Þú ert að skoða færslur flokkaðar undir Höfuð:

Núna er umrót í samfélaginu og svo sannarlega þurfum við byltingu, þótt fyrr hefði verið. En hvernig byltingu? Það hljómar nefnilega rómó að klæða sig upp í rykfrakka og Stalín-hatt, halda ræðu og segja: “BYLTING, BYLTING” svo fólkið í kring fagnar, hrópar og klappar.

valdníðingar

En svo þegar allt kemur til alls ertu kanski bara Jón Baldvin, einn af postulum kapítalismans, ert með Benz-bíllyklana í vasanum, flatt rassgat og gyllinæð af bræðralagi þínu við helstu valdníðinga þessa lands. Og kanski ertu líka með Havana-reyktan háls af langlegu í sendiherrabústaðnum þar sem þú kúkaðir gylltum kavíar ofaní uppskríllaða kjölturakka!

Tögg:

 Rjómatertu í þetta andlit

Hafi lægstvirtur 4. valdníðingur, Björn Bjarnason, tekið eftir auknum lestri á vefsíðu sinni síðan Janúar sl. er það að hluta til vegna gífurlegs áhuga allra Aftöku-penna á skrifum hans. Af öllum bloggsíðum landsins er síða Bjarnarins eflaust ein sú áhugaverðasta. Á hverjum degi eitthvað nýtt, alltaf er hægt að skemmta sér yfir skrifum hans og nokkuð oft má finna frásagnir sem meginstraums- og fyrirtækjafjölmiðlar landsins birta ekki.

Og í dag er svo.

Tögg:

Ef það að mótmæla óréttlætinu og krefjast réttlætis gerir mann að skríl, þá er það gleðiefni að vera SKRÍLL!Frá breiðfylkingunni!

Þessi skilaboð voru í horninu:

ps. hvað?Með þessu Ps-i sínu er “breiðfylkingin” að hlýða lægstvirtri ríkisstjórninni á sama tíma og þessi “breiðfylking” krefst afsagnar ríkisstjórnarinnar! Verum stolt af því að láta ekki bjóða okkur meiri skít! Verum þessi SKRÍLL sem ríkisstjórnin og aðrir valdhafar hræðast! Mætum á Austurvöll sem SKRÍLLINN sem lætur ekki vaða yfir sig!

Tögg: ,

OG FÖRUM ÚT Á GÖTURNAR NÚNA STRAX!

Bréf til bloggara landsins:

Ástandið er all svakalegt. Vilji fólk fylgjast almennilega með því sem er að gerast á Íslandi í dag (látum vera að skilja það allt saman),  krefst það þess að fólk sitji fyrir framan tölvuskjá allan daginn og ýti á ,,Refresh” hnappinn á 10 mínútna fresti. Fyrirtækjafjölmiðlar (e. corporate media) og ríkismiðlarnir eru stútfullir af fréttum tengdum kreppunni og uppfæra vefsíður sínar stanslaust svo ótal spurningar vakna.

Hahaha, Aftaka tekur ofan fyrir þessum gjörningi gegn hinni blóðugu Valhöll Sjálfstæðismanna!

valhöll rauð rauð mehehe

Brot úr fréttum Moggans í dag:

Lögreglan hafði í nógu að snúast í nótt. Valhöll máluð, flugeldur sprengdur við alþingishúsið og brotist inn í Ármúla. Innbrotin voru fleiri.  

Já, nú er engin miskunn gagnvart þeim sem hafa verið kúgarar og lygarar í þessu samfélagi! Áfram, áfram og ekki gefast upp fyrr en ránfuglinn er fallinn og Bónusgrísinn og kapítalisminn sömuleiðis!

Aftaka tekur ofan fyrir þessum gjörningi þeirra Yes-Manna sem þeir framkvæmdu í gær.

Hópurinn í samvinnu við róttæka blaðamenn, bjó til og prentaði blað sem leit nánast eins og The New York Times, en forsíðu fréttin var að Íraks- og Afganistanstríðunum væri lokið, búið væri að setja hámarkslaun fyrir framkvæmdastjóra og að allir bensínknúðir bílar yrðu nú innkallaðir. Þetta blað var síðan prentað í miljón eintökum og dreift!

New York Times eins og það ætti frekar að vera!

Þar er full ástæða til þess að taka ofan fyrir ákveðnu fólki hér á landi vegna tveggja atburða sem áttu sér stað í dag. Það má með sanni segja að almenningi, eða að minnsta kosti þessum hluta almennings, sé að fara fram þegar kemur að andpsyrnuaðgerðum gegn ríki og auðvaldi. Því ber að fagna.

Leðurfákar skipta sér af og krefjast hlýðni

Alþingismenn lokaðir úti

Fjölmiðlar eru stór þáttur í lífi flestra. Fréttablöð fljúga inn um bréfalúgur, sjónvarps- og tölvuskjáir lýsa upp heimili fólks og útvörp drepa þögnina. Aftaka fjallar hér um þetta fyrirbæri, fjölmiðla.

DV ögrar lögreglu og stjórnvöldum

Þó seint verði stuðningi við Dagblaðið Vísi lýst yfir hér á Aftöku er ekki annað hægt en að taka ofan fyrir umfjöllun blaðsins á vígbúnaði þræla ríkissins, lögreglunnar. Síðustu daga hefur blaðið sagt frá brynvörðum bifreiðum lögreglunnar og sérþjálfuðum óeirðahundum. Tími umfjöllunar DV á vel við nú þegar reiði fólks gagnvart stjórnvöldum virðist aukast með hverjum degi og samhliða aukast líkurnar á því að lögreglan sjái ástæðu til að nota vígbúnað sinn.

 Athugið, Athugið, Valdníðsla í verki!

Hann Björn litli Bjarnason deyr ekki ráðalaus, hann býst við að finna unga menn með valdníðslu í hjartanu, eftir niðurlægingu skólakerfisins og yfirvaldsins, til að uppfylla pervisna valdníðsludrauma sína! Það hlakkar í Birni litla B. þegar hann hugsar um rafstuðsbyssur og táragas. Hann nuddar kylfuna og skvettir úr honum yfir riot-porni frá öðrum valdníðingsríkjum!

En Björn:

Það er enginn memm þér, þú færð ekki fleira fólk til að kúga fyrir þig og þína, við erum öll búin að sjá í gegnum ykkur!

 Löggubíll brennur

Bloggheimar eru heitir sem eldur eftir mótmælin á Austurvelli í dag. Bálið er vissulega þægilegt enda gott að ylja sér við ánægjuraddir fólks vegna róttækra aðgerða gegn kapítalismanum. Það er þó líka sárt, því enn má sjá bloggvini ríkisins væla, segja eggjakastið vera vanvirðingu við Alþingishúsið og sömuleiðis Bónus-fánann.

Og auðvitað leynast svo þar inn á milli aðdáendur lögreglunnar sem væla og væla. ,,Hvers vegna að veitast að lögreglunni?” spyrja þeir og aðrir taka undir: ,,Heyr heyr!”

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Login