Aftaka » Höfuð

Anarkistaritið Svartur Svanur er komið í hús
Svartur Svanur flýgur af stað í þriðja sinn. Baðar út vængjum sínum, fyllir himininn svertu og rífur í sundur þöggunarþoku yfirvalda og doða almennra valdleysingja. Svartur Svanur er árás, goggi og klóm er miskunnarlaust beint gegn bæði hægri og vinstri væng atvinnustjórnmálanna. Hann er árás á ríkjandi kerfi og menningu, grunngildi samfélagsins, hefðir þess og viðurkennda hegðun. Hann er algjör höfnun á núverandi ástandi, ákall á uppreisn og óhlýðni á öllum sviðum samfélagsins og hvatning til nauðsynlegs niðurrifs og skapandi andspyrnu.

Þriðja tölublað anarkistatímaritsins Svartur Svanur er komið út. Upphaflega átti blaðið að koma út í janúar en af ýmsum ástæðum frestaðist útgáfan. Það hafa engin undraverk átt sér stað síðan þá og efni blaðsins á því hið sama erindi inn í íslenskt mannfélag og það átti fyrir tveimur mánuðum síðan. Í þetta sinn er Svartur Svanur stærri en áður – áttatíu blaðsíður af ráðlögðum andófsskammti – og mun fjölbreyttari í þokkabót.

Grein Snæbjörns Jónssonar, „Hvað er anarkismi?“ frá 1913 birtist nú aftur á prenti, til móts við tæplega hundrað árum yngra svar við nákvæmlega sömu spurningu. Tískukistinn, sem nú mundar pennan fyrir Svaninn í fyrsta sinn, greinir búsáhaldabyltinguna, popúlisma íslensku „stjarnanna“ og stéttskiptingarboðskap appelsínugulu hreyfingarinnar. Tískukistinn svarar einnig spurningum lesenda um lífshætti, móð og mannasiði. Fjallað er um andúð breska skáldsins William Blake á yfirvaldi og hvernig anarkískar hugmyndir birtast í skáldskap hans og myndverkum.

Ákall um stéttastríð og greining á spillingu verkalýðsfélaga birtist í blaðinu, auk síðbúnar minningargreinar um Helga Hóseason. Þýðing á grein eftir Derrick Jensen setur fram efasemdir á réttmæti iðnvæddrar siðmenningar og kallar á harðari aðgerðir gegn þeim öflum sem ganga fram og rústa jörðinni í nafni framfara. Einnig er í blaðinu grein sem birtist á vel völdum vefsíðum í byrjun desember sl., þar sem kafað er ofan í orðræðu loftslagsbreytinga, græna sjónarspilið svokallaða, endurlífgun og „grænkun“ kapítalisma; allt í tengslum við COP15 ráðstefnuna sem fór fram í Kaupmannahöfn í desember sl. Þá er umfjöllun um sögu fríríkisins Kristjaníu.

Grískur anarkisti skrifar um ástandið þar í landi undir stjórnartaumum sósíal-fasistaflokksins PASOK og andspyrnuna sem vaxið hefur fiskur um hrygg síðan borgir landsins stóðu í ljósum logum um áramótin 2008-2009. Ráðist er gegn ofsóknum lögreglunnar í leikskólum landsins og  rætt er um hlutverk lögreglu í samfélagi, eðli stofnunarinnar og möguleikan á samfélagi án þessara einkaleyfishafa ofbeldis. Atvinnustjórnmálamenn fá sinn skammt af andúð og Svanurinn endar svo á hugleiðingum um anarkisma og útópíur.

Þar að auki eru í blaðinu ritdómar og fjöldi smærri texta, ljóða, prósa og myndverka. Þar fá grunngildi samfélagsins óvæga meðferð, þ.á.m. hugmyndin um heilagleika hinna tveggja kynja, meint hreinlæti borgarsamfélagsins og hinn heiðvirði vinnandi maður. Umfram allt stórt og kraftmikið „nei!“ – því allar breytingar eiga sér rætur í neitun á núverandi ástandi.

Til að hljóma ekki allt of ólíkt andstæðingum okkar – en einnig vegna þess að það er einfaldlega satt – fullyrðum við að blaðið sé eitthvað sem „enginn geti látið framhjá sér fara“ og bendum fólki því á að hægt er að ná sér í eintak með því að senda beiðni á netfangið svartursvanur (hjá) riseup.net – við komum blaðinu til þeirra sem það vilja. Allar nánari upplýsingar um blaðið fást í gegnum sama netfang. Fangar geta fengið blaðið frítt en aðra biðjum við um að láta af hendi c.a. andvirði bjórs á bar svo við getum haldið áfram að gefa út feita og flotta fugla. Blaðið verður einnig í sölu hjá stórum kapítalistum, sem finnst kúl að selja smá andóf innan um slúður og vísindi. Þið hljótið að renna á

lyktina…

Að lokum höfum við sett upp heimasíðu sem kemur til með að geyma öll tölublöð Svarta Svansins á tölvutæku formi. Vonandi verður það að veruleika sem fyrst en slóðin er www.svartursvanur.org.

Sjá Svartan Svan nr. 1 hér og nr. 2 hér.

Örlítið af mjög miklu í Grikklandi
Í dag, miðvikudaginn 20. janúar, hefjast réttarhöld yfir lögreglumönnunum tveimur sem drápu hinn 15 ára Alexandros Grigoropoulos í Exarcheia hverfinu í Aþenu. Réttarhöldin fara fram í smábænum Amfissa, langt frá Aþenu og öðrum stórborgum landsins. Amfissa er dæmigerður grískur smábær með dæmigerð smábæjarvandamál, en með því að rétta í þessu heita pólitíska máli – skotárás sem leiddi af sér ótrúlegan tíma óeirða sem enn sér ekki endann fyrir – reynir gríska ríkið nú að einangra málið, fela það og loka því með þöggun.

Anarkistar hafa hins vegar boðað komu sína til Amfissa og þegar lítill hópur anarkista mætti þangað um daginn til að spjalla við heimamenn voru þeir síðarnefndu í óðaönn við að laga bæinn að grískum óeirðum; byrgja fyrir gluggar verslanna og annað í þeim dúr. Anarkistunum var þrátt fyrir það vel tekið og dreifðu þeir texta til bæjarbúa, þar sem m.a. segir:

Það vorum við, meðal annarra, sem kveiktum fyrstu eldana án þess að hafa hugmynd um hversu mikið mikill efniviður í bálköst bræðinnar er í kringum okkur. Og þessi eldur gerði okkur glöð. Ekki vegna gleðinnar sem því fylgir að eyðileggja, heldur vegna þess að eldurinn sýndi að hjarta hins kúgaða samfélags er enn á lífi. Eldarnir sönnuðu að heilaþvotturinn, hlýðniskennslan og alræði kerfisins, er götótt.

Kerfið hefur holur sem munu – þegar tíminn líður, eftir því sem efnahagskreppan heldur áfram, á sama tíma og kapítalistarnir krefjast þess að fá meira, á meðan goðsagnirnar og fölsku vonirnar sem yfirvöld rækta hrapa – verða vonin fyrir félagslegt frelsi, fyrir gagnárásir okkar allra, fyrir nýja Desembermánuði – og handan þeirra. Von fyrir okkur, ótti fyrir ríkið. Ríki sem lamdi fólk, kastaði táragassprengjum, framdi hundruðir handtaka, en tókst ekki að halda stjórn á nokkrum sköpuðum hlut.

Boðað hefur verið til mótmæla kl. 09:00 á aðaltorgi borgarinnar. Það verður svo sannarlega spennandi að sjá hvað verður úr þeim. Yfirlýsinguna alla má lesa hér.

Og það er margt fleira að gerast í Grikklandi. Við vildum gjarnan gefa tíma okkar og orku í að fjalla ítarlega um stöðu mála þar en það er að einhverju leyti óþarfi, þar sem mjög góðri síðu er haldið upp af Occupied London kollektívinu, þar sem nánast daglega birtast nýjar fréttir, tilkynningar og greinar um ástandið í Grikklandi – það sem þau kalla: After the Greek Riots.

Hér er svo eitthvað smáræði:

Laugardaginn 9. janúar sprakk sprengja við þinghúsið í Aþenu. Tvisvar var varað við sprengingunni svo lögreglan gæti rýmt svæðið og enginn (í það minnsta) almennur borgari særðist. Nokkrum dögum seinna lýsti skæruliðahópurinn Conspiracy of Cells of Fire verknaðinum á hendur sér með langri yfirlýsingu undir titlinum Democracy Shall Not Win!

Textinn er langur og áhugaverður – og má lesa í heildi sinni hér – og endar með kröfum sem fylgt er eftir með hótunum um frekari og harðari aðgerðir hópsins. Hópurinn krefst þess að öllum föngum sem handteknir hafa verið fyrir grunaða þátttöku í aðgerðum hans verði sleppt og dómsmál yfir þeim lögð niður. Auk þess minnist hans fallina félaga og lýsir yfir samstöðu með föngum sem dúsa í hvítum einangrunarklefum lýðræðisins.

Fimmtudaginn 14. janúar var ráðist gegn skrifstofu staðgengils dómsmálaráðherra Grikklands, en í lok nóvember síðasta árs var einmitt kveikt í þeirri sömu byggingu. Í þetta skiptið var árásin ögn hógværari, en segja má að árásargrúppan hafi skemmt skrifstofuna af tiltölulega miklum móð.

Þremur dögum áður, þann 11. janúar hófst hungurverkfall fanga í Greneva fangelsinu, sökum ömurlegs aðbúnaðar í fangelsinu. Á svipuðum tíma var kveikt í nokkrum bönkum í Aþenu, auk bygginga sem tengjast gríska hernum, en íveikjur og sprengingar í bönkum hafa einmitt átt sér stað reglulega síðasta eina og hálfa árið.

Egypskir fiskverkamenn nálægt Þessalóniku hafa verið í verkfalli í nokkurn tíma og frá og með mánudeginum síðasta hafa grískir bændur mótmælt ríkisstjórninni, m.a. með því að loka hraðbrautum. 15. janúar sprakk svo sprengja í fjölmiðlamálaráðuneytinu gríska. Skilaboðin voru einföld: Baráttan heldur áfram.

Við höldum áfram að fylgjast með því sem er að gerast í Grikklandi en mælum sterklega með After the Greek Riots síðunni. Nýtt eintak af Occupied London er einnig á leiðinni og má búast við því að það snúi að mjög miklu leyti að Grikklandi.

Þar að auki mælum við með því að fólk taki sér grískt andóf til fyrirmyndar.

Green Peace – Green Police
Hér að neðan er yfirlýsing hluta svartblokkarinnar í mótmælagöngu í Kaupmannahöfn þann 12. desember sl. Yfirlýsingunni var dreift fyrir gönguna sem hélt svo í átt að Bella Centre, þar sem COP15, loftslagsráðstefna Sameinuðu Þjóðanna átti sér stað. Stuttu eftir að gangan hófst voru rúður í dönsku verðbréfahöllinni og utanríkisráðuneytinu brotnar. Og þegar lögreglan hugðist handtaka hina svartklæddu, sem brugðust vitanlega við með herskáum hætti, reyndu meðlimir Climate Justice Action, einskonar regnhlífarhóps andófsins gegn COP15, að koma í veg fyrir að svartblokkin kæmist lengra í göngunni. Nú, þegar COP15 er löngu lokið, er umræðan um innri löggæslu og friðsemdarkröfur Climate Justice Action, rétt að byrja.

Ásamt þúsundum manna sem öllum langar til að bjarga heiminum, komum við saman til að marsera að Bella Centre ráðstefnuhöllinni, en það er eitthvað að. Slagorðin hljóma aðeins of kunnuglega. „Hefðbundin viska og ný tækni þurfa að haldast í hendur.“ Er þetta ekki einmitt það sem við erum búin að vera að lesa á auglýsingum út um alla borg?

Hver og einn leikur sitt hlutverk í ráðstefnunni, alveg eins og í kvikmynd. Og það eru meira að segja mismunandi útgáfur af sama sviðinu, að mestu skipt upp eftir fjármagni. Byggingin sem hýsir Klimaforum [óháða ráðstefnu um loftslagsbreytingar] minnir á geimstöð í bland við nútímalistasafn. Innan um veggjakrotið, eiturlyfin og reggítónlistina í Kristjaníu er draumurinn ódýrari en skemmtilegri. Inni í hinu gjörsamlega gelda Belle Centre, vinna áhugahóparnir [NGO - Non-Governmental Organization] ásamt fulltrúum ráðstefnunnar að samkomulagi sem á að bjarga okkur öllum. Í hljóðkerfinu hér úti segja sömu andlitin okkur að beita „pólitískum þrýstingi“ til að hafa áhrif á samningaviðræðunar.

Það virðist vera sameiginleg rökfræði meðal sendifulltrúa ríkisstjórna, áhugahópanna sem stjórna mótmælagöngunni, og jafnvel róttæku náttúruverndar aktívistanna: við erum öll að bjarga mannkyninu saman. Hver myndi ekki vilja berjast fyrir þann málstað? Og jafnvel ef þú vildir það ekki, ertu viss um að þú hafir um eitthvað að velja? Enginn virðist hafa tíma til að taka sér hlé og hugleiða hverju við eigum að bjarga, hvað mannkynið þýðir. Hvað felur það í sér að hafa trú á tilvist einnar pólitískrar hreyfingar sem bindur okkur öll saman? Pólitík verður úrelt í þessum sameinaða og friðstillta heimi sem fólk ímyndar sér hér í Kaupmannahöfn. Hvað ef ákallið sem umvefur borgina og jafnvel mótmælin eru ekkert annað en gríðarstór friðargæsluaðgerð?

Á stríðstímum, er ákall um uppgjöf og undirgefni á bakvið hvert ákall um sameiningu. Allir eru sammála því að kapítalisminn er í krísu, að eldri form stjórnunar muni ekki nægja. Þessi leiðtogafundur gæti vel verið augljósasta merkið um form stjórnunarinnar sem koma skal, þar sem allir eru skyldugir til að leggja eitthvað til málanna. Því skrefi mætti lýsa sem félagslegri verkfræði. Útópískri tilraun til að framleiða fullkomlega stýrt líf, algjörlega útreiknanlega tilveru, með því að láta okkur gleyma því að sumri baráttu verður ekki breytt í valdaspil, að stundum snýst vinátta um eitthvað annað og meira en hagfræði. Þessari lifandi ofgnótt verður ekki lýst, heldur verður hún einungis upplifuð. Það er þó hægt að lýsa því hvernig þessi aðgerð gengur fyrir sig: líf okkar eru fyrst brotin niður í nokkra mælanlega hluta og svo endurseld okkur sem the real thing. „Von í flösku“ – Hope in a bottle!

Eldmóðurinn sem snúið hefur öllum pólitískum hópum í átt að vistfræðinni, kennir okkur sitthvað um hið sanna eðli þessara nýju, grænu, hnattrænu trúarbragað. Frá hjarta Bella Centre til mest áköfustu aktívistanna, handan alls skoðanaágreinings, heyrist  ákallið um að fólk láti undan sjálfu sér. Fórni öllu því sem gerir lífið þess virði að lifa, í nafni sjálfs lífsins. Geri hlé á núlíðandi stund til að bjarga framtíðinni. Stjórni þrám okkar, og mest af öllu, trufli ekki  hið viðkvæma jafnvægi. Vistfræðin gengur út frá sömu hugmynd um tilvist og einkennir lögregluna: hættan er alls staðar, og helst af öllu, í okkur sjálfum.

Þegar árangur ráðstefnunnar veltur á þátttöku mannfjöldans í miðborgum hverrar borgar,

HVERT FINNST YKKUR AÐ VIÐ ÆTTUM AÐ FARA?

Og ef lögreglan, í öllu sínum formum, er hinn nýji kjarni hnattrænna stjórnmála,

HVAÐ FINNST YKKUR AÐ VIÐ ÆTTUM AÐ GERA?

Íþróttaviðburður = Íþróttaviðbjóður
<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="450" height="358" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="flashvars" value="image=http%3A%2F%2Fa.images.blip.tv%2FStimulator-ALLOUTAGAINSTTHE2010WINTEROLYMPICGAMES173.jpeg&link=http%3A%2F%2Fblip.tv%2Ffile%2Fget%2FStimulator-ALLOUTAGAINSTTHE2010WINTEROLYMPICGAMES628.flv&file=http%3A%2F%2Fblip.tv%2Ffile%2Fget%2FStimulator-ALLOUTAGAINSTTHE2010WINTEROLYMPICGAMES628.flv&plugins=viral-1d" /><param name="src" value="http://submedia.tv/mediaplayer-viral/player-viral.swf" /><param name="allowfullscreen" value="true" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="450" height="358" src="http://submedia.tv/mediaplayer-viral/player-viral.swf" allowfullscreen="true" flashvars="image=http%3A%2F%2Fa.images.blip.tv%2FStimulator-ALLOUTAGAINSTTHE2010WINTEROLYMPICGAMES173.jpeg&link=http%3A%2F%2Fblip.tv%2Ffile%2Fget%2FStimulator-ALLOUTAGAINSTTHE2010WINTEROLYMPICGAMES628.flv&file=http%3A%2F%2Fblip.tv%2Ffile%2Fget%2FStimulator-ALLOUTAGAINSTTHE2010WINTEROLYMPICGAMES628.flv&plugins=viral-1d"></embed></object>

Ólíkt manninum hefur úlfurinn sjálfsvirðingu
Í samfélögum mannsins þjóna dýragarðar sama hlutverki og grasblettir fyrir framan bensínstöðvar. Firring mannsins er svo gegnumgangandi og umlykjandi allt hans umhverfi, að hann finnur sig knúinn til að minna sig á það einstaka sinnum að það er annað og meira til í heiminum en hann sjálfur. Grasið við bensínstöðina – sem á sér reyndar afskaplega fáar fyrirmyndir í náttúrulega umhverfinu – mætir honum á hverjum degi en það virðist vera nóg að heimsækja dýragarðinn einstaka sinnum. Og þá helst á sunnudegi.

Dýragarður er safn mannsins. Fornminjasafn sem sett var upp löngu áður en munirnir urðu að raunverulegum fornminjum. En siðmenntaði maðurinn veit að hann er að rústa plánetunni og öllu ómannlegu lífi á henni og þess vegna hefur hann nýtt siðaðar gáfur sínar og sótt minjagripi til varðveitingar í safninu. Og fyrir stórum hluta mannkyns eru safnmunirnir, dýrin, fornminjar – jafn fjarlægar þeim og torfkofarnir, steinöxin, askurinn og árabáturinn.

Dýragarðurinn er eins og Þorrablót. Minning um fortíð sem þykir þess virði að viðhalda örlitlu lífi í. Fortíð sem ekki kemur til greina að endurvekja til hins ýtrasta heldur aðeins að eiga möguleikann á að rifja upp þegar það hentar. Dýragarðurinn er nostalgía.

Í gær sagði Morgunblaðrið frá því að forsvarsmenn dýragarðs á Skáni í Svíþjóð hafi neyðst til að aflífa alla úlfana sem í garðinu voru, 14 dýr alls. Gefum Mogganum orðið:

Varð þetta niðurstaðan eftir að nokkrir úlfanna, þar á meðal forustuúlfarnir, grófu sig út úr girðingunni þar sem þeim var haldið.

Tveimur úlfum tókst í gær að sleppa úr girðingunni og þeir voru skotnir á flótta. Annar þeirra var forustuúlfynjan. Ljóst þótti, að í kjölfarið yrði alger upplausn í úlfaflokknum í girðingunni og var því gripið til þess að skjóta öll dýrin.

„Þetta er afar sorglegt mál vegna þess að það er ekki auðvelt að byggja upp úlfaflokk. Það tekur mörg ár. En ég tel að við höfum gert rétt,” hefur fréttastofan TT eftir Johan Lindström, forstjóra dýragarðsins.

Dýragarðurinn var rýmdur í gær þegar úlfarnir sluppu úr girðingunni. Um 80 dýrategundir eru í garðinum, allt norræn dýr, bæði tamin og villt.

Það kemur eflaust mörgum á óvart að úlfar í dýragarði skuli flýja. Hvers vegna skildu þeir vilja lifa í skítugri náttúrinni þegar í boði er að búa við vellystingar og dekur appelsínugulklæddra starfsmanna dýragarðins? Hvers vegna fagna þeir því ekki frekar að þurfa ekki að berjast fyrir lífi sínu í villtu náttúrulegu umhverfi sínu?

En munurinn á úlfinum og manninum er að úlfurinn hefur ennþá sjálfsvirðingu. Í honum býr viljinn til að berjast fyrir lífi sínu og frelsi, og deyja frekar í þeirri baráttu heldur en að lifa í hlekkjum það sem eftir er lífsins. Úlfarnir sem flýðu dýragarðinn á Skáni voru læstir inni og lokaðir í fangelsi en það er fæst mannfólk. Samt lætur það fæst verða af því að streitast á móti kúgurum sínum.

Johan Lindström, forstjóri dýragarðsins á Skáni segir það afar s0rglegt að svona hafi farið vegna þess hversu flókið og tímafrekt verk það er að bygja upp úlfaflokk. En ef Johan hefði einhvern raunverulegan áhuga á dýrunum sem hann hefur fangelsað í fyrirtæki sínu, vissi hann að í eðlislægu umhverfi úlfsins er ekkert flókið við uppbyggingu úlfaflokks. Það er bara náttúrulegt.

Á meðan tveir úlfar grófu sig í gegnum fangelsismúra sína sat stærstur hluti hins siðmenntaða mannfélags og gleymdi því hvað það er að vera á lífi.

Munið eftir smáborgurunum
Borgaravernd minnir á smáborgaranna nú þegar vetur brestur á af fullum þunga.  Smáborgararnir þurfa fjölbreytta fæðu og eiginlega hefur hver tegund sinn matseðill. Og í kuldum brenna þeir miklu til að halda á sér hita.  Fita er það fóður sem hentar flestum borgurum vel í kuldum.

Sem dæmi um matseðla má nefna brauð, epli, fitu, kjötsag, matarafanga handa körlum, sólblómafræ eða páfagaukafræ handa konum, kurlaður maís og hveitikorn handa börnunum, að því er segir í tilkynningu.

Nauðsynlegt er að gefa reglulega. Smáborgararnir þurfa mest á næringu að halda kvölds og morgna. Ýmsir framandi gestir úr heimi borgara, sem hafa lent hér í hrakningum, leita oft á staði þar sem borgurum er gefið.

Nánari upplýsingar um fóðrun má finna á vef Borgaraverndar.

Íslensku hetjurnar – þjóðernisrasistar með tippið sitt á heilanum
Börkur Gunnarsson fór fyrir Íslands hönd í her NATÓ til Bagdad. Lýsingar hans á hátterni sínu þar lýsa opinskátt innræti fólks sem telur sig tilheyra heims elítunni. Aldrei hvarflar að honum að kalla sig og sína menn terrorista á meðan hann talar um uppreisnarmenn í Írak sem terrorista, hryðjuverkamenn. Aftaka ælir, ekki bara á Börk sem persónu heldur samfélagið og stofnanirnar sem skapa fólk eins og hann: heilaþvegin grey með þjóðernisstolt og karlrembu í veganesti.

Hér má sjá myndband eftir Börk horbjóð þar sem hann lýsir, líkt og í blautum draumi, dvöl sinni í Írak:

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="425" height="344" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/4a8FAhBi7D8&hl=en_US&fs=1&" /><param name="allowfullscreen" value="true" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="344" src="http://www.youtube.com/v/4a8FAhBi7D8&hl=en_US&fs=1&" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true"></embed></object>

30 ára afmæli Food Not Bombs – Fyrirlestur í Friðarhúsinu
Fyrirlestur Keith McHenry, stofnanda Food Not Bombs – í Friðarhúsinu, Njálsgötu 87 – Sunnudaginn 10. janúar – kl. 20:00.

Food Not Bombs er alþjóðleg hreyfing sem á rætur sínar að rekja til Bandaríkjanna árið 1980. Venjulegt fólk var orðið þreytt á því að horfa upp á ríkisstjórnina eyða gríðarlegum fjármunum í stríðsrekstur á ári hverju á meðan mikill fjöldi fólks býr á götunni og hefur ekki efni á mat. Í stað þess að bíða lengur eftir aðgerðum stjórnvalda tók fólk málin í sínar hendur og byrjaði að gefa þeim mat sem þurftu og vildu.

Á þessum þrjátíu árum hefur Food Not Bombs hugmyndin ferðast um allan heiminn og nú starfrækja meira en 1000 hópar verkefnið. FNB eru ekki samtök með meðlimaskrá og ekki þarf að skrá sig neins staðar eða biðja um leyfi til að setja verkefnið af stað. Svo lengi sem hugmynda- og aðferðafræði FNB nær til fólks, getur það sett verkefnið af stað. Hér á landi hefur FNB átt sér stað á Lækjartorgi á hverjum laugardegi í tæp tvö ár; frá því í apríl 2008.

Þó FNB snúist að miklu leyti um mat – ójafnan aðgang fólks að mat, framleiðslu hans, sölu, sóun, lífsréttindi dýra  og þar fram eftir götunum – hefur hugmyndafræði verkefnisins stækkað og snýst langt því frá um eitt málefni. Food Not Bombs gæti allt eins heitið Homes Not Jails, Society Not State, System Change Not Climate Change, og svo framvegis.

Food Not Bombs er ekki góðgerðasamtök og er ekki barátta fyrir umbótum heldur fyrir algjörri byltingu; fyrir samfélagi þar sem þarfir fólks vega þyngra en græðgi og ríkidæmi; fyrir heilbrigðu samfélagi.

Keith McHenry er einn af þeim sem stofnaði Food Not Bombs í Bandaríkjunum fyrir þrjátíu árum. Keith eyddi tveimur árum í fangelsi og var hótað lífstíðarfangelsi í Kaliforníu fyrir þátttöku sína í verkefninu. Amnesty International skilgreindi hann og alla þátttakendur FNB sem samviskufanga ef þeir hlytu fangelsisdóma.

Keith er nú á ferðalagi um heiminn þar sem hann segir sögu verkefnisins auk þess að taka þátt í FNB á þeim stað sem hann er hverju sinni. Sunnudaginn 10 janúar nk. verður Keith með fyrirlestur í Friðarhúsi Samtaka Hernaðarandstæðinga, Njálsgötu 87 kl. 20:00. Auk fyrirlestursins  verður sýnd 15 mínútna mynd um FNB í Afríku.

Allir velkomnir! Látið berast!

www.foodnotbombs.net

matur.ekki.sprengjur@gmail.com

Sex rökfærslur gegn öðruvísi iðnhyggju
Nánast allir – allt frá kapítalismum til meginstraums umhverfissinna og anarkista – mæla nú með gífurlegri uppbyggingju öðruvísi iðnvæddri skipulagsgerð sem á að koma í stað hins mjög mengandi iðnaðs dagsins í dag, til að leysa vandamál loftslagsbreytinga. Þetta fólk segir að við þurfum meiri vindorku, meiri sólarorku og haforku, nýja rafmagnsbíla og orkusparandi heimilisáhöld. Ef við gefum okkur að gagnrýni á kapítalisma sé óalgeng þessa dagana, er gagnrýni á öðruvísi iðnhyggju enn sjaldgæfari. Hér eru nokkrar rökfærslur sem yfirleitt er haldið utan umræðunnar.

1. Bygging nýrrar skipulagsgerðar af slíkri stærðargráðu kemur til með að krefjast gífurlegs magns orku og hráefna, sem einungis er mögulegt að framleiða með noktun þeirrar grunngerðar sem nú er til staðar og er knúin áfram af jarðefnaeldsneyti. Það myndi óhjákvæmilega leiða af sér enn auknari útblástur gróðurhúsalofttegunda, nú þegar við þurfum að minnka útblásturinn eins fljótt og auðið er.

2. Framleiðsla þessarar nýju grunngerðar mun krefjast gríðarstórs magns hráefna; langfæst þeirra eru endurnýjanleg og vinnsla þeirra er gífurlega skaðandi umhverfinu. Öðruvísi iðnvædd tækni á borð við vindmyllur, sólarorku-panila og rafmagnsbíla þarfnast mikils magns sjaldgæfra jarðmálma, en birgðir af þeim fara þegar minnkandi sökum uppsveiflu nútíma iðnaðar. Þar að auki á eftir að koma í ljós hvort nægt hráefni sé til staðar til að framleiða nóg af vinmyllum og sólarpanilum sem geta haldið uppi orkuneyslu dagsins dag eða hvers konar verulegri iðnvæddri framleiðslu yfir höfuð.

3. Hin nýja bylgja grænnar framleiðslu setur mikla pressu á að nýjar námur séu opnaðar og að nýjar verksmiðjur reistar. Þessar nýju námur og aðrar leiðir sem notaðar eru til hráefnisvinnslu munu óhjákvæmilega rústa samfélögum þeirra svæða sem umlykja auðlindirnar. Meira að segja Jana Hartline, umhverfis- og samskiptastjóri Toyota viðurkennir: ,,Námugröftur, óháð því í hvaða formi og með hvaða leiðum hann fer fram, er aldrei umhverfisvænt ferli. Það er eðli skepnunnar.”

4. Ef iðnvædd framleiðsla ætti að vera vistfræðilega sjálfbær þyrfti hún að vera lokuð lykkja þegar kemur að óendurnýjanlegri orku. Með öðrum orðum: 100% endurvinnanleg. Það er ómögulegt, jafnvel með allri tækni dagsins í dag.

5. Spurning sem and-yfirvaldssinnar ættu ekki að vanmeta, er hvort mögulegt sé að viðhalda stórtækum samvinnurekstri og ítarlegri sérþekkingarskiptingu sem hvers kyns iðnvædd framleiðsla krefst, án þess að falla inn í stigskipt skipulagskerfi. Þetta er ekki léttvægt: skipulag CNT, anarkísku verkalýðshreyfingarinnar sem stjórnaði stórum hluta iðnvæddrar framleiðslu á sumum hlutum Spánar á meðan borgarastyrjöldinni stóð, var byggð upp með í það minnsta sex þrepum stigveldis.

6. Það tekur tíma að byggja nýja skipulagsgrunngerð og þann tíma höfum við ekki. Það eru skiptar skoðanir á því hvort það sé yfir höfuð mögulegt að hægt sé að byggja upp nokkurs konar öðruvísi og græna grunngerð, nógu fljótt til að geta þjónað hlutverki einhvers konar staðgengils núverandi grunngerðar.

Allt þetta þýðir að ef við viljum stöðva hnattræna hlýnun jarðarinnar verðum við að fara að spyrja okkur á gagnrýninn hátt út í traust okkar á iðnvædda framleiðslu og skipulagsgerð. Við verðum að setja vindorku, sólarorku og allar aðrar iðnvæddar lausnir á lista falskra lausna, við hlið lífræns eldsneytis, kjarnorku og svokallaðri hreinni kolatækni. Eins fljótt og við getum verðum við að gera það eina sem getur mögulega sem getur komið í veg fyrir eyðileggingu þeirra lífkerfa sem halda okkur á lífi: minnka iðnvædda neyslu og framleiðslu okkar að þminnstu mögulegu mörkum.

Þessi texti birtist upphaflega á ensku í nýútkomnu tímariti, Dealing with Destraction – Confronting Green Capitalism in Copenhagen and Beyond, sem kom út í tilefni andófsins gegn Cop15 ráðstefnunnar í Kaupmannahöfn. Tímaritið fá finna á tölvutæku formi hér.

„Íslendingar varið ykkur…“
Eftirfarandi texti er þýddur af dönsku Indymedia síðunni:

Snemma morguns miðvikudaginn 16. desember, var ráðist gegn íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn. Eftirlitsmyndavél var gerð vanhæf með spreyi, íslenska skjaldamerkið afmyndað með sama hætti, grænni málningu var atað út um veggi hússins og á framhurð þess, og með stórum stöfum var ,,Græn orka – hreinar lygar“ m.a. skrifað.

Íslenska ríkisstjórnin grobbar sig af yfirburðum sínum í framleiðslu á ,,grænni“ orku en í raun er ekkert til sem heitir græn orka, sérstaklega ef hún er notuð til að knýja stóriðju. ,,Græn“ orkuframleiðsla er alveg jafn skaðleg umhverfi okkar og önnur orkuframleiðslu, áhrifin eru einungis betur falin. Lífkerfi jarðarinnar þjást vegna athafna mannsins. Þessu verður að linna.

Kaupmannahöfn er nú útötuð áróðri um ,,grænar“ lausnir og ,,grænan“ kapítalisma. En engar raunverulegar breytingar eru í sjónmáli. Lausnirnar eru ekki raunverulegar. Kapítalisminn heldur áfram að éta í sig allt líf á jörðinni.

Af ásjónu Kaupmannahafnar að dæma er það alveg ljóst að grænn er ekki litur náttúrunnar heldur dulargervi kapítalismans.

Íslendingar varið ykkur – misgjörðir ykkar sleppa ekki undan refsingu.

Aftaka tekur undir. Þetta var algjör lágmarks refsing.