKE AN ANGRY BEAR
BRILLO

Í baksal Kaffi Hljómalindar, Laugarvegi 23. Byrjar klukkan 20.00.

500 kr. inn (nema fólk sé því blankara … komið þá og talið við okkur í dyrunum eða komið með klinkið ykkar) – þetta er nebbilega styrktartónleikar til að hjálpa til við að borga leiguna af salnum og halda honum opnum fyrir svona uppákomur og einnig til að hjálpa Saving Iceland að verja klakann fyrir taumlausri græðgi orkufyrirtækjanna.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in