Þú ert að skoða færslur flokkaðar undir Herðar:

 Bubbi í rauðu

,,Áfram með lífið” er yfirskrift tónleika sem fara fram í Laugardalshöll í kvöld og eru Íslendingar hvattir til að gera sér glaðan dag saman. Það er fjörkálfurinn og (að eigin sögn) fyrrum auðmaðurinn Bubbi Morthens stendur að tónleikunum og auk hans koma fram tíu stykki íslenskra meginstraums hljómsveita og listamanna. Öll syngja þau saman: ,,Áfram með lífið!”

Bubbi og safnarbörnin

Flautað gegn auðmönnum

Ágætis gjörningur átti sér stað í morgun á Miklubrautinni þar sem borðar höfðu verið hengdir á þrjár göngubrýr, hver með ákveðnum skilaboðum. Fólk var hvatt til að flauta ef það vildi ekki borga skuldir auðmanna, vildi ekki að börn sín borguðu skuldirnar og ef fólk vildi nýja stjórn Seðlabanka.

Tögg:

 ANDSPYRNA nr. 1

1.    NÓVEMBER 2008

Sá veruleiki sem Íslendingar þekktu er nú hruninn. Fólk hefur verið férúgið og yfirvofandi er atvinnuleysi, ofur-vextir, einangrun, skulda-þrældómur og skortur.

Sumir hrópa að kapítalisminn, ríkjandi hugmyndafræði síðustu áratuga, sé fallinn. Það er  hins vegar langt í frá. Þvert á móti er hann að þróast og nú eru að skapast bestu mögulegu aðstæður fyrir algjörlega hömlulausan kapítalisma. Og kanski var það alltaf markmið hans að koma á því ástandi sem hér ríkir nú, einfaldlega því þannig færist fjármagnið á enn færri hendur.

 Girðing rifin

Laugardaginn síðastliðna, þann 25. Október, fór fram stærðarinnar aðgerð og mótmæli í Danmörku. Yfirskrift dagsins var Luk Lejren! eða Lokum Búðunum! og var tilgangurinn að mótmæla meðferð á hælisleitendum í Danmörku og loka búðunum (lesist: fangelsinu) sem þeir búa í. Búðirnar, sem eins og fangelsi eru girtar af með gaddavír, eru staddar í smábænum Sandholm, um 25 km. frá Kaupmannahöfn. Skilaboð þeirra sem stóðu að aðgerðinni voru skýr og í alþjóðlegu ákalli fyrir aðgerðina sagði m.a. þetta:

Brennum bankana!

Í gær var enn á ný mótmælt vegna efnahagsástandsins hér á landi. Í þetta skiptið fóru fram tvær athafnir: tónleikar Harðar Torfasonar á Austurvelli og fjölskylduboð Jóns Baldvins og fjölskyldu við ráðherrabústaðinn á Tjarnargötu.

Fjölmiðlar hafa gert mikið úr því að mótmælahreyfingin svokallaða hafi klofnað vegna einhverra ósátta og Hörður Torfason virtist vera á sama máli - líklegast fúll yfir dræmri mætingu á tónleika sína. Eflaust eru margir sammála fjölmiðlum og Herði og finnst mikilvægast að nú ,,standi þjóðin saman.” En svekkjandi, málið er ekki svo einfallt. Það er ekkert óeðlilegt við að mismunandi hópar fólks standi upp á mismunandi forsendum og beiti mismunandi aðferðum. Ástæðan er einföld:

Í hallargarðinum sitja jakkafatakallar í auðmannshring og gráta krókódílatárum yfir öllum miljörðunum sínum sem þó liggja leyndir og vel geymdir í swissneskum bankahólfum.

Hallargarðurinn og millar í jakkafötum í hring

Bla bla í sjónvarpi og bla bla í útvarpi,

blablablablabla í blöðunum,

Bubbi syngur í höllinni:

“Við vorum eitt, auðvaldið og ég”, hann syrgir hlutabréfin!

“Stöndum saman” segir hann “þjöppum okkur saman”.

Á tölvuskjánum sendir bloggari þér 3 kreppu knús.

Hæst settustu Kapítalistar þessa heims tala til alþýðunnar á forsíðu Fréttablaðiðsins í dag:

kapital í fréttablaði

Krepputilboð! Krepputilboð!

Fjölskylduferð í Öryggisráðs-Sirkusinn á aðeins 249 milljónir. Skoðunarferð um álverið á Reyðarfirði í kaupæti.

Sirkusinn

Í dag birti vefsíða Morgunblaðsins bréf sem sagt var að væri fá Bretanum Adrian Brain, sem heimsótt hefur Ísland og er víst ákaflega óánægður með framkomu Gordons Brown gagnvart Íslandi. Í opnu bréfi sínu til íslensku þjóðarinnar biðst hann afsökunar. Takið ykkur örstutt hlé til að æla.

Royal Shit!

Fyrir u.þ.b. viku síðan réðust 58 lögregluþrælar inn á gistiheimili hælisleitenda í Njarðvík, tóku peninga og vegabréf af fólki, og leituðu að eiturlyfjum, sem reyndar fundust ekki í þetta skiptið. Fréttaflutningur af málinu var með eindæmum ógeðslegur og sú mynd gefin af gistiheimilinu að þar sé hrúga eftirlýstra morðingja, eiturlyfjasala, óheiðarlegra einstaklinga með fölsuð vegabréf og svartamarkaðsverkamanna. Hlið við fréttir um lögregluaðgerðina voru settar fréttir um ,,hættulega Litháa” og fleira í þeim dúr. Tilgangurinn var svo augljós; að skapa hælisleitendum ranga ímynd. „Nú verður bent á okkur ef við förum í göngutúr um götur Keflavíkur,“ sagði Farzad Rahmanian einn hælisleitanda við Mbl.is.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Login